Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
5
Finnur Jónsson listmálari.
Finni Jónssyni
listmálara
veitt alþjóðleg
viðurkenning
Finnur Jónsson
listmálari 92 ára
í listaverkabók sem nýlega kom út
í Bandaríkjunum um nútímalistasafn-
ið fræga í Yale, Yale University Gall-
ery, er að finna tvö málverk eftir
Finn Jónsson listmálara en hann á 92
ára afmæli í dag.
í fréttatilkynningu Almenna
bókafélagsins segir m.a. að list-
málaranum sé með'þessu veitt mik-
il og alþjóðleg viðurkenning og
hann sé í bókinni settur við hliðina
á heimsfrægum frumkvöðlum nú-
tímalistar eins og Nolde, Kand-
insky o.fl. Ennfremur segir að
myndir af málverkunum tveimur,
sem máluð voru árið 1925, sé einnig
að finna í bókinni um Finn Jónsson
sem kom út hjá AB í fyrra.
Dómkirkjubasar-
inn í Casa Nova
á laugardag
KIRKJUNEFND kvenna Dómkirkj-
unnar verður með sinn árlega basar í
Casa Nova við Menntaskólann í
Reykjavík, laugardaginn 17. nóv. nk.
og hefst hann kl. 2 e.h.
Þarna verður að venju margt
handunninna muna á boðstólum.
Mér er sagt að þar verði óvenju
mikið af alls konar prjónlesi, einn-
ig jólasvuntur og handmálaðir dúk-
ar. Þá er og fjölbreytt jólaföndur,
handunnin blóm, heimabakaðar
smákökur og svo lukkupokar fyrir
börnin. Að sjálfsögðu verður þarna
ótal margt annað, ekki sist hlutir,
sem munu henta vel til jólagjafa.
Dómkirkjubasarinn hefur alltaf
fengið það orð, að þar væru góðir
hlutir á góðu verði, og ég held ég
megi segja, að það, sem boðið verð-
ur upp á í ár, sé á mjög sanngjörnu
verði.
Þær kirkjunefndarkonur vænta
þess, að þetta komi fólki vel, þann-
ig að það hagnist um leið og það
leggur þeim málefnum lið, sem
kvenfélagið berst nú fyrir. Þar ber
hæst stuðningur þeirra við kaup á
nýju orgeli í Dómkirkjuna. En
jafnframt vinna konurnar mikið og
óeigingjarnt starf fyrir unga sem
aldraða, og raunar eru þær alltaf
fyrstar á vettvang, hvar sem gott
málefni þarf á stuðningi að halda,
hvort heldur er innan kirkju eða
utan. Það sýnir hann vel verkefna-
listi undanfarinna ára.
Þær eiga það því að okkur hin-
um, að við komum til móts við þær
á basarnum í Casa Nova á laugar-
daginn kemur.
Þórir Stephensen
Vitað er að íínustu
Bntýl rr nrw EJ
TTíTf‘1 Li 10
m
veitingahúsin skarta gjarnan karía ámatseðlum
sín um og erþá oft mikið við hatt í matreiðslunni.
En karfi er ekkert háður ílókinni matargerð,
sérstaklega ekki BÚRKARFINN, því hann er ílakaður,
roðlaus og beinlaus.
BÚRKARFI fœst í góðum matvörubúðum.
Honum má því kippa með á leiðinni heim úr vinnu
og á hann þarí ekki annað en rasp, salt og pipar.
Þetta heitir: „Að hœtti eláhússins heima"
og bragðast aldeilis stórvel.
Auðvitað má líka nota hveiti. egg, mjólk og annað krydd.
Og hvort með honum eru bornar íslenskar, íranskar eða íranskíslenskar kartöílur,
sitrónusaíi, remolaðisósa eða kokteilsósa og salat, breytir engu.
Allt þetta íellur undir heitið góða: .Að hœtti eldhússins heima', en nauðsynlegt
er það ekki eins og áður sagði, og verð steikarinnar er nánast hlœgilegt.
„Það er kominn matur"!
*Ath. Verðið miðast við 150 gramma Burkaríaílak roðlaust og beinlaust (auðvitað).
S.2$S?7 jfneLum Æ. pés*
JANH WÍKS7RÓM OCc hl'lVA WAHIGREW
Gylmir