Morgunblaðið - 12.12.1984, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
KÓS tölvudeiid
* * ifer \ÆÍ(andi * * * * 4-^
ÞJÓÐFRELSISBARÁTTA og fánar
verða varla aðskilin. í erfiðri stjálf-
stæðisbaráttu getur gengið treglega
að koma sér saman um alþjóðlegt
tákn þjóðarinnar. íslendingar hafa,
eins >>g ýmsar aðrar þjóðir, átt fleiri
en einn fána og er saga þeirrar
þróunar vissulega athyglisverð. Nú
Morgunblaðið/Árni Sæberg.
Það er vel við hæfi að kynna íslenzku fánana á þeim stað, sem áður var
„borgarhlið" Reykjavíkur. Bak við fólkið var fyrr á tímum undirgangur í
gegn um Álfafosshúsið að höfninni og fór umferð á milli hafnarinnar og
borgarinnar að mestu leyti þar í gegn.
A fánunum halda, talið frá vinstri: Benedikt í bókaverzlun Snæbjarnar,
Sigurður í Geysi, Dóra í Álafossbúðinni, Jón í Vtatardeildinni og Sigrún í
íslenzkum heimilisiðnaði.
Fánakynning
í Grófinni
hafa 19 verzlanir í Grófinni tekið sig
saman og nafið kynningu á íslenzku
fánunum >g sögu þeirra. Verður
kynning oessi næstu laugardaga til
jóla.
Einar Egilsson, verzlunarmaður
í Álafossi, er einn þeirra, sem að
kynningu þessari standa. Hann
sagði í samtali við Morgunbiaðið,
að hún vaeri þáttur í samstarfi
verzlana í Grófinni, sem hófst
fyrir þremur árum. Samstarfið
byggðist síðan á kynningu þessa
gamla borgarhluta, sem einu sinni
hefði verið miðdepill bæjarlífsins.
Fyrir þremur árum hefðu 10 verzl-
anir á þessu svæði hafið samstarf
með útimarkaði á Stakkstæðinu.
Nú væru alls 19 verzlanir á þessu
svæði komnar í samstarfið, sem
vissulega væri ánægjulegt fram-
tak.
Vegna sögulegra tengsla fán-
anna við þetta svæði, hefði svo
verið ákveðið að kynna þá fyrir
almenningi. Fyrsti fáninn, „Jör-
undarfáninn", hefði verið tekinn
upp á tímum Jörundar hunda-
dagakonungs árið 1809, blár með
þremur fiöttum þorskum, að því
að álitið væri. Svo virtist sem ís-
lendingum hefði ekki þótt viðeig-
andi að hafa þorskinn í þjóðfánan-
um, þó hann hefði verið í skjaldar-
merkinu og því hefði skammt liðið
til þess, að hugmynd um nýjan
fána hefði fæðzt. 1873 til 1874
hefði Sigurður Guðmundsson,
málari, komið fram með „Fálka-
fánann“, hvítan fálka á bláum
grunni. Það hefði hins vegar verið
eins með þann fána og „Jörundar-
fánann“, að hann hefði ekki þótt
viðeigandi. Því hefði „Hvítbláinn",
hugmynd Einars Benediktssonar,
orðið frelsistáknið upp úr síðustu
aldamótum eins og frægt væri er
Einar Pétursson, verzlunarmaður
í Álafossi, hefði nánast valdið
byltingu með því að róa með hann
út á höfnina 12. júní 1913 og verið
handtekinn fyrir. Þrátt fyrir að
„Hvitbláinn" hefði þótt of lRur
þeim gríska, hefði hann verið
notaður til þess, að endanlegur
fáni var mótaður og lögfestur með
konungsúrskurði 1. desember
1918.
Einar sagði, að þessi saga væri
vissulega athyglisverð fyrir
margra hluta sakir. Hann vonað-
ist því til þess, að fánakynningin
gæti orðið til þess, að fólk fengi
áhuga á sögu þessa bæjarhluta svo
og sögu lands og þjóðar. Fánasag-
an væri það áhugaverð, að full
ástæða væri til að rifja hana upp
með útgáfu hennar.
NYTT LYKTARLAUST KÓPAL Á ELDHÚSIÐ
KOPAL FLOS og KOPAL JAPANLAKK
Nú er þér óhætt að leggja til atlögu við eldhúsið heima KÓPAL-lakkið er lyktarlaust og mengar því ekki and-
hjá þér. Þú getur lakkað auðveldlega með nýja rúmsloftið. Áferðin er skínandi falleg, bæði gljáandi
KÓPAL-lcikkinu - bæði veggi, skápa, innréttingar, borð (KÓPAL JAPANLAKK) og perlumött (KÓPAL FLOS). Þú
og stóla án þess að hafa áhyggjur af sterkri lykt eða getur lakkað svo að segja hvað sem er - og skolað
höfuðverk af þeim sökum. siðan pensla og áhöld með vatni.
Betra getur það varla verið.
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
l
SOLU- OG MARKAÐSSVIÐ:
Markaösfulltrúi fyrir DIGITAL-tölvubúnað.
Starfssviö: Markaðssetning, kynning og sala á PDP-og VAX-tölvukerfum. Fjölbreytt starfv
í góðum félagsskap og í nánum tengslum við hinn ört vaxandi hóp DIGITAL-tölvunot-^
enda.
Þú hefur áhuga og staögóða þekkingu á tölvum, ert röggsamur, fljótur að tileinka þér ^
nýjungar, samningaliþur og hefur yndi af mannlegum samskiþtum.
Upplýsingar veitir Gísli Már Gislason í síma 24120.
-t ÞJONUSTUSVIÐ:
1. Tæknimaður (DIGITAL-búnaður)
t
t
Starfssvið: Viöhald á tölvuskjám, prenturum og einkatölvum hjá viöskiptavinum okkar. -
Þú ert menntaöur á rafeindasviöi, þægilegur í umgengni og hefur áhuga og helst ♦
þekkingu á einkatölvum. ■
2. Tæknimaður (DIGITAL/ERICSSON-búnaður)
Starfssvið: Viögeröir á tölvuskjám, prenturum og einkatölvum á verkstæöi.
Þú ert menntaöur á rafeindasviöi, vandvirkur og vanur viögeröum á „component level“.
Æskileg þekking á stýrikerfum einkatölvu.
3. Tæknimaður (ERICSSON-búnaöur) ■
Starfssvið: Viögeröir á stjórneiningum og útstöðvum tengdum IBM tölvubúnaöi.
Þú ert menntaöur á rafeindasviöi og lipur í samskiþtum. Æskileg þekking á fjarvinnslu- ^
tengingum og IBM umhverfi.
Upplýsingar veitir Jóhann Þ. Jóhannsson í síma 24120.
ericsson 5 Tfektronix ■
COMMITTEO TO EXCCLLfNCf
fT]KRISTJÁN Ó. !
II jSKAGFJÖRD HF. j
Hólmaslóö 4 P.O. BOX 906 — 121 Reykjavík.