Morgunblaðið - 20.12.1984, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
Ratsjár kynnt-
ar á Bakkafirði
og Þórshöfn
FULLTRÍJAR í ratsjárnefnd varnarmáladeildar utanríkis-
ráðuneytisins efndu til fundar meö hreppsnefndum í Bakka-
firöi og l>órshöfn á þriöjudaginn og kynntu þeim skýrslu
nefndarinnar um tvær nýjar ratsjár á norðvestur- og norö-
austurhorni landsins. Bæjarstjórnin í Bolungarvík hefur beö-
ið nefndina að koma til fundar þar eftir áramótin.
f skýrslu ratsjárnefndar er bent
á tvo staði sem koma til álita fyrir
nýja ratsjá í þágu varna landsins
og flugumferðarstjórnar á Norð-
austurlandi. Er það annars vegar
á Gunnólfsvíkurfjalli við Bakka-
fjörð og hins vegar á Hrollaugs-
staðafjalli (eða Heiðarfjalli) á
Langanesi, nálægt Þórshöfn.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
deildarstjóri í varnarmáladeild,
Þorgeir Pálsson, dósent, Haukur
Lifur grædd
í íslending
LIFUR hefur verið grædd í
tvftugan íslending á sjúkra-
húsi í Bretlandi.
Nokkuð er um liðið frá
því lifrin var grædd í
manninn og er líðan hans
eftir atvikum, að sögn
Bjarna Þjóðleifssonar
læknis.
Þetta er í fyrsta skipti
sem lifur er grædd í íslend-
ing.
Hauksson, varaflugmálastjóri, og
Berent Sveinsson, yfirloftskeyta-
maður Landhelgisgæslunnar, allir
úr ratsjárnefnd, héldu fyrst fund
með hreppsnefnd Skeggjastaða-
hrepps í Bakkafirði (í Norður-
Múlasýslu) síðdegis á þriðjudag og
stóð hann í tæpa þrjá tíma. Að
kvöldi þess sama dags hittu nefnd-
armenn síðan þrjár hreppsnefndir
í Norður-Þingeyjarsýslu, Sauða-
neshrepps, Svalbarðshrepps og
Þórshafnarhrepps, á sameiginleg-
um fundi á Þórshöfn og stóð hann
í rúma fjóra tíma.
nVið kynntum þeim skýrslu
okkar," sagði Sverrir Haukur
Gunnlaugsson í samtali við blm.
Morgunblaðsins, „og svöruðum
spurningum um ýmis atriði. Menn
skiptust á skoðunum af hrein-
skilni." Sverrir Haukur sagði að
spurningar heimamanna hefðu
bæði tengst atriðum sem snerta
varnir landsins og öryggi þjóðar-
innar, en einnig þeim er vörðuðu
beint framkvæmdir og stöðu sveit-
arfélaganna ef í þær yrði ráðist.
Þá hefði nefndin skilið eftir eintök
af ratsjárskýrslunni hjá oddvit-
um, svo að hreppsbúar gætu kynnt
sér efni hennar.
\ pf mmm
'V'- M 1
Morgunbladið/Árni Sœberg
Skammdegið virðist ekki hafa áhrif á ást þessara ungmenna enda styttist í hátíð fagnaðarboðskapsins og ekki
spillir „jólasnjórinn" umhverfinu og hughrifum þess.
Engar fyrirætlanir um
að leggja BÚR niður
- segir DavíÖ Oddsson borgarstjóri um fullyrðingar Borgarblaösins
Þriðja umræða
fjárlaga í dag
ÞRIÐJA umræða um fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 1985 fer fram
á Alþingi í dag. Miðað við endur-
skoðaða tekjuhlið og breytingar-
tillögur til hækkunar á útgjöldum,
sem líkur eru á að nái fram að
ganga, sýnist stefna í 700—750
milljóna kr. greiðsluhalla.
Heildarniðurstaða tekjuhliðar
fjárlagafrumvarpsins var 21
milljarður 980 milijónir og 942
þúsund krónur, en hefur hækkað
í 25 milljarða 336 milljónir. Þeir
tekjupóstar sem hækka mest í
endurskoðun eru óbeinir skattar,
annars vegar gjöld af innflutn-
ingi, sem hækka úr 3 milljörðum
596 millj. kr. í 4 milljarða 473
millj. kr. og sölugjald úr 8 millj-
örðum 420 millj. í 9 milljarða 835
millj. kr. Aðrir tekjupóstar
hækka einnig, en ekki eins mikið
og þessir.
í BORGARBLAÐINU, málgagni
jafnaðarmanna í Reykjavík, sem nú
er verið að dreifa, er rekstur Bæjar-
útgerðar Reykjavíkur á þessu ári
gagnrýndur og fullyrt að markmið
Sjálfstæðisflokksins sé að leggja
BÚR niður smátt og smátt.
Af þessu tilefni sneri Morgun-
blaðið sér til Davíðs Oddssonar,
borgarstjóra, og spurði hann um
þessar fullyrðingar og hvaða
stefna hefði verið mótuð í rekstri
BÚR á næsta ári.
„Þessar fullyrðingar eru afar
sérstæðar, svo ekki sé meira sagt,
þegar maður hefur það í huga að
málefni Bæjarútgerðarinnar voru
látin reka á reiðanum á síðasta
kjörtímabili," sagði Davíð. „Þegar
við tókum við stefndi í tæplega 200
milljón króna halla á þessu fyrir-
tæki á einu ári, sem ljóst var að
fyrirtækið hefði aldrei getað borið
og ekki einu sinni borgin. Við
gerðum því mjög róttækar breyt-
ingar á rekstri fyrirtækisins,
breytingar sem allar stefna í þá
átt, að treysta undirstöðu þess og
möguleika í framtíðinni. Það eru
engar fyrirætlanir uppi um það, af
minni hálfu né annarra for-
svarsmanna Reykjavíkurborgar,
eða Bæjarútgerðarinnar, að leggja
þessa starfsemi niður. Hins vegar
höfum við margoft sagt það, að við
gætum hugsað okkur hvers konar
skipulagsbreytingar, sem horfa til
framfara fyrir þessa starfsemi í
borginni, bæði fyrir fyrirtækið
sjálft og fyrir þá starfsemi sem
þar stendur öflugt fyrir í dag. Ég
vísa því þessari gagnrýni á bug.
Hún er sett fram af ósanngirni og
eingöngu í þeim tilgangi að koma
höggi á mig persónulega og skaða
fyrirtækið," sagði Davíð Oddsson,
borgarstjóri.
1 ritnefnd Borgarblaðsins eru
Bjarni Guðnason, prófessor,
Björgvin Guðmundsson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri BÚR,
Friðrik Þ. Guðmundsson og Sig-
urður E. Guðmundsson, borgar-
fulltrúi Alþýðuflokks.
K-álma Landspítlans:
20 milljónir króna f
fjárlagafrumvarpinu
FJÁRVEITINGANEFND Alþingis
samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi,
að leggja til 20 milljóna króna framlag
til K-álmu !>andspítalanx fyrir þriðju
umræðu fjárlagafrumvarpsins. Ekkert
Fær ekki að hitta eigin-
mann sinn í Bandaríkjunum
Saa Diego, Koliforniu. AP,
EINA leiðin fyrir Jeffrey Mendler til að hitU eiginkonu sína er að fara til
Mexíkó eða íslands. Bandarísk yfirvöld vilja ekki leyfa henni að koma til
Bandaríkjanna jafnvel þótt ákæra á hendur henni fyrir fíkniefnabrot hafi
verið látin niður falla.
Konan, Salome Mendler, 29
ára, reynir nú að fá bandaríska
utanríkisráðuneytið til að taka til
endurskoðunar umsókn hennar
um vegabréfsáritun, enda hafa ís-
lensk yfirvöld fallið frá kærum á
hendur henni fyrir þátttöku í
fíkniefnasmygli.
Hún var handtekin 3. nóvem-
ber 1981 en var sýknuð af öllum
ákærum í maí á þessu ári. Engu
að siður er henni synjað um vega-
bréfsáritun til Bandaríkjanna, að
sögn lögmanns hennar, Eugene
Iredale.
„Það er skelfilegt að vera giftur
konu, sem er í 10 þúsund mílna
fjarlægð," sagði Mendler, 30 ára.
„Ég er reiður og ég vil fá konuna
mína aftur."
í bréfi til Ronalds Reagan,
Bandaríkjaforseta, sagði Mendler
m.a.: „Ég elska konu mína mjög
heitt og ég vil vera hjá henni.
Kerfið hefur sært okkur en við
viljum aðeins fá að lifa lífinu...
tvær manneskjur líða í hjörtum
sínum og eru hvor í sínu heims-
horni."
Samkvæmt frásögn Mendler-
hjónanna og lögmanns þeirra
byrjuðu vandræði þeirra árið
1981 þegar frú Mendler var hand-
tekin, sökuð um að eiga þátt í
samsæri um fíkniefnasmygl. Eft-
ir tveggja vikna fangelsisvist
varð hún fyrir fósturláti, missti
tvíbura, og var látin laus gegn
tryggingu.
Henni var leyft að vera um
kyrrt í Bandaríkjunum þar til í
apríl 1984, þegar hún var fram-
seld til heimalands síns, íslands,
til að koma fyrir dóm. Frú Mendl-
er hefur sagt að fyrrverandi unn-
usti sinn hafi stundað fíkniefna-
sölu.
1981 voru unnustinn fyrrver-
andi og nokkrir af fyrrum sam-
starfsmönnum frú Mendler hand-
teknir sakaðir um að hafa smygl-
að litlu magni af hassolíu til Is-
lands. Hinir handteknu báru af
sér sakir og bendluðu frú Mendl-
er við málið til að vernda sjálfa
sig, að því er íslenskir embætt-
ismenn sögðu síðar í skjölum,
sem Iredale fékk í sínar hendur.
En eftir að frú Mendler kom til
íslands urðu saksóknurum þar
mistökin ljós, kærur á hendur
henni voru dregnar til baka og
henni var sagt að framsalið frá
Bandaríkjunum hefði verið mis-
tök. í maí lýsti ríkissaksóknari
hana saklausa af öllum ákæru-
atriðum.
Á blaðamannafundi i síðustu
viku lagði Iredale fram bréf frá
bandaríska útlendingaeftirlitinu
(U.S. Immigration and Naturaliz-
ation Service), þar sem segir að
frú Mendler geti snúið aftur til
Bandaríkjanna vegna þess að hún
sé gift bandarískum borgara. En,
sagði Iredale, bandaríska utan-
ríkisráðuneytið neitar að veita
henni vegabréfsáritun.
Talsmaður bandaríska útlend-
ingaeftirlitsins sagði á þriðjudag
að eftirlitið hefði enga lögsögu í
málinu en embættismenn stofn-
unarinnar gátu ekki vísað AP-
fréttastofunni á embættismann í
bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu, sem gæti tjáð sig um málið.
Á meðan hefur frú Mendler
flogið á milli íslands og Rosarito
Beach í Mexíkó, 48 km suður af
landamærum Bandaríkjanna og
Mexíkó. Mendler sagði að hann
myndi flytja til Rosarito Beach
og fara daglega til vinnu sinnar í
Oceanside f Kaliforníu ef þess
gerðist þörf.
framlag var til K-álmunnar á upphaf-
legri gerð frumvarpsins.
Matthías Bjarnason, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að eftir samþykkt fjárveit-
inganefndar yrði þetta framlag, 20
milljónir króna, vafalaust inni á
fjárlögum fyrir einstakan velvilja
bæði ráðherra og þingmanna, sem
um þessi mál hefðu fjallað. Það væri
því fyrirsjáanlegt að hægt væri að
hefja þessar nauðsynlegu fram-
kvæmdir. Hann væri mjög ánægður
með þessa afgreiðslu, því hann hefði
borið mestan kvíðboga fyrir því af
öllum málum að koma ekki fram-
kvæmdum við K-álmuna af stað.
Sjá forystugrein Morgun-
blaðsins í dag.
Tveir til
Eþíópíu
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar hef-
ur ákveðið að senda tvo menn til
Eþíópíu vegna jieirra hjálparstarfa,
sem þar eru innt af hendi. Verða þeir
þar miili jóla og nýárs til þess að und-
irbúa dreifingu og komu íslenzkra
hjálpargagna og munu þeir síðan
fylgjast með íslenzka hjálparstarfinu í
samvinnu við kirkjuna á staðnum.
Þessir menn eru Arni Gunnarsson,
fyrrverandj alþingismaður, og Bern-
harður Guðmundsson, fréttafulltrúi
Þjóðkirkjunnar.