Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
3
Frumflytja nýja uppfærslu á Sóleyjarkvæði í kvöld
I dag fnimflytja Háskólakórinn
og Stúdentaleikhúsið nýja upp-
færshi á Sóleyjarkvæði Jóhannes-
ar úr Kötlum við tónlist Péturs
Pálssonar.
Stjórnandi kórsins er Árni
Harðarson og útsetti hann einn-
ig tónlistina fyrir kórinn. Guð-
mundur Ólafsson leikari fer með
talaðan texta iafnframt því að
leikstýra með Arna. Lýsingin er
í höndum Einars Bergmundar en
Hans Gústafsson sér um leik-
mynd og búninga.
Aðeins er fyrirhugað að flytja
verkið fjórum sinnum þ.e. 15.,
16., 17. og 18. nóvember. Flutn-
ingur á verkinu hefst klukkan 21
öll kvöldin í Félagsstofnun stú-
denta við Hringbraut.
Veiðimálastofnun innheimtir kostnað við rannsóknir:
Kemur illa við þá
sem síst skyldi
— segir Böðvar Sigvaldason, formaður Landssambands veiðifélaga
„AÐALHAGSMUNAMÁL okkar er að fá meiri leiðbeiningaþjónustu við
nýtingu laxveiðihlunnindanna. Veiðimálastofnunin hefur veitt þessa þjón-
ustu. Fram að þessu hefur vantað fiskifræðinga til starfa en nú eru að koma
ungir og áhugasamir menn til starfa en þá sveltir fjárveitingavaldið stofnun-
ina svo að þeir nýtast ekki. Stofnunin hefur þá farið út á þá braut að láta
veiðifélögin greiða fyrir rannsóknir en við óttumst að það verði til þess að
þau veiðifélög sem helst þurfa á halda, þau sem eru að rækta upp ár og hafa
litlar eða engar tekjur, verði af rannsóknum,“ sagði Böðvar Sigvaldason á
Barði í Miðfirði, formaður Landssambands veiðifélaga, í samtali við blm.
Morgunblaðsins.
Böðvar sagði að veiðiréttareig-
endur legðu á það áherslu að þjón-
usta Veiðimálastofnunarinnar
væri þeirra leiðbeiningarþjónusta
en ekki tíðkaðist að greitt væri
fyrir leiðbeiningarþjónustu og
rannsóknir fyrir aðrar greinar
landbúnaöarins og aðra atvinnu-
vegi. Lagði hann áherslu á að
nauðsynlegt væri að auka rann-
sóknir á þessu sviði til að fá skorið
úr réttmæti ýmissa kenninga sem
haldið hefði verið fram og í raun
stönguðust oft á. Þetta væri ung
vísindagrein og mörgum spurn-
ingum ósvarað. Til dæmis væri
nauðsynlegt að læra hvernig
bregðast ætti við þegar fiskgengd
færi minnkandi eins og verið
hefði. Þá teldu margir að meiri
möguleikar væru í nýtingu lax-
veiðiánna en nú eru.
Böðvar, Vigfús Jónsson á Laxa-
mýri og fleiri stjórnarmenn í
Landssambandinu sem blm. ræddi
við sögðu nauðsynlegt að leiðrétta
þann misskilning margra að allt
væri peningur þar sem veiði væri
annars vegar. Sagði hann að mörg
veiðifélög hefðu ekkert nema
kostnaðinn því þau væru að rækta
árnar upp og hefðu litlar tekjur á
meðan. Innheimta Veiðimála-
stofnunarinnar kæmi sérstaklega
illa við slík félög og gæti það orðið
til að draga úr mönnum kjarkinn.
Og alls staðar þyrfti að leggja í
mikinn kostnað og gífurlega vinnu
til að nýta þessi hlunnindi. Lögðu
þeir áherslu á að veiðiréttar-
eigendur vildu gera allt sem þeir
gætu til að auðvelda þéttbýlis-
búum að komast út i náttúruna og
njóta hennar, en til þess að það
væri mögulegt þyrfti víða, til
dæmis við silungsvötnin, að leggja
vegi að þeim og byggja aðstöðu.
Hid opinbera leggur okk-
ur ekki til rannsóknarfé
— segir Árni ísaksson hjá Veiðimálastofnun
„ÁSTÆÐAN er sú að hið opinbera
hefur ekki verið tilbúið til að leggja
okkur til nægilegt rannsóknarfé og
beinlínis gert okkur að vinna okkur
inn tæpar 800 þúsund kr. í eigin
tekjur. Því fórum við þess á leit við
veiðifélögin í vor að þau greiddu
rannsóknirnar í sumar," sagði Árni
ísaksson, sem nú gegnir starfi veiði-
málastjóra, í samtali við blm. Mbl.
þegar hann var spurður af hverju
Vciðimálastofnunin hefði farið inn á
þá braut að innheimta gjöld fýrir
rannsóknir sínar.
„Sum veiðifélaganna eru nokkuð
fjársterk og treysta sér vel til að
greiða eitthvað fyrir rannsóknirn-
ar en svo eru önnur félög sem ekki
hafa bolmagn til þess. Við fengum
sérstaka fjárveitingu úr Fram-
leiðnisjóði landbúnaðarins, að
fjárhæð 400 þús. krónur, til að
standa undir rannsóknum fyrir
þau. Það er því engan veginn hægt
að segja að við höfum ekki reynt
að sinna einnig verr stæðu veiði-
félögunum, en það verður að hafa
það í huga í þessu sambandi að
fjárveitingarvaldið er ekki tilbúið
til að leggja okkur til rannsókn-
arfé en við erum hér með mikið
starfslið sem við viljum nýta sem
best,“ sagði Árni einnig. Sagði
Árni að þeim hefði verið gert að
vinna sér inn 773 þúsund en hann
bjóst ekki við að þeir næðu þeirri
fjárhæð. Veiðimálastofnunin fær
á móti 7 milljónir á fjárlögum
vegna launa og rekstrargjalda.
464 gjaldþrota-
beiðnir á árinu
ÞAÐ SEM af er árinu hefur borg-
arfógetaembættinu borist 464
beiðnir um gjaldþrotaskipti. Allt
síðastlióið ár bárust embættinu
246 beiðnir um gjaldþrotaskipti og
var það metár. „Þrátt fyrir mikið
vinnuálag hefur tekist að halda í
horfinu þannig að mál hafa ekki
tafist,“ sagði Ragnar Hall, borgar-
fógeti í samtali við blm. Mbl.
„Það er áberandi að gjald-
þrotabeiðnum á hendur fyrir-
tækjum og einstaklingum i
atvinnurekstri hefur fjölgað
mjög. Þannig eru sex af hverjum
tiu beiðnum sem berast á hendur
félögum og fyrirtækjum en fjór-
ar af hverjum tíu á hendur ein-
staklingum. Árið 1983 voru 40%
beiðna á hendur félögum og ein-
staklingum í atvinnurekstri, en
60% á hendur einstaklingum,"
sagði Ragnar Hall.
Magnus Gustafsson, forstjóri Coldwater:
Þorskblokkarverð
á uppleið vegna
minna framboðs
— spurning hvað gerist í febrúar
„SALAN hefur verið þokkaleg að undanfornu, í október seldum við til
dæmis beldur meira en í október í fyrra. Að nýju er að komast jafnvægi á í
framboði og eftirspurn á þorskblokk. Því miður er það ekki vegna söluaukn-
ingar heldur vegna minna framboðs," sagði Magnús Gústafsson, forstjóri
Coldwater Seafood co., sölufyrirtækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í
Bandaríkjunum, þegar hann var spurður að því hvernig salan hefði gengið að
undanförnu.
Magnús sagði að sala á þorsk-
flökum hefði verið góð að undan-
förnu og horfur væru á að skortur
yrði á ýsuflökum vegna minni
afla. Sagði hann að blokkarverðið
væri heldur á uppleið og átti von á
að það héldi áfram en sagði jafn-
framt að það kæmi væntanlega í
ljós í febrúar hvort verðið héldist
uppi eða færi niður aftur. Sagði
hann að nú væri verkfall á flotan-
um á Nýfundnalandi og innfjarða-
veiðin hefði einnig brugðist. Ef
Kanadamenn kæmu með verulegt
magn inn á markaðinn eftir ára-
mótin og Danir líka gæti verðið
hæglega fallið aftur. Þá gat hann
þess einnig að góðar horfur í sölu-
málum saltfisks hefðu minnkað
þrýstinginn á freðfiskmarkaðinn,
bæði hjá Islendingum og öðrum.
Blokkarbirgðir hafa farið minnk-
andi í Bandaríkjunum. Sagði
Magnús að búist væri við að þær
yrðu komnar niður í 15 til 20
milljónir punda um áramót en i
birgðum hefðu verið 37 til 39
milljón pund þegar mest var.
F.f' þú ittlar að skoöa Mid-Evrópu
skaltu fljúga með Fluj>lcióum til Luxemborgar.
Far ertu vel i sveit settur.
fðr
v/
Fyrr eða siðar langar
þig að skoða Evropu:
, Rinarhéruðin, Alpana,
I Paris. Miinchen, Vín-
I arborg og Rom. Láttu
m Flugleiðir flytja þig
* til Luxemborgar og
\ fylgdu síðan eigin
^ ferðaáætlun.
FLUGLEIDIR
Frekari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn
og ferðaskrifstofur.