Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Halldór Ásgrímsson Þorvaldur Garðar Kristjánsson Frumyarp um framlengingu aflamarks: Skiptar skoðanir Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra mælti í gær í efri deild Alþingis fyrir frumvapi um veiðar í fiskveiðilandhelgi íslands, sem gerir ráð fyrir þriggja ára framlengingu svipaðra lagaheimilda — aflamarks- leið — og gilt hafa í ár um veiði- stjórn. í umræðu um málið komu fram skiptar skoðanir. STÖNDUM VÖRÐ UM FISKSTOFNANA SJÁVARÚTVEGSRÁHERRA sagði nauðsynlegt að standa sam- an um fiskveiðistefnu sem tryggði bezt heildarhagsmuni. Stundar- hagsmuir einstakra svæða eða hópa megi ekki kljúfa þá viðleitni til verndar fiskstofnun og hag- kvæmustu nýtingu þeirra til sam- ræmis við fiskifræðilegar niður- stöður og ábendingar. Ráðherra rakti þau fiskifræði- legu rök um hrunhættu þorsk- stofnsins, sem gert hefði einhvers konar taumhald á veiðisókn nauð- synlegt. Aflamarksfyrirkomulag varð fyrir valinu, að sögn ráð- Stuttar þingfréttir Stefnuræða — fjárlagaræða Fjármálaráðherra frestaði fyrir skömmu fjárlagaræðu vegna nauðsynlegrar endur- skoðunar á fjárlagafrumvarpi i kjölfar nýrra kjarasamninga við BSRB og ASÍ sem breyta fjárlagaforsendum. Forsætis- ráðherra hefur einnig — af sams konar ástæðum — frestað stefnuræðu, sem flytja ber samkvæmt þingskaparákvæð- um, en ríkisstjórnin telur sig þurfa að meta heildarstöðu efnahags- atvinnu- og ríkis- fjármála í ljósi breyttra við- horfa. Of mikið um fjar- vistir þingmanna ólafur Þ. Þórðarson (F) kvaddi sér hljóðs um þingsköp í neðri deild Alþingis í gær. Kvað hann fjarvistir þingmanna meiri en góðu hófi gegndi. Þing- menn væru og fjarverandi, er- lendis, án þess að kveðja til varaþingmenn. Þetta tefði fyrir þingnefndastörfum. Væri nauð- synlegt að þingforsetar tækju þessi mál fastari tökum. Mælt fyrir frumvörpum Mælt var fyrir þremur frum- vörpum í neðri deild Alþingis í gær: 1) Kristófer Már Kristins- son (BJ) mælti fyrir frumvarpi um eftirlitsskyldu fastanefnda þings með framkvæmd laga. 2) Jóhanna Sigurðardóttir (A) mælti fyrir frumvarpi til laga um endurmat á störfum láglaunahópa. 3) Stefán Valgeirsson (F) mælti fyrir frumvarpi um fæð- ingaroríof, sem nái til allra kvenna. herra, af fjórum ástæðum. • Frekari sóknartakmörkun á þorskveiði varð ekki við komið, vegna þess að hún hefði leitt til aukinnar sóknar í aðra fiskstofna, sem fullnýttir vóru, ýsu, karfa, ufsa og grálúðu. • Reynslan hafði sýnt að erfitt var að takmarka þorskveiði með sóknarmörkum. Þetta var mjög mikilvægt gagnvart þorskstofnín- um í ár vegna hættu á hruni hans ef veiðar færu að ráði fram úr settu marki. • Aflamarksfyrirkomulagið tryggir betur en aðrar leiðir veiði- stjórnunar að sá heildarafli, sem menn koma sér saman um, dreifist jafnt og réttlátlega á fiskiskip og byggðarlög. • Með aflamarksfyrirkomulagi má koma við hagkvæmni í rekstri fiskiskipa, m.a. vegna þess að hægt er að færa aflakvóta milli skipa og fækka þar með skipum í rekstri. Ráðherra kvað nýjustu fiski- fræðilegar niðurstöður gera það óhjákvæmilegt að hafa áfram um sinn hliðstæða stjórn á veiðisókn og nú í ár. KVÓTAKERFI VAR TEKIÐ UPP — OG AFLINN JÓKST ÞORVALDUR GARÐAR KRIST- JÁNSSON (S) kvaðst andvígur kvótakerfi og tiltæk reynsla styddi það viðhorf. Hann kvað mikilvægt að hver einstök útgerð bæri sig, bæði þjóðhagslega og fyrir viðkomandi byggðarlag. Ekki væri nauðsynlegt að halda öllum skipaflotanum til veiða heldur hitt, að þau skip, sem haldið er úti, hafi viðunandi rekstrargrundvöll og skili arði í þjóðarbúið. Kvóta- fyrirkomulagið gengur þvert á þetta grundvallarsjónarmið, stuðlar að því að halda sem flest- um skipum á veiðum. Stefnt er að meintum jöfnuði með því að vængstýfa þá, sem möguleika hefðu til að standa undir eigin rekstri, og stungið tálbeitu að hin- um, sem ekki geta hvort sem er náð sér til flugs nema meira komi til. Þegar útgerðin er þann veg leik- in með stjórnvaldsákvörðunum, þá á hún ekki annars úrkosta en að segja við stjórnvöld, að þau verði að taka afleiðingunum, skapa skipunum rekstrargrund- völl, því að nauðsyn krefur að róið sé til fiskjar. Raunin hefur oröið sú, sagði Þ.G.Kr., að í stað þess að þorskafli minnki á árinu 1984 um 45.000 tonn kemur hann til með að aukast um 32.000 tonn. Kvótakerf- ið var tekið upp og þorskaflinn jókst. Þingmaðurinn vitnaöi til ummæla varafiskimálastjóra, Jóns Páls Halldórssonar, á Fiski- þingi, sem hafi sagt, að aflamark væri óæskileg leið við stjórnun botnfiskveiða, þegar horft væri til hagsmuna sjávarútvegsins sem heildar, bæði veiða og vinnslu. HEILDARHAGSMUNIR í HÚFI VALDIMAR INDRIÐASON (S) kvað engan ánægðan með það kerfi, sem nú rikti og leitt hefði til Valdimar Indriðason meiri miðstýringar í sjávarútvegi. En hvað skal gera þegar það ástand ríkir, sem nú hefur skapazt hjá fiskstofnun, sem afkoma þjóð- arinnar í samtíð og framtíð bygg- ist á? Við höfum engin efni á því að sniðganga fiskifræðilegar nið- urstöður né vísindalegar spár um fjöregg þjóðarinnar, jafnvel þó umdeildar kunni að vera. Hér er of mikið í húfi til að vera ekki á nægilegu varðbergi um heildar- hagsmuni. Þingmaðurinn kvað þá veiði- stjórn, sem nú væri viðhöfð og það vald, sem fylgdi, ekki öfundsvert hlutverk. Hann taldi að sjávarút- vegsráðuneytinu og ráðgjafanefnd við hlið þess hafi farnast stjórn- unin vel miðað við allar aðstæður. Ýmis atriði væru í þessu máli og þessu frumvarpi, sem deilum muni valda og þingnefnd þurfi að gaumgæfa, svo sem varðandi afla- mark skips, sem hverfur úr rekstri, og gildistíma laganna, þ.e. þrjú ár. Skúli Alexandersson FRAMLENGING í EITT ÁR ÆTTI AÐ NÆGJA SKÚLI ALEXANDERSSON (Abl) kvað kvótakerfið þýða alræðisvald sjávarútvegsráðherra í veiði- stjórnun. Með því værum við kom- in inn á hættubraut, sem enginn atvinnuvegur gæti staðizt til lengdar. Kerfið hafi verið sam- þykkt, til prufu í eitt ár. Eftirtekj- an væri sú að ekki væri verjandi að framlengja það til þriggja ára. Ef framlenging kæmi til greina nægði eitt ár. Þingmaðurinn lýsti andstöðu sinni við kerfið og frumvarpið. Skrapdagakerfið hefði verið skárra. Þá vissum við nokkurn veginn hve mikið fiskað var. Rangt væri að aflamark, miðað við þrjú líðin ár, tryggði nokkurt réttlæti. Þrjú slæm aflaár á til- teknu svæði áður en aflamark er reiknað út og aflaleysistímabil væri engin nýjung fyrir einstaka landshluta, væri ekki réttlátur grunnur að byggja á. Bandalag jafnaðarmanna: Yfirnefnd Verðlagsráðs lögð niður Lágmarksverð sjávarafla ákveðið í frjálsum samningum Tveir þingmenn Bandalags jafnaðarmanna, Kolbrún Jónsdóttir og Stefán Bene- diktsson, hafa lagt fram frum- varp til breytinga á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins, stuttort mjög: „1. gr. — 10. gr. laganna falli niður; 2. gr. — Lög þessi öðlast þegar gildi." Þetta þýðir, ef samþykkt verð- ur, að lágmarksverð sjávar- afla „verði ákveðið í frjálsum samningum af fulltrúum fisk- kaupenda og fiskseljanda í Verðlagsráði sjálfu," eins og segir í greinargerð. Hinsvegar verði felld niður sú grein við- komandi laga sem kveður á um sérstaka yfirnefnd Verð- lagsráðs með oddamanni frá Þjóðhagsstofnun, þ.e. að „ríkisvaldið hætti afskiptum að þessum samningum; að ein- staklingar og samtök þeirra semji sem fjálsir menn um verð á afurðum sínurn". AIMIUSI um veiðistjórnun Höfuðborgarsvæðið: Mikið tap á rekstri almenningsvagna Tillaga á þingi um könnun og samræmingu „Alþingi ályktar að fela sam- gönguráðherra í samráði við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að láta fara fram könnum á hag- kvæmni þess að samræma rekstur almenningsfarartækja á höfuðborg- arsvæðinu. Könnunin verði almenn og þjóðhagsleg hagkvæmni slíks sameiginlegs samgöngukerfis og gerð langtímaáætlun um almenn- ingssamgöngur á svæðinu. Kostnað- ur við slíka athugun greiðist úr ríkis- sjóði.“ Þannig hljóðar tillaga til þingsályktunar sem Salome Þorkels- dóttir (S) og fimm aðrir þingmenn úr öllum þingflokkum hafa lagt fram á Alþingi. í greinargerð kemur fram að samgöngukostnaður hafi hækkað mjög á þessu svæði með útþenslu byggðar og hækkandi benzínverði. Þrátt fyrir tiltölulega góða nýt- ingu vagnakosts er mikið tap á rekstri almenningsvagna á höfuð- borgarsvæðinu. Heildarútgjöld vóru 180 m.kr. 1983 en fargjalda- tekjur 130 m.kr. — hallarekstur 50 m.kr. í greinargerð kemur og fram að á sama tíma (1962—1981) og vegalengd vagna SVR hefur lengst um 1,2 milljónir km á ári hafi far- þegum fækkað úr 17,5 milljónum í 11,5 milljónir eða um 34%. Sam- ræming á rekstri almennings- vagnafyrirtækja geti hinsvegar leitt af sér nokkurn þjóðhagslegan sparnað, bæði hjá rekstraraðilum og eins óbeinan sparnað hjá hin- um almenna borgara. Fjórir aðilar sjá um almenn- ingsflutninga á svæðinu: Mos- fellsleið, Strætisvagnar Reykja- víkur (SVR), Strætisvagnar Kópa- vogs og Landleiðir (einkafyrir- tæki). Tillaga frá Alþingi: Nýbygging Seðlabanka verði stjórnarráðshús Seölabankinn fái hús Framkvæmdastofmm ir í makaskiptum Fram er komin á Alþingi tillaga þess efnis að ríkistjórnin „láti Ijúka nýbyggingu Seðlabanka íslands við Ingólfsstræti eins fljótt og auðið er“. Þá er lagt til að „ríkisstjórn yfirtaki bygginguna undir Stjórnarráð ís- lands“. Loks gerir tillagan ráð fyrir að ríkLsstjórnin láti Seðlabankanum í té í makaskiptum byggingu Fram- kvæmdastofnunar við Rauðarárstíg. Vísað er til samkomulags stjórnar- flokkanna frá því september sl. um að gerðar verði tillögur un breyt- ingar á lögum og verkefnura Fram- kvæmdastofnunar ríkisins. Flutn- ingsmenn eru Jón Baldvin Hanni- balsson (A) og Jóhanna Sigurðar- dóttir (A). I greinargerð segir að Seðla- bankinn sé ríkiseign undir þing- kjörinni stjórn. Seðlabankabygg- ing „telst því kostuð af almanna- fé“. Þá segir og efnislega að miðað við efnahagsástand og stöðu at- vinnuvega sé „ótímabært að reisa sérstakt minnsmerki yfir peninga- stjórn landsmanna á áratug hinna glötuðu tækifæra". Ekki sé hins- vegar raunsætt að stöðva bygging- una en hyggilegt að nýta hana í þágu Stjórnarráðs íslands, er búi við þröngan húsakost. Makaskipti megi hafa á húsi Framkvæmda- stofnunar við Rauðarárstíg og ný- byggingu Seðlabanka við Arnar- ból
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.