Morgunblaðið - 02.08.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
31
Suður-afrísku
sendiráði lokaö
WellingUm, Nýja-SjáUndi, 1. ágúat AP.
YFIRVÖLD í Suður-Afriku tilkynntu
f dag að þau hefðu lokað sendiráði
sínu í Nýja-Sjálandi, eftir viðvaranir
frá ný-sjálensku stjórninni um að því
yrði lokað til að mótmæla minni-
hlutastjórn hvítra manna í Pretoríu.
David Lange, forsætisráðherra
Nýja-Sjálands, sagði fyrr í vik-
unni að sendiráðinu yrði lokað
innan fárra mánaða, til að mót-
mæla aðskilnaðarstefnu i Suður-
Afríku.
Robert Muldoon, fyrrverandi
forsætisráðherra Nýja-Sjálands,
gagnrýndi ákvörðun nýju stjórn-
arinnar á þeirri forsendu að önnur
ríki, s.s. Sovétríkin, fengju að hafa
stór sendiráð á Nýja-Sjálandi,
þrátt fyrir að þau væru þekkt
fyrir allt annað en góða stefnu í
mannréttindamálum.
Lange fullyrti að lokun sendi-
ráðsins hefði engin áhrif á við-
skipti milli þjóðanna tveggja og
væri það stefna stjórnar hans að
opna tvö sendiráð í Kenýa og Níg-
eríu, en þar ráða svartir menn.
Vann í happdrætti;
dó hálfu ári síðar
Toronto. I. ágvst AP.
MAÐUR nokkur í Kanada, sem
vann hæsta happdrættisvinning
þar fyrir um 6 mánuðum, lést úr
krabbameini á sunnudag, 57 ára
að aldri.
Stuart Kelly fékk rúmlega 11
milljónir bandarikjadala í vinn-
ing i janúar og fullyrti hann að
peningarnir myndu ekki breyta
lífi hans né eiginkonunnar, því
„hamingjan verður ekki mæld í
peningum”. Hann hætti þó vinnu
sinni sem vörubílstjóri og settist
í helgan stein.
Vinningur Kellys var sá hæsti
sem um gat í Norður-Ameriku,
en síðan þá hafa tveir vinningar
í Bandaríkjunum verið hærri.
Flugránið á Kanbahafi:
Ræningjarnir hótuðu
að kveikja í vélinni
Caracas, Venezúela, 1. ágúst AP.
GÍSLARNIR um borð í vélinni sem rænt var á Karíbahafi á mánudag, þustu
út um neyðardyr vélarinnar þegar ræningjarnir hótuðu að kveikja í vélinni.
Höfðu þeir þá verið í gíslingu í 36 stundir. Yfirmaður lögreglustormsveitar-
innar, sem réðst inn í vélina og skaut ræningjana tvo til bana, sagði að
lögreglumennirnir hefði neyðst til að ráðast inn í vélina, þegar allar samn-
ingaleiðir höfðu verið reyndar árangurslaust.
Yfirmaðurinn sagði að aðeins mennirnir fjórir inn í vélina og
fjórir lögreglumenn hefðu tekið
þátt í aðförinni að vélinni og sagði
að björgunaraðgerðirnar hefðu
tekist svona, vegna þess að þeir
gátu séð ræningjana i gegnum
glugga vélarinnar og því borið
kennsl á þá tafarlaust þegar þeir
réðust um borð.
skutu ræningjana til bana. Enginn
farþeganna slasaðist.
Ræningjarnir höfðu krafist 2—5
milljóna bandarikjadala og vopna
í skiptum fyrir gislana, en neitað
var að verða við óskum þeirra til
að gefa ekki öðrum flugræningj-
um fordæmi.
Einn farþeganna sagði að lög-
reglan hefði ekkert hafst að, fyrr
en ræningjarnir hófu skothríð á
eftir farþegunum sem hlupu út
þegar einn ræningjanna kveikti i
dagblaði og hótaði að kveikja i
farþegarými vélarinnar. Þegar
skothriðin hófst, þustu lögreglu-
Farþegarnir héldu ró sinni mest
allan tímann, en þegar liðið var á
annan dag frá þvi að vélinni var
rænt, voru margir aðframkomnir.
Mjög heitt var f vélinni og stund-
um skipuðu ræningjarnir fólkinu
að sitja þráðbeint í sætunum og
horfa fram.
Franskur læknaprófessor, Jean-Louis Martineau, opnar dyr að grafhýsi í
kastala sínum í NueikSur-Layon, þar sem lík konu hans er geymt fryst
Stutt er síðan frú Martineau lézt en eiginmaður hennar, sem hefur fengið
viðurnefnið Frost læknir, gerir ráð fyrir að hún vakni aftur til lífsins
þegar lík hennar hefur verið varðveitt frosið í nokkurn tíma. Martineau
trúir staðfastlega á líf eftir dauðann.
AP