Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 50

Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 Eiginmaöur minn. t HJÁLMAR MAGNÚSSON, Nýjalandi (Gardi, varö bráökvaddur 13. júli. Sigrún Oddadóttir. t Unnusti mlnn, sonur og bróðir, JÓNATAN VALGARÐSSON, Framnesvegi 17, lést af slysförum 17. júlí. Jaröarförin auglýst síöar. Margrét Jónsdóttir, Þórlaug Bjarnadóttir, aystkini. t Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, sonur, afi og tengdafaölr, BJÖRN SIGURDSSON, Rauóarérstíg 20, lést í Landakotsspítala 31. júlí sl. Ása Ragnheiöur Ásmundsdóttir, Guörún Björnsdóttir, Benedikt Haröarson, Siguröur Hreinsson, Ása Hlín Benediktsdóttir. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, ÞORVALDUR ARINBJARNARSON, toltvðröur, Hlföavegi 32, Njaróvík, lést í Borgarspítalanum 1. ágúst sl. Rannveig Filippusdóttir, Rannveig Þorvaröardóttir, Þórarinn Arnórsson, Gunnar Þorvaröarson, Hrafnhildur Hilmarsdóttir, barnabörn. t Móöir mfn og amma, HAFLIÐÍNA GUÐRÚN HAFLIDADÓTTIR tré Fossi é Rangárvöllum, Hvolsvegi 17, Hvolsvelli, lést 17. júlí. Útför hennar fór fram 28. júli frá Skaröskirkju ( Landssveit í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Fyrir hönd vandamanna, Guörún Inga Magnúsdóttir, Magnús Benediktsson. t SÆMUNDUR EIRÍKSSON Iré Berghyl til heimilis aö Hraunteig 19 er lést 29. júlí, veröur jarösunginn aö Hruna, laugardaginn 4. ágúst kl. 14.00. Ferð verður frá Umferöarmiöstööinni kl. 11.30. Vandamenn. t Sambýlismaöur minn, GUÐMUNDUR Á. EYJÓLFSSON, fré Hraundal, sem lést fimmtudaginn 26. júlí, veröur jarösunginn frá ísafjaröar- kirkju í dag 2. ágúst kl. 14.00. Fyrir mina hönd og annarra vandmanna. Bjarney Guömundsdóttir. Ingólfur Jónsson fv. landbúnaðar- ráðherra — Kveðja Við andlát Ingólfs Jónssonar fv. landbúnaðarráðherra og alþing- ismanns hljótum við bændur, sem verka hans nutum, að staldra við og líta yfir farinn veg. Að sjálf- sögðu hafa bændur átt marga góða málsvara á Alþingi fslend- inga og ber þeim margt að þakka. En á engan þeirra er hallað þó sagt sé að þar hafi Ingólfur Jóns- son borið höfuð og herðar yfir alla hina. Ingólfur var skyldu sinni trúr, honum mátti treysta, þegar Ingólfur iofaði stóð það sem stafur á bók, óhaggað á hverju sem gekk. Margt af því, sem Ingólfur Jónsson barðist fyrir og kom fram, var ekki vinsælt af sumum samráðherrum hans, sem ljóst og leynt höfðu látið sínar skoðanir í ljós á landbúnaðarmálum. Þá ekki síst varðandi útflutningsbætur á landbúnaðarvörur. En Ingólfur kom á 10% reglunni, sem kunnugt er. Ingólfi varð hvergi haggað, það sem hann sagði af sannfæringu sinni, það hlaut að verða að veru- leika, hvort sem mönnum líkaði betur eða verr. Hann var óvenju traustur maður og heilsteyptur, ákveðinn og sókndjarfur. Ekki þekkti ég Ingólf persónulega, en ég naut verka hans og ég mætti þar sem hann var ræðumaður og til svars á fundum. Það leyndi sér ekki festan og heiðarleikinn, hann hlaut að heilla okkur, sem sann- leikanum unnum. Það var engin moðveglja í málflutningi þessa trausta útherja, sem bændastéttin hefur átt um langt árabil. Það var annað búskaparárið mitt, óþurrkasumar það mesta sem menn mundu. Ég var getulít- ill barnakarl, að glíma við búskap- arbaslið verkfæra- og vélalaus. Það var vonlaust að leggja útí traktorskaup það ár, 1955, hjá mér, þó Ferguson með sláttuvél kostaði ekki nema kr. 28.000. En ekki bar næsta framtíð farsæld f fari sínu, því næsta ár, þegar varla varð hjá þvf komist að kaupa dráttarvél, þá kostuðu þess- ar sömu vélar yífir kr. 50.000, — hreint út sagt rothögg. Þá sagði Ingólfur Jónsson þessi ógleyman- legu orð: „Bíðið bændur með traktorskaupin, við tökum bráðum við stjórnartaumunum, þá skulum við hjálpa ykkur, svo að gagni verði.“ Vissulega var slfkum orð- um stjórnmálamanns mátulega trúað. En menn höfðu þó álit á Ingólfi og vildu sannreyna orð hans. Því biðum við með frekari t Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu, langömmu og langa- langömmu, GUÐRÚNAR FRIÐFINNSDÓTTUR, fyrrum húsfreyju é Böggvisstööum, sem andaöist á Fjóröungssjúkrahúsinu Akureyrl 26. júli, fer fram frá Daivíkurkirkju föstudaginn 3. ágúst kl. 14.00. Jarösett veröur aö Upsum. Hildur Loftsdóttir, Bergljót Loftsdóttir, Guöjón Loftsson, Björgólfur Loftsson, Garöar Loftsson, Þórgunnur Loftsdóttir, Ásgeir Sigurjónsson, Léra Loftsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Sigriöur Loftsdóttir, Magnús Jónsson, Aðalsteinn Loftsson, Jónlna Kristjénsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. t Eíginmaöur minn, faöir og tengdafaðir, SKARPHÉÐINN MAGNÚSSON, Hraunbæ 92, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 3. ágúst kl. 13.30. Aöalheióur Siguröardóttir, Magnús Skarphéöinsson, Reynir Skarphéöinsson, Sigrún Jónsdóttir Kundak, Omer B. Kundak, Sig. Ægir Jónsson, Helga Guömundsdóttir og barnabörn. t Þökkum öllum sem sýnt hafa okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR PÁLSDÓTTUR, Kaplaskjólsvegi 11. Þórhildur Jónsdóttir, Kristín Þóröardóttir, Magnús Axelsson, Jens Jónsson, Valdís Kristmundsdóttir, Valur Péll Þóröarson, Erla Þórðardóttir og barnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, BJARGMUNDUR ÓSKAR TRYGGVASON, Öldugötu 48, Hafnarfirði, lést í Borgarspitalanum 22. júlí. Jaröarförin hefur fariö fram. Þökk- um innilega auösýnda samúö. Kristín Þréinsdóttir, Margrét Bjargmundsdóttir, María Bjargmundsdóttir, Þorgeröur Bjargmundsdóttir, Jakob H. Richter, og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur, ömmu og lang- ömmu, KATRÍNAR BERGRÓSAR SIGURGEIRSDÓTTUR, Aöallandi 1, Raykjavfk (éöur Hólmgaröi 37). Sveinn Sigurösson, Sigurdís B. Sveinsdóttir, Siguröur I. Sveinsson, Halldóra S. Guönadóttir, Sigrún Sveinadóttir, Vignir Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. vélakaup að sinni. Nú, svo tók við- reisnarstjórnin við stjórnartaum- unum og Ingólfur varð landbúnað- arráðherra. Hann hafði ekki gleymt orðum sínum, þá frekar en endranær. Hann vann ekki ein- ungis að því að lækka stórlega eða fella niður aðflutningsgjöld af landbúnaðarvélum og þar með dráttarvélum, hann opnaði einnig lánadeild, sem lánaði bændum hluta andvirðis vélanna til 6 ára með allgóðum kjörum, sem allir réðu við. Þessi vinargreiði varð bændum ómetanlegur. Það mátti segja, að flóðgátt opnaðist, nýjar díseldráttarvélar flæddu inní landið, ásamt fleiri góðum tækj- um. Nú urðu benzínvélar úreltar. Þetta var byltingu líkast, reyndar gjörbreytti öllum störfum bónd- ans og afkomu bændafólks, sem gjörbreyttist í kjölfarið. Nú var í garð gengið framfaratímabil sveitafólks. Þrátt fyrir mikið vinnuálag þessa fólks, léttu vél- arnar verkin og juku afköstin. Uppbygging og ræktun tóku fjör- kipp, búin stækkuðu og fram- leiðsluaukning varð. Veltan varð stærri, bændafólk gat látið meira eftir sér, þekktist ekki lengur frá öðru fólki vegna klæðnaðar og þreytumerkja, og þannig er það, þrátt fyrir það þó bændur séu enn þann dag i dag undir miklu vinnu- álagi og mikilli ábyrgð hlaðnir. Ekki er það I anda Ingólfs Jónssonar, sem nú er um skrifað í blöð, að skera skuli bændur niður við trog, eða hella niður mjólkinni fyrir þeim, til að knýja þá til að leggja niður búskap. Það er köld kveðja, sem bætist við áhyggjur vegna óþurrka og annarra erfið- leika. Slíkt siðleysi, sem slíkur málflutningur er, telst ekki aðeins til atvinnurógs, heldur hrein föð- urlandssvik og landráð. Þeir menn sem leggja nafn sitt og æru við slíka iðju eru ekki íslendingar i eðli sínu og ekkert annað en föð- urlandssvikarar. Hugsjónamaðurinn Ingólfur Jónsson vissi manna best hvað gera þurfti þegar vanda bar að. Hann var sá maður sem tókst á við vandann af visku og velvild, dugnaði og ráðdeild. Það sem hér hefur verið nefnt og margt fleira, sem Ingólfur Jónsson beitti sér fyrir, var bændum ómetanlegt í oft harðri baráttu við að koma fót- unum undir sig i baslinu. Við bændur stöndum í mikilli þakk- arskuld við þennan látna heið- ursmann. Nafn hans kemur ætið i hugann þegar góðs samherja er getið. Ég á ekki betri ósk til bændafólki til handa, reyndar þjóð minni allri, en þá að okkur auðnist að eignast slíka málsvara á Alþingi íslendinga, sem Ingólfur Jónsson var. Ég vil trúa þvi og treysta að arftakar hans leggi metnað sinn og manndóm i það að feta í fótspor hans af sömu dáð og drengskap, sem hans var venja. Þá mun elsti undirstöðuatvinnuvegur þjóðar- innar dafna og færa þjóðinni ómældan auð um ókomna framtíð. í þeirri von lifum við, að svo verði, þannig verður minning þessa heið- ursmanns best varðveitt með ís- lendingum. Þannig hefði best orð- ið við óskum Ingólfs Jónssonar, hann var Islandi allt. Við bænda- fólk flytjum föllnum foringja bestu þakkir við leiðarlok. Blessuð sé minning hans. Valgarðtir L. Jónsson frá Eystra-Miðfelli.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.