Morgunblaðið - 12.12.1984, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. DESEMBER 1984
Til hvers
verkfall?
Góð gjöf gleður
í hönd fer tími gleði og gjafa.
Vandlátir vita hvað þeir vilja.
Gefjunarteppi er vönduð gjöf - sem gleður.
Hlý gjöf er góð gjöf.
d&gim
LEIÐANDI í LIT OG GÆÐUM
- eftir Asgeir
Hvítaskáld
Þú sem vinnur daginn út og inn
á skítakaupi, þrælar á kvöldin og
um helgar til að fá mannsæmandi
laun, að sjálfsögðu viltu fá betri
laun. Það viljum við öll. Eina
vopnið er að fara í verkfall, því
miður. Þar með stöðvum við hjól
þjóðfélagsins, sumir vilja helst
kollsteypa öllu. Ég er ekki viss um
að þetta bæti kjör okkar. Við get-
um ekki mælt skaðann sem efna-
hags- og atvinnumálin verða fyrir.
Allt í lagi við fórum í verkfall,
strætó stöðvaðist, útvarpið þagn-
aði, sjónvarpið skánaði, milli-
landaflug lagðist niður, skólar,
sundlaugar, pósthús og þjóðleik-
hús voru lokuð. En þetta bitnaði
mest á borgurunum sjálfum. Til
hvers að gera okkur lífið enn erf-
iðara en það er? Slegist var við
nemendur fyrir framan Háskól-
ann sem vildu halda námi sínu
áfram og fólki var meinað að
fljúga til útlanda. Til hvers?
Strætóbílstjóri sem var á leið í
verkfall ræddi við mig um þessi
mál. Hann sagði að á þeim tíma
þegar myntbreytingin átti sér
stað, hafi hann getað keypt sér tvö
myndbandstæki fyrir mánaðar-
launin, en nú getur hann aðeins
fengið tæplega eitt af ódýrustu
gerð. Samt miðast þetta við sömu
vinnuna. Fyrir tveim árum kost-
aði tréhrífa 160 krónur, sagði
hann, en í dag kostar hún yfir 500
krónur. Hækkunin er 325%. Hefur
kaupið hækkað svo mikið?
Mörg dæmi sýna okkur að kaup-
ið hefur ekki hækkað samhliða
vörum. Hvað á fólk að gera þegar
það á ekki lengur fyrir mat; kaup-
mátturinn orðinn að engu. Alls
staðar þar sem maður drepur
niður læri er kvartað undan
blankheitum, fólk er skuldugt upp
fyrir haus. Vissulega voru ástæður
fyrir þessu verkfalli. En tekjutap-
ið sem fólk verður fyrir af verk-
fallinu er meira en það sem kaup-
hækkunin getur svarað fyrir. Síð-
ast vorum við 13 mánuði að vinna
upp tapið. Allir æða í verkfall án
þess að hugsa. Væri ekki nær að
Asgeir Hvítaskáld
„Allir æöa í verkfall án
þess aö hugsa. Væri
ekki nær að menn
reyndu aö vera skyn-
samir og leysa svona
deilur á annan hátt í
okkar litla, borölága
þjóölelagi.“
menn reyndu að vera skynsamir
og leysa svona deilur á annan hátt
í okkar litla, borðlága þjóðfélagi.
Nú hafa samningar tekist. Hvað
gerist? Það er varla liðinn dagur,
þá er tilkynnt að það komi stór
gengisfelling. Þar með er kaup-
hækkunin farin. Til hvers að
leggja allt þetta á sig fyrir ekkert?
Það má plata suma. Persónulega
vildi ég gjarnan fá hærra kaup, en
ég vil enga platkauphækkun. Við
erum að berjast við verðbólgu og
það hefur gengið vel en nú fer
verðbólgurúllettan aftur af stað.
Verðbólgan er einmitt okkar
versti óvinur, hún eitrar efna-
hagskerfið, gerir laun að engu,
blekkir fólk og gerir fyrirtæki og
framkvæmdir þyngri í vöfum.
í áratugi voru sparifjáreigendur
snuðaðir um hundruð þúsunda.
Þeir sem lögðu fé sitt á banka
stórtöpuðu, en þeir sem tóku lán
græddu. Verðbólgan át skuldir um
leið og hún át sparifé. En nú hefur
þetta snúist við og komnar eru
nýjar öfgar. Þeir sem eru að
kaupa sér íbúð, þeir taka lán sem
öll eru verðtryggð í dag. En laun
mannsins sem á að borga lánin
eru ekki verðtryggð. Er réttlæti í
þessu? Peningar eru ekki eins
tryggur gjaldmiðill og menn
halda. Sennilega væri tryggara að
leggja brennivínsflöskur inn á
banka.
Matarreikningur verkamanns
er stór hluti launa hans, en mat-
arreikningur hjá alþingismanni er
aðeins brot. Ef það koma verð-
hækkanir þá koma þær verst
niður hjá láglaunafólki. Sjáið til,
það kom launahækkun, þar á eftir
gengisfelling, síðan verðhækkanir
og þar með meiri launamismunur.
Til hvers var verkfallið?
Ásgeir Hrítaskáld er rithöíundur,
sem gefur bækur sínar út sjálfur.
V^terkur og
L/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
staögreiösluafsláttur
____STENDUR FYRIR SiNU
^yggingarvörur
Verkfærí
Hreinlaztístaeki
1 ePP adei/d
HarðviðarsaJa
• •
BYGGINGAVORUR
HRINGBRAUT 120: Simar: Harðviðarsala................28 604
Byggingavörur...............28 600 Málningarvörur og verklæri....28 605
Gölfteppadeild..............28-603 Flisar og hreinlætistæki......28-430
renndu við eða hafðu samband