Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 64

Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 64
OPIÐALLA DAGA FRA KL. 11.45-23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆtl, SlUI 11633 OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD AUSTURSTRÆTI 22 INNSTRÆTI, SiMI 11340 FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Sendum við varðskip til Jan Mayen? „VIÐ MUNUM fylgjast grannt með þróun mála og veiðum á Jan Mayen- svKðinu, en það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það að senda varðskip inn á svæðið. Þeir aðilar sem þetta snertir hafa frekari samráð á morgun," sagði Geir Hallgrímsson, utanríkisráðherra, þegar blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann hvort til greina komi að senda íslensk varðskip inn á Jan Mayen-svæðið til að hindra veiðar fjögurra danskra nótaveiðiskipa sem nú eru á leiðinni á loðnumiðin við Austur-Grænland og hugsanlega kunna að sækja í loðnu austan miðlínu milli Grænlands og Jan Mayen, sem ósamið er um milli Norðmanna og Dana. Að sögn Geir Hallgrimssonar eru uppi getgátur um að Danir kunni að senda varðskip til verndar dönsku skipunum, en Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelg- isgæslunnar, sagði að nýlega hefði danskt varðskip komið við á íslandi á leið sinni til Grænlands. Gunnar taldi líklegt að það héldi til mið- anna austur af Grænlandi, en það- an er stutt á Jan Mayen-svæðið. Aðspurður sagði Gunnar Berg- steinsson að engin skipun hefði komið frá yfirvöldum þess efnis að Landhelgisgæslan sendi skip á Jan ^Mayen-svæðið. „Ég hef fylgst með málum f dag og gert ráðstafanir til þess að allir utanríkismálanefndarmenn Al- þingis geti mætt hvenær sem er á morgun með skömmum fyrirvara. Þannig að ég geri ráð fyrir að fund- ur verði haldinn í utanríkismála- nefnd,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson, formaður utanríkismála- nefndar, þegar blaðamaður bar undir hann ummæli Geirs Hall- grímssonar, síðdegis I gær. Þegar Eyjólfur Konráð var spurður hvort rétt væri að hans dómi að senda varðskip á Jan Mayen-svæðið, sagði hann það ljóst að íslendingar hlytu að gæta réttar síns á þessu svæði: „Við höfum þar meiri rétt- indi, sérstaklega hvað loðnuveiðar varðar, heldur en nokkrir aðrir, þar með Norðmenn, samkvæmt sam- komulagi íslendinga og Norð- manna frá 1980.“ Að öðru leyti sagði Eyjólfur Konráð það ekki rétt að segja meira að svo komnu máli, enda hefði hann skýrt sín sjónarmið áður í Morgunblaðinu. En þar sagði Eyjólfur Konráð að íslendingar ættu „bæði að senda fiskiskip og varðskip inná þetta svæði“. mSSml Morgunblaðið/ Júlíus. 5 ára og kominn í lögregluna? Verslunarmannahelgin, mesta ferðahelgi ársins, er að ganga l' garð. Um helgina ætla lögreglumenn að dreifa upplýsingabæklingi, sem nefndur er Ferðafélaginn og gefinn er út af íþróttasambandi lögreglumanna í samvinnu við Umferðarráð, til vegfarenda um land allt. f gær var fyrsti bæklingurinn afhentur. Það gerði fimm ára gamall strákur, Hrólfur Hreiðarsson að nafni, á Vesturlandsvegi við ána Korpu. Myndin er af athöfninni og er Sigurður Snorrason lögreglumaður með Hrólfi á myndinni. Rás 2 um helgina: Útvarpað til kl. 5 á morgnana ÚTVARPAÐ verður frá mið- nætti til kl. 5 á morgnana aila helgina hjá rás 2, þ.e. aðfaranótt laugardags, sunnudags og mánudags, að því er Þorgeir Ástvaldsson, stöðvarstjóri rásar 2, sagði í samtali við blm. Mbl. í gær. Á þessum tíma heyrast út- sendingar stöðvarinnar um land allt, þar sem útvarpað verður í gegnum endurvarpskerfí rásar 1. Auk þessara næturútsendinga verður útvarpað á sunnudag frá kl. 13.30 til 18 og á mánudag frá 10—12 og 14—18 eins og venja hefur verið. Alls munu 11 út- varpsmenn vinna við útsend- ingarnar um helgina. Samtals verður útvarpað í 25'A klukku- stund frá rás 2 þessa mestu ferðahelgi ársins. Hefur aldrei fyrr verið útvarpað svo lengi frá stöðinni eina helgi. Samkomulag um Eyvindarstaðaheiði: Upprekstrarmenn fall- ast á að ná í hross sín Efnt verður til umræðna í haust um hrossabeit á heiðinni Vmrmahlíð 1. ájfúst Frá Valdimar Kristinssyni, SAMKOMULAG hefur tekist í deil- um upprekstrarmanna og yfirvalda vegna upprekstrar hrossa á Eyvind- arstaðaheiói ( sumar. Heimamenn hafa skuldbundið sig til að reka hross sín niður af heiðinni og skal því lokið fyrir 20. ágúst. Jafnframt skuldbinda þeir sig til að sækja öll hross jafnóð- um og þau fara norður fyrir Ströngu- kvísl þar sem uppgræðslureitir eru. Sveitarstjórnir munu hafa eftirlit með bladamanni Morfpinblaósins. framkvæmdinni. í samkomulagi aðila er gert ráð fyrir því að landbúnaðar- ráðuneytið efni til umræðna í haust um afréttarmál heiðarinnar og öðrum sameiginlegum afréttum, þar sem fjallað verði um nýtingu afréttarlanda með tilliti til nýtingar beitilanda fyrir hross sem hægt verði að byggja nýt- ingu afréttarlandanna næsta sumar á. Eftir að Húnaversfundinum lauk án samkomulags síðdegis í gær hóf- ust samningafundir upprekstrar- manna og yfirvalda í Varmahlið að frumkvæði Halldórs Þ. Jónssonar sýslumanns Skagfirðinga. Auk hans sátu fundinn flestir upp- rekstrarmanna, oddvitar Lýtings- staða- og Seyluhreppa, Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri, Svein- björn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri og Tryggvi Gunnarsson deildar- stjóri í landbúnaðarráðuneytinu. Þórður Ásgeirsson, forstjórí Olís: Þremur mismunandi förmum bensíns var blandað saman OLÍUFÉLÖGIN þrjú, Olíuverslun íslands, Olíufélagið og Skeljungur, blönduöu fyrir nokkrum vikum saman þremur mismunandi förmum bens- íns. Staðfesti Þórður Ásgeirsson, forstjóri Olíuverslunar íslands, Olís, þetta í samtali við blm. Mbl. í gær. Sagði Þórður, að sökum þess að Rússar hefðu ekki staðið við gerða samninga hefði verið gripið til þess að kaupa nokkurt magn bensíns frá V-Evrópu. Olís fékk 1.600 tonn af 98 oktan bensíni frá Hollandi og siðan fékk Skeljung- ur 1.800 tonn af 90 oktan bensíni frá Englandi. Eftir þessar send- ingar kom skip frá Portúgal með 10.000 tonn af 93 oktan bensini. Þessum förmum var öllum bland- að saman að sögn Þórðar enda standa olíufélögin saman að inn- flutningnum. „Ég hef ekki nokkra trú á að þetta sé ástæðan,“ sagði Þórður og vísaði þá til fréttar Morgun- blaðsins um óvenjumiklar gangtruflanir í bílum undanfarn- ar vikur og grunsemdir manna um að bensínið kynni að vera orsökin. Morgunblaðið hafði samband við verkstæðisformenn tveggja bifreiðaumboða þar sem gang- truflana hafði orðið vart í ríkum mæli að undanförnu og spurði þá að því hvort það væri vætutíðin sem hefði getað orsakað þessar truflanir eða hvort um væri að ræða áhrif bensinsins. „Ég er ekki það mikill sérfræð- ingur í þessum málum að ég geti fullyrt hvort þarna sé um áhrif bensínsins að ræða eða eitthvað annað,“ sagði Sigurður Óskars- son, verkstæðisformaður Bíla- borgar, er hann var að þessu spurður. „Undanfarið höfum við lent í óvenjulegum gangtruflun- um og okkur datt í hug að það gæti verið bensínið sem væri orsakavaldurinn því bensín með of lágri oktantölu getur haft i för með sér gangtruflanir. Ég vona bara að ef bensininu hafi verið um að kenna að sá farmur sé upp- urinn og gangtruflunum af þeim völdum þar með lokið, og það má heldur ekki gleyma þvi að það er mikið hagsmunamál fyrir bif- reiðaeigendur að rétt sé að þess- um málum staðið,“ sagði Sigurð- ur. Loftur Hauksson, verkstæðis- formaður hjá Toyota-umboðinu, sagði að sér hefði fundist það skrýtið að komið var með svotil nýja bila, sem einungis var búið að keyra um tvð til þrjú þúsund kílómetra, vegna gangtruflana. „Hvernig ætti ástandið að vera hér á veturna þegar allt er á kafi í snjó, þetta hefði þá átt að koma i ljós i vetur sem leið því þá snjó- aði talsvert og veður var all um- hleypingasamt," sagði Loftur. „Ég trúi því varla að það sé vætu- tíðin sem hefur þessi áhrif á nýja bíla, en ef einungis væri um 6—7 ára gamla og eldri bila að ræða þá gætu þessi ummæli Herberts staðist. Okkur datt fyrst í hug að það væri bensínið sem ætti alla sök á þessu og héldum þá að kom- ið hefði einn farmur af þessu bensini," sagði Loftur Hauksson að lokum. Lauk fundinum seint í gærkvöldi án samkomulags en flestir fundar- menn fóru þá fram á Varmalæk þar sem málin voru rædd á óformlegum næturfundi fram undir morgun. Klukkan 11 í morgun mættu menn síðan aftur til formlegra funda i Varmahlíð. Fljótlega var kosin sér- stök samninganefnd sem i áttu sæti 4 heimamenn, ráðuneytismennirnir og sýslumaður. Komust þeir síðan að ofangreindu samkomulagi um klukkan 14 í dag. Það var greinilegur léttir í öllum hér þegar samkomulagið hafði náðst. Upprekstrarmenn sem ég ræddi við eftir fundinn voru sumir hverjir ekki allskostar ánægðir með samkomulagið en allir þó ánægðir með að einhver bráðabirgðalausn skuli hafa fundist. Sama var að segja um landgræðslustjóra, Svein Runólfsson. Hann tók ekki þátt í lokahrinunni og sagðist ekki vera ánægður með þessa lausn en ánægður með að samkomulag hefði tekist. Hann sagði að þegar tveir semdu yrðu báðir að gefa eitthvað eftir. Sagði hann að afrétturinn yrði skoðaður seinni hluta ágúst- mánaðar með tilliti til þess hvort taka þyrfti búfé niður fyrr en venja væri til. Alvarlegt umferðarslys ALVARLEGT umferðarslys varð á Miklubraut í gærmorgun þegar 65 ára gömul kona varð fyrir bif- reið skammt frá heimili sínu. Bif- reiðin var á leið austur Miklu- braut er slysið varð. Konan slas- aðist mikið og hlaut alvarlega áverka, m.a. á höfði. Hún var þeg- ar flutt á gjörgæslu og lá þar þungt haldin er síðast fréttist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.