Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
Hér sést dæmi um lykkjuskriftina sem hingad til hefur verið kennd í íslenskum skólum. Dæmiö er tekið úr
kennslubók Marinós L Stefónssonar, en hann og Guðmundur I. Guðjónsson gerðu þær kennslubækur sem notaðar
hafa verið við skriftarkennslu um árabil.
Breytingar á skriftarkennslu f Grunnskólum:
ítölsk skrift
í stað
lykkjuskriftar
ferðar. Námskeiðið stóð í fimm daga
og alls tóku um 60 kennarar þátt í því.
Dr. Gunnlaugur Briem, sem sjálf-
ur hefur notað ítalska skrift síð-
astliðin 19 ár, kenndi hana á endur-
menntunarnámskeiðinu: „Yfirburð-
ir ítölsku skriftarinnar eru með
tvennum hætti,“ sagði Gunnlaugur
er blaðamaður Mbl. hitti hann að
máli á námskeiðinu. „Annars vegar
er hún mjög falleg. En hitt skiptir
þó meiru, að hreyfingakerfi hennar
ber af skriftarhreyfingum þess stíls
sem nú er í notkun.
Um 1420 bjó ítalskur maður í
Flórens, Niccolo Niccoli, þessa
skrift til. Hún var notuð í 150 ár, en
blómatími hennar var um aldamót-
in 1500. Það sem Niccoli lagði til
málanna var einföldun á gotneskri
léttiskrift Hann sleppti skraut-
dráttunum og notaði stafinn litla-g
sem hann fékk að láni úr stafrófi
sem var 200 árum eldra. Skriftin
mótast af þeim áhöldum sem notuð
eru við hana. Þegar hvass oddpenni
komst í tísku á síðari hluta 16. ald-
ar, urðu miklar breytingar á henni.
Ef þú gætir þín ekki fer
blekið út um allt...
Þegar þú skrifar með oddpenna,
eru uppstrokurnar sérstakur vandi.
Ef þú gætir þín ekki stingst penn-
inn í pappírinn og blekið fer út um
allt. Koparstunguskriftin, sem
sumir kalla snarhönd, þróaðist úr
Ítalíuskrift, en mótaðist af mögu-
leikum og takmörkunum oddpenn-
ans. Hreyfingamöguleikar hans eru
litlir, þótt skriftin líti stórglæsilega
Skrift og stafagerð er sennilega
stærri þáttur í okkar daglega lífi en
við gertim okkur almennt grein fyrir.
Okkur finnst þaö jafn sjálfsagt að
skrifa og að lesa og hreint ekkert til-
tökumál. Skriftin á sér langa sögu að
baki og hefur verið þáttur í kennslu
barna um margra áratuga skeið. Nú
er svo komið að raeöal kennara ríkir
almenn og megn óánægja með lykkju-
skriftina, en svo nefnist sú skrift sem
flest okkar hafa lært I skólum. Árið
1979 gerðu tvær nefndir á vegum
menntamálaráöuneytisins úttekt á
skriftarkennslu f landinu. Niðurstöð-
urnar urðu meðal annars þær að ráð-
legt væri að breyta skriftarkennslunni
og taka upp nýtt skriftarkerfi f
grunnskólum landsins. í stað lykkju-
skriftar skyldi koma hin svonefnda
ítalska skrift og var ákveðið að skrift-
arkerfi sem kennt er við Alfred Fair-
bank skyldi vera fyrirmynd íslensku
útfærslunnar á skriftinni. Síðsumars
var efnt til endurmenntunarnám-
skeiðs fyrir kennara í skrift og var
ítalska skriftin þar aðallega til með-
Frá endurmenntunarnámskeiði kennara sem haldið var í Reykjavík í sumar.
út f höndum þeirra sem með hana
kunna að fara. Lykkjuskriftin svo-
kallaða, sem menn vilja nú leggja á
hilluna, er einfölduð koparstunga,
en erfði stórgallað hreyfingakerfi
oddpennans. Nú notum við kúlu-
penna og önnur enn nútimalegri
skriffæri. Og eiginleikar þeirra
bjóða upp á aðra möguleika og hafa
aðrar takmarkanir. Þeim hentar ít-
alíuskriftin betur, vegna þess að
hreyfingakerfi hennar er einfald-
ara. Það er mesti kosturinn. Hún er
þar að auki gullfalleg, en að minu
áliti er það aukageta, nokkurs kon-
ar bónus.
Skriftaræfíngar séu
skemmtilegur leikur
Á námskeiðinu notaði ég aðferð
við skriftarkennslu sem byggist á
að kenna hreyfingarnar áður en úr
þeim verða stafir. Undirstaða henn-
ar eru æfingar sem þjálfa samhæf-
ingu augna og handar, áður en let-
urformin koma til sögunnar. Einn
aðalvandinn er að leggja þær fyrir
börnin á þann hátt að þær séu
skemmtilegur leikur. Þegar þau eru
að teikna roð á fisk eru þau líka að
æfa frumform letursins. Láttu
börnin fá teikningu af mannsandliti
og segðu þeim að teikna á það
hringi með rauðum lit. Þau halda
að þau valdi sívaxandi mislingum
hjá aumingja manninum, en um
leið ert þú að kenna þeim skrift-
arhreyfingu stafsins O.
Fáránlegt tfskufyrirbrigöi
ótengdir stafir, sem af einhverj-
um ástæðum eru stundum kallaðir
„prent“, eru í mínum augum alvar-
legasta glappaskot í skriftar-
kennslu, að minnsta kosti á þessari
öld. Hreyfingakerfi þeirra miðast
við að nema staðar að hverjum staf
loknum. Það útheimtir allt annan
skriftarvana en tengd skrift gerir
ráð fyrir. Til þess að ná tökum á
henni, þurfa ung börn að uppræta
hjá sér einn vanann og temja sér
annan. Mörgum tekst það aldrei. Ég
er þeirrar skoðunar að forskriftin
þurfi að gera ráð fyrir tengingum
frá upphafi. Ótengda skriftin, sér-
staklega sú sem byggðist á hringj-
um og beinum strikum, var fárán-
legt tískufyrirbæri, angi af Bau-
haus-stílnum sem hérlendis er oft
kallaður Funkis. Nálægt 1920 og
fram yfir seinna stríð fannst sum-
um arkitektum mest púður í að
teikna hús, sem litu út eins og verk-
smiðjur og sem fólk vildi ekki búa í.
Húsgagnahönnuðir bjuggu til stóla
sem þú getur ekki setið á: tómar
krómpípur og hornréttir fletir. í
skólum var börnunum uppálagt að
A FRISKY LAMB A frisky lamb And a frisky child Playing their pranks In a cowslip meadow-. The sky all blue And the air all mild And the fields all sun And the lanes half shadow. Christma Rossetti MUSIC Otjtkeuó wttfi Iuó luti ytuuU trees, And the nurwthUn tvps tkatjreeze, 'Bcw tkmselvts wken ke (Ud swu): To lus musíc Jtlanh andfLnvers Evrrsbmtuj; as sm md skcwtrs Tkere kadmadi a lastiyu) sjtrituj. Evety tlwy tkat heard kwijíasj, Lvm tke kilíms oýtkesea, Himy tkeírketuh cmdtkenlay !oy. ln swut music is suck art, KilLtuj carc cmdyriej oj kcart Taií asietj, ar keariauj, die. Jokn TietcJur q/ y f eyuitii (o jtmfrio Líír1 Ire’cíejono (J (jajicon tuttfíc’JctJrjumti, m taímo- M d <u aíccPaJay ah ai aL afaman aoaj aj aras aj at aciyc <j |Lmeítjmojcmicon í i í t m n u.. Le újcctun’joi cjiJ t Jomio ÍAiiJra-s scritít sum JÍJlTtmtnto trjtr tttn tjc tj (Jon (ereJfmti íittcr^rbiíJtjtaíttOjcí^ JonoJ Pj t) oj>j rjcj no;iji/oip íújarmai fra afcmiajcjumtr’ n<. \6 rom a Ojxtiiij hy ImiIoi ho tkgh Hrny/u (1 1.111/1110). Romc, l|5’2 (Sitfhtly enlarged)
Sýnishorn úr kennslubók Alfreds Fairbank, en nú er unnið að Hér sést tengd ítölsk skrift, sem rituð er með sniðpenna. gerð kennsluefnis fyrir íslenska grunnskólanemendur, sem byggir á skriftarkerfi hans. Á þessari mynd sést upphafsgerð skriftarinn- ar, hún er ótengd og án tengikróka. Meðfylgjandi mynd er úr fyrstu kennslubók sem gefin var út í ítalskri skrift. Hún er gerð af Ludovico degli Arrighi og kom út í Róm árið 1552.