Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
39
Eiturlyfjasalan í grafhýsinu
kom upp um Clark Olofsson
Alræmdasti glæpamaður í Svfþjóð enn staðinn að verki
sór hann og sárt við lagði að nú
ætlaði hann aldrei framar að
gerast brotlegur við lög.
Fíkniefnalögreglan í Stokk-
hólmi lét fylgjast með Olofsson
og brátt vaknaði grunur um, að
hann væri farinn að fást við eit-
urlyfjasölu. Lögreglumennirnir
eltu hann eins og skugginn og
þeir urðu td. vitni að því þegar
Olofsson misþyrmdi sárasak-
lausum manni á bensínstöð en
þá var hann á leið til Belgíu með
háar fjárgreiðslur fyrir eiturlyf-
in.
Lögreglan lét til skarar skríða
þegar nokkrir menn úr eitur-
lyfjahringnum voru að flytja eit-
urlyf úr íbúð i Stokkhólmi og á
nokkrum tímum voru 15 menn
handteknir.
Meðan á þessum handtökum
stóð hringdi Olofsson margsinn-
is til Stokkhólms frá Belgíu og
var orðinn dálítið órólegur þegar
hann náði aldrei tali af sam-
verkamönnum sínum. Hann ró-
aðist þó þegar eiginkona tölvu-
verkfræðings við landssímann,
sem var einn af mönnum Olofs-
son, sagði, að hann væri í ein-
hverjum opinberum erinda-
gjörðum, enda vissi hún ekki
betur.
Einn starfsmanna landssím-
ans var handtekinn i afmælisv-
eislu, einmitt þegar verið var að
hrópa húrra fyrir afmælisbarn-
inu. Fjórir þrælvopnaðir lögregl-
umenn spörkuðu þá allt í einu
dyrunum upp og handtóku
manninn að foreldrum hans og
tengdaforeldrum ásjáandi. 40
sænskir lögreglumenn hafa unn-
ið að þessu máli dag og nótt að
undanförnu en auk þess hafa
þeir verið i nánu sambandi við
eiturlyfjalögregluna i Hollandi,
Belgiu og Portúgal.
Belgíska lögreglan er nú að yf-
irheyra Clark Olofsson en konan
hans, sem er belgisk og ófrisk að
öðru barni þeirra, er farin heim
til foreldra sinna. Er hún af góð-
um ættum í Belgiu og voru for-
eldrar hennar mjög andvígir þvi
að hún giftist Olofsson. Þeir
samþykktu þó að sjá til og reyna
manninn og settist hann þá að i
Belgíu. Clark Olofsson hefur nú
sýnt tengdaforeldrum sinum
hvaða mann hann hefur að
geyma. Olofsson er 37 ára gam-
all og hefur verið í fangelsi i 17
ár samtals. Hann hefur gerst
sekur um marga glæpi, myrti
lögreglumann i Nyköping árið
1966 og stóð að einhverju mesta
bankaráni sem um getur í Sví-
þjóð.
Búist er við að belgiska lög-
reglan afhendi Olofsson eftir
þrjár vikur en óvíst er hvað
verður um lystisnekkjuna hans
þar, sem hann hafði keypt fyrir
milljónir króna. Þeir sem eru
honum samsekir, eiga stranga
refsingu yfir höfði sér.
Upphafið að afhjúpun eitur-
lyfjahringsins er það, að i sumar
■G' Q
Lystisnekkjan hans Clarks Olofsson. Henni sigldi hann reglulega til
Svíþjóóar.
Stokkbólmi, U. nóvember. Fri Erik Udén,
Á SÍÐUSTU dögum hefur lögregl-
an í Stokkhólmi flett ofan af
stærsta eiturlyfjahring, sem um
getur í Svíþjóð. Hefur hann selt
eiturlyf fyrir a.m.k. 15 milljónir
sænskra króna (um 60 millj. ísl.)
og er höfuðpaurinn sá alræmdi af-
brotamaður Clark Olofsson, sem
nú er í vörslu belgísku lög-
reglunnar.
Fram til þessa hafa 15 manns
verið handteknir fyrir aðild að
„landssímahringnum", sem svo
er kallaður vegna þess, að þrír
frétUriUra Mbl.
þeirra unnu við landssímann í
Stokkhólmi og hjálpuðu Olofs-
son að smygla amfetamini til
Svíþjóðar og koma því á markað.
Glæpalögreglan í Stokkhólmi
hefur haft góðar gætur á Clark
Olofsson allt frá því honum var
sleppt úr fangelsi árið 1979, en
þá hóf hann nám við blaða-
mannaháskólann i borginni.
Meðan hann var i skólanum
braut hann af sér aftur og beið
hans þá fangelsið á ný. Á liðnu
vori var honum svo sleppt og þá
í þessu grafhýsi f kirkjugarði í Stokkhólmi fann lögreglan fimm kfló af
amfetamíni og rakti það til Olofssons.
Clark Olofsson. í allt sumar var
fylgst með ferðum hans.
varð uppvíst um eiturlyfjasölu,
sem fram fór í grafhýsi í kirkju-
garði í Stokkhólmi. Hafði lög-
reglan fljótt uppi á aðalmannin-
um í þessum hópi og reyndist
hann standa f sambandi við
Olofsson. Var þá haft eftirlit
með lystisnekkjunni, sem Olofs-
son sigldi reglulega til Svíþjóðar,
og kom þá í ljós, að hann tók við
miklum peningum af samstarfs-
mönnum sínum. Var þetta allt
saman fest á myndband. Ekki er
búist við, að réttarhöldin hefjist
fyrr en í apríl eða maí á næsta
ári.
Pinochet stöðvar
kirkjuráðstefnu
Ahmed Saleh Khedera, ráðunautur Hassans konungs, ferð til Marokkó frá Addis Ababa eftir úrsögn Marokkó
úr Einingarsamtökum Afríku.
Örlög friðarsinna:
Sendur nauðugur til herþjónustu
Moakvv, 14. nóvember. AP.
SOVÉSKUR friðarsinni, hinn 21 árs
gamli Nikolai Khramov, hefur verið
sendur nauðugur í herstöð nærri
kínversku landamærunum. Hann
hefur jafnt þar sem áður í Moskvu
þrásinnis neitað að ganga í herþjón-
ustu og nú er honum hótað lögsókn
þar fyrir og allt að 2 ára fangelsun.
Fyrir tveimur árum, áður en Khar-
mov lét að sér kveða í friðarhreyf-
ingu í Moskvu, vildi herinn ekki
taka við honum vegna sjóngalla.
Kharmov hefur í seinni tíð
streist við herþjónustu vegna þess
að hún striddi gegn samvisku
hans. Friðarhópurinn sem hann
hefur starfað fyrir beitir sér fyrir
„vaxandi trausti milli Bandarikj-
anna og Sovétríkjanna". Hann
hefur oft verið handtekinn í seinni
tið og fengið þá afarkosti að ganga
í herinn eða sæta lögsóknar að
öðrum kosti.
SantUgo, Chile, 14. nAvember. AP.
AUGOSTO Pinochet forseti her-
stjórnarinnar í Chile hefur enn
fært út kvíarnar eftir að hafa lýst
yfir neyðarástandi í landinu á
dögunum. Hann hefur nú sent á
annað hundrað stjórnarandstæð-
inga í útlegð og bannað vikulanga
ráðstefnu sem kaþólska kirkjan
hafði boðað til.
Pinochet tilkynnti í dag, að
hann hefði sent 103 ónafn-
greinda menn í útlegð til fiski-
mannaþorpsins Pisagua í norð-
urhluta landsins. Þangað sendi
hann 249 aðra fyrir nokkru.
Hinir 103 voru úr hópi 3.000
manna sem lögreglumenn smöl-
uðu saman í fjöldahandtökum í
Shantytown, fátækrahverfi í
Santiago, en þar eiga marxistar
sterkt vígi. Sagði Pinochet að
hinir brottræku væru „hættu-
legir ríkinu og vildu afvegaleiða
þjóðina á leið sinni til lýðræð-
is“.
Á sama tíma fyrirskipaði
borgarstjórinn í Santiago, aft
ráðstefna kaþólsku kirkjunnar
um „leiðina til lýðræðis" mætti
ekki fara fram og barst tilkynn-
ingin fáum klukkustundum áð-
ur en ráðstefnan átti að hefjast.
Um 900 hundruð manns höfðu
boðað þátttöku sína í hinni ár-
legu og vinsælu ráðstefnu. Tals-
maður stjórnar Pinochets, Ger-
Pinochet
ardo Roa, sagði að kirkjuleið-
togum hefði láðst að biðja um
tilskilin leyfi fyrir ráðstefn-
unni. Meðal þeirra sem áttu að
flytja erindi á ráðstefnunni
voru Bernandino Pinera, fram-
kvæmdastjóri ráðstefnunnar,
sem ætlaði að „skilgreina neyð-
arástandið" í landinu, mæður
fanga sem týnst hafa sporlaust,
skáld og rithöfundar sem hafa
mátt þola ritskoðun og loks
nokkrir menn sem hafa verið í
útlegð vegna stjórnmálaskoð-
anna sinna.