Morgunblaðið - 08.12.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
31
Samstöðu-
leiðtogi
gefur
sig fram
Varsjá, 7. desember. AP.
Samstöðuleiðtogi sem farið hefur
huldu höfði í nær þrjú ár, gaf sig
fram við saksóknarann í Varsjá í
gær og var sleppt eftir stutta yfir-
heyrslu samkvæmt ákvæðum um
náðun til handa þeim sem gefa sig
fram. Leiðtoginn heitir Eugeniusz
Szumiejko og var einn af fimm
manna framkvæmdanefnd Sam-
stöðu.
í símaviðtali við AP sagði
Szumiejko að Samstaöa og hug-
sjónir hennar væru sér að sjálf-
sögðu ákaflega kær, en það væri af
fjölskylduástæðum sem hann gæti
ekki starfað áfram á þeim vett-
vangi sem ástandið í landinu
skapaði honum, kona sín hefði alið
honum sveinbarn og fjölskyldan
yrði nú að sitja í fyrirrúmi. „I 200
ár hafa allir pólskir karlmenn orð-
ið að vega og meta hvað þeir verði
að gefa af sjálfum sér til föður-
landsins og hve mikið til fjölskyld-
unnar,“ sagði Szumiejko.
staögreiðsluafsláttur
STENDUR FYRIR SÍNU
^reín/aítístceftí
J ePPadei/d
Harðv/ðarsaJa
I
BYGGINGAVORUR
HRINGBRAUT120: Simar: Harðviðarsala..............28-604
Byggingavörur..............28-600 Málningarvörur og verktæri.28-605
Gólfteppadeild.............28-603 Flisar og hreinlætistæki...28-430
]
renndu vlð eða hafðu samband
1
Náðu 5,4
tonnum
af eitur-
lyfjum
Siuttgart, 7. desember. AP.
LÖGREGLAN í Vestur-Þýska-
landi kom í gær höndum yfir 3
tonn af efni sem kunnáttumenn
nota til að búa til eiturlyfið amf-
etamín og voru smyglarar í þá
mund að senda efnið til Banda-
ríkjanna. I»rír menn voru hand-
teknir, einn Bandaríkjamaður
búsettur í Wurzburg í Bæjara-
landi og tveir heimamenn.
Lögreglan fann einnig í fór-
um þessara manna 2,4 tonn af
efninu phenylaceton sem neð-
anjarðarefnafræðingar nota til
sama brúks og hefðu þessi 5,4
tonn dugað til framleiðslu á
amfetamíni að verðmæti 100
milljóna dollara. Vestur-þýska
lögreglan upprætti smygl-
hringinn í samvinnu við lög-
regluna í New York og New
Jersey, sem handtók 9 banda-
ríska aðila sem grunaðir eru
um aðild að málinu. Talsmaður
þýsku lögreglunnar sagði í dag
að trúlega væru ekki öll kurl
komin til grafar, mennirnir
væru grunaðir um að hafa ætl-
að að smygla 15 tonnum nú og
24 tonnum síðar.
13 fórust
í flugslysi
Jacksonville, Florida, 7. des. AP.
ELLEFU manns fórust í flugslysi,
þegar lítil vél hrapaði skömmu eftir
flugtak við Jacksonville í morgun.
För vélarinnar var heitið til
Boston. Samkvæmt fréttum hafði
verið fengin undanþága fyir vélina
að henni mætti fljúga um tak-
markaðan tíma, en við skoðun ný-
lega höfðu öryggiseftirlitsmenn
gert ýmsar athugasemdir varð-
andi búnað hennar.
Full skemma
afjólatijam
Dönsk jólatré:
Normannsgreni, Nobilis og Fura
Jólatréin eru komin, og jólasvein-
amir hafa tekið völdin í Jólatrés-
skemmunni okkar v/Miklatorg.
íslensk jólatré:
Reuðgreni og Fura
Þeir eru rausnalegir og bjóða
mömmu og pabba upp á heitt kaffi
og bömunum appelsín.
VIÐ MIKLATORG
Að sjáljsögðu aðstoða þeir þig við
að velja rétta jólatréið.