Morgunblaðið - 15.11.1984, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984
taka saman tölur 22 þátta, svo
sem fjölda umferðarslysa, fjölda
sjálfsmorða og fleira fyrir sömu
mánuði og tilraunin stóð næstu
tvö ár á undan. Þegar tilrauninni
lauk bar hagstofan útkomu þeirra
þriggja mánaða, sem tilraunin
stóð, saman við og voru niðurstöð-
urnar verulega sláandi: 41,8%
fækkun sjálfsmorða, 49% fækkun
morða, 22% fækkun árása og 54%
fækkun banaslysa í umferðinni
svo fátt sé nefnt.
Síðan þetta var hafa farið fram
nokkrir tugir sambærilegra til-
rauna sem allar hafa staðfest til-
vist Maharishi-áhrifanna (Mahar-
ishi-effect) kennt við höfund
kenningarinnar, Maharishi Ma-
hesh yogi, en hann setti hana fyrst
fram um 1960.
Sætur keimur af Útópíu
Það var svo nú fyrir siðustu jól
sem heimshreyfingin auglýsti í
meira en 150 stærstu dagblöðum
og tímaritum heims, með heilsíðu
og jafnvel tveggja síðna auglýs-
ingum, að heiminum skyldi gefið
bragð af Útópíu. En Útópía er fornt
orð sem táknar drauma- eða sælu-
heim. Þá var ljóst að tækist að ná
saman 7.000 sérfræðingum í ein-
ingarsvæðistækni Maharishi við
Maharishi-alþjóðaháskólann í
Iowa dagana 17. des. 1983 til 6.
jan. 1984.
Þetta er u.þ.b. kvaðratrótin af
Helgi J. Hauksson
„Það ætlast enginn til
aö fólk trúi svona staö-
hæfingum í fyrsta skipti
sem það heyrir þær. —
En nú eru fjögur ár síö-
an ríkisstjórn íslands
voru færÖ gögn um
fyrstu stóru tilraunina
sem gerö var til staö-
festingar þessari kenn-
ingu.“
Sól uppljómunar-
aldar hækkar á lofti
eftir Helga J.
Hauksson
Við íslendingar getum á einni
nóttu feykt í burtu allri ólgu og
neikvæðni úr þjóðarvitundinni og
skapað ósigranlegt og árangurs-
rikt fyrirmyndar þjóðfélag,
grundvallað á einingarsviði allra
krafta náttúrunnar. Það geta svo
og allar aðrar þjóðir í sameiningu
eða hver í sínu lagi.
Kenning, tilraun,
niðurstaða
Þetta eru niðurstöður vísinda-
manna við Maharishi Internation-
al University (MIU) eða Mahar-
ishi alþjóðaháskólann i Fairfield,
Iowa, Bandaríkjunum. Þær hljóta
að vekja undrun og forvitni allra
manna. Meðal þeirra sem að baki
þessara niðurstaðna standa eru
margir færustu vísindamanna
heims svo sem Nóbelsverðlauna-
hafinn í eðlisfræði dr. Brian Jos-
ephson og stærðfræðingurinn dr.
M. Weinless.
Niðurstöðurnar hafa þegar ver-
ið lagðar fyrir ráðherra íslensku
ríkisstjórnarinnar og þeim bent á
þann möguleika að fá til liðs við
sig færustu vísindamenn okkar til
að yfirfara kenningar, gögn um til-
raunir og niðurstöður. Og ekki síst
að endurtaka afdrifaríkustu tilraun-
ina sem fyrst hér á landi.
Voldug, huglæg tækni
(sem ber góöan ávöxt)
Undanfarin ár hef ég verið svo
heppinn að hafa haft tækifæri til
að fylgjast með starfi íslenska
íhugunarfélagsins úr hæfilegri
fjarlægð áhugasams áhorfanda.
Félagið hefur í tæp tíu ár kennt
tæknina innhverf íhugun hér á
landi og veturinn ’79—’80 var í
fyrsta skipti haldið á íslandi svo-
nefnt IÍ-Sidhi-námskeið, en
Sidhi-tæknin, sem byggir á inn-
hverfri íhugun, er óhemju voldug,
huglæg tækni. Það sést best á því
að þegar stundaður er sá þáttur
hennar sem veitir meta gleði, og
taugafræðingar um allan heim
hafa staðfest að veldur sam-
ræmdri virkni alls heilans (sjá
HAGVÖXTUR í HEIMINUM
heilalínurit), þá lyftist líkaminn
augnablik frá jörðu. Já, lfkaminn
lyftist augnablik frá jörðu og i
sumum tilvikum flýtur hann
nokkra metra áfram i loftinu.
Tvö Sidhi-námskeið hafa verið
haldin hér landi og alls voru um
tuttugu manns sem lærðu tæknina
og „flugu" saman helst á hverjum
degi frá ársbyrjun 1980 fram á
fyrstu mánuði ársins 1982. Það er
einmitt þegar tæknin er stunduð
saman i hóp sem áhrif hennar
verða mest. Að baki liggja hrein
og klár eðlisfræðilögmál og nægir
að kvaðratrótin af einu prósenti
íbúa ákveðins svæðis stundi tækn-
ina saman i hóp til að stökkbreyt-
ing til aukinnar jákvæðni verði í
öllu samfélaginu.
Það ætlast enginn til að fólk
trúi svona staðhæfingum í fyrsta
skipti sem það heyrir þær. — En
nú eru fjögur ár síðan rfkisstjórn
íslands voru færð gögn um fyrstu
stóru tilraunina sem gerð var til
staðfestingar þessari kenningu.
Hagstofa fylkisins
fylgdist með
Tilraunin fór fram með þeim
hætti að 350 Sidhar voru sendir til
fylkisins Rhode Island þar sem
þeir stunduðu saman Sidhi-tækn-
ina kvölds og morgna. Hagstofa
fylkisins fékk það hlutverk að
1% íbúa jarðarinnar. Ekki er
ólíklegt að auglýsingarnar hafi
komið fyrir augu ekki færri en
1000 milljón manna. Þótt við Is-
lendingar yrðum að láta okkur
nægja að lesa um tilstandið í
tveggja síðna auglýsingum í Time
og Newsweek.
Islendingar muna e.t.v. helst
eftir þessum dögum sem því tíma-
bili þegar söfnunin „Brauð handa
hungruðum heimi“ sló öll met og
safnaðist andvirði fjórum sinnum
fleiri vinnustunda en árið áður.
Margir lifðu fallegustu Þorláks-
messu sem þeir muna þegar þús-
undir gengu með kyndla niður
Laugaveginn í þðgulli bæn um
frið. Kirkjusókn var meiri en
menn eiga að venjast, lögreglan
tók talsvert færri ölvaða við akst-
ur en hún átti von á og áramótun-
um lýsti hún eins og rólegri helgi.
Þrettándinn hefur verið hefð-
bundinn óeirðadagur í Hafnarfirði
í marga áratugi og nú seinni ár
einnig á Selfossi. Þennan þrett-
ánda var í fyrsta sinn í marga ára-
tugi allt með kyrrum kjörum í
Hafnarfirði og frá Selfossi bárust
þær fréttir að krakkarnir hefðu
„gabbað" lögguna. Þangað hafði
verið sent mikið lið lögregluþjóna
líkt og síðustu árin en hún þurfti
ekki að hafa afskipti af einum ein-
asta manni.
Aðeins tölur
eru marktækar
En í heimi nútímans er ekkert
marktækt nema tölur og tölfræði-
legur samanburður hefur ekki
verður gerður á þessum þrem vik-
um og næstu vikum á undan fyrir
tsland. Það hefur hinsvegar verið
gert fyrir allan heiminn. Niður-
stöðurnar eru ótvíræðar. Meðan á
þriggja vikna 7.000 manna sam-
komu sérfræðinga í einingasvæð-
istækni Maharishi stóð minnkuðu
alþjóðleg átök á vandamála-
svæðum heimsins. Líbanon-stríðið
tók sér frí og Jasser Arafat lagði
Minnkandi tíðni smitsjúkdóma
Vöxtur stærstu verðbréfamarkaða
CAPITAL INTERNATIONAL, S.A., GENEVA
Heimild: Wall Street Juurnal
Meðaltal 19 ríkja rís strax og byrjað er að gefa forsmekk
af Útópíu en tekur sveiflu niður á við strax og samkomunni
lauk.
Heimild: MiAstöö fyrir eftirlit meö smitsjúkdómum, USA.
Borin er saman tíöni smit- sveifla til minnkunar viö
sjúkdóma hverrar viku við fyrstu samantekt eftir að
fimm ara meðaltal sömu samkoman hófst. Sem aftur
viku. Kemur fram veruleg gengur til baka um leið og
henni lauk.
Heimild: Wall Street
Dagana 17. des. '83 — 6.
jan. '84 (óku allir stærstu
verðbréfamarkaðir heims
Journal
mikinn kipp uppávið, oft
eftir samfellda öfugþróun í
langan tíma.