Morgunblaðið - 08.12.1984, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
41
Aðventu-
samkoma
Kársnes-
safnaðar
ANNAN sunnudag í aðventu, 9. des-
embcr, efnir Kársnessöfnuður til ár-
legrar aðventuhátíðar í Kópavogs-
kirkju kl. 20.30.
Efnisskráin hefst með orgelleik
Guðmundar Gilssonar. Formaður
sóknarnefndar, Stefán M. Gunn-
arsson, flytur ávarp og ræðumað-
ur kvöldsins verður Andrés
Björnsson, útvarpsstjóri. Þá mun
Einar Jóhannesson klarinettleik-
ari flytja Adagio eftir W.A. Moz-
art. Kirkjukórinn syngur Ave
María eftir Eyþór Stefánsson og
Ave Verum Corpus eftir W.A.
Mozart. Litli kórinn úr Kársnes-
skóla syngur undir stjórn Þórunn-
ar Björnsdóttur, en sá kór er
skipaður börnum á aldrinum 8—9
ára.
Tilgangur aðventusamkoma er
sá að gleðjast sameiginlega og
fagna yfir þeim heilaga boðskap
sem lýsir upp hugina og eflir
okkur til góðra verka.
Því munum við verða þátttak-
endur í almennum söng og sam-
eiginlegum bænum.
Að lokinni aðventusamkomunni
er fólki boðið að ganga niður í
safnaðarheimilið Borgir þar sem
þjónustudeild safnaðarins hefur á
boðstólum heitt súkkulaði og með-
læti.
Sóknarnefnd Kársnessafnaðar.
Arleg
landssöfnun
kirkjunnar
um helgina
HIN árlega landssöfnun Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar á jólaföstu
undir vfirskriftinni Brauð handa
hungruðum heimi hefst á sunnudag
með guðsþjónustum í kirkjum lands-
ins.
Biskup hefur skrifað prestum og
söfnuðum og mælst til þess að
hjálparstarfsins verði minnst
þennan dag við guðsþjónustur eða
við annað tækifæri sem betur
hentar.
Þátttaka safnaðanna í kjörum
hinna nauðstöddu með fyrirbæn
og fórnargjöf er undirstaða söfn-
unarinnar á jólaföstu. Um þessar
mundir beinist athygli neyðar-
hjálparinnar að Eþíópíu en jafn-
framt er unnið að langtímaverk-
efnum í fyrirbyggjandi starfi, að
hjálpa hinum nauðstöddu til að
hjálpa sér sjálfum. „Það er í sam-
ræmi við eðli og tilgang jólaföst-
unnar að nota tækifærið að tjá
fórnarhug sinn í fögru verki, því
að Guð elskar glaðan gjafara,"
segir biskup í bréfi sínu.
Söfnunarbaukar og giróseðlar
eru nú að berast inn á heimili
landsins. Margir söfnuðir hafa
skipulagt móttöku söfnunarbauk-
anna undanfarin ár með þeim
hætti að kirkjur voru opnar síð-
ustu kvöldin fyrir jól og tekið við
framlögunum. Víða voru organ-
leikarar og fleira tónlistarfólk
viðstatt og fólki gafst kostur á að
eiga kyrrðarstund í kirkju sinni.
Er þess að vænta að svo verði að
þessu sinni og verður nánar skýrt
frá því síðar, hvernig fyrirkomu-
lagi verður háttað á hverjum stað.
Hjálparstofnun kirkjunnar er
það mikið áhugamál að fram-
kvæmd söfnunarinnar megi tengj-
ast safnaðarstarfi eins og aðstæð-
ur leyfa á hverjum stað.
Fréttatilkynning.
l f>okks va
Pantaðídaq
-_____~ pantið
Spokkun™*
? m°r9un.
ega -
Norðsmannsþynur ^í^^slgraenn og
^^£^^^,dahiáun9um
orh“^^^^anni9aðve
gildiróbreytuar. , . . 1983-1984.
Norðmannsþvnuf Verðsk 1kr. 685.00
75-100 cm. .....' ‘.. kr. 835.00
101 -125 cm. .... . kr. 1010.00
126-150 cm. ........ . kr. 1275.00
151 -175 cm. ...... . kr. 1875.00
176-200 cm. ........ .. kr. 2175.00
201-250 cm. ....... . kr. 2390.00
251 -300 cm. ...... kr. 2630.00
tegundum jolatrjaa.
jólaskógurinn v. Sigtun
Aðventuhátíd í
Laugarneskirkju
SUNNUDAGINN 9. desember verð- til að undirbúa jólin sem best.
ur aðventuhátíð í Laugarneskirkju.
Kl. 11 verður barnaguðsþjónusta en
um kvöldið kl. 20.30 hefst aðventu-
samkoma.
Ræðumaður kvöldsins verður sr.
Bernharður Guðmundsson frétta-
fulltrúi þjóðkirkjunnar. Hann
mun ræða um aðventuna og það
sem við getum gert á aðventunni
Tónlistarmennirnir Guðrún Sig-
ríður Birgisdóttir og Martial
Nardau flytja tónlist fyrir flautu.
Börn úr barnastarfi kirkjunnar
sýna helgileik undir stjórn Mar-
grétar Hróbjartsdóttur. Kirkjukór
Laugarneskirkju syngur jólalög
undir stjórn Sigríðar Jónsdóttur,
en hún mun einnig leika á orgel
kirkjunnar.
Eftir samkomuna í kirkjunni
mun Kvenfélag Laugarnessóknar
bjóða kirkjugestum upp á heitt
kakó og smákökur í nýja safnað-
arheimilinu. Þar verða einnig til
sölu jólaskreytingar sem félags-
konur hafa útbúið á vikulegum
vinnukvöldum í haust og vetur.
Um þessar mundir eða 18. des.
er 35 ára vígsluafmæli Laugarn-
eskirkju. Þessara tímamóta verð-
ur minnst á samkomunni.
Aðventusamkoman er öllum
opin meðan húsrúm leyfir.
Jón Dalbú Hróbjartsson,