Morgunblaðið - 12.12.1984, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
Jón G. Sólnes
segir sögu sína
Bókmenntir
Björn Bjarnason
Jón G. Sólnes,
Halldór Halldórsson blaðamaöur
skráöi, 266 bls. meö nafnaskrá og
Ijósmyndum.
Orn og Örlygur, 1984.
í undirtitli þessarar bókar
stendur að í henni segi Jón G. Sól-
nes frá viðburðaríkri og storma-
samri ævi. Skrásetjarinn er Hall-
dór Halldórsson, blaðamaður, sem
starfað hefur við blöð og ríkis-
fjölmiðla. Hann var einn þeirra
sem töldu að með „rannsókna-
blaðamennskunni" svonefndu
væri runninn upp nýr tími í fjöl-
miðlum. Með því að ræða við Jón
G. Sólnes kemst hann í náin kynni
við þann mann sem á undanförn-
um árum hefur þótt eitthvert for-
vitnilegasta viðfangsefni þeirra
sem áherslu hafa lagt á gildi rann-
sóknablaðamennskunnar. Ramm-
inn sem bókinni er settur gefur þó
ekki mikla möguleika til að stunda
þessa grein blaðamennskunnar
sem ef til vill á ekki jafn mikið
upp á pallborðið nú og áður. Bókin
er ekki rituð eftir neinum reglum
rannsóknablaðamennskunnar. Þá
ber hún sama merki og bækur af
svipuðu tagi, að ekki er lögð næg-
ileg rækt við að skrifa textann.
Hér er málum lýst frá sjónarhóli
sögupersónunnar og hún látin tala
næstum milliliðalaust. Jón G. Sól-
nes liggur ekki á skoðunum sínum
um menn og málefni. Hann hikar
ekki heldur við að gagnrýna ým-
islegt í eigin fari, bæði að því er
varðar hann sjálfan persónulega
og þau málefni sem hann hefur
tekist á við í opinberu lífi.
í aðfaraorðum lýsir Halldór
Halldórsson söguhetjunni meðal
annars með þessum orðum: „A
ytra borði er Jón óneitanlega
hryssingslegur og stundum frá-
hrindandi fyrir þá, sem ekki
jtekkja manninn. En þegar maður
hefur kynnst honum kemur í ljós,
að hryssingurinn er bara gríma,
skrápur. Og skrápurinn er ekki
þykkur. Það er stutt í hjartahlýj-
una og Jón er trygglyndur maður."
1 bókinni kemur fram að þessi
lýsing er hárrétt. Það er einkenni
frásagnarinnar hve Jón getur ver-
ið dómharður um þá menn sem
Veistu
svarið?
Bókmenntir
Siguröur Haukur Guðjónsson
Veistu svarið?
Axel Ammendrup tók saman.
Þorsteinn Eggertsson myndskreytti.
Setning: Prentsmiðjan Oddi hf.
Prentun: Viðey offsett.
Útgefandi: Vaka.
Þetta er 6. bókin í flokki gátu-
leikja- og þrautabóka forlagsins,
og í fáum orðum sagt, þá er þetta
afbragðs bók. Þar kemur fyrst til,
að hún eykur þekkingu þess er les,
í annan stað kemur, að hún er
bráðskemmtileg, og í þann þriðja
að hún nýtist jafnt einum sem
hópi.
Slíkar bækur, sem Veistu svar-
ið?, hafa verið og eru meðal vin-
sælustu bóka erlendis, og hrein
furða, að í gerð íslenzkrar skuli
ekki hafa verið ráðizt fyrr. En nú
hefir verið úr því bætt og það á
mjög myndarlegan hátt.
Efnið er ákaflega fjölbreytt;
Spurnir úr sögu, fréttum; spurnir
um lönd og álfur; spurnir um
færni í reiknilist; þekkingu á
málsháttum og margt, margt
fleira er að finna í jæssu skemmti-
lega kveri. Það er víst, að sá sem
kann svörin við spurningunum öll-
hann telur að hafi gert eitthvað á
sinni hlut en hlýr í garð hinna,
sem hann metur og virðir. Jóni er
ósárt um að ná sér niðri á þeim
sem hann telur til dæmis að hafi
ekki metið sig að verðleikum eftir
að hann settist á þing, 1974, 64 ára
gamall.
„Þegar ég kom á þing 1974 varð
ég fyrir mjög sérkennilegri
reynslu. Maður var nú búinn að
gutla svolítið í pólitík öll þessi ár
(Jón fór fyrst í framboð til bæjar-
stjórnar 27 ára, 1938, en komst í
öruggt sæti 35 ára, 1946 innsk.
Bj.Bj.) og búinn að vera leiðtogi
flokksins í bæjarstjórn á Akur-
eyri. En Jægar ég kom á þing, var
manni tekið eins og busa í mennt-
askóla, alveg bókstaflega ... Og ég
var nú ekki meiri maður en það, að
ég hálf lúffaði fyrir þessu helvíti.
Og svo er verið að tala um, að
maður sé einhver mektarmaður og
frekur og ég veit ekki hvað!“
Raunar má ráða af bókinni að
Jóni hafi aldrei líkað sérlega vel
að sitja á þingi. Á einum stað seg-
ir hann, að Hf sitt hafi á vissan
hátt „verið samhangandi keðja af
mistökum. Eg gæti talið upp lang-
an lista af mistökum, sem ég hef
gert í lífinu." Jóni mistókst að
komast í fjárveitinganefnd, stjórn
Framkvæmdastofnunar ríkisins,
bankaráð Seðlabankans og stjórn
Norræna fjárfestingarbankans og
segir að hann hefði getað komið í
veg fyrir minnihlutastjórn Al-
þýðuflokksins haustið 1979. Þá tel-
ur hann það mistök hjá Alþingi að
hafa samþykkt iög um Kröflu-
virkjun með Jæim hætti sem gert
var, aldrei hefði átt að byggja
svona stórt orkuver þarna, þá hafi
það verið óskiljanleg reginskyssa
hjá sér og Gunnari Thoroddsen,
þáverandi iðnaðarráðherra, að Jón
tók að sér að vera bæði formaður
og framkvæmdastjóri Kröflu-
nefndar, það hafi verið mistök að
kratar fengu ekki mann í Kröflu-
nefnd, þá hafi verið mistök að
taka mark á spám Orkustofnunar
um Kröflusvæðið „þær voru hrein
markleysa," segir Jón G. Sólnes í
bókinni.
Jóni liggur þungt orð til Geirs
Hallgrímssonar, sem var formað-
ur Sjálfstæðisflokksins á þeim ár-
um sem Jón sat á þingi. Telur Jón
að allt sé það Geir að kenna að
um, hann verður talinn fróður
maður.
Það er gaman að vera með bók-
ina í nálægð forvitinna barna, sjá
þau halda með hana í eitthvert
næðishornið, lesa sér fróðleikinn
tii, koma síðan og reyna kunnátt-
una á hinum fullorðnu. Þau brosa
drjúg, er þau finna, að bókin gerir
þeim fært að miðla fróðleik til
Jæirra sem hingað til voru álitnir
vita flest.
Stoltur má Axel vera að hafa
rétt fram svo þroskandi bók. Mál
hans er létt, myndrænt, auðskilið.
Teikningar Þorsteins eru bráð-
vel gerðar, loga af fyndni. Hafi
Vaka J)ðkk fyrir mjög góða bók,
sem uppalendur ættu að taka eft-
ir.
Halldór Halldórsson og Jón G. Sólnes.
frami sinn hafi ekki orðið meiri á
Alþingi. Á hinn bóginn hallmælir
Jón flokksformanninum fyrir að
vera ekki nægilega afdráttarlaus
við flokksstjórnina og vilja vera of
sáttfús. Geir hafi þó enn brugðist
hrapallega bogalistin í sáttfýsinni
Jægar hann tók þátt í því fyrir
kosningarnar í desember 1979 að
bola Jóni út af þingi og lista
Sj álf stæðisf lokksi ns.
Fyrir þann sem Jækkir þá báða,
Geir Hallgrímsson og Jón G. Sól-
nes, er sárt að lesa um þetta allt
saman, enn sárara er þó að lesa
um vinslit Jæirra Halldórs Blöndal
og Jóns. í raun segir Jón berum
orðum að hann fyrirlíti Halldór
Blöndal, sem var honum nákom-
inn bæði persónulega og pólitískt.
Hafa fáir þingmenn líklega kom-
ist í verri aöstöðu gagnvart sam-
herja en Halldór, þegar hann sem
yfirskoðunarmaður ríkisreikninga
stóð frammi fyrir því haustið 1979
að skjöl sýndu að Alþingi hafi
greitt Jóni G. Sólnes símareikn-
inga sem hann hafði þegar fengið
greidda frá Kröflunefnd. Jón telur
að Halldór hafi í raun staðið
þarna að pólitísku samsæri um að
bola sér af framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra og tryggja þann-
ig eigin stöðu. Farið hefði vel á því
að í bókinni hefði síðasta ræða
Jóns G. Sólnes á Alþingi, 16.
október 1979, um þetta mál verið
birt í heild. Þar les hann bréf yfir-
skoðunarmanna ríkisreikninga og
gerir grein fyrir málavöxtum frá
sínum sjónarhóli. Hann lýsir því
sem einskonar nauðvörn af sinni
hálfu aö hafa látið Alþingi greiða
þessa reikninga, þar sem hann
hefði leitað eftir því við
iðnaðarráðuneytið að það heimil-
aði Kröflunefnd að greiða þá. „Því
vil ég benda á hvort ekki mundu
hafa J)ótt einkennilegar aðfarir,
eftir að mér hafði verið synjað um
slíka tilhögun á greiðslu síma-
reikninga hjá Kröflunefnd, að ég
hefði komið með þriggja, fjögurra
ára reikninga í skrifstofu Alþingis
til að krefjast greiðslu þeirra,"
segir Jón í ræðunni.
Eins og áður sagði leiddi þetta
mál til þess að leiðir skildi með
Sjálfstæðisflokknum og Jóni í
vetrarkosningunum 1979. Hann
bauð fram sérlista, S-lista í Norð-
Bókmenntír
Jóhann Hjálmarsson
Pálmi Örn Guðmundsson:
TUNGLSPÁ.
Reykjavík 1984.
Tunglspá er eins konar ljóðas-
afn Pálma Arnar Guðmundsson-
ar, hér eru saman komnar í einu
bindi nokkrar fyrri bækur hans og
aðrar sem koma fyrir sjónir les-
enda í fyrsta skipti.
Það er að mörgu leyti forvitni-
legt að kynnast ljóðagerð Pálma
Arnar Guðmundssonar. Til dæmis
yrkir hann á einum stað:
Ég er brjálaður hestur í auga eilífðarinnar
nú ligg ég bara í sólbaði
þarna er himinninn, hann er blár.
(Síðasta ljóðið sem ég yrki)
skorinorðara:
urlandskjördæmi eystra, en mið-
stjórn skoraði á hann að draga
listann til baka. „Ein þeirra >nis-
taka, sem ég hef gert í lífinu var
að berjast ekki meira fyrir mínu
máli á kjördæmisþingi (6. og 7.
október 1979, áður en „símamálið"
komst í hámæli efndu sjálfstæð-
ismenn í kjördæmi Jóns til þings
sem lauk án niðurstöðu, en 23.
október ákvað kjördæmisráðið, að
mæla gegn Jóni í framboð og
hafna tillögu um prófkjör innsk.
Bj.Bj.) kvelja þá og pína og rífa
kjaft á Jæssum fundum. Það voru
líka mistök að láta ekki úrskurða
um listann til þess að knýja fram
DD sem listabókstafi." Jón G. Sól-
nes fór af þingi kalinn á hjarta og
segist aldrei síðan hafa stigið fæti
sínum inn í Alþingishúsið né neitt
af J)eim húsum, sem Alþingi hefur
yfir að ráða: „Ég var rekinn þaðan
með skömm, og enn sem komið er
hef ég ekki hugsað mér að koma
þangað inn aftur."
Jóni G. Sólnes liggur síður en
svo þungt orð til allra manna sem
hann minnist í bók sinni. Bitur-
leikinn er mestur þegar hann ræð-
ir þingmennskuna. Þegar hann
var kjörinn á þing var hann óum-
deildur höfðingi í sinni heima-
byggð, mikils metinn og vinsæll
maður á Akureyri, landskunnur
fyrir dugnað og áræði. Hann sett-
ist síðan að nýju í bæjarstjórn Ak-
ureyrar. Lesandinn kemst ekki hjá
því að álykta að með þingmennsk-
unni og störfum í og fyrir Kröflu-
nefnd hafi Jón reist sér hurðarás
um öxl.
Af forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins hafði Jón nánast sam-
band við Gunnar Thoroddsen og
segir að af forystumönnum flokks-
ins fyrir sunnan hafi Gunnar
staðið einn með sér, Jægar hann
bauð fram S-listann, J)ó hann vilji
ekki segja, að Gunnar sem þá var
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hafi haft úrslitaáhrif á það að
sérlistinn var boðinn fram. Þá
segir Jón það liggja f augum uppi
að hann hefði orðið ráðherra í rík-
isstjórn Gunnars Thoroddsen í
febrúar 1980 hefði hann náð kjöri
1979, hvort heldur á sérlistanum
eða á lista Sjálfstæðisflokksins.
Jón gagnrýnir ekki samstarf við
alþýðubandalagsmenn í þeirri
stjorn en hallmælir ólafi Thors
Vitfirringurinn segir
að það sé búiö
að jarða sig.
Á hverjum sunnudegi
fer hann uppí kirkjugarð
og setur blóm á leiðið.
(Blóm á leiðið)
Og svona yrkir Pálmi Örn til
Helga Hálfdanarsonar:
Hefur þú bjarti svanur komið á veruleikans
auðu strönd þarsem englamir dansa
[berrassaðir
á þrotlausum vegi.
(Úr Poem for Helgi Hálfdanarson)
Pálmi Örn Guðmundsson
skreytir ljóðasafn sitt með ljós-
myndum af sjálfum sér, teikning-
um eftir bróður sinn, myndum af
málverkum eftir Paul Gauguin og
ýmsum öðrum myndum. Bók hans
hefur nokkra sérstöðu að þessu
leyti og Ijóðin eru ekki eins og þau
ljóð sem maður rekst á daglega.
Tilvísanir hans til annarra skálda
oftar en einu sinni fyrir að hafa
myndað nýsköpunarstjómina með
kommúnistum 1944. í öðrum
heimildum liggur fyrir, að 1947
vildi Gunnar Thoroddsen að ný-
sköpunarstjórninni yrði fram
haldið og var rætMim hann sem
forsætisráðherraefni á þeim tíma.
Hér hefur einkum verið staldr-
að við einn þátt þessarar bókar,
þann sem að mínum dómi er sögu-
legastur með hliðsjón af samtíma-
stjórnmálum. í bókinni er ekki
sagt síðasta orðið um þessi mál öll
en hún er heimild sem til verður
vitnað.
Á bókarkápu og í auglýsingum
er Jóni lýst sem „harðsvíraðasta
kapítalistanum í Sjálfstæðis-
flokknum". Ég get ekki séð rökin
fyrir þessari lýsingu. Jón G. Sól-
nes hefur í störfum sem banka-
maður, útibússtjóri Landsbankans
á Akureyri, sveitarstjórnarmaður
og þingmaður farið með fé ann-
arra. Tilraunir hans til að stunda
sjálfstæðan atvinnurekstur báru
ekki þann árangur sem hann ætl-
aði. Á hinn bógin hefur Jón verið
hiklaus talsmaður meira frjáls-
ræðis í peningamálum en menn
eiga að venjast. í Jæim efnum hef-
ur gustað um hann og færi vel á
því að hugmyndir hans um þau má
fengju að þróast og dafna. Með
hliðsjón af Jæim kom mér á óvart
að lesa hnjóðsyrðin i garð ungra
frjálshyggjumanna, en hann kall-
ar Hannes Hólmstein Gissurarson
„frjálsræðisspóa, velluspóa" sem
hann segist „pípa á“. Heill kafli
bókarinnar heitir: Sleggjudómar
um pólitíska samferðamenn, þar
sem Jón tekur sig til og gefur
mönnum einkunnir. Þær segja
auövitað jafn mikið um hann
sjálfan og mennina.
Bókin um Jón G. Sólnes er jafn
margslungin og sögumaðurinn
sjálfur, hún hefur að geyma marg-
ar einlægar játningar, sem eru
næsta óvenjulegar í bókum af
þessu tagi. Hún lýsir sérstæðum
manni, sem kemur til dyranna
eins og hann er klæddur. Sjálfur á
ég eins og fjölmargir aðrir
ánægjulegar minningar af kynn-
um mínum við Jón og hans ágætu
konu, Ingu. Undir lok bókarinnar
fer Jón fallegum hlýjuorðum um
fjölskyldu sína og lýsir trú sinni á
handleiðslu og forsjá.
Meðal þess sem Jón rifjar upp í
bókinni er ferð sem við fórum með
föður mínum frá Akureyri til
Seyðisfjarðar. Þá vann ég þar í
síldarbræðslu hjá Ingvari Vil-
hjálmssyni og sonum hans. Fékk
ég lánaðan bíl hjá fyrirtækinu og
ók Jæim Jóni um bæinn. Minnist
ég þess æ síðar þegar ég var að
snúa bílnum við á þröngum vegi í
firðinum sunnanverðum, hve litlu
munaði að ég missti stjórn á hon-
um og hann rynni niður bratta
hiíðina og út í sjó. Hvorugur far-
Jæganna tók líklega eftir Jæssu,
enda jafnan í hrókasamræðum.
Hef ég síðan litið svo á að þarna
hafi forsjónin komið til sögunnar
og forðað okkur frá afleiðingum
mistaka minna.
eru nokkuð djarflegar, einkum
heggur hann nærri Þorsteini frá
Hamri. En hvað sem um Pálma
Örn verður sagt fer hann sínar
eigin leiðir.
Ljóðheimur Pálma Arnar er
ruglingslegur, óskipulegur. En
stundum getur hann hitt í mark.
Meira er JxS um samsetning af
Jæssu tagi: „Ég hef fundið ánægj-
una í að lifa, hef fundið sólina seil-
ast inn í hjarta mitt. Það er þungt
og stirt. Einsog gamall maður,
sem talar upphátt, án Jæss að vita
það. Ég á tvö tungl, falin í djúpum
helli, undir fjallinu furðulega, sem
enginn skilur. Þau bíða og dreymir
að ég komi. Stundum gef ég þeim
eitthvað og þá tala þau. í ólinni
hangir afi þinn, dauður er hann og
grafinn, á morgun hittirðu stúlku-
kind og horfir með henni á hafið.“
Ein bóka Pálma Arnar heitir
Veruleikasprenging í leikhúsinu.
Það er dæmigert nafn fyrir hann.
Ég er ekki frá því að menn hafi
gaman af að glugga í þessi ljóð.
V eruleikasprenging