Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
íslenski torfbær-
inn og byggingarlist
Garðhús Þórðar Ben.
— eftir Tryggva
Gunnar Hansen
Torfumóðir er nýtt tímarit um
íslenskar menningarhefðir.
Hleðslulist er efni þessa rits, þar
er skoðað hvernig hin bjartasta
framtíð byggir á gömlum hefðum í
byggingarlist. Þórður Ben
Sveinsson myndlistarmaður ritar
um byggingarlist fyrir íslenskar
aðstæður. Hann talar um nauð-
synlegt endurmat á aðferðum, sem
nú tiðkast við húsagerð hér á
landi. Hús Þórðar skiptist í burð-
arveggi, einangrun, loftrúm og
veðrunarveggi úr náttúrulegu
efni, sem ekki eru málaðir en hafa
sína náttúrulegu áferð. Þessi
hugsun lauslega kynnt hér er
skyld þeim aðferðum sem þróuð-
ust hér á þúsund árum, þ.e. í torf-
bænum, þar er burðargrind úr
timbri og þá kemur einangrun og
loftrúm og loks hlaðinn veggur úr
náttúrulegu efni, i hrynjanda við
umhverfi sitt.
Nú vaknar spurningin: Hvernig
er hægt að koma þessu við nú í
dag, að tengja hinar gömlu aðferð-
ir hefðarinnar, sem svo lengi hafa
þróast og aðlagast að náttúru
landsins, við hinar nýrri aðferðir
og kröfur um gæði nútimahúss? í
stuttu máli má sjá gæði hins vel-
byggða torfbæjar; að hann er
timburhús, því er valinn staður á
hól, þar sem stutt er í vatn, læk
eða brunn. Þar er þurrt og þvi er
húsið grafið að hluta niður og
jarðvegur hlaðinn upp að þvi en þó
svo að loftrúm er og loft leikur um
viðinn og jarðvegurinn er lagður
yfir þekjuna meða sama hætti.
Nú þarf að huga að einu mikil-
vægu atriði áður en lengra er
haldið. Sá jarðvegur sem Hörður
Ágústsson kallar „moldir", og þar
á hann ekki við mold i venjulegri
merkingu, hann er einmitt alls
ekki mold, það er mórinn. Efni það
sem hefðin geymir og íslendingar,
arkitektar jafnt sem aðrir, hafa
ruglast og kallað mold og húsin
moldarkofa, það er mór og torf og
grjót.
Þessi hefð sem hefur þróast um
þúsundir ára er þegar orðin hefð
þegar ísland byggðist, á írlandi og
viða um meginlandið norðlægt. Ef
mórinn er skoðaður út frá reynslu
hleðslumannanna okkar fáu sem
eftir eru. Stefán Stefánsson á
Brennigerði í Skagafirði lýsir því
svo þegar hann er að rífa
klömbruvegg að efnið sé hart eins
„Vel hlaöinn veggur úr
torfi og grjóti er ekki
síður endingargóður en
steinsteyptir veggir og
getur enst hundrað
og steinn eða frosin jörð og þarf
því að höggva móinn niður.
Eins er svo sagt frá i iðnsögu
íslands að þegar veggur er þjapp-
aður þarf svo vel að þjappa að
vatn sem látið er standa í veggn-
um yfir nótt sé á sínum stað að
morgni (reyndar er talað um að
pissa í vegginn). Þegar mórinn var
notaður til einangrunar á rör hita-
veitunnar um og eftir strið þá var
hann þjappaður reiðingur úr 10
sm í 5 sm og varð við það drag-
heldur. Sveinn Einarsson á Egils-
stöðum, hleðslumaður, man eftir
því þegar borið var grjót á reið-
ingstorfu með fjöl yfir að hún varð
stinn eins og motta og ryklaus
með öllu.
Að framansögðu og með varnar-
orð hleðslumanna i huga að gera
ekki of mikið úr hlutunum og
þjappa vegginn vel má segja að vel
hlaðinn veggur úr torfi og grjóti
sé ekki siður endingargóður en
steinsteyptir veggir og getur enst
hundruð ára, og má i því sam-
bandi vísa til veggja frá land-
námsöld, sem Ásbjörn vegghamar
hlóð í Njarðvíkum eystri og getið
er um í Fljótsdælu. Enn má sjá
þann vegg sumstaðar í brjósthæð
þar sem gott er undirlag. Þ.e.a.s.
vel gerður veggur úr góðu efni er
byggingaraðferð sem má skoða
sem möguleika fyrir islenska
byggingarlist og þá er ég að tala
um hinn hefðbundna islenska vegg
og engar nýjungar og þá verður að
fara eftir reglum um vel valið efni
og enga mold.
Sá sem áttar sig á eðli efnisins
og gerir sér grein fyrir gildi hefð-
arinnar getur leyft sér að fara að
tala um nýjungar og þá byggja
þær nýjungar á því sem fyrir er.
Sú nýjung sem hér verður rædd
er í beinu framhaldi af umræð-
unni hér á undan um efni, þ.e. ef
mórinn er skoðaður og efnasam-
setning könnuð kemur i ljós að hér
er afbragðs byggingarefni. Þessi
efni eru lignin, kolefni, prótein og
vax auk snefilefna sem hér hafa
ekki þýðingu. Lignin er trénið i
jurtinni og hefur bræðslumark um
200°C og það hefur bindieigin-
leika. Vaxið er þéttiefnið, það
hrindir frá sér vatni. Út frá aðeins
þessu verður að álykta að þegar
veggurinn eldist og þar sem vel er
þjappað að trénið i jurtinni leysist
upp og myndi binding en vaxið ver
vel troðinn vegginn vatni. Það sem
hér er rætt er upphafið að nýjum
verkháttum og ætti nú að vera
augljóst hvert stefnir.
Með þvi að framkalla þetta ferli
sem gerist við eldingu veggjarins,
þ.e. að pressa og hita móinn, höf-
um við eignast íslenskt byggingar-
efni sem er fullkomlega sam-
keppnisfært við steinsteypu og
við.
Þá komum við aftur að arkitekt-
úr Þórðar Ben, sem í upphafi var
Norðurstafn gömlu bæjarhúsanna í Laufási í Eyjafirði. Handverk Magnúsar
Snsbjarnarsonar.
Ormlaga klumbruveggur við íbúðarhús á Egilsstöðum.
nefndur, það nefnir hann arkitekt-
úr fyrir íslenskar aðstæður. Að-
ferðirnar eru i sjónmáli að byggja
hús úr þjöppuðum „mósteinum"
sem veðrunarveggi og jafnvel
heilu einingarnar því mórinn er
fljótandi á vinnslustigi og fellur
vel í mót eins og fjölframleiðsla
gerir ráð fyrir. Arkitektúr Þórðar
gerir ráð fyrir samsetningu af
þungum og léttum efnum, steini
og gleri og er það vel að tengja
þannig saman himin og jörð því
ekki eru það íslenskar aðstæður
nú að búa inn í jörðinni og sjá ekki
útúr augum. íslenskur arkitektúr
þarf að líta sér nær og ekki ein-
vörðungu á skólabók heimsmenn-
ingarinnar heldur út í víðáttur
heiða landsins og í eigið brjóstvit
og víðáttur ástríðufullrar hugsun-
ar sem byggir á þekkingu á hefð-
bundnum aðferðum. Og vissulega
er það þröngur hringur sjónar að
ekki skuli vera sjálfstæður skóli
til í þessu landi sem heitir íslensk-
ur arkitektúr. Allt er það á sömu
bókina lært, heimsmenningarinn-
ar, og lítill vilji fyrir því hjá þeim
byggingarmönnum nútímans þar
sem ég þekki til að slíkur skóli
verði að veruleika. Og þó er hér
ekki verið að gæla við einangrun-
arhugmyndir heldur það að hugsa
sjálfstætt og til rótar. Látum svo
verða og byggjum yfir andann,
rannsóknarvinnustofu íslenskrar
byggingarlistar. Hristum af okkur
móðurlausar ungar hefðarleysur
nytjahyggju steypukassans. Ég vil >
taka það fram að ég er ekki I
stríðshugleiðingum við íslenskan
arkitektúr nútímans né heldur þá
sem þar eru að verki. Ég er að
skoða hefðir og gefa í skyn áfram-
hald. íslenskðr torfbær er lífvera.
Þegar rakin er saga bæjar eins og
Hörður Ágústsson hefur verið að
gera þá má sjá hvernig þessi líf-
vera „iðar { skinninu", húsin
stækka og minnka og vaxa í eina
áttina og deyja í aðra eftir þörf-
um. Grjótið liggur í fallinni tóft
og bíður þess að það verði þörf
fyrir það á nýjan leik. „Það er
ævarandi eign,“ segir í iðnsögu ís-
lands. Ég er að fjalla um nýjar
víddir en ekkert er nýtt undir sól-
inni. Það sem er nýtt í þessu eru
aðeins við, við sjáum bæinn á nýj-
an leik og alla þessa lifandi heild
sem er sagan, dalur og bær og
himinn. Við verurnar, við erum
ótæmandi möguleikar, þurfum
ekki að hafna neinu, allra sist
hinni ævintýralegu sögu, karl og
kerling í koti. Þetta er spurning
um þarfir, garðurinn, garðhleðsla,
húsið, það er skjól, hlýja. Hvað
hefur svo sem breyst?
Tijggri Gunnar Hansen er torf- og
grjóthleðslumaður.
| raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Skrifstofuhúsnæði
til leigu
Til leigu er ca. 110 fm skrifstofuhúsnæöi á
besta stað í gamla bænum.
Upplýsingar hjá Arkitektum, Þingholtsstræti
27, símar 10870 og 15445.
óskast keypt
Vélsmiöja eða
vélaverkstæði
Óskast til kaups eöa leigu. Tilboö sendist á
augl.deild Mbl. fyrir 10. ágúst merkt: „A —
3704“.
| fi|
til sölu
Vegaræsi
Eigum fyrirliggjandi rör í vegaræsi, rillustyrkt,
mjög sterk úr gavj-efni. Stæröir: 10, 12, 14,
16, 18, 20, 22, 24, 26, 28, 30, 32, 40, 44 og 48
tommur.
Nýja Blikksmiöjan hf.,
Ármúla 30. Sími 81104.
Samborgarar
Hjálp óskast til aö koma smábát í lag.
Er 62 ára öryrki og hef í tekjur 10.189 kr.
Viögeröin kostar 25.000. Er bjarglaus án
bátsins.
Svar sendist augld. Mbl. fyrir 10. ágúst,
merkt: „Hjálp — 3706“.
Frá stjórn Félags sjálf-
stæðismanna í Nes- og
Melahverfi
Gjaldkeri lelagsins minnlr þá félagsmenn sem ekki hafa greitt félags-
gjald starfsáriö 1983—1984 aö gera þaö sem fyrst.
Jafnframt mlnnir gjaldkerinn fulltrúaráösmeöliml á aö þelr fá ekki
afhent fulltrúaráösskírteinlö fyrr en þelr hafa greitt ársgjaldlö.
Þess vegna hvetjum viö ykkur alla, jafnt félaga sem fulltrúa aö gera
skil nú þegar. Greiösluna má Inna af hendl i öllum bönkum, sparisjóö-
um svo og aöalpósthúsinu og útibúum þess.
Takmarkió er: Verum öll skuldlaus fyrir næsta aöalfund félagsins.
Stjórnln