Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Sfldarverð til frystingar enn ekki ákveðið: KASK greið- ir 10%hærra verð en í fyrra KAUPFÉLAG Austur-Skaftfell- inga á Höfn í Hornafirði kaupir sfld til frystingar af sínum fostu viöskiptabátum á 10% hærra verði en sfld til frystingar var verðlögð í fyrra, að sögn Her- manns Hanssonar kaupfélags- stjóra, en vandamál hafa komið upp víða um land vegna þess að Verðlagsráð sjávarútvegsins hef- ur ekki verðlagt sfldina. verðlækkunar á síld. Hermann sagði að KASK keypti síld af bátunum þrátt fyrir að ekki væri búið að verðleggja hana lögum samkvæmt vegna þess að annars hefðu bátarnir orðið verkefnalausir og sjómennirn- ir og starfsfólk í landi orðið atvinnulaust. Mbl./Ol.K.M. Landakotstúni fórnað fyrir bflastæði Þeir sem leið hafa átt um Túngötu að undanfornu hafa vafalaust veitt athygli framkvæmdum miklum í Landakotstúninu þar sem unnið er að gerð 30 bflastæða. Má teljast víst að starfsmenn Landakotsspítala og aðstandendur sjúklinga þar, fagni þessum framkvæmdum þar sem mikill hörgull er á bílastæðum í náraunda við spítalann. En sitt sýnist hverjum í þessum málum sem öðrum og sennilegt að umhverfisverndarsinnum falli framkvæmdir þessar ekki eins vel í geð. Hermann sagði að þessi samningur byggðist ekki á af- komu vinnslunnar, því ef af- koman hefði verið látin ráða hefði þvert á móti þurft að lækka verðið um að minnsta kosti 10% frá því í fyrra vegna Sjóvá býður hærri bónus: Of lítið af nýjungum í bifreiðatryggingum — segir framkvæmdastjóri Sjóvá „ASTTÆÐAN fyrir þessu nýja tilboði okkar er augljóslega sú, að við viljum fá fleiri viðskiptavini. Það er of lítið af nýjungum á þessum markaði,** sagði Sigurjón Pétursson, framkvæmdastjóri tryggingafélagsins Sjóvá hf., sem hefur hækkað bónus af bifreiðatryggingum upp í 55%eftir fimm ára tjónlaus- an akstur og 65% fyrir ökumenn, sem ekið hafa í tfu ár tjónlaust. „Það hafa verið mismunandi af- brigði af þessum bónusum hjá tryggingafélögunum í gegnum ár- in, helst hafa þau boðið 11. árið iðgjaldsfrítt þeim ökumönnum, sem ekki hafa valdið tjóni f tfu ár samfleytt," sagði Sigurjón. „Með þessu móti fá ökumenn viðurkenn- ingu sína fyrr en áður og það telj- um við vera augljósan kost.“ Hann vildi ekki greina frá því hversu stór hópur viðskiptavina Sjóvá myndi njóta þessara kjara en sagði að við endurnýjun á vorin kæmi í ljós að „flestir viðskipta- vinir eru með fullan bónus eða nærri því.“ Fullur bónus hefur til þessa verið 50% — þ.e. ökumenn greiða aðeins hálft iðgjald hafi þeir ekki valdið tjóni á ákveðnu árabili. Allar breytingar á skilmálum og iðgjaldaskrám tryggingafélag- anna ber að tilkynna til Trygg- ingaeftirlitsins og fá staðfestingu þess. Erlendur Lárusson, forstjóri Tryggingaeftirlitsins, sagði í sam- tali við blaðamann Mbl. í gær, að eftirlitið hefði þá fyrst frétt af hinu nýja tilboði Sjóvá er það var auglýst í Morgunblaðinu. „Við eig- um eftir að kanna þetta og sjá hvað veldur. í fljótu bragði sýnist mér, að þarna sé verið að bjóða hagsbætur fyrir hina tryggðu — þetta gæti verið meira mál ef það væri á hinn veginn,“ sagði Erlend- ur. En mun nýjung Sjóvá leiða til aukinnar samkeppni tryggingafé- laganna? Sigurjón Pétursson kvaðst telja að samkeppnin gæti orðið með nokkuð öðrum hætti en áður var en kvaðst ekki þora að spá um hvort önnur félög myndu bjóða nýja kosti í framhaldi af til- boði Sjóvá. Björn Jensson, skrifstofustjóri hjá Tryggingu hf., sem gefur tjónlausum viðskiptavinum ið- gjald ellefta tjónlausa ársins, sagði samkeppni félaganna þegar mjög mikla og að hann gæti ekki gert sér grein fyrir hvort tilboð Sjóvá myndi breyta nokkru þar um. „Tryggingafélögin hafa öll verið með hliðstæð tilboð, þetta hefur verið útfært á mismunandi hátt,“ sagði hann. „Um bónuskerfið sem slíkt má segja ýmislegt misjafnt — það er að mörgu leyti gallað, ekki síst eftir að sjálfsábyrgðin var lögboðin. Tjónvöldum er nú refsað á tvennan hátt og ég held persónulega að það sé gengið ansi langt í að hegna þeim, sem lenda í óhöppum. A sama hátt má kannski velta fyrir sér hvort ekki sé gengið full langt f að verðlauna þá, sem ekki valda tjóni — ég á við hvort ekki gæti verið heppilegra að jafna iðgjaldagreiðslurnar meira." Alþýðuflokksmenn í Kópavogi: Báðu Kjart- an að draga sig í hlé Alþýðuflokksmenn í Kópavogi fóru fram á það við Kjartan Jó- hannsson formann Alþýðu- fiokksins á fundi í Kópavogi fyrir tæpum fjórum vikum, að hann gæfi ekki kost á sér til for- mannskjörs á flokksþingi um næstu helgi. Á fundinum, sem á milli 20—30 alþýðuflokksmenn í Kópavogi sátu, fór talsmaður hópsins þess á leit við Kjartan, að hann gæfi ekki kost á sér á ný, því tími hans sem for- manns væri útrunninn. Þeir skoruðu þess í stað á Kjartan að hann beitti kröftum sínum til að finna hæfan eftirmann í samvinnu við flokksmenn, svo halda mætti frið meðal flokksmanna. Kjartan játaði hvorki né neitaði á umræddum fundi, en um hálfum mánuði síðar til- kynnti hann á kjördæmisráðs- fundi í Reykjaneskjördæmi, að hann ætlaði að bjóða sig fram. Þá er Mbl. kunnugt um, að al- þýðuflokksmenn í Kópavogi urðu undrandi svo ekki séu notuð sterkari orð, er þeir hlustuðu á yfirlýsingar Kjart- ans í fjölmiðlum síðar þess efnis, að hann vissi ekki til þess að nokkur maður innan flokksins væri andvígur því að hann færi í framboð á ný. Minni rjúpnaveiði en búist var við Tel að endur verði jólamaturinn í ár segir Hrafn Backmann í Kjötmiðstöðinni Mun minna hefur veiðst af rjúpu í ár, en búist var við, að sögn Sverris Scheving Thorsteinssonar, formanns Skotveiðifélags íslands. Hann sagði að mjög vel hafi viðrað á fugl í vor og í sumar og sást mikið til rjúpu þegar líða tók á sumarið. Dæmi eru um að menn hafi ekki fengið nema 1—2 rjúpur í ferð. Sverrir sagði að þetta gæti þó breyst, þegar fer að snjóa meira á fjöllum og gera jarðbönn, þá sækir rjúpan meira niður f byggð. Rjúpan hefur verið mjög dreifð, allt frá láglendi og upp á reginfjöll og getur það verið ein af orsökum þess, hve lítið hefur veiðst. Sverrir sagði að frést hafi að menn hafi verið að skjóta rjúpu allt að hálfum mánuði fyrir leyfilegan tfma, og lfta skotveiði- menn á Þetta sem mjög alvar- legt brot. Talið er að þessir menn hafi fengið allt að 60 rjúp- ur í ferð. Skotveiðimenn, sem fóru til fjalla strax og rjúpnaveiðin hófst, þ.e. 15. október, urðu varir við skothylki og mikið traðk á hefðbundnum rjúpuslóðum á Hveravöllum og Kili. f Kjötbúri Péturs fengust þær upplýsingar að verð á rjúpu færi ekki upp fyrir 150 krónur stykk- ið, en þetta ætti allt eftir að skýrast betur, þegar ljóst væri hvert framboð yrði. í Vfði verður ekki ákveðið með verð fyrr en í desember, þegar sala á rjúpum hefst þar. Kjötmiðstöðin hefur selt rjúp- ur að undanförnu á 115 krónur stykkið og sagði Hrafn Back- mann að það væri um 10% dýr- ara en í fyrra. Annars sagði Hrafn að þó rjúpnaveiði yrði ekki mikil f ár ætti það ekki að koma að sök, þvf hann telur að aðaljólamaturinn í ár verði önd. „Neysluvenjur fólks eru mikið að breytast og fólk leitar eftir til- breytingu f mat. Undanfarin ár hefur verið mikil eftirspurn eftir önd en ekki nægilegt framboð. Nú eru endur komnar á markað- inn hér f stórum stíl og er sú vara á heimsmælikvarða. Þetta gerist ekki betra erlendis." Um 100 færri bóka- titlar í ár FÉLAG íslenskra bókaútgefenda kynnti í gær fyrir blaðamönnum þær bækur sem verða gefnar út fyrir jól. Þar kom m.a. fram að 350 400 bókatitlar verða gefnir út í ár og er það nokkuð minna en í fyrra, en þá voru tæplega 500 bæk- ur gefnar út. Astæðuna fyrir þessu telja bókaútgefendur vera sam- drátt í bóksölu á síðasta ári, en einnig hefur verkfallið í haust haft einhver áhrif í þessu sambandi. Reiknað er með að verðhækk- un á bókum verði um 10—15% Það þýðir að meðalstór bók mun kosta 600—800 krónur. Eyjólfur Sigurðsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, sagði á fundinum, að þrátt fyrir að færri titlar verða gefnir út, sé gróska í íslenskri bókaútgáfu og kennir ýmissa grasa á jólabóka- markaðnum í ár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.