Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 15

Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 15 Reykjaneskjördæmi: Aðstandendur fatl- aðra halda fundi UNDANFARIÐ ár hefur sUrfað í Rejkjaneskjördæmi aðstandenda- hópur fatlaðra. f þessum hópi eru bæði aðstandendur þroskaheftra og hreyfihamlaðra einstaklinga i ýms- um aldri. Hópurinn hefur haldið tólf fundi i irinu og nú eru um hundraö manns viðloðandi þessa starfsemi. Uppbygging þessa áhugahóps er nokkuð á annan veg en algengast er í félagsstarfi. Engar kvaðir eru lagðar á meðlimina, engin stjórn og engin gjöld. Fólk kemur á samveru- stundirnar þegar það hefur tæki- færi til og á dagskrá eru málefni sem vekja áhuga þess. Aðaltilgangur hópsins er fræðslustarf og þrýstingur á þau málefni sem efst eru á baugi. Fund- irnir eru óformlegir og byggðir á rabbi um hvert verkefni og léttur blær er yfir þessum samkomum. Á hvern fund er fenginn einhver virtur einstaklingur sem hefur frumkvæði að rabbinu. Valin eru viðfangsefni sem gjarnan beinast inn i nánustu framtíð og má þar nefna nýtt form á skammtímavist fyrir fatlaða, tölvumál í sambandi við kennslu og hjálpartæki og ýmiskonar sam- starf og samvinnu aðstandenda á ýmsum sviðum. Hópurinn er að mynda tengsl við hiiðstæða starfshópa erlendis og fær efni þaðan. Á árinu hafa verið haldnir tveir skemmtifundir með léttum veiting- um þar sem slegið var á léttari strengi. Allir aðstandendur fatlaðra i Reykjaneskjördæmi eru velkomnir með í þennan hóp. Fastur fundarstaður aðstand- endahópsins er i Félagseiningu verndaða vinnustaðarins ÖRVA í Kópavogi að Kársnesbraut 1. (Fréttatilkynning.) KrLstín Gestsdóttir, höfundur bókarinnar 220 Ijúffengir lambakjötsréttir, af- henti Jóni Helgasyni landbúnaðariðherra fyrsta eintakið. Bókaklúbbur Amar og Örlygs: 220 ljúffengir lambakjötsréttir — eftir Kristínu Gestsdóttur ÚT er komin hjá Bókaklúbbi Arnar og Örlygs bókin 220 Ijúffengir lambakjöísréttir eftir Kristínu Gestsdóttur höfund bókarinnar 220 gómsætir sjivarréttir sem kom út hjá Erni og örlygi fyrir þremur árum. Hin nýja bók er prýdd fjölda lit- mynda auk margra teikninga eftir Sigurð Þorkelsson. I kynningu frá útgefanda segir m.a.: „Lengi hefur verið skortur á góðri, íslenskri matreiðslubók um lambakjöt en með þessari bók er bætt þar um. Islenskt lambakjöt hefur þá sérstöðu fram yfir lamba- kjöt annarra þjóða að fé okkar gengur á fjall sumarlangt og gefur það kjötinu sérkennilegt villibragð. Bókin er samin með það i huga. Margir nútímaréttir eru i bók- inni, svo sem pottréttir, pönnurétt- ir, „party“-bollur, pizzur, hamborg- arar, fondue, auk margra rétta úr hakki, læri, hrygg, framparti, slög- um og leifum. Að sjálfsögðu eru okkar þjóðlegu réttir hafðir með, svo sem slátur og sláturafurðir, bjúgu, hangikjöt, hrátt og soðið, og saltkjöt, en sýnt er hvernig salta má kjöt í heimahúsum á mjög auð- veldan hátt. Saltkjötið og hangi- kjötið er martreitt á fleiri vegu' en hinn hefðbundna hátt. Bent er á meðlæti með réttunum, en aftast er stór kafli með ídýfum, kryddsmjöri, sósum, hrásalötum og fleiri græn- metissalötum auk brauðs. Mbl./Sigurgeir Jónasson. Sigurður Jónsson, forseti bæjarstjórnar, ávarpar gesti þegar dælustöð fyrir skolpfrárennsli var tekin í notkun í Vestmannaeyjum. Dælustöð fyrir skolp tekin í notkun í Eyjum Sigurgeir Ólafsson hafnarstjóri í Vestmannaeyjum gangsetur dælurnar. VesUnannaeyjam, 12. nóvember. I GÆRDAG sá loksins fyrir end- ann á gömlu baráttumáli Eyjabúa þegar tekin var í gagnið sérstök dælustöð sem dælir skolpi frá stór- um fiskvinnslustöðvum og mið- og austurhluta kaupstaðarins á sjó út fyrir utan Eiðið. Áður rann þessi óþverri beint í höfnina sem að sjálfsögðu hafði í för með sér held- ur ógeðslega mengun í þessari líf- æð kaupstaðarins sem höfnin er. Þessi hvimleiða mengun hefur ver- ið mikill þyrnir í augum fólks og ráðamanna bæjarins og allt frá ár- inu 1977 hefur verið unnið að því að koma öllu skolpi frá bænum á haf ÚL Nú mun höfnin ekki lengur mengast af skolpi og verður hún nú fljót að hreinsa sig aftur og þá verður aftur hægt að renna færi fyrír smáfísk af bryggjusporðum, rétt eins og í gamla daga. Þessi framkvæmd er einstök meðal sveitarfélaga hér á landi og mun Vestmannaeyjabær vera eina sveitarfélagið sem hefur komið upp dælustöð til þessara hluta að því er kom fram i ræðu sem Sigurður Jónsson, forseti bæjarstjórnar, flutti þegar dælustöðin var tekin í notkun i gær. Dælur eru þrjár í stöðinni, ein 5,9 kw og tvær 22 kw og er enn pláss fyrir eina slíka til viðbótar. í dag eru afköst dælu- stöðvarinnar um 1200 tonn á klst. en stækkanleg í 1500 tonn. Dæluþróin tekur um 130 m3 og virkar þróin sem miðlun fyrir dælurnar. Útfallspípan er 27 m löng og 70 cm í þvermál og verð- ur næsta sumar lengd um 16 m. Steyptar lagnir á Eiðinu eru 435 m og þrjár plastlagnir eru grafnar niður í botninn yfir höfnina, hver um sig 550—600 m langar og 31 cm í þvermál. Útfallspípur vegna skolps frá bænum eru nú þrjár. Vestur af Hamri fara nú um 10% af skolp- inu, eldri útfallspipan á Eiðinu flytur um 45% af skolpinu og nú er restinni, um 45%, dælt út fyrir Eiðið. Áð koma öllu skoipi frá bænum á haf út er mikil framkvæmd og kostnaðarsöm en heildarkostnaður vegna þessa verks er á verðlagi í dag um 30 milljónir króna. Þessi fjárfreka framkvæmd nýtur hins vegar velþóknunar bæjarbúa og því mikið rétt sem Sigurður Jónsson sagði í ræðu sinni í gær: „Sunnu- dagurinn 11. nóvember verður örugglega í framtíðinni skráður sem merkisdagur í sögu okkar Eyjabúa, við Vestmanneyingar erum stoltir af þessari fram- kvæmd.“ Það var svo vel við hæfi að hafnarstjórinn í Eyjum, Sigur- geir ólafsson, gangsetti dælurn- ar, því trúlega verður enginn því fegnari en einmitt hafnarstjór- inn að losna við óþverrann úr höfninni. — hkj. HERÐATRÉ ulstyrktar fötluðum bömum SÖLUDAGUR 17. NÓVEMBER. Vinsamlega takiö sölubörnum vel. Lionsklúbburinn NJÖRÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.