Morgunblaðið - 13.11.1984, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 13.11.1984, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 59 Hvers vegna reykir fólk? J.E. skrifar: Hvers vegna reykir fólk? Af hverju mengar fólk vísvitandi sjálft sig og aðra? Ekki er um að kenna ónógum upplýsingum um skaðsemi reykinga, bæði fyrir þann sem reykir og eins þá sem i kringum hann eru. Allir vita að reykingar geta valdið lungna- krabbameini og ýmsum öðrum sjúkdómum. Getur verið að þðrfin fyrir félagsskap og viðurkenningu annarra sé öllu öðru yfirsterkara hjá þessu fólki? Og af hverju er þá þessi þörf svona mikil? Við skul- um reyna að velta því aðeins fyrir okkur, byrja á byrjuninni. Ég held að ef börn væru almennt alin upp í þeim anda að vera sjálfstæð og fylgja ekki fjöldanum hugsunar- laust, væru reykingar ekki eins al- mennar og raun ber vitni. Mér finnst allt of mikil áhersla lögð á að allir séu eins, og þeir sem skera sig úr að einhverju leyti séu taldir skrítnir, eða að minnsta kosti litn- ir hornauga. Ég vil að allir séu jafningjar, en það þýðir ekki að allir þurfi að vera eins. Heldur hvert á móti, að allir hafi rétt á að vera þeir sjálfir. Börn og unglingar vilja allt til vinna til að vera viðurkennd af fé- lagahópnum. Þá leiðast þau oft út í reykingar (og fleira). Jafnvel á móti sínum eigin vilja, heldur en að vera öðruvísi en hinir og ekki í klíkunni. Eins er þegar þau byrja að vinna á nýjum stað. Þar reykja venjulega flestir. Þeir fara saman í „smókpásu" og hafa það huggu- legt, en hinir halda áfram að vinna. Það væri eitthvað sagt ef þeir tækju sér alltaf frí öðru hverju og gerðu ekki neitt! Ungl- ingar þurfa að vera mjög öruggir með sig og sjálfstæðir til þess að hafa styrk til að halda sér utan við reykingaklikuna, svo ég tali nú ekki um áfengið, en það er önnur saga. Einnig getur verið mjög erf- itt fyrir þá sem eru að reyna að hætta að sjá alla reykjandi í kringum sig. Fyrir utan svo óholl- ustuna af því að þurfa sífellt að anda að sér tóbaksreyk frá öðrum, það væri efni í aðra grein. Vita tilgangslaust er að banna börnum og unglingum að reykja (og drekka) og útmála fyrir þeim hversu hættulegt það er. Reynslan hefur ótvírætt sýnt að það ber engan árangur. Jafnvel hefur það þveröfug áhrif í mörgum tilfellum. Þau verða að vera á móti fullorðna fólkinu og sýna að þau séu sjálf- stætt fólk, sem láti ekki aðra segja sér fyrir verkum. Það eina sem getur að mínu áliti komið í veg fyrir að börn og unglingar byrji að reykja, er að þau hafi enga þörf fyrir það. Að þeim finnist ekki að þau þurfi endilega að vera eins og allir aðrir. Að þeim líði svo vel, andlega og líkamlega að þau þurfi ekki að deyfa sig með eitri, hvort sem það heitir sígarettur, vín eða fíkniefni, til þess að gera lífið bærilegt. En auðvitað er mikil freisting fyrir börn sem eru ekki sjálfu sér nóg einhverra hluta vegna líkja eftir öryggi. Og ef þetta fólk reykir allt saman, vilja þau að sjálfsögðu vera eins, til að vera viðurkennd. Rannsóknir hafa sýnt að börn- um foreldra sem reykja er miklu hættara við að ánetjast reyking- um. Þau taka að sjálfsögðu ekki mark á foreldrum sínum ef þau banna þeim að gera hluti sem þau gera sjálf. Börnin geta jafnvel ver- ið orðin háð reykingum eftir að hafa andað að sér tóbaksreyk á heimilinu í mörg ár! Einnig er börnum sem alast upp í reykmett- uðu umhverfi hættara við kvefi, eyrnabólgu og ýmsum öðrum kvillum. Fyrir utan þau sem bein- línis hafa ofnæmi fyrir reyknum og eru með astma eða stöðugt nefrennsli eða önnur einkenni. Mér kæmi ekki á óvart að þau væru fleiri en fólk gerir sér grein fyrir. Ég hef trú á ungu fólki á íslandi í dag. Ég beini orðum mínum til ykkar, íslenskir unglingar: Viijið þið ekki vera sjálfstæðir, óháðir og frjálsir? Þið viljið ekki láta aðra alltaf segja ykkur fyrir verk- um eða hvað? Viljið þið láta það spyrjast um ykkur að þið þorið ekki að hætta á að vera útilokuð úr hópnum? Ég er viss um að þið verðið virt miklu meira fyrir það að segja nei þegar félagarnir bjóða ykkur sígarettu heldur en ef þið þorið ekki annað en að vera með. Jafnvel þó að vinir geri kannski grín að ykkur og kalli ykkur mömmubörn, er það kannski ekki bara öfund, af því að þau þorðu ekki sjálf að segja nei. Hugsið líka út í það, að þegar þið sjálf verðið fullorðin, kannski i hjólastól með súrefnisgrímu af reykingum, þá þýðir lítið fyrir ykkur að ætla að banna ykkar börnum að reykja, þau taka vit- anlega ekkert mark á ykkur. Ég treysti því að þið, íslenskir unglingar, séuð það sjálfstæðir að þið þorið að vera á móti fjöldan- um. Ykkur líður svo miklu betur, bæði líkamlega og ekki síst and- lega, þegar þið gerið það sem ykk- ur sjálfum finnst vera rétt, án til- lits til þess hvort öðrum muni líka það eða hvort þið séuð eins og aðr- ir. Ég skora á ykkur að vera góð fyrirmynd fyrir aðra unglinga með því að reykja ekki. Þegar þið eruð komin í meirihluta, verða þeir taldir skrítnir sem reykja! Þessir hringdu .. hafa lengur fréttaritara í Bandaríkjunum? Eftir frétta- spár hans þar var maður farinn að trúa því, að Hart ynni Mon- dale, Ferraro væri algjört tromp og Mondale ynni stórsigur á Reagan. Fyrir utan, að aldrei virðist gerast jákvæður hlutur í þessu mesta tækni- og velferð- arríki heims. Þvílík frétta- mennska! Fréttaritar- inn óþarfur H J. hringdi: Er nokkur þörf fyrir okkur að er smám saman að fyllast af húsgögnum, enda heitir það HÚSGAGNAHÖLLIN VIÐ HÖFUM sett okkur þaö markmiö aö hafa svo yfirgengilega mikiö úrval af góöum húsgögnum á hagstæöu veröi aö þaö detti engum í hug aö versla annarsstaöar fyrr en hann hef- ur grandskoðaö þaö sem viö höfum aö bjóöa. AUK ÞESS aö vera meö mikið úrval, hagstætt verö og 2ja ára ábyrgö á öllum vörum, bjóöum viö góö greiðslukjör, V3 út og afgangurinn á 6 mánuðum, gefum 5% staðgreiðslu- afslátt — einnig þegar borgaö er meö kreditkortum. Landsþjónustan sér um aö pakka vör- um og senda út á land. Berðu saman verð og gæöi HÍSGA6NAHÖLLIN BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK * 91-81199 oq 81410
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.