Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
37
Rabin í Líbanon
Yitzhak Rabin, varnarmálaráðherra ísraels, hefur verið á ferð um Suður-Líbanon og kynnt sér vel ástandið á
þeim svæðum, sem ísraelsher ræður. Sagði hann við fréttamenn, að hvar sem hann hefði komið hefðu
hermennirnir spurt hann hvenær þeir fengju að fara heim. AP.
Ólympíuskákmótið
hefst á sunnudag
Aþenn, 14. nóienbtr. AP.
Macmillan hvetur
til þjóðarsáttar
RÚMLEGA 1.000 skákmenn frá
99 þjóðlöndum, þar á meðal frá
ísrael og Palestínu, búa sig nú
undir að keppa á 26. Ólympíu-
skákmótinu, sem hefst á sunnu-
dag í borginni Saloniki í Grikk-
landi.
Ólympíuskákmótið, sem hald-
ið er á tveggja ára fresti, stend-
ur í 16 daga og rúmlega 300
skákir tefldar hvern dag. Hafa
aldrei jafn margir tekið þátt í
því og nú, jafnt í karla- sem
kvennaflokki, og er þetta i
fyrsta sinn sem það fer fram í
Grikklandi. Reka Grikkir harð-
an áróður fyrir því, að mótið
verði alltaf haldið þar í landi á
sama hátt og þeir vilja að verði
með sumarólympíuleikana.
Ólympíumótið i skák var fyrst
haldið í London árið 1927. Á síð-
ustu tíu mótum hefur Sovét-
maður orðið Ólympíumeistari
átta sinnum en Bandaríkjamað-
ur og Ungverji einu sinni.
Loadoa, 14. DÍTember. AP.
Harold Macmillan fyrrum for-
sætisráðherra rauf í gær 20 ára þögn
með ræðu í lávarðadeild brezka
þingsins í gær, þar sem hann hvatti
til siðferðisbyltingar og þjóðarsáttar.
Macmillan stendur á níræðu og
hefur ekki komið fram opinber-
lega í 20 ár er hann flutti jómfrúr-
ræðu sína í lávarðadeildinni.
Hann var aðlaður og tók sér lá-
varðstign sem lávarður af Stock-
ton er hann varð níræður í febrú-
Veður
víða um heim
Akureyri 1 anjókoma
Amsterdam 12 hoióskfrt
Aþena 13 skýjaó
BflTMkXM vanfar
Bertín vantar
Brusoal 15 skýiaó
Chícago 9 skýjaó
Oublin 14 skýiaó
Fanayjar 14 skýfaó
Frankfurt 10 hoióakfrt
Ganf S skýjaó
Helsinki 7 skýjaó
Hong Kong 24 skýjað
Jerúsalam 16 skýjaó
Kaupmannahöfn 8 heióskírt
Las Palmaa 1» skýjað
Linabon 15 rigning
London 11 akýjaó
Los Angeles 21 skýjaó
Luxomburg 14 þokuruón.
Malaga vsntar
Mallorca 13 úrk. i gr.
Miami 17 hoióskfrt
Montreal 0 skýjaó
Moskva heióakirt
M yn,L H®w T OTK 5 akýjað
(Mi 1 akýjaó
Parta 13 rigning
Peking 7 skýjaó
Reykjavík 5 rigning
Rio do Janeiro 26 rigning
Rómaborg 19 skýjaó
Stokkhólmur 7 heióskírt
Sydney vantar
Tókió 15 hoióaklrt
Vínarborg 7 skýjaó
Þórshöfn 9 akýjaö
ar sl. Þangað til hafði hann hafn-
að því að taka við aðalstign, sem
forsætisráðherrar hljóta sjálf-
krafa, er þeir hverfa úr starfi.
Macmillan var forsætisráðherra
1957-63.
Macmillan hélt jómfrúrræðuna
blaðalaust og sagði átakanlegt að
fylgjast með því sem væri að ger-
ast með þjóðinni og geta ekkert
skakkað leikinn. Varð honum tíð-
rætt um verkfall námamanna og
af mikilli tilfinningu hrósaði hann
hugrekki fyrri kynslóða náma-
manna og framlagi þeirra til sög-
unnar. Kvartaði hann undan því
sem hann kallaði „brjálæðislegt
hatur“ milli stétta og kynslóða og
hvatti til þjóðarsáttar. „Þetta
verkfall beztu manna í heimi, sem
lögðu að velli heri keisarans og
Hitlers, er bæði átakanlegt og
tímaskekkja," sagði Macmillan.
ÓeirÖaseggir
klófestir í
Suður-Afríku
Jóhaaaesorborg, 14. oAnnber. AP.
Handteknir hafa verið fjórir and-
ófsleiðtogar, sem sagðir eru for-
sprakkar aðgerða og uppþota sem
beinst hafa gegn stjórn S-Afríku og
kynþáttastefnu hennar.
Meðal fjórmenninganna eru
stúdentaleiðtogi og formaður eins
stærsta verkalýðsfélags þeldökkra
Suður-Afríkubúa.
Hundruð her- og lögreglumanna
tóku þátt i leit að forsprökkunum
í borgarhverfi norðaustur af. Jó-
hannesarborg tvo daga í röð. Voru
alls 78 menn handteknir og þeir
ákærðir fyrir ýmsar sakir tengdar
óeirðum, sem blossað hafa upp
öðru hverju siðustu mánuðina.
Á síðustu tveimur vikum hafa
a.m.k. 12 óeirðaseggir verið hand-
teknir til viðbótar þeim 206, sem
sagðir eru í haldi án ákæru. Vitað
er um 155, sem fallið hafa í óeirð-
um í S-Afríku frá í ágústlok, allir
þeldökkir, nema einn hvítvoðung-
ur.
Luns:
Hvetur SA-Asíu-
þjóðir til að efla
varnarmátt sinn
Sioxapore. 9. nÓTember. AP.
JOSEPH Luns, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags-
ins, sagði í ræðu, sem hann flutti í
höfuðbækistöðvum stofnunar um
málefni Suðaustur-Asíu, að þjóðir í
þessum heimshluta ættu að keppa að
því að sinna sínum öryggismálum án
íhlutunar annarra ríkja. Luns sagði,
að AtlanLshafsbandalagsþjóðir ættu
að fylgjast með velþóknun með þvi,
sem þjóðir Suðaustur-Asíu gerðu f
öryggismálum sínum, og almennt
því sem fram færi í þessum heims-
hluta. Luns sagði, að i Japan gætti
vaxandi áhuga á því að annast á eig-
in spýtur sín varnarmál og vitaskuld
tengdist það einnig efnalegum
styrkleika Japana.
Samtök ríkja Suðaustur-Asiu,
Singapore, Malaysía, Indónesía,
Thailand, Filippseyjar og Brunei,
hafa lagt fram skerf til varnar- og
öryggismála í heimshlutanum og í
hinum „frjálsa heimi" með and-
stöðu við hernám Víetnama í
Kambódiu. Eins og alkunna er,
njóta Víetnamar stuðnings Sov-
étríkjanna og Luns sagði, að Sov-
étmenn notfærðu sér víetnamskar
stöðvar til að eiga hægara með
Joseph Luns
njósnir og afskipti af siglingum og
annarri umferð milli Evrópu og
Asíu. Luns sagði, að núverandi
stefna I Kína miðaði að stöðug-
leika og Sovétríkin gætu einnig
gert ámót breytingar ef vilji væri
fyrir hendi.
Andstæðingur Marcos
myrtur á Filippseyjum
Moailo, 14. oóvember. AP.
Borgarstjóri Zamboanga, Cesar
Climaco, sem er kunnur og skelegg-
ur andstæðingur Marcos forseta, var
myrtur mergun. Árásarmanninum
tókst að flýja inn á akur og renna úr
greipum manna sem veittu honum
eftirför í hávöxnu grasinu.
Marcos fyrirskipaði yfirmanni
hersins, Fidel V. Ramos, að annast
rannsókn morðsins. Climaco var
68 ára. Hann náði kosningu til
þings í vor, en afsalaði sér sæti
sínu þar sem hann vildi áfram
vera borgarstjóri í Zamboanga,
sem er 870 km suðaustur af Man-
ila.
Tónlistarunnendur
Selfossi og Reykjavík
Þriðja starfsár íslensku hjómsveitarinnar hefst með tónleikum í íþróttahúsi
gagnfræðaskólans á Selfossi laugardaginn 17. nóvember kl. 14:30.
Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn.
Hljomsveitarstjori:
Ragnar Björnsson
Efnisskrá
Karl Hermann Pillney:
Eskapaden Eines
Gassenhauses.
Svíta fyrir kammerhljómsveit.
Jacques Ibert:
Suite Symphonique.
Svíta fyrir kammerhljómsveit.
Frédéric Chopin:
Mazurka nr. 17, Scherzo nr. 2.
Einleikur: Stephanie Brown.
Wolfgang Amadeus Mozart:
Pianókonsert nr. 9,
f Es-dúr, K271.
Einleikur: Stephanie Brown.
Efnisskrá þessi verður endurflutt á fyrstu áskriftartónleikum hljómsveitarinnar
í Bústaðarkirkju sunnudaginn 18. nóvemberkl. 17:00.
Áskriftarsímarnir eru 22035 og 16262.
Þú getur tryggt þér áskrift með símtali og greitt gjaldið eftir samkomulagi.
önnur efnisskrá vetrarins verður frumflutt á Akranesi laugardaginn 24. nóvember kl. 14:30 og endurtekin á
áskriftartónleikum i Reykjavík sunnudaginn 25. nóvemberkr. 17:00.
Einleikari:
Stephanie Brown
Að loknu meistaraprófi frá Julliard tónlistar-
háskólanum (1976) vakti Stephanie
Brown (1955) þegar athygli fyrir öryggi i
tækni og túlkun. Síðan hefur hróður hennar
vaxið jafnt og þétt með tónleikum vlðs
vegar um Bandarikin. Hún hefur leikið með
mörgum helstu hljómsveitum þarlendis, og
hefur nú á efnisskrá sinni fjölda pianó-
konserta. Ummæli gagnrýnenda stórblað-
anna hafa öll verið á einn veg: „Sfephanie
Brown er sannarlega undursamlegur
píanóleikari, eigin tón og ákveðinn listræn-
an persónuleika" (N. Y. Times). „Stephan-
ie Brown er ungur píanisti með stórar hug-
myndir og tækni sem hætir þeim. Blæ-
brigðin voru i fögru jafnvaBgi og styrkleika-
breytingar virtust hlfta innra afli hennar"
(The Wahington Post). Þess má geta, að
Stephanie Brown lék nú i haust þennan
Stephanie Brown
konsert Mozarts með þekktustu kammer-
hljómsveit Bandarikjanna. St. Paui
Chamber Orchestra. undir stjóm Pinnkas
Zukerman.