Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
33
Námsgagnastofnun veitir
barnabókahöfundum
verðlaun fyrir handrit
ÞRÍR barnabókahöfundar skipta
með sér verðlaunum Námsgagna-
stofnunar fyrir bækur sérstaklega
samdar fyrir nemendur sem nýb-
yrjaðir eru lestur, en hafa ekki náð
fullkominni þjálfun í lestri. Höf-
undarnir eru Ragnheiður Gestsd-
óttir, sem hlaut verðlaun fyrir
handritið „Ljósin lifna“, Iðunn
Steinsdóttir, sem hlaut verðlaun
fyrir handritið „Bras og þras á
Bunulæk“ og Andrés Indriðason
sem hlaut verðlaun fyrir handritið
„Það var skræpa“. Verðlaunafénu
er skipt jafnt milli höfundanna
þriggja.
1 fréttatilkynningu frá Náms-
gagnastofnun segir að í samræmi
við niðurstöður nefndar um út-
gáfu namsgagna fyrir nemendur
með sérþarfir, hafi stofnunin efnt
til samkeppni um ritun bóka á
léttu máli, sem sérstaklega hafi
verið ætlaðar nemendum sem náð
hefðu nokkru valdi á lestri, en
skorti þjálfun. Efni bókanna
skyldi vera auðskilið og æskilegt
að það tengdist á einhvern hátt
reynslu og umhverfi barna. Stærð
bókanna var miðuð við 16 til 48
síður. Ákveðið var að veita þrenn
verðlaun, kr. 18.000, kr. 14.000 og
kr. 10.000 fyrir bestu handritin.
Dómnefnd ákvað að skipta verð-
laununum jafnt milli höfundanna.
í dómnefnd voru skipuð Ingi
Kristinsson skólastjóri, formaður
nefndarinnar, tilnefndur af
Námsgagnastofnun, Bryndís
Gunnarsdóttir kennari, fulltrúi
Félags móðurmálskennara, og Jó-
hanna Kristjánsdóttir skólastjóri,
fulltrúi Félags íslenskra sérkenn-
ara. Ráðgjafi nefndarinnar var
Silja Aðalsteinsdóttir.
Þá lagði dómnefnd til að eftir-
taldir höfundar fengju skriflega
viðurkenningu: Hrafnhildur Val-
garðsdóttir, Árni Árnason,
Magnea Magnúsdóttir frá Kleif-
um, Kristján Guðmundsson,
Heiðdís Norðfjörð, Olga Guðrún
Árnadóttir, Ármann Kr. Einars-
son, Þórður Helgason og Steinunn
Jóhannesdóttir.
Frá móttöku verðlauna Námsgagnastofnunar. Frá vinstri: Andrés Indriða-
son, Iðunn Steinsdóttir og Gestur Þorgrímsson, faðir Ragnheiðar Gestsdótt-
ur, sem gat ekki verið viðstödd.
Um 15 þúsund far-
þegar á 6 dögum
FLUGLEIÐIR verða að venju með
fjölda aukaferða fyrir jólin í innan-
lands- og millilandaflugi. Gert er ráð
fyrir að félagið flytji um 40 þúsund
farþega í desember í áætlunarflugi.
Þar af eiga um 15 þúsund manns
bókað far 18.—24. desember, segir í
frétt frá félaginu.
Annríkið nær hámarki dagana
20.—23. desember. Sem dæmi má
nefna, að föstudaginn 21. desem-
ber er áætlað að fara 21 ferð frá
Reykjavík í innanlandsflugi. 1
millilandaflugi þann dag verður
flogið til Lúxemborgar, London,
Kaupmannahafnar, Gautaborgar,
Stokkhólms, Oslóar og New York.
Auk þess fara vélar Flugleiða frá
Lúxemborg til Chicago, Washing-
ton og Orlando.
Á aðfangadag verður flogið inn-
anlands á vegum Flugleiða til Ak-
ureyrar, Sauðárkróks, Húsavíkur,
ísafjarðar, Patreksfjarðar, Þing-
eyrar, Egilsstaða, Norðfjarðar og
Vestmannaeyja. Flugi lýkur um
klukkan 16 þann dag.
í millilandaflugi verður flogið
til Lúxemborgar að morgni að-
fangadags og síðdegis til New
York. Ekki er flogið innanlands á
jóladag, en frá New York er flogið
að kvöldi jóladags til Keflavíkur.
Innanlandsflug hefst að nýju á
annan í jólum.
Tvær flugáhafnir verða í New
York um jól, ein í Chicago og ein í
Lúxemborg, samtals 36 flugliðar.
Þá verða átta flugliðar Flugleiða í
Nígeríu yfir jólin.
I morgun, 19. desember fór
Flugleiðavél með 164 farþega
beint til Kanaríeyja á vegum
Flugleiða, Samvinnuferða, Úrvals
og Utsýnar. Hópurinn kemur aft-
ur heim 9. janúar.
Athygli er vakin á því, að vöru-
afgreiðsla innanlandsflugs á
Reykjavíkurflugvelli er opin til
klukkan 12 á aðfangadag.
Stjórn MFA skipt-
ir með sér verkum
STJÓRN Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu er samkvæmt
lögum Alþýðusambands íslands
kjörin á þingum ASÍ.
Á 35. þingi ASÍ, sem haldið var
26.—30. nóvember sl. voru eftirtal-
in kjörin í aðalstjórn MFA: Guð-
mundur Hilmarsson, Helgi Guð-
mundsson, Karl Steinar Guðna-
son, Kristín Eggertsdóttir og Pét-
ur A. Maack. Varastjórn skipa
Ingibjörg Sigtryggsdóttir, Hildur
Kjartansdóttir og Sonja Kristen-
sen.
Á fyrsta fundi nýkjörinnar
stjórnar skipti stjórnin með sér
verkum þannig: Formaður er
Helgi Guðmundsson, ritari var
kjörinn Karl Steinar Guðnason og
gjaldkeri Pétur A. Maack. Aðrir í
aðalstjórn eru eins og áður segir
þau Guðmundur Hilmarsson og
Kristín Eggertsdóttir.
Vissir þú að hjá okkur færðu margar hugmyndir að
góðum jólagjöfum? Gjöfum sem gleðja um leið og
þær gera gagn.
Veitum sérstakan jólaafslátt af verkfærum og ýmsum
vörum fyrir þessi jól:
• Skíðabogar á bíltoppinn . kr. 775.
• Bílamottur 4 stk. í setti ... kr. 980.
• Skíðahanskar .............kr. 240.
• Leikfangabílar ........frá kr. 30.
• Tölvuúr ...............frá kr. 233.
• Litlar, þunnar reiknitölvur
• Barnabílstólar
• Vasaljós
• Rakvélar
• Olíulampar
• Kassettutöskur
• Topplyklasett
• Vatteraðir kulda-vinnugallar
- og margt, margt fleira.
Gerið svo vel. Komið og skoðið úrvalið.
Sffl
m r
STÖÐVARIMAR LLLLtJ VUOIIl
Grensásvegi 5