Morgunblaðið - 08.12.1984, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1984
47
samferðafólk hans okkur vonir um
að hann kæmist til nokkurrar
heilsu á ný. En í haust varð hann
að leggjast inná sjúkrahús að nýju _
og þá stefndi allt að einu marki.
Hann bar sig ávallt vel, að hann
væri þjáður eða bæri ugg í brjósti
lét hann aldrei í ljós, heldur miðl-
aði okkur af styrk sínum og sálar-
þreki.
Hann gat þess við mig að hann
kviði ekki endalokunum, en væri
forvitinn um hvað við tæki. Það er
nú um aldarfjórðungur síðan ör-
lögin spunnu þann vef að leiðir
okkar Þórarins lágu saman.
Það vakti strax athygli mína
hvað hann var óvenju hispurslaus
og hreinskilinn maður, hjálpsam-
ur og greiðvikinn. Þessa mann-
kosti hans kunnu líka sveitung-
arnir að meta og fólu honum
margþætt trúnaðarstörf í þágu
hreppsfélagsins og bændasamtak-
anna. Þegar Félagsheimilið Ara-
tunga var tekið í notkun réðst ég
þangað sem húsvörður, en Þórar-
inn var þá gjaldkeri húsnefndar.
Ég kynntist því honum ekki aðeins
sem tengdaföður, heldur líka sem
samstarfsmanni og húsbónda.
Hann var stundum harður hús-
bóndi, en ávallt gerði hann mestar
kröfur til sjálfs sín. Á þessum ár-
um lærðist mér að meta hann svo
að eigi fannst mér málum mínum
vel ráðið nema hans álits væri
leitað. Og svo held ég að hafi verið
um fleiri. Hvað ungur nemur,
gamall temur. Er nokkuð æskunni
betra en að fá að alast upp á grónu
sveitaheimili. Þar er enginn óvirk-
ur áhorfandi, en allir í náinni
snertingu við landið, gróðurinn og
dýrin, lífið sjálft. Þessa urðu synir
okkar Steinunnar aðnjótandi í
mörg sumur. Vera þeirra á Spóa-
stöðum veit ég að verður þeim
besta veganestið út á lífsbrautina.
Senn líður að jólum, nú verður það
ekki Þórarinn sem stendur á
tröppunum að fagna okkur þegar
við komum að Spóastöðum á jóla-
dag. En við erum þakklát fyrir öll
árin sem við höfum átt saman.
Gifta þess að eiga fjölskyldu er að
bera byrðar hvers annars og veit
ég að við munum öll standa þétt
við hlið Ingibjargar í raunum
hennar nú. Þar sem svo góðs er að
minnast mun gleði þess liðna
varpa birtu á komandi skammdeg-
isdaga.
„Dýrðlegt er að sjá
eftir dag liðinn
haustsól brosandi
í hafið renna;
hnígur hún hóglega
og hauður kveður
friðar-kossi
og á fjöilum sest.“
(Jónas Hallgrímsson)
Ég kveð Þórarin og þakka hon-
um samfylgdina.
Garðar Hannesson
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Sanitas
VERDLÆKKUN!
VEROMUNUR
0,251
m
m
'j&c
11
Kft
Gleðileg jól.
hf.
vaxtareikningur
VÖRNGEGN VERÐBÓLGU
Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að
Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. a
Betri kjör bjóðast varla. <$>SamVÍnnilbailkmiÍ