Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
HELENA
RUBINSTEIN
Kaup lífeyrissjóðanna á skuldabréfum íbúðalánasjóða:
Ásókn í lífeyrissjóðslán
skerðir kaupgetu sjóðanna
snyrtivörur
Ennfremur:
Ilmvötn.
Baðvara.
Ilmsápur.
Handsnyrtisett.
Gjafakassar fyrir
dömur og herra.
ÆilSl&tr d
(Reykjavíkur Apóteki)
AUSTURSTRÆTI 16.
Sími 19866.
Við höfum ákveðið
að gefa aftur út
íslandsbók
Sigurðar A. Magnússonar,
„Northem Sphinx“!
Hin frábæra bók Sigurðar A. Magnússonar, „Northem Sphinx
— Iceiand and the lcelanders from the Settlement to the
Present", hefur verið með öllu ófáanleg um nokkurt skeið.
Þess vegna hefur Bókaverslun Snæbjamar nú ákveðið að gefa
bókina út á nýjan leik, m.a. vegna fjölmargra fyrirspuma
frá innlendum og erlendum bókamönnum.
Hinn kunni sjónvarpsmaður, Magnús Magnússon, ritar foimála
bókarinnar, en Gerður Bemdsen, teiknari FÍT, sá um
útlit bókarkápu.
„Northem Sphinx“ er tilvalin bók fyrir vini og kunningja
erlendis. Ritstíll Sigurðar A. Magnússonar skilur bókina frá
hinum „venjulegu íslandsbókum" og gefur henni gildi umfram
flestar sambærilegar bækur. „Northem Sphinx" er bæði
falleg bók og fróðleg.
ern
inx
*& •**•*** *****
forev^db*l«a9«'6'Vte9™S!"
Sntrbj örn^ ónss onX Cb.h.f
Hafnarstræti4, simi 14281
FYRSTU ellefu mánuði þessa árs
námu verðbréfakaup lífeyrissjóð-
anna á skuldabréfum íbúðalána-
sjóðanna 393 milljónum króna og
höfðu kaupin aukizt frá fyrra ári um
13%, en þá keyptu sjóðirnir skulda-
bréf fyrir 347,7 milljónir króna. Til
þess að ná fram markmiðum láns-
fjáráætlunar verða lífeyrissjóðirnir
að kaupa af íbúðalánasjóðunum
fyrir 297 milljónir króna nú í des-
ember.
Frá þessu er skýrt í fréttabréfi
Sambands almennra lífeyrissjóða.
Þar segir að þessi kaup í desem-
bermánuði séu þó algjörlega
óraunhæf, en á það beri hins vegar
að líta, að skuldabréfakaupin séu
þó meiri en sem nemur áætlaðri
hækkun ráðstöfunarfjár sjóðanna,
en hækkunin milli áranna 1983 og
1984 mun einungis nema 6,4%
samkvæmt áætlun.
í fjárfestingar- og lánsfjáráætl-
un fyrir árið 1984 er gert ráð fyrir
að lífeyrissjóðirnir kaupi verðbréf
af fjárfestingarlánasjóðunum
fyrir 1.000 milljónir króna, þar af
nemi hlutur opinberra sjóða 938
milljónum króna. Gert er ráð fyrir
að lífeyrissjóðirnir kaupi af íbúða-
lánasjóðunum alls fyrir 690 millj-
ónir króna. Síðan segir í áður-
nefndu fréttabréfi: „Því miður
munu kaupin nema mun lægri
fjárhæðum en ráð var fyrir gert
og er meginskýringin sú, að ásókn
eftir lífeyrissjóðslánum sjóðfélaga
hefur aldrei verið meiri en nú í
ár.“
Stórt fram-
lag í lands-
söfnun Hjálp-
arstofnunar
FYRIR stuttu var stofnað hér á landi
Félag hjólbarðaverkstæða. í tilefni
af því ákváðu stofnendur félagins að
gangast fyrir söfnun á meðal hjól-
barðaverkstæða landsins til lands-
söfnunar Hjálparstofnunar kirkj-
unnar “Brauð handa hungruðum
heimi“, sem hófst ekki alls fyrir
löngu.
Náði söfnunin til 23 hjólbarða-
verkstæða og söfnuðust alls
162.786 krónur. Á þriðjudag af-
henti Stefán Valgarðsson Guð-
mundi Einarssyni, framkvæmda-
stjóra Hjálparstofnunar kirkj-
unnar, féð fyrir hönd gefenda.
Morgunblaðið/ Bjarni
Stefán Vagnsson t.h. afhendir Guðmundi Einarssyni, frkvstj. Hjálparstofnun-
ar kirkjunnar, féð fyrir hönd gefenda.
BMX
TILVALIÐ TIL
JÓLAGJAFA
BMX-vörur
BMX-hjálmar
BMX-húfur
BMX-bolir
BMX-buxur
BMX-hanskar
BMX-olnboga-hlífar
BMX-hlífar á stýri
og stöng
BMX-handföng
BMX-verkfærasett
BMX-tölustafir (sett)
BMX-gjallhorn
(þriggja tóna) meö
hljóönema
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
kr.
1.100,00
160,00
510,00
1.390,00
810,00
250,00
310,00
80,00
390,00
70,00
460,00
IIÆIVCO h.f.
Suðurgötu 3A, Rvík
Síxni (91)12052
Sérpöntum. — Sendum í póstkröfu.