Morgunblaðið - 15.11.1984, Side 39

Morgunblaðið - 15.11.1984, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 39 Eiturlyfjasalan í grafhýsinu kom upp um Clark Olofsson Alræmdasti glæpamaður í Svfþjóð enn staðinn að verki sór hann og sárt við lagði að nú ætlaði hann aldrei framar að gerast brotlegur við lög. Fíkniefnalögreglan í Stokk- hólmi lét fylgjast með Olofsson og brátt vaknaði grunur um, að hann væri farinn að fást við eit- urlyfjasölu. Lögreglumennirnir eltu hann eins og skugginn og þeir urðu td. vitni að því þegar Olofsson misþyrmdi sárasak- lausum manni á bensínstöð en þá var hann á leið til Belgíu með háar fjárgreiðslur fyrir eiturlyf- in. Lögreglan lét til skarar skríða þegar nokkrir menn úr eitur- lyfjahringnum voru að flytja eit- urlyf úr íbúð i Stokkhólmi og á nokkrum tímum voru 15 menn handteknir. Meðan á þessum handtökum stóð hringdi Olofsson margsinn- is til Stokkhólms frá Belgíu og var orðinn dálítið órólegur þegar hann náði aldrei tali af sam- verkamönnum sínum. Hann ró- aðist þó þegar eiginkona tölvu- verkfræðings við landssímann, sem var einn af mönnum Olofs- son, sagði, að hann væri í ein- hverjum opinberum erinda- gjörðum, enda vissi hún ekki betur. Einn starfsmanna landssím- ans var handtekinn i afmælisv- eislu, einmitt þegar verið var að hrópa húrra fyrir afmælisbarn- inu. Fjórir þrælvopnaðir lögregl- umenn spörkuðu þá allt í einu dyrunum upp og handtóku manninn að foreldrum hans og tengdaforeldrum ásjáandi. 40 sænskir lögreglumenn hafa unn- ið að þessu máli dag og nótt að undanförnu en auk þess hafa þeir verið i nánu sambandi við eiturlyfjalögregluna i Hollandi, Belgiu og Portúgal. Belgíska lögreglan er nú að yf- irheyra Clark Olofsson en konan hans, sem er belgisk og ófrisk að öðru barni þeirra, er farin heim til foreldra sinna. Er hún af góð- um ættum í Belgiu og voru for- eldrar hennar mjög andvígir þvi að hún giftist Olofsson. Þeir samþykktu þó að sjá til og reyna manninn og settist hann þá að i Belgíu. Clark Olofsson hefur nú sýnt tengdaforeldrum sinum hvaða mann hann hefur að geyma. Olofsson er 37 ára gam- all og hefur verið í fangelsi i 17 ár samtals. Hann hefur gerst sekur um marga glæpi, myrti lögreglumann i Nyköping árið 1966 og stóð að einhverju mesta bankaráni sem um getur í Sví- þjóð. Búist er við að belgiska lög- reglan afhendi Olofsson eftir þrjár vikur en óvíst er hvað verður um lystisnekkjuna hans þar, sem hann hafði keypt fyrir milljónir króna. Þeir sem eru honum samsekir, eiga stranga refsingu yfir höfði sér. Upphafið að afhjúpun eitur- lyfjahringsins er það, að i sumar ■G' Q Lystisnekkjan hans Clarks Olofsson. Henni sigldi hann reglulega til Svíþjóóar. Stokkbólmi, U. nóvember. Fri Erik Udén, Á SÍÐUSTU dögum hefur lögregl- an í Stokkhólmi flett ofan af stærsta eiturlyfjahring, sem um getur í Svíþjóð. Hefur hann selt eiturlyf fyrir a.m.k. 15 milljónir sænskra króna (um 60 millj. ísl.) og er höfuðpaurinn sá alræmdi af- brotamaður Clark Olofsson, sem nú er í vörslu belgísku lög- reglunnar. Fram til þessa hafa 15 manns verið handteknir fyrir aðild að „landssímahringnum", sem svo er kallaður vegna þess, að þrír frétUriUra Mbl. þeirra unnu við landssímann í Stokkhólmi og hjálpuðu Olofs- son að smygla amfetamini til Svíþjóðar og koma því á markað. Glæpalögreglan í Stokkhólmi hefur haft góðar gætur á Clark Olofsson allt frá því honum var sleppt úr fangelsi árið 1979, en þá hóf hann nám við blaða- mannaháskólann i borginni. Meðan hann var i skólanum braut hann af sér aftur og beið hans þá fangelsið á ný. Á liðnu vori var honum svo sleppt og þá í þessu grafhýsi f kirkjugarði í Stokkhólmi fann lögreglan fimm kfló af amfetamíni og rakti það til Olofssons. Clark Olofsson. í allt sumar var fylgst með ferðum hans. varð uppvíst um eiturlyfjasölu, sem fram fór í grafhýsi í kirkju- garði í Stokkhólmi. Hafði lög- reglan fljótt uppi á aðalmannin- um í þessum hópi og reyndist hann standa f sambandi við Olofsson. Var þá haft eftirlit með lystisnekkjunni, sem Olofs- son sigldi reglulega til Svíþjóðar, og kom þá í ljós, að hann tók við miklum peningum af samstarfs- mönnum sínum. Var þetta allt saman fest á myndband. Ekki er búist við, að réttarhöldin hefjist fyrr en í apríl eða maí á næsta ári. Pinochet stöðvar kirkjuráðstefnu Ahmed Saleh Khedera, ráðunautur Hassans konungs, ferð til Marokkó frá Addis Ababa eftir úrsögn Marokkó úr Einingarsamtökum Afríku. Örlög friðarsinna: Sendur nauðugur til herþjónustu Moakvv, 14. nóvember. AP. SOVÉSKUR friðarsinni, hinn 21 árs gamli Nikolai Khramov, hefur verið sendur nauðugur í herstöð nærri kínversku landamærunum. Hann hefur jafnt þar sem áður í Moskvu þrásinnis neitað að ganga í herþjón- ustu og nú er honum hótað lögsókn þar fyrir og allt að 2 ára fangelsun. Fyrir tveimur árum, áður en Khar- mov lét að sér kveða í friðarhreyf- ingu í Moskvu, vildi herinn ekki taka við honum vegna sjóngalla. Kharmov hefur í seinni tíð streist við herþjónustu vegna þess að hún striddi gegn samvisku hans. Friðarhópurinn sem hann hefur starfað fyrir beitir sér fyrir „vaxandi trausti milli Bandarikj- anna og Sovétríkjanna". Hann hefur oft verið handtekinn í seinni tið og fengið þá afarkosti að ganga í herinn eða sæta lögsóknar að öðrum kosti. SantUgo, Chile, 14. nAvember. AP. AUGOSTO Pinochet forseti her- stjórnarinnar í Chile hefur enn fært út kvíarnar eftir að hafa lýst yfir neyðarástandi í landinu á dögunum. Hann hefur nú sent á annað hundrað stjórnarandstæð- inga í útlegð og bannað vikulanga ráðstefnu sem kaþólska kirkjan hafði boðað til. Pinochet tilkynnti í dag, að hann hefði sent 103 ónafn- greinda menn í útlegð til fiski- mannaþorpsins Pisagua í norð- urhluta landsins. Þangað sendi hann 249 aðra fyrir nokkru. Hinir 103 voru úr hópi 3.000 manna sem lögreglumenn smöl- uðu saman í fjöldahandtökum í Shantytown, fátækrahverfi í Santiago, en þar eiga marxistar sterkt vígi. Sagði Pinochet að hinir brottræku væru „hættu- legir ríkinu og vildu afvegaleiða þjóðina á leið sinni til lýðræð- is“. Á sama tíma fyrirskipaði borgarstjórinn í Santiago, aft ráðstefna kaþólsku kirkjunnar um „leiðina til lýðræðis" mætti ekki fara fram og barst tilkynn- ingin fáum klukkustundum áð- ur en ráðstefnan átti að hefjast. Um 900 hundruð manns höfðu boðað þátttöku sína í hinni ár- legu og vinsælu ráðstefnu. Tals- maður stjórnar Pinochets, Ger- Pinochet ardo Roa, sagði að kirkjuleið- togum hefði láðst að biðja um tilskilin leyfi fyrir ráðstefn- unni. Meðal þeirra sem áttu að flytja erindi á ráðstefnunni voru Bernandino Pinera, fram- kvæmdastjóri ráðstefnunnar, sem ætlaði að „skilgreina neyð- arástandið" í landinu, mæður fanga sem týnst hafa sporlaust, skáld og rithöfundar sem hafa mátt þola ritskoðun og loks nokkrir menn sem hafa verið í útlegð vegna stjórnmálaskoð- anna sinna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.