Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 15.11.1984, Qupperneq 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 taka saman tölur 22 þátta, svo sem fjölda umferðarslysa, fjölda sjálfsmorða og fleira fyrir sömu mánuði og tilraunin stóð næstu tvö ár á undan. Þegar tilrauninni lauk bar hagstofan útkomu þeirra þriggja mánaða, sem tilraunin stóð, saman við og voru niðurstöð- urnar verulega sláandi: 41,8% fækkun sjálfsmorða, 49% fækkun morða, 22% fækkun árása og 54% fækkun banaslysa í umferðinni svo fátt sé nefnt. Síðan þetta var hafa farið fram nokkrir tugir sambærilegra til- rauna sem allar hafa staðfest til- vist Maharishi-áhrifanna (Mahar- ishi-effect) kennt við höfund kenningarinnar, Maharishi Ma- hesh yogi, en hann setti hana fyrst fram um 1960. Sætur keimur af Útópíu Það var svo nú fyrir siðustu jól sem heimshreyfingin auglýsti í meira en 150 stærstu dagblöðum og tímaritum heims, með heilsíðu og jafnvel tveggja síðna auglýs- ingum, að heiminum skyldi gefið bragð af Útópíu. En Útópía er fornt orð sem táknar drauma- eða sælu- heim. Þá var ljóst að tækist að ná saman 7.000 sérfræðingum í ein- ingarsvæðistækni Maharishi við Maharishi-alþjóðaháskólann í Iowa dagana 17. des. 1983 til 6. jan. 1984. Þetta er u.þ.b. kvaðratrótin af Helgi J. Hauksson „Það ætlast enginn til aö fólk trúi svona staö- hæfingum í fyrsta skipti sem það heyrir þær. — En nú eru fjögur ár síö- an ríkisstjórn íslands voru færÖ gögn um fyrstu stóru tilraunina sem gerö var til staö- festingar þessari kenn- ingu.“ Sól uppljómunar- aldar hækkar á lofti eftir Helga J. Hauksson Við íslendingar getum á einni nóttu feykt í burtu allri ólgu og neikvæðni úr þjóðarvitundinni og skapað ósigranlegt og árangurs- rikt fyrirmyndar þjóðfélag, grundvallað á einingarsviði allra krafta náttúrunnar. Það geta svo og allar aðrar þjóðir í sameiningu eða hver í sínu lagi. Kenning, tilraun, niðurstaða Þetta eru niðurstöður vísinda- manna við Maharishi Internation- al University (MIU) eða Mahar- ishi alþjóðaháskólann i Fairfield, Iowa, Bandaríkjunum. Þær hljóta að vekja undrun og forvitni allra manna. Meðal þeirra sem að baki þessara niðurstaðna standa eru margir færustu vísindamanna heims svo sem Nóbelsverðlauna- hafinn í eðlisfræði dr. Brian Jos- ephson og stærðfræðingurinn dr. M. Weinless. Niðurstöðurnar hafa þegar ver- ið lagðar fyrir ráðherra íslensku ríkisstjórnarinnar og þeim bent á þann möguleika að fá til liðs við sig færustu vísindamenn okkar til að yfirfara kenningar, gögn um til- raunir og niðurstöður. Og ekki síst að endurtaka afdrifaríkustu tilraun- ina sem fyrst hér á landi. Voldug, huglæg tækni (sem ber góöan ávöxt) Undanfarin ár hef ég verið svo heppinn að hafa haft tækifæri til að fylgjast með starfi íslenska íhugunarfélagsins úr hæfilegri fjarlægð áhugasams áhorfanda. Félagið hefur í tæp tíu ár kennt tæknina innhverf íhugun hér á landi og veturinn ’79—’80 var í fyrsta skipti haldið á íslandi svo- nefnt IÍ-Sidhi-námskeið, en Sidhi-tæknin, sem byggir á inn- hverfri íhugun, er óhemju voldug, huglæg tækni. Það sést best á því að þegar stundaður er sá þáttur hennar sem veitir meta gleði, og taugafræðingar um allan heim hafa staðfest að veldur sam- ræmdri virkni alls heilans (sjá HAGVÖXTUR í HEIMINUM heilalínurit), þá lyftist líkaminn augnablik frá jörðu. Já, lfkaminn lyftist augnablik frá jörðu og i sumum tilvikum flýtur hann nokkra metra áfram i loftinu. Tvö Sidhi-námskeið hafa verið haldin hér landi og alls voru um tuttugu manns sem lærðu tæknina og „flugu" saman helst á hverjum degi frá ársbyrjun 1980 fram á fyrstu mánuði ársins 1982. Það er einmitt þegar tæknin er stunduð saman i hóp sem áhrif hennar verða mest. Að baki liggja hrein og klár eðlisfræðilögmál og nægir að kvaðratrótin af einu prósenti íbúa ákveðins svæðis stundi tækn- ina saman i hóp til að stökkbreyt- ing til aukinnar jákvæðni verði í öllu samfélaginu. Það ætlast enginn til að fólk trúi svona staðhæfingum í fyrsta skipti sem það heyrir þær. — En nú eru fjögur ár síðan rfkisstjórn íslands voru færð gögn um fyrstu stóru tilraunina sem gerð var til staðfestingar þessari kenningu. Hagstofa fylkisins fylgdist með Tilraunin fór fram með þeim hætti að 350 Sidhar voru sendir til fylkisins Rhode Island þar sem þeir stunduðu saman Sidhi-tækn- ina kvölds og morgna. Hagstofa fylkisins fékk það hlutverk að 1% íbúa jarðarinnar. Ekki er ólíklegt að auglýsingarnar hafi komið fyrir augu ekki færri en 1000 milljón manna. Þótt við Is- lendingar yrðum að láta okkur nægja að lesa um tilstandið í tveggja síðna auglýsingum í Time og Newsweek. Islendingar muna e.t.v. helst eftir þessum dögum sem því tíma- bili þegar söfnunin „Brauð handa hungruðum heimi“ sló öll met og safnaðist andvirði fjórum sinnum fleiri vinnustunda en árið áður. Margir lifðu fallegustu Þorláks- messu sem þeir muna þegar þús- undir gengu með kyndla niður Laugaveginn í þðgulli bæn um frið. Kirkjusókn var meiri en menn eiga að venjast, lögreglan tók talsvert færri ölvaða við akst- ur en hún átti von á og áramótun- um lýsti hún eins og rólegri helgi. Þrettándinn hefur verið hefð- bundinn óeirðadagur í Hafnarfirði í marga áratugi og nú seinni ár einnig á Selfossi. Þennan þrett- ánda var í fyrsta sinn í marga ára- tugi allt með kyrrum kjörum í Hafnarfirði og frá Selfossi bárust þær fréttir að krakkarnir hefðu „gabbað" lögguna. Þangað hafði verið sent mikið lið lögregluþjóna líkt og síðustu árin en hún þurfti ekki að hafa afskipti af einum ein- asta manni. Aðeins tölur eru marktækar En í heimi nútímans er ekkert marktækt nema tölur og tölfræði- legur samanburður hefur ekki verður gerður á þessum þrem vik- um og næstu vikum á undan fyrir tsland. Það hefur hinsvegar verið gert fyrir allan heiminn. Niður- stöðurnar eru ótvíræðar. Meðan á þriggja vikna 7.000 manna sam- komu sérfræðinga í einingasvæð- istækni Maharishi stóð minnkuðu alþjóðleg átök á vandamála- svæðum heimsins. Líbanon-stríðið tók sér frí og Jasser Arafat lagði Minnkandi tíðni smitsjúkdóma Vöxtur stærstu verðbréfamarkaða CAPITAL INTERNATIONAL, S.A., GENEVA Heimild: Wall Street Juurnal Meðaltal 19 ríkja rís strax og byrjað er að gefa forsmekk af Útópíu en tekur sveiflu niður á við strax og samkomunni lauk. Heimild: MiAstöö fyrir eftirlit meö smitsjúkdómum, USA. Borin er saman tíöni smit- sveifla til minnkunar viö sjúkdóma hverrar viku við fyrstu samantekt eftir að fimm ara meðaltal sömu samkoman hófst. Sem aftur viku. Kemur fram veruleg gengur til baka um leið og henni lauk. Heimild: Wall Street Dagana 17. des. '83 — 6. jan. '84 (óku allir stærstu verðbréfamarkaðir heims Journal mikinn kipp uppávið, oft eftir samfellda öfugþróun í langan tíma.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.