Morgunblaðið - 08.12.1984, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
9
AUÐUR
LAXNESS
OG
EDDA ANDRESDÓTTIR
- árita bók sína
„Á Gljúfrasteini/#
í Bókabúð Máls og menningar,
Laugavegi 18,
laugardaginn 8. des. kl. 3-5.
Hægt er að fá bókina áritaða
og senda í póstkröfu.
Bókin kostar kr. 998.-
#
-MALS & MENNINGAFL
^ LAUGAVEG118-101 REYKJAVÍK SÍMAR: 24240 - 24242 ||
Víkingamir
eftir
Halldór Pétursson
listmálara
Hér meö bjóöum vér yöur aö eignast afsteypu úr
bronsi af siöustu verkum listamannsins
HALLDÓRS PÉTURSSONAR,
UPPLÝSINGAR UM AFSTEYPURNAR:
★ Afsteypumar eru geröar úr „Coklcast“ bronsi og handunnar.
★ Hámarksfjöldi: 200 eintök af hvorri tegund.
★ Hvert eintak er númeraö frá nr. 1.
★ Afsteypumar hvila á tréundirstööu úr mahoní.
★ Staarö: 23 cm. (í heild).
★ Hver afsteypa er í vönduöum plastumbúöum og hægt aö senda
hvert sem er.
★ Nokkur eintök eru komin til landsins.
★ Afsteypumar eru hvor um sig sjálfstætt listaverk, þó aö þær sómi
sér best tvær saman.
Afsteypurnar
eru til sýnis og sölu hjá
Myndaútgáfunni
(íaröastræti 2. Símar 20252 og 14580.
pJtrjprailfrWtál*
MetsöluNaó á hverjum degi!
Lygaupp-
lýsingar
Jeane Kirkpatríck scm
verið hefur sendiherra
Bandaríkjanna hjá Sam-
einuðu þjóðunum síðan
Ronald Reagan tók við
embætti forseta í janúar
1981 tilkynnti nýlega að
hún ætlaði að hætta því
starfi. Sögur eru á kreiki
um að hún sækist eftir
hærra og meira embætti
hjá forsetanum.
Af þessu tilefni birtist
viðtal við Kirkpatríck 1
blaðinu Los Angeles Times
sem er endurbirt í Inter-
national Herald Tribune
fyrir skömmu. í upphafi
samtalsins fýsir sendiherr-
ann þvf hvað hafi komið
sér mest á óvart eftir að
hún hóf bein afskipti af
opinberum máhim sem
embættismaður. Það sé sú
lygastarfsemi sem stunduð
er 1 hvers kyns upplýs-
ingamiðhin. Auðveldast og
einfaldast sé að átta sig á
þessarí starfsemi með þvf
að líta til lygamiðlunar sov-
ésku njósna- og öryggis-
þjónustunnar, KGB. Segist
Kirkpatrick Ifklega hafa
orðið fyrir meira flóði af
slíkum lygum en flestir
aðrir f Bandarfkjastjórn
fyrir utan forsetann sjálf-
an.
Kirkpatrick minnir á að f
bandarfska utanrikisráðu-
neytinu liggi fyrir skjalfest-
ar heimildir um það, hvern-
ig andstæðingar Banda-
ríkjastjórnar hafí notað
fölsuð bréf, tilbúin skjöl og
fræðirítgerðir til að sverta
stjórnina. Þá hafi lygaupp-
lýsingum veríð komið mis-
kunnarlaust á framfæri í
bandarískum fjölmiðhim
og annars staðar f heimin-
um. Þessa lygastarfsemi sé
auðvelt að skilja, þvf að
hún sé stunduð af yfirlýst-
um andstæðingum Banda-
ríkjanna og stjórnar Reag-
ans. Hitt eigi hún erfitt
með að skilja og þola, að
sú mynd hafi verið dregin
upp af henni sjálfrí, að hún
sé hægrisinnaður öfgamað-
ur, eldheitur hugmynda-
fræðingur og and-lýðræðis-
sinni.
Allt sé þetta rangt og
Jeane Kirkpatrick
sett fram í því skyni að
rangfæra afstöðu sína á al-
þjóðavettvangi og ekki síst
til mála f Mið- og Suður-
Amerfku. Kirkpatrick seg-
ist vera pragmatísk, það er
að segja taka afstöðu til
mála eftir því sem hún tel-
ur skynsamlegast á hverj-
um tíma. Þeir sem þannig
hugsi séu síður en svo
skoðana- og stefnulausir,
en séu sveigjanlegir með
ákveðin markmið í huga.
Ekkert nýtt
Þessi lýsing Kirkpatrick
á því hve það kom henni í
opna skjöldu að sjá skrum-
skælda mynd af sjálfrí sér í
frásögnum annarra er ekki
ný af nálinni. Hér á landi
hefur það lengi tiðkast, en
heyrir þó til undantekn-
inga nú á dögum, nema þá
Milton Friedman
helst í Þjóðviljanum, að
draga upp ófagra mynd af
andstæðingum sínum og
ekki nóg með það heldur
birta af þeim andkanna-
legar myndir á prenti sé
þess nokkur kostur.
Með tilkomu sjónvarps-
ins hefur dregið úr þessari
leiðinlegu áráttu. Sjón-
varpsvélarnar Ijúga ekki að
þeæu leyti heldur gefa
stjórnmálamönnum og öðr-
um færi á að koma til dyr-
anna eins og þeir eru
klæddir inni í stofu hjá öll-
um þorra þjóðarinnar.
TÚ marks um persónu-
nið af því tagi sem Kirkpat-
rick lýsir má nefna óstöðv-
andi óhróður Þjóvilja-
manna og annarra um hag-
fræðinginn Milton Fried-
man. Var honum helst líkt
við þann einræðisherra
sem vinstrisinnar hér telja
nú verstan f veröldinni
(kommúnistaríkin eru sem
kunnugt er ekki hluti af
heimsmynd þeirra í þessu
tilliti) Pinochet, herstjóra í
Chile. Eftir að Kriedman
birtist í íslenska sjónvarp-
inu og tók Ólaf R. Gríms-
son á hné sér með eftir-
minnilegum hætti hefur
ekki þýtt fyrir Þjóðviljann
að líkja Fríedman við Pino-
chet
„Virkar
aðgerðir“
Lygastarfsemi Sovét-
manna er margvísleg og á
Vesturlöndum tala menn
um „virkar aðgerðir" í því
sambandi, það er að segja
sovéskar aðgerðir til að
hafa áhrif á skoðanir og
álit almennings í lýðræðis-
löndunum. Fróðleg grein
um þessi mál birtist í tíma-
ritinu NATO-fréttir sem
upplýsingadeild NATO
dreifir á íslensku hér á
landl Þar lýsir höfundur-
inn, Lawrence Eagleburg-
er, þáverandi aðstoðar-
utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, ýmsum dæmum
um sovéska lygastarfsemi
og ræðir, hvemig við henni
skuli bragðist
Hann segir að þessi
starfsemi sé ekki bundin
við einstök lönd heldur sé
hún stunduð með það f
huga að nota sviksemi til
að skaða hagsmuni ríkis
sem getur verið f órafjar-
lægð. Hvetur höfundur til
þess að athafnir af þessu
tagi séu afhjúpaöar opin-
berlega og segin
„Lýðræðislegir stjórn-
arhættir þróast ekki nema
almenningi sé skýrt rétt frá
staðreyndum. Auk þess
stuðla frásagnir af athæfi
Sovétmanna að þvf að íbú-
ar landa okkar forðist að
verða fórnarlömb þeirra
virku aðgerða sem að þeira
er beinL Sovétmenn óttast
einnig allar opinberar upp-
lýsingar vegna þess að þær
hafa í fiir með sér, að öll
mistök þeirra verða dýr-
keyptarL Þögn um þessar
aðgerðir ýtir þess vegna
undir, að þeim sé haldið
áfram og hvetur Sovét-
menn til frekari dáða.“
Svikastarfsemi
í Staksteinum í dag er vikið að máli sem
setur svip sinn á samskipti austurs og vest-
urs, þaö er aö segja alis kyns lyga- og
svikastarfsemi sem stunduð er til að hafa
áhrif á skoðanamyndun í lýðræöislöndun-
um. Gegn þeirri vá þarf að standa. Tilefnið
er viðtal við Jeane Kirkpatrick, sendiherra
Ðandaríkjanna hjá Sameinuöu þjóöunum,
en einnig er minnt á þá staðreynd að
óhróðurinn um Milton Friedman hér á landi
hefur hætt eftir að Friedman talaöi til allra
íslendinga í gegnum sjónvarpiö.
Efnahagsstefnan
i
Noregi
Thor Bang, aðstoðarbankastjóri og yfirhagfræðingur, Den Norske Creditbank,
flytur erindi á almennum félagsfundi Verzlunarráös íslands í Kristalsal Hótels
Loftleiöa, mánudaginn 10. desember nk., klukkan 16:00—18:00. Erindi hans
nefnist:
Efnahagsstefnan
í Noregi
Thor Bang er formaður Landsnefndar Alþjóöa verzlunarráðsins í Noregi og
hann á sæti í framkvæmdastjórn Alþjóöa verzlunarráösins. Hann mun ræöa
sérstaklega um framtíöarhorfur norsks iönaöar, olíuvinnslu, álframleiöslu, fisk-
eldi; skattamál; þróun veröbréfamarkaðar og minnkun ríkisumsvifa.
Muniö aö tilkynna þátttöku í síma 83088.
Thor Bang
VERZLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
Hús verslunarinnar
108 Reykjavík, sími 83088