Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 34

Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Formenn borgaraflokkanna þriggja eru ákveðnir í því að leggja launþegasjóðina niður ef þeir Iðnrekendasambandið skipulagði mikla mótmælagöngu gegn launþegasjóðsfrumvarpínu 4. komast til valda eftir næstu kosningar. október í fyrra — og hyggst einnig gera það í ár. Sænsku launþegasjóðirnir stórmál í næstu kosningum — eftirPétur Pétursson Launþegasjóðirnir svonefndu eru nú sem óðast að hefja starf- semi sína, en til þeirra var stofnað með lögum frá sænska þinginu rétt fyrir áramótin síðustu. Sjóð- irnir fimm starfa hver í sínum landshluta undir stjórn nefnda þar sem launþegasamtökin eiga meirihluta. Hver sjóður fær sér- stakan framkvæmdastjóra sem sér um að ráðstafa því fé sem þeir hafa til umráða er kemur frá bein- um sköttum, sem ríkið innheimtir, og sérstökum gróðaskatti sem lagður er á fyrirtækin í landinu. Hugmyndin bak við sjóðina er sú að hafa áhrif á fjárfestinguna i atvinnulífinu og gefa launþega- samtökunum möguleika á því að láta þar til sín taka. Sjóðir þessir hafa verið eitt að- aldeilumálið í sænskum stjórn- málum um árabil. Atvinnurekend- ur og borgaraflokkarnir þrír, íhaldsflokkurinn, frjálshyggju- flokkurinn og miðflokkurinn, standa nú einhuga saman í and- stöðu sinni gegn sjóðunum og þeirri hugmyndafræði sem að baki þeim liggur. Síðastliðið haust höfðu atvinnurekendur í frammi mikinn áróður gegn því að frum- varpið um sjóðina yrði samþykkt. Skipulögð voru sérstök samtök sem samanstóðu af um 250 hópum víðs vegar um landið. 4. október var helgaður andstöðunni og þá skipulagði iðnrekendasambandið mótmælagöngu að þinghúsinu sem sagt var að um 100.000 manns hefðu tekið þátt í. Talsmenn þessara samtaka telja að með þessum sjóðum sé verið að leiða Svíþjóð út í sósíalskt ævin- týri sem þjóðin hvorki vilji eða hafi efni á. Það séu atvinnurek- endur og fjármálamenn sem eigi að sjá um atvinnulífið og fjárfest- ingu, en ekki valdamenn innan launþegasamtakanna — þeir hafi til þess hvorki umboð eða hæfni. Ennfremur segja þeir að sjóðirnir muni gefa leiðtogum launþega ótilhlýðilegt vald. Því er haldið fram að hér sé verið að læðast aft- an að sænsku þjóðinni og leggja fyrir hana snöru sósíalsks hag- kerfis. Formenn borgaraflokkanna lýstu því allir strax yfir, eftir að frumvarpið var samþykkt, fyrir tilstuðlan stjórnar jafnaðar- manna, að þeir mundu láta það verða sitt fyrsta verk, ef borgara- leg stjórn yrði mynduð eftir næstu kosningar, að leggja þessa sjóði SVIPMYNDIR UR BORGINNI/Ólafur Ormsson „Jæja, nú dekkum við upp borðw Að loknu þrúgandi verkfalls- tímabili er galsi i mannskapn- um. Á þriðja degi frá undirritun kjarasamnings á milli BSRB og samninganefndar ríkisins gekk ég yfir Snorrabraut frá Skáta- búðinni, skömmu fyrir hádegi, kom þá skyndilega amerískur fólksbíll á töluverðri ferð frá Miklatorgi og stefndi niður á Laugaveg og bílstjórinn flautaði einskonar sumarlag á bílflaut- una og ég áttaði mig á þvf þegar bíllinn var kominn fram hjá að við stýrið var Ólafur Gunnars- son, rithöfundur frá stóru Klöpp í Gullbringusýslu, og í framsæti við hlið hans Kjartan, sonur hans. Það var sólskin þann dag og frábært haustveður, einn af þessum fjölmörgu góðu dögum sem komið hafa i haust og Sig- urður Ragnarsson, skrifstofu- stjóri hjá Forlaginu, sagði mér f síma síðar sama dag að feðg- arnir hefðu verið þarna á ferö að skoða mannlífið f borginni. Kvöldið áður leit inn hjá mér góður vinur. Hann kom á nýju reiðhjóli sem hann hafði keypt hjá Erninum við óðinstorg og hann hló að tilverunni. Sagðist eiga nýtt ljóðahandrit í farangr- inum og bað mig um að hlusta eftir áhuga útgefenda, hann veit að ég kannast við nokkra, sem gefast ekki upp þó á móti blási. Hann sagði tíðindi af sameigin- legum kunningja okkar sem tek- ur að sér að aðstoða fólk við ýmsum kvillum og hefur lengi nO verið með nudd f kjallaraíbúð í miðborginni með góðum ár- angri og við vaxandi vinsældir. Kunningi okkar er þessa dagana í góðu skapi, þrátt fyrir að skammdegið færist nú yfir og er með áætlanir um að hefja nám i gerviaugnasmfði eftir næstu áramót í Bretlandi. Og svo er það maðurinn sem vann stóran vinning f happ- drætti, ef þannig má að orði komast. Hann er færður upp um einn launaflokk eftir nýgerða kjarasamninga á milli BSRB og ríkisins, fékk nýja stöðu á vinnu- stað þar sem hann hefur lengi unnið og af því tilefni kom hann að máli við vinnufélaga sinn: — Jæja, nú dekkum við upp borð á veitingahúsinu Arnarhóli. Ég býð í mat og drykk, okkur veitir ekki af að skerpa bragð- laukana eftir fjögurra vikna verkfall. Framundan eru betri tímar en áður, spái ég. Hann reyndist sannspár, mað- urinn, sem kom inní verslun við Laugaveginn, viku af verkfalli Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. Afgreiðslumaður í versl- uninni kannast við manninn og spurði hann: — Hvað stendur verkfallið lengi? — Fram að mánaðamótum, það verður samið 30. eða 31. október, svaraði maðurinn þegar í stað án þess að hika. — Ertu nú alveg viss um það? Verður verkfallið virkilega svona lengi? spurði afgreiðslu- maðurinn. — Já, það er pottþétt, stendur ekki deginum lengur. Ég hef áð- ur spáð fyrir um verkföll og reynst sannspár, svaraði maður- inn. Vissulega var hann sann- spár, tölvur eða launaðar spá- kerlingar hefðu varla gert betur. Samningar voru eins og kunnugt er undirritaðir 30. október sfð- astliðinn í karphúsi sáttasemj- ara og að undirskrift lokinni kveiktu sáttasemjari og fjár- málaráðherra f stórum vindlum, því stundin var hátfðleg. Þennan sannspáa mann þarf þjóðin nú að fá til að spá fyrir um þróun efnahagsmála næstu misseri hér á landi. Það væri einnig fróðlegt að sjá frá honum spá um verð- bólguna og hækkanir á vöruverði næstu mánuði. Það má svo einnig flokka það undir galsa að kunnur fram- kvæmdamaður f útgáfu bóka og tímarita hélt uppá upphaf jóla- bókavertíðarinnar i ár með þvi að fara á hraðbát um Reykjavík- urhöfn og nágrenni f blfðskap- arveðri, laugardag snemma f nóvembermánuði. Per-Olof Edin aðalsérfræðingur jafnaðarmanna í efnahagsmálum og höfundur hugmyndarinnar um laun- þegasjóðina. niður. Sérstök undirbúningsnefnd með fulltrúum þessara þriggja flokka hefur verið sett á stofn til þess að koma fram með ákveðnar tillögur um það hvernig að þessu skuli staðið. Frá þvf að þetta gerð- ist hefur þetta mál ekki verið jafn mikið á dagskrá, en nýleg ummæli formanna þessara flokka sýna að þeir eru ekki fallnir frá áformum sínum varðandi sjóðina sem þeir telja að ógni frjálsu markaðshag- kerfi. Vönduö skoðanakönnun í júlímánuði voru kynntar niðurstöður nýlegrar skoðana- könnunar á afstöðu almennings til launþegasjóðanna. Könnun þessi sem framkvæmd var af Ulf Himmelstrand, prófessor í félags- fræði við háskólann í Uppsölum, er vafalaust sú vandaðasta sem gerð hefur verið um afstöðuna til þessa máls. Fyrri kannanir, sem framkvæmdar hafa verið af ýms- um aðilum, hafa komið með mjög ólíkar niðurstöður. Sumir hafa fundið allt að 70% Svía andstæða sjóðunum, aðrir ekki nema 20%. Könnun sú sem hér um ræðir er byggð á viðtölum við um 1.600 manns. Af þeim sem tóku afstöðu til málsins voru 58% á móti og 42% meðmæltir. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna því hluti af þessum 58%, sem á móti voru, voru það ekki vegna þess að þeir voru á móti hugmyndinni sem slíkri, heldur fannst hún allt of útþynnt í þeirri mynd sem hún birtist loks í því frumvarpi sem samþykkt var á þinginu. Þessi hópur var allt að 19% þeirra sem afstöðu tóku. Afstaða manna fer samkvæmt könnuninni mjög eftir því hvaða flokk þeir aðhyllast. Sósialdemó- kratar og kommúnistar sýna mesta frávikið, en þar hafa allt að 18% aðra skoðun en flokksforyst- an, margir þeirra eru eins og áður segir óánægðir með endanlega gerð frumvarpsins. En í heild sinni verður ekki annað sagt en að könnunin sýni að í þessu máli er

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.