Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 Bókmenntir Sigurjón Björnsson Jón Óskar: Söivi Helgason. Listamaður á hrakningi. Heimildasaga. ísafoldarprentsmiöja. 1984. 264 bls. Eins og undirtitlar benda til er í þessari bók rakinn hrakninga- samur og brotagjarn æviferill listamannsins Sölva Helgasonar eftir þeim heimildum, sem höf- undi voru tiltækar. Segist hann mest hafa treyst á „dómabækur og skjöl ýmiskonar, bréf, bréfabæk- ur, auk handrita hans (Sölva) sjálfs, sem aldrei fyrr munu hafa verið könnuð að neinu marki“ (bls. 250). Engum er sjálfsagt betur ljóst en höfundi, að naumast geta gögn sem þessi sagt nema hluta af sögu heils lífshlaups og enn síður eru þau fullnægjandi til að meta persónuleika manns eða skýra til- urð hans og mótun. Hins vegar er þess að geta að líklega eru þeir Islendingar seinni alda fáir (fyrr en þá nú á allra seinustu árum), sem eru jafn fyrirferðarmiklir í dómabókum og Sölvi Helgason. Sölvi fæddist í Sléttuhlíð, norð- ur í Skagafirði, 16. ágúst 1820. Og hann var ekki nema 23 ára, þegar bókhald réttvísinnar hófst. Og ekki var það neitt smáræði, sem þá var fært til bókar. Engum steini í hinni rúmlega tvítugu jarðvist Sölva var látið óvelt. Eftir næstum þriggja ára yfirheyrslur og gagnasöfnun var hann dæmdur til hýðingar fyrir fölsun á reisu- passa og óleyfilegt flakk. En ekki liðu nema fáein ár uns réttvísin Helgason þurftu að fara að bókfæra á nýjan leik. Þrítugur að aldri dæmdist Sölvi til hýðingar nr. 2 fyrir lausa- mennsku og flakk. Fjórum árum síðar kastar þó fyrst tólfunum, því að þá er honum úthlutað þriggja ára betrunarhúsvist í Kaup- mannahöfn. Ætla mætti að nú væri kaleikurinn tæmdur, þegar Sölvi kom til föðurlandsins úr þessari utanlandsreisu sinni. Nei, eftir voru dreggjar. Þegar hann stóð á fimmtugu, var hann dæmd- ur til hýðingar nr. 3 fyrir þjófnað. En þá sleppir líka færslum í dómabækur, — líklega hafa yfir- völdin trénast upp á að eltast við landhlauparann. Því að víst hélt hann áfram að hlaupa, og kannski ekki alltaf frómur eða klækjalaus. Eftir þetta verður nú æviskrárrit- arinn að styðjast við bréf, bréfa- bækur o.s.frv. Heimildirnar verða því öllu götóttari hér eftir. En kannski gerir það minna til, því að nú er kominn tími til að snúa sér að hugverkunum. Ævi Sölva Helgasonar lauk 27. nóvember 1895 í sömu sveit og hann fæddist. Höfundur hefur bersýnilega lagt mikla vinnu í gerð þessarar bókar. Enda þarf vel að vanda, þegar tilgangurinn „með ritverk- inu var að flytja íslenskum al- menningi sannari sögu af æviferli Sölva Helgasonar en gert hafði verið til þessa dags“ (bls. 248). Smávægilegar athugasemdir hef ég engu að síður við heimilda- vinnu hans að gera. Hið fyrsta: Á bls. 44 nefnir höfundur foreldra Sölva: Helga Guðmundsson og Ingiríði Gísladóttur og bætir við. „Þeir íslenskir fræðimenn sem höfundurinn hefur spurt vita ekk- ert um ætt þeirra.“ Þetta kemur mér undarlega fyrir sjónir, því að ekki þurfti ég lengi að leita uns ég fann nokkra vitneskju um móður- ætt hans. Ingiríður var dóttir Gísla Þorlákssonar bónda á Minni-Grindli, en móðir hennar var Oddný Jónsdóttir bónda á Melbreið Böðvarssonar. Kona Jóns þessa var Ragnhildur Guðmunds- dóttir bónda á Þorgautsstöðum Eiríkssonar í Stóru-Brekku Þor- steinssonar. Erum við þá komnir inn í Stóru-Brekkuættina svo- nefndu, sem kunn er þar nyrðra og fjölmenn mjög. Ég hygg að auð- velt sé að fá mun meiri vitneskju um ættir Sölva Helgasonar, ef áhugi er fyrir hendi. Annað: Höfundur segir foreldra Sölva hafa gifst 1817 og hafi þá móðir hans verið 21 árs og faðir- inn 24 ára. Nú segir Jarða- og Bú- endatal í Skagafjarðarsýslu að þessar sömu persónur hafi búið á Arnarstöðum í Sléttuhlíð 1812—13. Er ekki fremur ósenni- legt að 16 og 19 ára unglingar hefji á þessum tíma sjálfstæðan búskap? Hvernig var um efni þeirra? Verður ekki að telja lík- legra að einhverju skakki um ald- urinn? Þriðja: Nokkuð finnst mér höfundur ganga langt í því að taka Sölva trúanlegan í því sem hann segir fyrir réttinum. Er það ávallt réttlætanlegt og þjónar það best þeim sannleika, sem höfundur leitar að? Fjórða: Fremur kann ég illa við hversu mjög höfundur grípur fram í fyrir heimildum sínum til að koma að ákveðnum túlkunum. Það er held ég ekki talin æskileg sagnfræðivenja, ef í svo ríkum mæli sem hér. Fimmta: Mjög sjaldan telur höf- enda dettur mér það ekki í hug. Mér er reyndar mjög ljúft að játa að sumar myndir af teikningum Sölva sem eru í þessari bók, eru gullfallegar. Þá er augijóst að hann hefur verið lipur hagyrðing- ur og snjall stílisti. Um heimspek- ina og sagnfræðina þori ég hins vegar ekkert að segja. Nú, en hverjar eru þá niðurstöð- ur Jóns Óskars um hið dramatíska lífshlaup Sölva Helgasonar? Meg- invandinn var sá að samtíðin, ein- kum embættismennirnir, skildu ekki eða vildu ekki skilja að and- ans stórmenni á borð við Sölva Helgason þurftu meira svigrúm og olnbogarými en allur almenning- ur. „Frelsi, frelsi, það er lykillinn að sögu okkar: maður sem berst fyrir frelsi til að ferðast, frelsi til að hugsa, frelsi til að tigna fegurð- ina.“ (Bls. 97.) En það var ekki nóg með að „arfafanturinn“ Eggert Briem skildi þetta ekki og væri tilbúinn til að veita Sölva undan- þágu frá gildandi lögum, heldur lét hann og hans nótar sig ekki muna um að lepja upp allskyns ómerkileg smáglöp til að klekkja á stórmenninu með. Hvað sýndi bet- ur „að allt var notað þegar þurfti að hefna sín á andlegum yfirburð- um“? (Bls. 117.) En við hverju mátti ekki búast? „Samtíðin þolir ekki snillinga sína. Það er öfug- uggaháttur mannlífsins. Að vísu á þetta ekki við um alla snillinga, heldur einkum þá sem kenndir eru við hugsun og list.“ (Bls. 227.) Þetta er viturlega mælt og tíma- bær áminning um að reyna að komast hjá því að falla í þessa sömu gryfju og menn duttu í fyrir svo sem einni öld. En líklega er ekki ástæða til mikillar bjartsýni, þegar litið er á hversu almúganum og þeim sem með völdin fara geng- ur sorglega erfiðlega að skilja að listamannshæfileikar afsaka alla persónulega ágalla, allt ófélags- legt atferli, því að hið síðarnefnda er ávallt afleiðing þess hvernig samtíð og samfélag hefur níðst á ofurmenninu. Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina undur sig geta notað þær sagnir sem skráðar eru um Sölva. Frá þessu eru þó tvö frávik. Annars vegar er mjög neikvæðri umsögn Sigurðar Briem um Sölva hafnað alfarið. Sigurður var nefnilega sonur Eggerts Briem sýslumanns sem reyndist Sölva þungur dóm- ari. Þessi umsögn verður höfundi tilefni til að segja „að sá maður Eggert Briem sýslumaður, heiti ekki að ófyrirsynju arfafantur í skrifum Sölva“ (bls. 198). Hin um- sögnin er eftir Hofdala-Jónas. Það er fremur jákvæð umsögn og er hún hikstalaust skrifuð tekjumeg- in hjá Sölva. Höfundur dregur ekki andartak í efa að Sölvi Helgason hafi verið einstakur snillingur og andans maður. Snilli hans og gáfur lýstu sér einkum í fjórum greinum: Hann var heimspekingur, sagn- fræðingur, ljóðskáld, en þó fyrst og fremst óviðjafnanlegur málari. Verk hans munu halda „nafni hans á lofti meðan til eru menn, sem kunna að meta list: teikn- ingarnar, vatnslitamyndirnar" (bls. 159). Það væri vissulega að gera sig beran að dæmalausri fávisku og menningarfjandskap að fara að bera brigður á þessa staðhæfingu,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.