Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 74

Morgunblaðið - 15.11.1984, Page 74
74 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 » 1M2 Unlv»rm Prw« íyiKIciH » Hann saqfeist vi Ija. fó. rnaise&'Mnr) O-ftur. 5\jo hann c^aeti hleg\<b betur. Við reynum aftur og sleppum nú einleiknum! Ekkert frekar sveitatónlist Dísa skrifar: Ég varð mjög undrandi þegar ég sá Gluggann á sunnudag. Þáttur þessi er til mestu fyrirmyndar og ekkert út á stjóm hans að setja, en undrun mín stafar af orðum Friðriks Þórs, kvikmyndagerð- armanns. Friðrik mun hafa gert myndina Rokk í Reykjavík, auk fleiri mynda, og síðasta afrek hans á því sviði var myndin Kú- rekar norðursins, sem nú er sýnd í Regnboganum í Reykjavík. Frið- rik ræddi mikið um gildi myndar- innar sem skemmtiefnis og talaði síðan um tónlist Hallbjarnar Hjartarsonar, sem mun vera eins konar „kántrýkóngur" fslands, enda fáir sem bítast um þann titil. Friðrik sagði eitthvað á þá leið, að myndin yrði bráðlega sýnd á landsbyggðinni og vonaðist hann til að þar fengi hún góðar móttök- ur, enda skyldi fólk úti á landi tónlist Hallbjarnar betur en þeir sem í Reykjavík búa. Eitthvað fjallaði Friðrik meira um þessi mál, en niðurstaðan var sem sagt sú, að Hallbjarnartískan væri til- valin fyrir „sveitavarginn", því svona skemmti fólk sér í sveitinni. Það er fjarri mér að vera með hnútukast vegna Hallbjarnar sjálfs, enda þekki ég manninn ekkert og á ekkert sökótt við hann. Hallbjörn Hjartarson er umdeildur tónlistarmaður og fer það síst minnkandi eftir að byrjað var að sýna kvikmynd þar sem hann fer með aðalhlutverkið. Dísu finnst hreinn óþarfi að kenna tónlist Hall- bjarnar við sveitafólk, enda sé það ekki frábrugðið því fólki, sem í borg- um og bæjum búa. Hverjum sem er er frjálst að flytja sína tónlist og sín skemmti- atriði fyrir mér. Mér finnst það einfaldlega fráleitt að halda því fram að Hallbjarnar-tískan sé dæmigerð fyrir þá tónlist og þann skemmtanastíl sem landsbyggðar- fólk velur sér. Ég tel þennan dóm Friðriks Þórs vera dæmigerðan fyrir hugsunarhátt borgarbúa, sem halda að önnur þjóð byggi landið utan þéttbýliskjarna. Af hverju í ósköpunum ætti fólk úti á landi að velja Hallbjarnarstílinn fram yfir aðra skemmtan? Trúir Friðrik því, að í afdölum landsins leynist kúrekar, sem snara kálfa með reiðhjóladekkjum og syngja amerískættaða sveitasöngva? Ef eitthvað er, þá væri mun líklegra, að borgarbúarnir tækju kúreka- menninguna upp á sína arma, því útvarp hersins glymur þar allan daginn og flytur m.a. kúrekatón- list. Bíóhúsin eru fleiri í Reykja- víkinni og möguleikar því mun fleiri til að kynna sér háttu er- lendra byssubófa, ef áhugi er á. Ég er viss um, að Hallbjörn Hjartarson, sem lengi hefur alið manninn í sveit, léti sér ekki til hugar koma að ætla sveitafólki annan smekk en borgarbúum. Slíkur hugsunarháttur kemur að- eins fram hjá borgarbúum, sem telja sig menningarlegri en sauðsvartur almúginn inn til dala. Að lokum vil ég hvetja Hallbjörn til að halda áfram að lifa eftir sannfæringu sinni, hvort sem sú sannfæring hans telst list eða geggjun. Slíkt mat fer e.t.v. eftir landshlutum, Friðrik Þór? Þessi börn virðast því miður ekki fara nógu gstilega í umferðinni, þó svo að þau gefi merki með hendinni þegar þau taka beygju. Hvar fást klemmur? Kona í Reykjavík hringdi: Mig langar til að spyrjast fyrir um það, hvar fáist klemm- ur til að festa með buxnaskálm- ar, svo ekki fari þær í keðjur reiðhjólanna. Þegar ég var yngri, þá notuðu margir slíkar klemmur og mér finnst dálítið skrítið að þær skuli ekki fást núna, þegar miklu fleiri íslend- ingar nota reiðhjól en áður var. Barnabörn mín koma oft með stórskemmdar buxur inn frá leik, vegna þess að skálmarnar hafa fest í keðjum og sem rífa og tæta þær í sig. Þetta er líka stórhættulegt, fyrir utan allan Þessir hringdu . . . kostnaðinn, sem af þessu hlýst, því börnin geta hæglega steypst fram yfir sig, þegar hjólið stöðv- ast allt í einu. Það er ekki sfður mikilvægt, að börn gæti að öryggisþáttum í umferðinni, en ég hef allt of oft séð börn hjóla um á ljóslausum hjólum. Þau stofna sjálfum sér í bráða hættu með þessu athæfi, því nú er mjög skuggsýnt og erf- itt fyrir bílstjóra að átta sig á ljóslausum farartækjum. Ljós- leysið getur einnig skaðað aðra, t.d. getur glannalegur akstur barna á hjólum orðið til þess, að fólk, sem ekki sér hjólin vegna ljósleysis, verður hreinlega fyrir þeim. Það kom fyrir vinkonu mína fyrir skömmu og hlaut hún mikið mar af. Ég er ekki með þessu að segja, eins og svo marg- ir aðrir, að börn og unglingar séu verri en aðrir. Það er alls ekki rétt, en hitt er staðreynd, að ungt fólk er yfirleitt kærulaus- ara en eldra fólk. Ef allir gæta vel að sér í umferðinni, þá verða færri íslendingar fyrir hræði- legum slysum, sem oft á tíðum kosta mannslíf. Við skulum hafa það hugfast, yngri sem eldri, að engar bætur koma í stað ást- vinamissis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.