Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
51
Minning:
Guðrún Helga
Rögnvaldsdóttir
Þótt elli og sljóleiki sæki nú æ
fastar að mér með hverjum degin-
um sem líður, get ég ekki látið hjá
líða að kveðja Guðrúnu Rögn-
valdsdóttur mágkonu mína með
örfáum fátæklegum orðum frá
mér og konu minni, svo löng voru
kynni okkar orðin og öll á þann
hólms. Þar ólst Guðrún upp. í
Stykkishólmi gerðist Rögnvaldur
einn af bestu skipasmiðum
Breiðafjarðar. Fagurt bátalag,
hagleikur og traust vinnubrögð
einkenndu báta hans. Dætur hans,
Guðrún og systur hennar, erfðu
hagleik föður síns. Gerðust miklar
sauma- og hannyrðakonur. Var
handavinna þeirra og handbragð
til fyrirmyndar og bar af flestu
sem sást í nágrenninu.
Guðrún giftist Gísla Kr. Skúla-
syni húsgagnasmíðameistara 8.
október 1932, og stóð heimili
þeirra hér í Reykjavík upp frá því.
Lengst áttu þau heima á Þór-
oddsstöðum við Reykjanesbraut.
Ekki varð þeim hjónum barna
auðið, en kjörsonur þeirra er Skúli
Kristinn Gíslason vélstjóri. Hann
er kvæntur Kristínu Gunnarsdótt-
ur, og búa þau hér í borginni. Var
Kristín tengdaforeldrum sínum til
mikillar ánægju og annaðist þau
af mikilli fórnfýsi og nákvæmni
eftir að þau óvænt og skyndilega
misstu heilsuna á þessu ári.
Nú er því stríði lokið hjá Guð-
rúnu Rögnvaldsdóttur, en maður
hennar liggur veikur í sjúkrahúsi
þegar þessi orð eru fest á pappír
og mun varla fær um að fylgja
konu sinni síðasta spölinn til graf-
ar. Mun honum það þung raun
ofan á aðra reynslu áranna.
Þessi kveðjuorð frá okkur Ingu
verða ekki fleiri.
„Drottinn minn
gefi dauðum ró,
en hinum líkn, er lifa.“
B.Sk.
veg að þau ber okkur að þakka og
geyma það sem eftir er ævinnar.
— Guðrún verður okkur ógleym-
anlegur förunautur.
Hér verður engin saga sögð. En
Guðrún fæddist á Straumi á Skóg-
arströnd 21. júlí 1905 og andaðist
hér í Reykjavík 25. júlí sl. Voru
foreldrar hennar Rögnvaldur Lár-
usson bóndi á Straumi og kona
hans, Guðrún Jósefína Krist-
jánsdóttir. Þegar Guðrún Helga
var fárra vikna gömul dó móðir
hennar. Brá faðir hennar þá búi á
Straumi og fluttist til Stykkis-
Leiðrétting
1 frétt um útför Þuríðar Gísla-
dóttur í Reynihlíð sem birtist I
Morgunblaðinu 1. ágúst sl. misrit-
aðist nafn móður Þuríðar. Hún
hét Helga Helgadóttir. Þá var
rangt farið með fæðingarár og
aldur Þuríðar. Hún var fædd 31.
júlí 1895 og var því 88 ára þegar
hún lést. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Pennavinir
Sautján ára japönsk stúlka með
lestrar- og tónlistaráhuga:
Hanako Noda,
9-6 Noda 4-chome,
Kuwana City MIE,
511 Japan.
Brezkur knattspyrnuáhugamaður,
sem vill skiptast á myndböndum
með knattspyrnuleikjum:
F. Jones,
49 Brookhouse Road,
Oswestry,
Shropshire,
England SY 11 2 JW.
Frá Svíþjóð skrifar karlmaður
með áhuga á bókmenntum og
sögu. Getur ekki um aldur:
Wilhelm Nils Gustaf Nordström,
Box 3063,
SE-81103 Sandviken 3,
Sverige.
Fimmtán ára japanskur piltur
með áhuga á frfmerkjum:
Yoshinori Hasegawa,
943 Fuziagu OU City,
Gumma 3704)4,
Japan.
Fimmtán ára sænsk stúlka með
áhuga á útiveru, tónlist, íþróttum
o.fl.:
Malin Söderback,
Murkelgatan 45,
603 70 Norrköping,
Sverige.
t Alúöarþakkir til allra sem minntust,
RAGNARSJÓNSSONAR
meö viröingu og vinarhug. Þökkum samúö og hlýhug. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks B-deildar Borgarspítalans, Reykjalundar og Land- spítalans.
Björg Ellingsen, Auöur Ragnarsdóttir, Jón Óttar Ragnarsson, Edda Ragnarsdóttlr, Valva Á. Fuller, Erna Ragnarsdóttir, Davíð Helgason, Elfa Gfsladóttir, Arni Guöjónsson, Thomas G. Fuller.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö vegna fráfalls eiglnkonu
mlnnar,
HELGUJÓNSDÓTTUR.
Kristjén Jónsson fré Hnífsdal.
t
Innllegar þakkir til allra þelrra sem sýndu okkur samúö og vlnar-
hug viö fráfall og jaröarför elglnmanns mfns, fööur okkar og bróö-
ur,
SIGURJÓNS SIGURGEIRSSONAR,
Hlfö, Austur-Eyjafjöllum.
Guörún Eirfksdóttir, börn
og systklni hins létna.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vlnáttu viö fráfall
HJÁLMARS ÓLAFSSONAR.
Nanna Björnsdóttir,
Vigdís Esradóttir, Einar Unnsteinsson,
Dóra Hjélmaradóttir, Robart Frank,
Björn Hjélmarason, Herdfs Haraldsdóttir,
Helgi Hjélmarsson, Helga Waage,
Ólafur Hjélmarason, Elríkur Hjélmarsson
og aörir aöstandendur.
t
Innilegar þakkir tll landsins góöa fólks sem helöruöu mlnningu
mannsins mfns,
BÁRDAR JAKOBSSONAR,
hasstaréttarlögmanns,
Blönduhlfð 4
og vottuöu mér samúö sfna og hjálp á margvfslegan hátt f veiklnd-
um hans og vlö útför hans.
Guö blessi ykkur öll.
Guörún I. Jónsdóttir.
t
Innilegar þakkir tll allra þeirra sem sýnt hafa okkur samúö og
hlýhug viö 'ráfall og útför eiglnmanns míns, fööur okkar, tengda-
fööur, afa og langafa,
BJARNA GUÐMUNDSSONAR,
Strandgötu 10,
Neskaupataö.
Léra Halldórsdóttir,
Sigurbjörg Bjarnadóttir, Hjörtur Árnason,
Birna Bjarnadóttir, Hjélmar Ólafsson,
Guömundur Bjarnason, Klara fvarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Láttu þérlíðavel
Gefjunarteppi er góður ferðafélagi. Það skýlir,
yljar og prýðir. Taktu það með í ferðalagið
hvert sem er - hvenær sem er^
r, vetur, vor og haust. CSSJÍilil
sumar,
LEIÐANDI I LIT OG GÆÐUM
í GALTALÆ KJARSKÖGI
Verslunarmannahelgin 3. — 6. ágúst 1984
'm.
Mótsstjóri: Valdór Bóasson.
Dagskrá:
Föstudagur 3.ágúst.
kl. 22.00 Diskótek á palli til kl. 01.00. Plötutekið DEVO.
Laugardagur 4. ágúst.
kl. 13.00 Kajakróður á Rangá.
kl. 15.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðbolts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 16.00 Ökuleikni i umsjá Bindindisfélags ökumanna.
kl. 16.00 Barnadansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks
og Svanhildur. Stefán Baxter dansar breakdans
í upphafi dansleiks.
kl. I7.00 Leikir fyrir börn á öllum aldri á fjölskyldusvæðinu.
kl. 20.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 21.00 Mótssetning. Stefán Jónatansson, umdæmistemplar.
kl. 21.10 Dansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks og
Svanhildur. Diskótek í stóra tjaldi. Plötutekið DEVO.
kl. 24.00 Varðeldur og flugeldasýning.
Dagskrá lýkur kl. 63.00.
Sunnudagur 5. ágúst.
kl. 14.00 Messa. Séra Björn Jónsson prestur á Akranesi.
kl. 15.00 Barnaskemmtun í umsjá Jörundar, Sigurðar og Arnar.
kl. 16.00 Barnadansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks
og Svanhildur. Stefán Baxter dansar breakdans
í upphafi dansleiks.
kl. I7.00 Hljómleikar á palli. Skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts. Stjórnandi Ólafur L. Kristjánsson.
kl. 20.00 Hátíðarræða.
kl. 20.15 Kvöldvaka: Jörundur Guðmundsson, Sigurður
Sigurjónsson og Örn Árnason skemmta með
aðstoð og undirleik hljómsveitar Ólafs Gauks.
kl. 22.10 Dansleikur á palli. Hljómsveit Ólafs Gauks og
Svanhildur. Diskótek i stóra tjaldi. Plötutekið DEVO.
Hátið slitið kl. 02.00.