Morgunblaðið - 12.12.1984, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
51
Hveragerði:
Nýtt þvottahús opnaö
HverigerAi, 7. desember.
NYTT þvottahús var opnað 1. des-
ember sl. í Dynskógum 5 í Hvera-
gerði. Er það búið nýjum og góðum
tækjum og innréttingum og eru
húsakynnin hin vistlegustu. Eigandi
þessa nýja fyrirtækis er frú Auður
Guðbrandsdóttir húsmóðir og
hreppsnefndarfulltrúi.
Fréttaritara Mbl. var boðið að
skoða nýja þvottahúsið og spurði
ég Auði hvort ekki væri dýrt að
koma slíku á laggirnar? „Jú,“
sagði Auður, „þetta er búið að
vera mikil vinna og dýr. Við tók-
um helming húsnæðis sem við eig-
um hér heima á lóðinni undir
þessa starfsemi, það þurfti að
grafa fyrir nýjum lögnum að og
frá húsinu fyrir vatni og frá-
rennsli. í>á varð að leggja nýja
raflögn og síðast en ekki síst
tengja gufulögn í húsið, en nýju
þvottavélarnar eru gerðar fyrir
gufu. Þær eru sænskar og eru
hálfgerðar tilraunavélar, er þetta
fyrsta vél sinnar gerðar sem tekin
er í not hér á landi og er eftir að
vita hvernig þetta reynist, en ef
það fer ekki að vonum, þá má ég
skila henni og fá aðra, sem er fyrir
rafmagn og venjulegt vatn. Svíar
búa til sína gufu sjálfir og er hún
að sjálfsögðu hreinni en jarðgufan
okkar.
Vélarnar eru mjög fullkomnar
og einnig keypti ég þurrkara og
stóra strauvél. Stofnkostnaður er
orðinn mikill, hátt í eina milljón
króna, þó húsnæðið væri til staðar
og einnig hefur eiginmaður minn
unnið allt tréverk og innréttingar
og ótalmargt fleira sjálfur."
Hvað kom til að þú réðst í þetta
fyrirtæki?
„Mig langaði að skapa mér
sjálfstæða atvinnu og um leið
létta undir með þreyttum útivinn-
andi húsmæðrum og fría hús-
bændurna við að læra á þessi
flóknu þvottatæki heimilanna."
Heldurðu að verkefni verði nógu
mörg?
Ég vona það, reksturinn veltur
auðvitað á undirtektum einstakl-
inga og fyrirtækja hér í þorpinu
og nágrenni. Nokkrir aðilar hafa
þegar pantað föst viðskipti, en það
tekur alltaf nokkurn tíma að
vinna sér upp markað."
Eiginmaður Auðar er Sigurður
Sólmundarson smiður, listmálari
og handmenntakennari. Eru þau
hjónin bæði dugleg og áræðin og
óska ég þeim alls góðs með nýja
fyrirtækið og heiti á bæjarbúa að
sýna því verðugan áhuga.
Sigrún
Auóur Guðbrandsdóttir í hinu nýja þvottahúsi sínu.
NR. 1
DES
1984
KR.18Í
Stjörnurnar afhjupa
Sigurö Sigurjonsson
Saga Rolls Royce
Pelsar og leðurtatnaöu
Froöleikur urn bjórinn
Ftjonin scrn stjorna i
Hollywood og Broadv\
Herraíötm íra BOSS
Kvenfatatíska vetrarins
Luxus i heimsborqi
v K,
k, A
París og l ondon
Mjolk í stc írkum blond
Vnndndnr hljómtœkjas
Þanmg sk iptir þú ur
poppi yfir i klassikina
Islenskur í ikartgripur rr
steim íyrir ) /l rY'i 1111 fr'N 11 / tl æ~ * T 1 1 11 1 N 1 /1 III
Hvaö lesa bokoveröirr
Smllingurir ín Spielberg
I Þannig var milljona
I mœringurinn Hughes