Morgunblaðið - 12.12.1984, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
31
England:
Ellefu létu lffiö í
árekstri 22 bíla
Godstone, Englandi, 11. desember. AP.
NÍU STÓRIR flutningabflar og 13 fólksbflar lentu í árekstri í morgun á
M25-hraAbrautinni fyrir sunnan London. Að sögn lögreglunnar létust
ellefu manns í árekstrinum og 10 slösuðust.
Þegar áreksturinn varð á
sjöunda tímanum í morgun var
niðaþoka og skyggni ekki nema 25
metrar. Það tók slökkviliðsmenn
og björgunarmenn frá þremur
sveitarfélögum meira en fimm
klukkustundir að ná öllum út úr
bílunum enda var aðkoman
óskapleg og bílarnir í einni bendu.
Ekki er enn ljóst hvað olli árekstr-
inum en hraðbrautin verðu lokuð í
allan dag meðan bílhræin verða
fjarlægð.
Mikil þoka var í London og
nágrenni í nótt og morgun og öku-
menn því hvattir til að aka með
ljósum og fara varlega. Þrátt fyrir
það óku margir allt of hratt og
ljóslausir.
Vestur-Þýskaland:
Tvær herflugvélar
hröpuðu til jarðar
Frankfurt, V-Þýsknlandi, 11. desember. AP.
TVÆR herflugvélar, vestur-
þýsk Starfighter-900 þota og
hollensk F-16 þota, hröpuöu til
jarðar í Vestur-Þýskalandi í
dag, og létust flugmennirnir
báöir, aö sögn vestur-þýskra
embættismanna.
Aðstoðarflugmannsins á hol-
lensku þotunni var enn saknað
mörgum klukkustundum eftir að
hún féll til jarðar á skógarsvæði
í Hessen, en lík flugmannsins
fannst nálægt flakinu.
í vestur-þýsku herþotunni,
sem var á venjubundnu æfinga-
flugi, þegar hún hrapaði til jarð-
ar á opnu svæði um 120 km norð-
austur af Munchen, var aðeins
einn flugmaður, að sögn tals-
manns varnarmálaráðuneytisins
í Bonn. Kvað hann rannsókn vera
hafna á orsökum slyssins.
Talsmaðurinn sagði ennfrem-
ur, að með þotunni, sem fórst í
dag, væru vestur-þýskar Star-
fighter-900 þotur sem farist
hefðu af margvíslegum orsökum
orðnar 223 talsins.
AP.
HERFANG UNITA- MANNA
Börn og hermaður í UNITA-skæruliðahreyfingunni, náðu eftir bardaga við kúbanska hermenn. UNITA-
sem berst gegn marxískum stjórnvöldum í Angola, hreyfingin ræður stórum svæðum í Angola og þrengir
virða fyrir sér rússneskan skriðdreka, sem skæruliðar stöðugt meira að Angolastjórn.
Námuslysið á Taiwan:
25 lík finnast til viðbótar
Taipei, Taiwan, 11. deaember. AP.
í DAG fundust 25 lík til viðbótar í námunni fyrir utan Tapei,
þar sem sprenging varð á miövikudaginn var, og er tala
látinna þá komin upp í 76 manns. Þetta er annað mesta
námaslys sem orðið hefur á Taiwan, að því er hermt er.
Likin sem fundust í dag voru í
göngum u.þ.b. tvo kílómetra frá
innganginum í námuna. Eru 17
menn ennþá innilokaðir í þeim
hluta námunnar og hafa verið
taldir af.
Aðeins tveimur náma-
mönnum hefur verið bjargað
lífs, öðrum fáeinum klukku-
stundum eftir að sprengingin
varð, en hinum, Shou
Chung—Lu, á sunnudag, og
sagði hann fréttamönnum þá
frá því, að hann hefði lagt sér til
munns hold af líkama látins
námamanns.
Stjórnarformaður námunnar
staðfesti við AP-fréttastofuna,
að tvisvar núna undanfarið
hefðu menn, sem ekki sögðu til
nafns, hringt til námafélagsins
og hótað að slys gætu orðið.
tiuu.
Tilboó á pústkerfum og
ísetningu.
boA for airl/i 4 mill! mólo> -'
VOLVO
Alumtnized
Það fer ekki á milli mála:
Volvohljóðkútarnir eru sérsmíðaðir af Volvosérfræðingum
fyrir Volvobíla til þess að ending og nýting þeirra sé
í samræmi við önnur Volvogæði.
Þess vegna kaupir þú aðeins Volvopústkerfi,
en ekki ódýrar eftirlíkingar!
Pakkaverb
KR.5.850-
(Volvo 240, B21, B23)
Tilboðsverð sem gildir fyrir þá sem panta tíma
fyrir 20. desember '84.
\?s
SUÐURLANDSBRAUT 16 SÍMI 35200