Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 36
36_____ Indland: MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Morðsamsærið á margra vitorði Nýju Delhí, 14. nóvember. AP. YFIRVÖLD í Indlandi hafa handtekið lögregluforingja fyrir aðild að morð- samsærinu gegn Indiru Gandhi. Var hann raunar handtekinn daginn sem Indira var myrt, en það var fyrst í dag sem látið var uppskátt um það. Lögregluforinginn Jagtar Singh (af trúflokki síkha en þeir bera allir nafnið singh, sem þýðir ljón), var í öryggisverði Indiru og er hann sakaður um að hafa tekið beinan þátt í samsærinu gegn henni. Blaðið Hindustan Times sagði svo frá því í dag, að sex aðrir menn í öryggisverðinum hefðu vit- að hvað til stóð en ekki skýrt frá því. Sagði blaðið, að Beanth Singh, sá banamanna Indiru, sem var skotinn, hefði áður farið til Amr- itsar, hinnar helgu borgar síkha, og svarið þess dýran eið að hefna árásar stjórnarhermanna á Gullna musterið. Menaka Gandhi, ekkja Sanjays Gandhi, sonar Indiru, hét þess í dag að berjast gegn mági sínum, Rajiv, í kosningunum í desember. Sagði hún að sú samúð sem hann hefði notið vegna móðurmissisins, væri stórleg ýkt og yrði minni með degi hverjum. Norðmaður aðalvitnið í ensku bankaránsmáli Ósló, 14. nóvember. Frá Jan Erik Lnure, frétUriUra Mbl. Norskur tæknifræðingur lagði sig nýlega í lífshættu við að upplýsa bankar- án, sem framið var í Englandi. Fyrir hans tilstilli tókst að koma upp um ræningjana og endurheimta hátt á fimmta hundrað milljónir króna verðmæti í skuldahréfum. Saga þessi hófst í Lundúnum árið 1982. Ræningjar brutust þar inn í banka og tókst að hafa á brott með sér tæplega tólf millj- ónir króna í reiðufé og skuldabréf fyrir hátt á fimmta hundrað millj- ónir, eins og fyrr gat. Skuldabréf- in mátti innleysa í banka, svo að þau voru í rauninni jafnverðmæt og reiðufé væri. I fyrra dvaldist Norðmaðurinn á 12 farast í Tyrklandi LsUnbul, 14. nóvember. AP. Tólf manns fórust og 12 slösuð- ust árla í dag er rúta og járn- brautarlest rákust saman í hérað- inu Nidge í miðju Tyrklandi. Af hinum látnu voru 10 farþegar í rútunni. eynni Möltu og komst þá í sam- band við anga úr ræningjaklík- unni. Bauðst honum þar að kaupa skuldabréf með afföllum. Þegar hann kom heim til Noregs, lét hann lögregluna vita og féllst á að veita liðsinni sitt. Var maðurinn svo sendur til Englands, þar sem honum tókst að fá tvo af forkólfum hópsins, sem braust inn í bankann á sínum tíma, til að eiga fund með sér. Voru tveir norskir lögreglumenn með og létust vera áhugasamir kaupendur. Mikill fjöldi lögreglumanna beið fyrir utan hótelið, þar sem fund- urinn átti sér stað. Og þegar ræn- ingjamir drógu fram skuldabréf- in, lét lögreglan til skarar skríða og handtók þá umsvifalaust. Norðmaðurinn verður aðalvitni ensku lögreglunnar, þegar málið verður tekið fyrir seinna í þessum mánuði. Nafni hans er haldið leyndu af ótta við hefndarráðstaf- anir glæpaklíkunnar. Harðnar í ári Stöðugt harðnar í ári hjá þeim kolanámumönnum í Bretlandi, sem þar eru í ólöglegu verkfalli. Þeir fá rúm 6 pund á viku úr verk- fallssjóðum, sem er að sjálfsögðu allt of lítið til framfæris nokkurri fjölskyldu. Því er reynt að drýgja þetta fé á ýmsan hátt. Hér á myndinni sjást tvær konur tína kol við námu, þar sem allri starf- semi hefur verið hætt af völdum verkfallsins. Nicaragua: „Stríðs- ástand“ í óviss- an tíma Managua, 14. nóvember. AP. HUMBERTO Ortega, varnarmála- ráðherra í Nicaragua, sagði í dag, að her landsins yrði allur hafður í viðbragðsstöðu þar til Reagan, Bandaríkjaforseti, hefði endanlega lagt á hilluna áætlanir sínar um inn- rás í landið. Mikill viðbúnaður er í Managua og engu líkara en styrjöld sé að skella á. Eru hermenn hvarvetna á verði og skriðdrekar við helstu gatnamót. Talið er, að um 200.000 manns séu undir vopnum til að hindra innrás Bandaríkjamanna, sem stjórnvöld segja að sé yfirvof- andi. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins segir hins veg- ar, að allt tal sandinista um inn- rás sé þvættingur en hitt sé ann- að, að trúlega sjái þeir sér hag í að halda því fram. íran: Sonur keisara spáir uppreisn London, 14. nóvember. AP. Reza Pahlavi, sonur fyrrum frans- keisara, spáir meiríháttar uppreisn gegn byltingarstjórninni í íran. Til- gangurinn sé að steypa Khomeini erkiklerki. Ummæli þessi eru höfð eftir Reza, sem tekið hefur sér keisara- tign af íran, í blaði útlægra írana í London, Kayhan. Sagði Reza undirbúning upp- reisnar gegn Khomeini í fullum gangi, bæði heima fyrir og meðal burtfluttra frana. Sagði Reza mikla óánægju með klerkaveldið heima fyrir og spáir hann því að klerkarnir verði ekki öllu lengur við völd. Ný leit að fjársjóði nasista í Toplitz-vatni Bad Amicc, Austurríki, 14. uÓTember. AP. TÆKNIMENN úr hernum, froskmenn og tundurduflasérfræðingar hófu f gær að hífa tundurdufl og önnur hernaðartól upp úr Toplitz-vatni í Steiermark-héraði, þar sem talið er, styrjaldarárunum. Vitað er til, að þýski herinn hafði eldflaugatilraunastöð á vatninu, og gera björgunarmenn sér vonir um að geta náð upp fleka sem eldflaugaskotpallarnir hvíldu á. „Við erum þarna með 40 tæknimenn, þrjá froskmenn úr hernum og þrjá froskmenn á vegum innanríkisráðuneytisins," sagði Herbert Skacel ofursti í tæknideild hersins i Salzburg, þegar AP ræddi við hann. A mánudag náðist upp tund- urdufl sem hafði sokkið og leifar af hátíðnimagnara, og í morgun fannst hluti úr skrokk orrustu- flugvélar, sem hrapaði niður í nasistar hafi falið digra gullsjóði á vatnið í lok stríðsins, að sögn Skacels. Flakið af flugvélinni fannst I fyrra, þegar vestur-þýski Iíf- fræðingurinn Hans Fricke hóf á ný að hnýsast í Toplitz-vatn, en fyrir nokkrum árum fór hann í dvergkafbáti um vatnið þvert og endilangt, í því skyni, að því er sagt var, að kanna lífríki þess. Heimamenn, sem fylgdust með ferðum hans, drógu þó margir I efa, að tilgangur Frickes væri sá sem hann lét í veðri vaka. Toplitz-vatn, sem er vestast I hinu fallega Salzkammergut- héraði, ekki langt frá Salzburg, hefur ýmist verið kallað „rusla- kista nasista" eða „dýrgripa- geymsla" vegna þeirra fjársjóða gulls sem sagt hefur verið að hafi verið faldir þar. En þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir allt frá stríðslokum hefur köfurum ekki tekist að finna þar neitt annað en fáeinar timburkistur fullar af fölsuðum pundseðlum, sem nas- istarnir létu framleiða, þegar þeir gerðu misheppnaða tilraun til að eyðileggja breska gjald- miðilinn. Sérfræðingar hersins og stjórnarinnar voru kvaddir til nú að ósk stríðsminjasafnsins í Vín, sem gerir sér vonir um að komast þarna yfir eitthvað af verðmætum munum frá nasista- tímanum. En aðalmarkmiðið virðist vera að ná í eldflauga- flekann, þó að það sé jafnframt langerfiðast af því sem þarna verður fengist við vegna stærðar flekans og þyngdar stálsins í grind hans. Þrátt fyrir að ýmsir hafi sínar efasemdir um, hvað búi undir öllu þessu tilstandi, er ljóst, að björgunarliðið setur traust sitt á Fricke. Dvergkafbáturinn hans var notaður til að koma böndum á flugvélarskrokkinn sem áður var minnst á, svo og sokkna tundurduflið, svo að unnt væri að hífa þessa hluti upp af botni vatnsins. Ekki er þó búist við árangri sem erfiði af umsvifum þessum, þó mikil séu að vöxtum. Og varla er þess heldur að vænta að þessu sinni, að nein umtalsverð fémæti verði sótt í þetta dulúðuga vatn sem sagt er að búi yfir digrum fjársjóðum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.