Morgunblaðið - 12.12.1984, Qupperneq 36
36
MOBGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
Mezzoforte heldur tón-
leika í Háskólabíói
Morgunblaöið/Bjarni
Hluti af norrsnu samstarfsnefndinni sem hélt hér fund fyrir skommu. Talið frá vinstri: Thomas Jensen, Danmörku.
Kristina Medin, Svíþjóð, Karl Christian Kristensen, Noregi. Guómundur Auðunsson, íslandi, og Gjeir Axelsen.
Noregi.
Framhaldsskólanemar á Norðurlöndum:
Vinna saman að bættum
kjörum svartra f S-Afríku
HUÓMSVEITIN Mezzoforte held
ur tónleika í Háskólabíói sunnudag-
inn 16. desember nk.
Mezzoforte hefur ekki haldið
tónleika hér á landi í eitt ár, eða
síðan 18. desember 1983 er
hljómsveitin hélt jólatónleika í
Háskólabíói til styrktar tónlist-
arskóla FÍH. Nú hefur verið
ákveðið að halda aðra slíka tón-
leika sunnudaginn 16. desember
nk. Verða haldnir tvennir tónleik-
ar, þeir fyrri um daginn kl. 15.00
og síðari tónleikarnir kl. 21.00.
Verður sami háttur hafður á og í
fyrra þ.e. fyrri tónleikarnir verða
haldnir í nafni Flugleiða og Steina
hf. Munu Flugleiðir og Steinar hf.
bjóða fólki sem á við fötlun að
stríða uppá ókeypis skemmtun, en
þetta fólk á vanalega ekki kost á
að njóta skemmtunar sem þessar-
ar.
Síðari tónleikarnir eru ætlaðir
almenningi og mun allur ágóði af
tónleikunum renna til hljóðfæra-
kaupa handa einhverfum börnum,
en þau hafa mjög mikla unun af
tónlist.
Forsala aðgöngumiða hefst
mánudaginn 10. desember í
hljómplötuverslunum Karnabæj-
ar, Fálkans og Skífunnar.
(FrétUtilkynning.
í TILEFNl af alþjóðaári æskunnar á nssta ári, hafa stjórnir Landssambands
mennta- og fjölbrautaskóla og Iönaðarsambands íslands ákveðió að vinna í
samstarfi við systursamtök sín á hinum Norðurlöndunum að verkefni sem
kallast NOD-85, þ.e. Norræn samstaða og felst í því að kynna aðskilnaðar-
stefnu stjórnvalda í Suður-Afríku og aðstæður hins svarta meirihluta þar í
landi. Er fyrirhugað að koma af stað víðtækri herferð hér á landi upp úr
áramótum þar sem þessi málefni verða kynnt. LMF og INSÍ hafa tekið upp
samstarf við Hjálparstofnun kirkjunnar og mun verkefnið á íslandi verða
unnið í samvinnu við bana.
Árið 1982 var stofnuð norræn
samstarfsnefnd sem vinna skyldi
að þessum málum og eiga i henni
sæti tveir fulltrúar frá hverju
Norðurlandanna nema þrír frá
Noregi. Aðeins ár er liðið frá því
að ísland gerðist samstarfsaðili og
eiga nú sæti í nefndinni tveir full-
trúar tslands, Gunnar Gunnars-
son frá LMF og Guðmundur Auð-
unsson frá INSÍ. Helgina 1. til 2.
desember sl. var haidinn hér á
landi 13. fundur norrænu sam-
starfsnefndarinnar og var starf
hennar þá kynnt fyrir blaða-
mönnum.
Guðmundur Auðunsson, annar
íslensku fulltrúanna : nefndinni.
Kísiliðjan sækir um
endurnýjun námaleyfis
KÍSILIÐJAN við Mývatn hefur sótt
um framlengingu á námaleyfi sínu í
Mývatni en það rennur út árið 1986.
Kísiliðjan vinnur kísilgúr úr vatninu
til framleiðslu sinnar.
Iðnaðarráðherra gefur út náma-
leyfi og að sögn Halldórs J. Krist-
jánssonar, deildarstjóra í ráðu-
neytinu, er umsókn Kísiliðjunnar
nú til athugunar í ráðuneytinu.
Sagði hann að sótt væri um efnis-
töku á tilteknum svæðum í vatn-
inu og væri óskað framlengingar
um 20 ár. Halldór sagði að um-
sóknin færi nú til umsagnar Nátt-
úruverndarráðs enda þyrfti að
taka tillit til náttúru-
verndarsjónarmiða við útgáfu
námaleyfis á þessum stað.
Helgarskákmót á Blönduósi
27. helgarskákmótið fer fram á
Blönduósi um næstu helgi. Flestir
beztu skákmenn okkar verða meðal
þátttakenda og margir heimamenn
hafa látið skrá sig til þátttöku.
Mótið hefst á föstudag klukkan
16 með setningu á Hótel Blöndu-
ósi. Á laugardag verður teflt í fé-
lagsheimilinu á Skagaströnd en á
sunnudag verða síðustu umferð-
irnar tefldar á Blönduósi. Allmörg
verðlaun verða í boði og 1. verð-
laun eru 7.500 krónur.
Jólatónleikar
Kristjáns
Jóhannssonar
á laugardag
KRISTTJÁN Jóhannsson óperusöngv-
ari syngur á Jólahljómleikum bóka-
klúbbsins Veraldar sem haldnir
verða í Háskólabíói næstkomandi
laugardag klukkan tvjö þrjátíu.
Kristján raun syngja við undirleik
Ólafs Vignis Albertssonar en sér-
stakur gestur Kristjáns á hljómleik-
unum er Kór Öldutúnsskóla undir
stjórn Egils Friðleifssonar.
Kristján hefur um árabil búið i
Veróna á Ítalíu en kemur sérstak-
lega til þessara hljómleika frá
Bandaríkjunum, þar sem hann
Náttsöngur í
Hallgrímskirkju
SKÓLAKÓR Kársness í Kópavogi
undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur
syngur aðventu- og jólalög i nátt-
söng í Hallgrímskirkju kl. 22.00 í
kvöld. Að því loknu verður sungin
tíðargjörð.
Kristján Jóhannsson
hefur sungið undanfarið og vakið
mikla athygli.
Kór Öldutúnsskóla undir stjórn-
Egils Friðleifssonar hefur gert
víðreist um heiminn og þykir hafa
náð lengra en dæmi eru um nokk-
urn íslenskan barnakór. Efni
hljómleikanna er allt helgað jól-
unum og mun Kristján syngja
með kórnum í lok hljómleikanna.
Einungis fáir miðar eru óseldir á
hljómleikana sem ekki verða
endurteknir.
sagði að tilgangur verkefnisins
NOD-85 væri ennfremur að
styrkja samstöðuna milli æskunn-
ar í Norðurlöndum og æsku þriðja
heimsins og sjá til þess að unnið
verði kröftuglega að betri mennt-
unarmöguleikum fyrir æsku
þriðja heimsins með yfirskriftinni
„æska hjálpi æsku“.
Sagði Guðmundur að í lok mars
á næsta ári væri síðan fyrirhugað
að efna til söfnunar meðal al-
mennings sem fælist í því að
námsfólk á Norðurlöndunum gæfi
vinnukraft sinn í einn dag og gæf-
ist almenningi þá tækifæri til að
fá það í ýmsa vinnu, eins og taka
til í húsum, görðum o.s.frv. Fer
söfnunin fram samtímis á öllum
Norðurlöndunum og verður öllum
ágóða varið til stuðnings svörtu
æskufólki í Suður-Afríku og
flóttamönnum þaðan.
Einnig kom fram á fundinum að
Norðurlöndin, að íslandi undan-
skyldu, hafa ákveðið að styðja
ANC, Afríska þjóðarráðið, við
uppbyggingu á skólum fyrir suð-
ur-afríska flóttamenn í Tansaníu,
en íslendingar hafa tekið upp
samstarf við SACC, Samkirkjuráð
Suður-Afríku, sem lýtur forystu
biskupsins Desmonds Tutu, en
hann hefur sem kunnugt er hlotið
Friðarverðlaun Nóbels.
Næsti fundur norrænu sam-
starfsnefndarinnar verður hald-
inn í Stokkhólmi í byrjun mars og
verður það lokafundur fyrir söfn-
unina sem verður í lok mánaðar-
ins.
Nýja innréttingin. Blóm og afdrep þar sem afgreiðslufólk getur rætt við
viðskiptavini í einrúmi.
Ný íslenzk innrétt-
ing hiá SPRON
BÚIÐ ER að setja upp nýja íslenska
innréttingu í Sparisjóó Reykjavíkur
að Skólavörðustíg 11.
Með þessari innréttingu vinnst
aukið gólfrými fyrir viðskiptavini
auk þess sem hún er sniðin að nýj-
um kröfum sem tölvuvæðing
Sparisjóðsins gerir. Með nýju inn-
réttingunni er afgreiðsla Spari-
sjóðsins hraðari en áður. Gjald-
kerum hefur einnig verið fjölgað.
Afgreiðsluborðin eru ekki sam-
felld heldur margar sjálfstæðar
einingar. í innréttingunni er her-
bergi þar sem viðskiptavinir og
starfsmenn geta rætt mál við-
skiptavinarins í einrúmi ef þeir
vilja.
Barnahornið og kaffisopinn
handa viðskiptavininum hefur
ekki gleymst við hönnun nýju inn-
réttingarinnar. Uppi á vegg í
horninu með símanum og kaffi-
sopanum er bréfakassi sem við-
skiptavinirnir geta lagt í hug-
myndir sínar að nýbreytni og um
það sem betur mætti fara.
Það er Kristján Siggeirsson hf.
sem framleiðir innréttingarnar.
Arkitekt að afgreiðslusalnum er
Gunnar Magnússon.
(Fréttatilkynning.)
Nýja bíó sýnir „Er
þetta ekki mitt líf?44
NÝJA BÍÓ hefur frumsýnt banda-
rísku kvikmyndina „Er þetta ekki
mitt líf?“, en mynd þessi er byggð á
leikriti Brians ('lark, sem sýnt var hjá
Leikfélagi Reykjavíkur 1978 við
mikla aðsókn.
Leikstjóri er John Badham en að-
alhlutverk leika Richard Dreyfuss
og John Cassavetes. Myndin fjallar
um listamanninn Ken Harrisson,
sem lendir í bílslysi og lamast frá
hálsi.
I kynningu kvikmyndahússins
segir m.a.: „Er Ken vaknar til með-
vitundar kemst hann að því að
hann, sjálfur listamaðurinn er not-
aði hendur sínar til að túlka sinn
innsta mann, er orðinn lamaður frá
hálsi niður I tær. Algerlega
ósjálfbjarga er Ken uppákominn
með allt frá öðrum og þar að auki
heldur véltæknin í honum lífinu.
Brátt fara þær spurningar að sækja
fastar að Ken, að hverju er ég orð-
inn? Hvað er ég?
Allt sem hann gat gert áður er
horfið, ekkert eftir nema að hugsa
og tala. Ken kemst brátt að þeirri
niðurstöðu að hann sé lifandi látinn
og betra sé að deyja alveg, taka vél-
arnar úr sambandi en að valda sér
og öðrum byrði með að horfa á sig
tærast upp hægt og rólega með
hverju árinu sem líður. Ákvörðunin
er tekin af Ken er hann kemst í
samband við lögfræðing er vill taka
málstað hans upp fyrir lögum og
rétti og berjast fyrir að fá að taka
vélarnar úr sambandi, svo eitt blas-
ir við, dauði Kens.“
Upplestur
á Hótel
Loftleiðum
NÆSTKOMANDI fimmtudags-
kvöld kl. 20.30 og sunnudaginn 16.
desember kl. 16, verður upplestur
nokkurra höfunda í ráðstefnusal
Hótels Loftleiða á vegum Höfund-
armiðstöðvar Rithöfundasambands-
ins í samvinnu við nokkra útgefend-
ur. Átta höfundar koma fra á
fimmtudagskvöldið og níu á sunnu-
daginn og lesa þeir úr frumsömdum
bókum og þýddum, nýútkomnum.
Þessir lesa á fimmtudagskvöld-
ið: Eiríkur Hreinn Finnbogason
(Bók um Einar Magg), Elías Snæ-
land Jónsson, Gylfi Gröndal, Ingi-
björg Haraldsdóttir, Sæmundur
Guðvinsson, Sveinbjörn I. Bald-
vinsson, Thor Vilhjálmsson og
Þorgeir Þorgeirsson. Auk þess
flytur Egg-leikhúsið kafla eftir
Guðberg Bergsson.
Á sunnudaginn kl. 16 lesa þessir
höfundar: Árni Bergmann, Fríða
Á. Sigurðardóttir, Jón Óskar, Lilja
K. Möller, Njörður P. Njarðvík,
Pétur Eggerz, Sveinn Einarsson,
Þorsteinn frá Hamri og Þórarinn
Eldjárn.
Kynnir verður Sigurður Páls-
son. Áformað er að gera upplestur
höfunda úr nýjum bókum sínum
og gömlum að mánaðarlegum
viðburði í vetur. „.rt.uuilkynning.)