Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
Fréttaskot
geigar
w
Eg hef stundum velt því fyrir
mér, hve gífurleg áhrif frétta-
menn hafa á líf okkar, á þessum
síðustu og bestu tímum. Það má
næstum segja að þeir hafi tekið við
hlutverki kaþólsku kirkjunnar á
Vesturlðndum, í þeim skilningi að
þeir útdeili heimsmyndinni, rétt
eins og páfinn gerði á hinum
myrku miðöldum. Sá grundvall-
armunur er hér samt á að heims-
mynd kaþólsku kirkjunnar var
kyrrstæð, en heimsmynd sú, er
berst oss frá lyklum fréttamann-
anna, er síbreytileg, í senn háð at-
burðum iíðandi stundar og því mati
er fréttamenn leggja á atburðarás-
ina. Er raunar álitamál hvort mat
fréttamannsins á atburðum skiptir
meira máli fyrir þá heimsmynd er
blasir við oss hverju sinni en sjálf-
ur veruleikinn. Tökum dæmi þessu
til skýringar: af nýafstöðnu verk-
falli BSRB. Um tíma sendu þrjár
útvarpsstöðvar frá sér fréttir af
verkfallinu. Ég verð að játa, að ég
vissi eiginlega ekki hvað snéri upp
og hvað niður, á landi voru, þá
þessar stöðvar sendu út fréttir, svo
ólíkt var fréttamatið. Ein stöðin
lýsti þannig ástandinu að manni
virtist um tíma að styrjöld hefði
brotist út í Reykjavík. Varð mér á
þvi augnabliki hugsað til Orson
Welles, þá hann ærði Ameríkubúa
með fréttum í útvarpi af innrás frá
Mars, einsog frægt er orðið.
Sefjunarmáttur
Já svo sannarlega er sefjunar-
máttur hins talaða orðs mikill, og
harla mikilvægt að þeir frétta-
menn, er framreiða heimsmyndina
hverju sinni, leggi sem hlutlægast
mat á veruleikann, en forðist til-
finningalegt mat á atburðum. Því
held ég að sé ekki heppilegt, að
menn sem hafa stundað frétta-
mennsku i síðdegisblöðum, hefjist
skyndilega og óundirbúið handa við
að útvarpa fréttum. Sefjunarmátt-
ur hins talaða orðs er slíkur, að
hann getur hrifið fjöldann, og jafn-
vel æst hópa manna til átaka við
löggæslumenn eins og dæmin
sanna. Ég tel að ríkisfjölmiðlarnir
hafi sýnt og sannað að þeir stunda
almennt ekki „æsifréttamennsku".
Hitt er svo aftur annað mál, hvort
það mat er liggur að baki frétta-
flutnings þessara ríkisstofnana er
ætíð með þeim hætti, að við fáum
sannferðuga mynd af ástandi mála.
Mér dettur í hug i þessu sam-
bandi stutt frétt f útvarpinu, þess
efnis að: Rússar hefðu fordæmt
opinberlega aðstoð Vesturlanda við
bágstadda í Eþíópíu á þeim for-
sendum að „ákveðin stjórnmálaleg
skilyrði hefðu verið sett fyrir að-
stoðinni".
Skotið geigar
Hér er um afar alvarlega ásökun
að ræða, á hendur hjálparsamtök-
um og rikisstjórnum, sem nú reyna
af öllu afli að afstýra hungurdauða
álíka margra og létu lífið í gasklef-
um nazista í heimsstyrjöldinni síð-
ari. Ábyrg fréttastofa varpar ekki
fram slíkri ásökun athugasemda-
laust. Hún vefur hana inní frétta-
skýringaþátt um ástandið í
Eþíópíu, og myndi væntanlega geta
þess í leiðinni, að fyrir skömmu
tóku fulltrúar 50 kommúnista-
flokka þátt i skrúðgöngu í Eþíópfu,
er kostaði skitnar 250 milljónir
dollara. Fremstur i þeirri miklu
göngu, er farin var til að fagna
byltingarleiðtoganum Mengistu
Haile Mariam, var enginn annar en
Sovétleiðtoginn Grigory Romanov.
Vafalaust hefir sá ágæti maður lát-
ið vera, þá hann dreypti á hinum
frægu „vodka- og viskíbirgðum"
síðar um kveldið, að rukka Meng-
istu um þær 3 billjónir dollara er
Éþiópia skuldar Sovétmönnum
fyrir vopnakaup. Góðir „félagar"
ræða ekki um slfkt á erfiðleika-
stundu.
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Skúli Helgason og Snorri Már Skúlason
Rokkrásin
kynnir
Stranglers
Þeir félagar
1 /*00 Skúli Helgason
* O og Snorri Már
Skúlason verða með þátt
sinn „Rokkrásina“ á rás 2
í dag. Skúli sagði, að þeir
myndu kynna hljómsveit-
ina Stranglers í þættinum
i dag, en hljómsveit þessi
er mörgum kunn síðan
hún kom til landsins i
hljómleikaför árið 1978.
Þá var sveitin á hátindi
frægðar sinnar, en félag-
arnir í Stranglers hófu að
leika saman árið 1975.
Þeir hafa gefið út 7 plötur
og sú 8. er nýkomin á
markaðinn. Skúli sagði þá
skífu vera mjög góða og
væri hún i sama stil og
lagið vinsæla „Golden
Brown". „Við ætlum
okkur að kynna helstu at-
riði í sögu hljómsveitar-
innar, allt frá því að þeir
gáfu út hljómplötur eins
og „No More Heroes" og
„Black and White“, en þá
voru þeir brautryðjendur
nýbylgjunnar," sagði
Skúli. „Þeir hafa nú skipt
um stíl, en halda enn
miklum vinsældum."
Skúli og Snorri verða með
næturútvarp rásar 2 á
morgun og verða þá kynnt
úrslit vinsældakosningar
um besta íslenska lagið
undanfarin 20 ár. „Úrslit-
in þar komu nokkuð á
óvart,“ sagði Skúli, en var
ófáanlegur til að láta
meira uppi.
Gömlu, góðu
rokklögin
■i Bertram Möll-
00 er, sem á árum
áður var aldrei
kallaður annað en Berti
Möller og var þá rokk-
söngvari, verður með þátt
sinn „Einu sinni áður var“
á dagskrá rásar 2 í dag.
Bertram, sem nú er hætt-
ur dægurlagasöng og
sinnir löggæslu i staðinn,
leikur vinsæl lög frá
1955—1962. Þetta tímabil
var sannkallað rokktíma-
bil. Á þessum árum komu
fram margir listamenn,
sem hafa haft mikil áhrif
á sér yngri menn, og er
Bertram allfróður um
gömlu, góðu rokkarana.
Éins og allir vita breyttist
tónlistin mjög þegar Bítl-
arnir komu til sögunnar
og eru margir sem sjá eft-
ir þeim tíma þegar „rokk
var rokk“. Þeir sömu ættu
að hlusta á Berta í dag
milli kl. 16 og 18.
Bertram Möller
Óskalög eldri
kynslóðarinnar
■■ Hermann
00 Ragnar Stef-
ánsson verður
með þátt sinn „Ég man þá
tíð“ í útvarpi kl. 11 í dag.
Hermann hefur nú verið
með þessa þætti í nærri
tvö ár. „Þessi þáttur er
eini óskalagaþátturinn
sem eldra fólk stjórnar
Karl Ágúst Úlfsson þýddi
leikritið sem flutt verður í
útvarpi í kvöld kl. 20. Hann
bjó verkið einnig til flutn-
ings í útvarpi og leikur eitt
af aðalhlutverkunum.
efni í,“ sagði Hermann.
„Ég fæ óskir alls staðar
að af landinu og ég hef
alltaf hvatt fólk til að
syngja með þegar leikin
eru lög sem allir kannast
við. Það er því miður allt
of lítið um að fólk haldi
við þeim gamla og góða
sið að taka lagið, en þenn-
■■ í kvöld verður
00 bandarískt
leikrit á
dagskrá útvarpsins. Leik-
rit þetta heitir „Af illri
rót“ og er glæpaleikrit.
Verkið er eftir Maxwell
Anderson og er byggt á
samnefndri skáldsögu
William Marsh. Aðalper-
sóna leiksins er átta ára
stúlka, Roda Pennmark.
Dag nokkurn fer hún i
skólaferðalag, þar sem vo-
veiflegur atburður gerist,
atburður, sem á eftir að
hafa mikil áhrif á líf
hennar og foreldra henn-
an sið vil ég gjarnan
endurvekja. Svo sakar það
ekki að fólk taki nokkur
dansspor við tónlistina.
Það hafa margir sagt mér,
að þeir hafi gaman af að
taka lagið, og ég kemst
aldrei yfir að leika öll þau
óskalög sem beðið er um,
jafnvel þó þættirnir séu
nú tvisvar í viku.“ Þættir
Hermanns eru nú bráðum
að verða 160, en alltaf
virðist fólk hafa áhuga á
að heyra falleg sönglög og
taka lagið heima í stofu.
ar. Með aðalhlutverkið fer
Anna Sólveig Þorsteins-
dóttir, en auk hennar
leika Karl Ágúst Úlfsson,
María Sigurðardóttir,
Margrét Ólafsdóttir,
Steindór Hjörleifsson,
Viðar Egg:erts8on, Bríet
Héðinsdóttir, Erlingur
Gíslason, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Karl
Guðmundsson, Rúrik
Haraldsson og fleiri. Leik-
stjóri er Kjartan Ragn-
arsson, en Karl Ágúst
Úlfsson þýddi verkið og
bjó það jafnframt til
flutnings í útvarpi.
Af illri rót
ÚTVARP
FIM4UUDKGUR
15. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Sigurðar G.
Tómassonar frá kvðldinu áð-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorð — Sigurveig Ge-
orgsdótfir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Breíðholtsstrákur fer I
sveit" eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharðsdóttir
les (12).
920 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tlö"
Lög frá líðnum árum. Um-
sjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 „Sagt hefur það ver-
ið. ..“
Hjálmar Arnason sér um þátt
af Suðurnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tll-
kynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
1320 Barnagaman
Umsjón: Gunnvör Braga.
14.00 „A íslandsmiðum" eftir
Pierre Loti. Séra Páll Pálsson
á Bergþórshvoli les þýðingu
Páls Sveinssonar (16).
1420 A frlvaktinni
Sigrún Sigurðardóttir kynnlr
óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1620 Slðdegistónleikar
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
1925 Veröld Busters
Annar þáttur. Danskur fram-
haldsmyndaflokkur I sex
þáttum, gerður eftir sam-
nefndri barnabók eftir Bjarne
Reuter og Bille August. Þýð-
andi Olafur Haukur Slmon-
arson. (Nordvision —
danska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Kastljós
Þáttur um inntend málefni.
Umsjónarmaöur Guöjón Ein-
Gisels Depkat og Raffi Arm-
enian leika Sellósónötu I
A-dúr eftir Franz Schubert. /
Tamás Vásáry, Thomas
Brandis og Norbert Haupt-
mann leika Trló I Es-dúr op.
40 fyrir planó, fiðlu og horn
eftir Johannes Brahms.
17.10 Siðdegisútvarp
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
FÖSTUDíkGUR
16. nóvember
arsson.
21.10 Gestir hjá Bryndisi
Fyrsti þáttur. Bryndls
Schram spjallar við fólk I
sjónvarpssal. I þáttum þess-
um er ætlunin að gefa sjón-
varpsáhorfendum kost á að
kynnast fólki I fréttum nánar
en unnt er I hraðfleygum
fréttatlma eöa fréttaklausum
dagblaða Upptöku stjórnar
Tage Ammendrup.
21.50 Hláturinn lengir llfið
Þriðji þáttur. Breskur mynda-
flokkur I þrettán þáttum um
gamansemi og gamanleik-
ara I fjðlmiðlum fyrr og slöar.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Útvarp frá Alþingi:
Stefnuræða forsætisráð-
herra og umræða um hana.
I fyrri umferð talar Steingrlm-
ur Hermannsson forsætis-
ráðherra allt að hálfri klukku-
stund. Fulltrúar annarra
þingflokkka hafa til umráða
20 mlnútur hver. I slðari um-
ferð hefur hver þingflokkur
10 mln. ræðutlma.
2225 Stjörnuhrap
(Stardust)
Bresk blómynd frá 1974.
Leikstjóri Michael Apted.
Aðalhlutverk: David Essex,
Adam Faith, Larry Hagman,
Marty Wilde og Rosalind
Ayres. Myndin er um bresk-
an poppsöngvara á bltlaár-
unum, höpp hans og glöpp á
framabrautinni. Hún er tram-
hald myndarinnar „Æsku-
glöp" (That’ll Be the Day)
sem sýnd var I Sjónvarpinu
25. ágúst sl. Þýðandi Krist-
rún Þórðardóttir.
00.00 Fréttir I dagskrárlok.
23.10 Kvöldtónleikar
Strengjaserenaöa I E-dúr op.
22 eftir Antonln Dvorák. Sín-
fónluhljómsveit útvarpsins I
Hamborg leikur; Hans
Schmidt-lsserstedt stj.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS2
15. nóvember
10.00—12.00 Morgunþáttur.
Fyrstu þrjátlu mlnúturnar
helgaðar Islenskri tónlist.
Kynning á hljómsveit eöa
tónlistarmanni. Viðtöl ef svo
ber undir.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
lónsson og Siguröur Sverr-
isson.
1420—15.00 Eftir tvö
Létt dægurlög.
Stjórnandi: Jón Axel Olafs-
son.
1®-00 I gegnum tlðina
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
16.00—17.00 Rokkrásin
Kynning á þekktri hljómsveit
eða tónlistarmanni.
Stjórnendur: Skúli Helgason
og Snorri Már Skúlason.
■17.00—18.00 Einu sinni áður
var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
SJÓNVARP