Morgunblaðið - 20.12.1984, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAJÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
Ungverjaland:
Undirskriftir
vegna útgefanda
í stofufangelsi
Vinarborc, 19. desember. AP.
A FJÓRÐA hundrad manns hafa
skrifað undir áskorunarskjal þar
sem lögreglan er hvött til að sleppa
úr stofufangelsi Gyorrgy Krasso,
hagfræðingi, sem var handtckinn
og sakaður um að hafa brotið
landslög með því að aðstoða við
útgáfu Hirmondo, bannaðs neðan-
jarðarblaðs.
Krasso hefur verið haldið í
stofufangelsi síðan 22. nóvember
Námum lokaö
á Taiwan
Tapei, Taiwan, 1». des. AP.
STJÓRN Taiwan hefur fyrirskipað
lokun fimmtán kolanáma á Taiwan
í kjölfar námuslyssins sem varð
fyrr í þessum mánuði.
Þá létust 92 manns í spreng-
ingu í námu og er þetta annað
mannskæðasta námuslys á Tai-
wan.
Sérstök rannsóknarnefnd sem
hefur kannað útbúnað og aðbún-
að í námum hefur sagt að örygg-
ismál séu þar í lágmarki og úr-
eltur búnaður sé víða. Því verði
námunum lokað um óákveðinn
tíma frekar en eiga á hættu fleiri
slys.
í júlímánuði sl. létust 103
námamenn í kolanámu þegar
eldur kom þar upp.
og hann hefur hvorki fengið að
fara út af heimili sínu né svara í
síma. Maður nokkur hringdi frá
Búdapest til blaðs í Vínarborg og
skýrði frá því að 329 undirskrift-
um hefði verið safnað. Maðurinn
kvaðst ekki geta skýrt frá nafni
sínu af öryggisástæðum. Hann
sagði að ýmsir rithöfundar,
poppstjörnur og ýmsir áberandi
menn í listalífi landsins væru
meðal þeirra sem hefðu skrifað
undir plagg þetta. Ekkert hefur
verið sagt frá málinu í opin-
berum málgögnum ungversku
stjórnarinnar.
Hætta í
UNESCO
Wa8hinf(ton, 19. desember. AP.
Bandaríkjastjórn staðfesti í
kvöld, að engin breyting hefði orð-
ið á afstöðu hennar til aðildar að
UNESCO, Menningar- og vísinda-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Talsmaður stjórnarinnar sagði, ao
Bandaríkjamenn mundu hætta
þátttöku í starfi stofnunarinnar
nú um áramótin og hætta að
leggja henni til fé.
Bandaríska kvikmyndastofnimin:
„A Passage to India“
bezta mynd ársins 1984
New York, 19. desember. AP.
KVIKMYND Davids Lean, l'assage to India, hefur verið útnefnd bezta
mynd ársins af Bandarísku kvikmyndagagnrýnendastofnuninni. Hún
veitti verðlaun í fyrsta skipti árið 1920 og þykja þau mikil og göfug
viðurkenning. David Lean fékk einnig viðurkenningu sem bezti leikstjóri
ársins og tveir aðalleikarar myndarinnar Victor Banerjee og Peggy
Ashcroft voru útnefnd beztu leikararnir.
Fyrir beztan leik í aukahlut-
verkum fengu þau verðlaun Sab-
ine Azema fyrir „A Sunday in
the Country" og John Malkovich
fyrir „Places in the Heart“.
Auk myndarinnar Passage to
India sem var tilnefnd bezta
myndin eins og í upphafi greinir
voru eftirtaldar á listanum yfir
þær tíu beztu: „París, Tekhas",
„The Killing Fields", „Places in
the Heart, „Mass Appeal„,
„Country", A Soldiers Story“,
„Birdy", „Careful He Might Hear
You“, og „Under the Volcano“.
A Sunday in the Country var
tilnefnd bezta erlenda kvik-
myndin.
Trans World Airlines:
Tveggja hreyfla þot-
ur í Atlantshafsflug
Bandaríska flugfélagið Trans
World Airlines (TWA) segist munu
hefja áætlunarflug á tveggja hreyfla
þotum yfir Atlantshafið í apríl nk.
Mun flugfélagið nota Boeing 767-
þotur með innréttingu fyrir 187 far-
þega í daglegum beinum ferðum
mílli St. Louis í Bandaríkjunum og
Parísar annars vegar og Frankfurt
hins vegar.
Verða þoturnar betur búnar en
ella til að auka öryggi, fjórðu
rafstöðinni verður bætt við og
þriðja eldvarnarkerfinu í vörulest-
inni. Reglur Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar (ICAO) heimila
tveggja hreyfla þotum að fljúga
yfir hafi en þó aldrei fjær flugvelli
en svo að 90 mínútur taki að fljúga
til vallarins á einum hreyfli ef
hinn bilar. Hefur nú bandaríska
flugmálastjórnin fyrir sitt leyti
samþykkt tilslökun frá reglunum
og fjarlægðin miðuð við 120 mín-'
útna flug til vallar, sem mundi
gera flug TWA talsvert hagkvæm-
ara þar sem þá væri hægt að
fljúga nánast stytztu leið milli
21 fórst í
flugslysi
Lima, Pená, 19. desember. AP.
TUTTUGU og einn maður fórst í
frumskógum Perú, er tveggja
hreyfla herflugvél hrapaði á leið
til olíusvæða. Slysið varð í frum-
skógunum norðaustur af Lima.
ákvörðunarstaða. Annars þyrftu
flugvélarnar að sveigja norður á
bóginn í átt til Grænlands og Is-
lands og lengja þar með flug sitt.
ísraelska flugfélagið E1 A1 hef-
ur flogið án viðkomu milli Tel
Aviv og ákvörðunarstaða í Kan-
ada með Boeing 767 samkvæmt
reglum ICAO. Að sögn TWA er
B-767 hagkvæm á lengri flugleið-
um þar sem sætanýting er ekki
það góð að notkun 431 farþega
fjögurra hreyfla Boeing 747 sé
réttlætanleg. Að sögn TWA kostar
56.420 dollara að fljúga B-747 yfir
Atlantshafið miðað við 30.340
dollara fyrir B-767. Kostnaður á
hverja sætismílu er þó minni á B-
747, eða 2,9 sent á móti 3,6 sentum,
en sá munur hyrfi samstundis ef
hálftómar júmbóþotur væru not-
aðar á leiðum, sem Boeing 767 er
ætlað að fljúga.
Peter Lawford
alvarlega sjúkur
New York:
Fjórða hver bílþjófn-
aðartilkynning fölsk
Lögreglan setti á fót bílapartasölu til að rannsaka tryggingasvik
New York, 18. deaember. AP.
LÍÍGREGLAN ákærði í dag 122 einstaklinga, þ. ám. bankamann, lög-
regluforingja, endurskoðanda og húsmóður, fyrir tryggingasvik í bílþjófn-
aðarmálum í kjölfar leynilegrar rannsóknar, að sögn hinnar viðamestu
sinnar tegundar í sögu Bandaríkjanna.
„Þetta er ekki glæpur hinna fót falska „bílapartasölu" í
fátæku, heldur eignafólks," sagði
ríkissaksóknarinn, Raymond
Dearie, og benti á, að flestir
þeirra sem í hlut ættu, hefðu
haft meira en meðaltekjur og átt
dýra bíla eins og BMW og
Mercedes. „Það sem þarna hékk
á spýtunni var að mikið vildi
meira," bætti hann við.
Alríkislögreglan, FBI, setti á
Brooklyn-hverfi og tók svo á
móti 142 farartækjum á sex
mánaða tímabili, en eigendurnir
tilkynntu, að bílunum hefði verið
stolið, og hirtu tryggingarféð, að
sögn yfirvalda.
I stað þess að hluta bílana í
sundur og selja partana, eins og
venjan er undir slíkum kringum-
stæðum, söfnuðu rannsóknar-
mennirnir bílunum saman í
flugskýli einu og undirbjuggu
málsókn á hendur eigendunum
og milliliðunum sem vísuðu þeim
á sjoppuna.
Dearie og aðrir embættismenn
sögðu, að rannsóknin leiddi í
ljós, að a.m.k. 25% bílþjófnað-
artilkynninga í New York-borg
væru falskar. Á árinu 1983 var
tilkynnt um þjófnað á farar-
tækjum að verðmæti alls um 391
milljón dollara (á 16. milljarð
ísl. kr.).
Los Angeles, 19. desmber. AP.
PETER Lawford var í gær lagður
inn á sjúkrahús í Los Angeles alvar-
lega veikur. Tók fjölskylda þessa
fræga leikara, sem fæddur var í
Bretlandi, að safnast saman í dag á
Cedars-tSinai-sjúkrahúsinu, þar sem
Lawford liggur og eru allir undir hið
versta búnir.
Að ósk Patriciu, eiginkonu
Lawfords, hafa frekari upplýs-
ingar ekki verið gefnar varðandi
heilsufar leikarans en þær, að
hann hafi legið á sjúkrahúsinu
síðan á sunnudag. Sagði talsmað-
ur sjúkrahússins, Ron Wise, í
stuttri tilkynningu í dag, að sjúk-
dómsgreiningin væri „ekki örugg“
og að kona Lawfords myndi skýra
frá öllum breytingum á líðan
hans.
Lawford, sem er 61 árs að aldri,
er kunnur af leik sínum í mörgum
kvikmyndum. Lítið hefur þó borið
á honum undanfarinn áratug, en
hann gekk undir mikla skurð-
aðgerð 1972. Lawford var mikið
átrúnaðargoð unglinga á fimmta
áratugnum og ekki minnkaði
frægð hans síðar á sjöunda ára-
tugnum, er hann kvæntist Patr-
iciu Kennedy, systur John F.
Kennedys forseta. Þau skildu
þremur árum eftir að Kennedy
var myrtur 1963.
í júlí sl. kvæntist Lawford aftur
26 ára gamalli konu, sem einnig
heitir Patricia.
Salen í Svíþjód
lýst gjaldþrota
Stokkhólmi, 19. desember. AP.
SALEN, stærsta skipafélag Svíþjóð-
ar, var lýst gjaldþrota í dag þegar
Ijóst var orðið að ekki næðist sam-
komulag við ríkisstjórnina og helstu
lánardrottna félagsins um greiðslur
skulda.
í flota Salen eru 140 skip og
gjaldþrotið mun leiða til þess að
um 700 sjómenn missa atvinnuna.
Óvíst- er hvað verður um aðra
starfsmenn fyrirtækisins, sem eru
samtals 2.000, en vöruflutnmga-
deild Salen mun halda áfram
störfum án eigin flota og getur
veitt nokkrum hópi manna at-
vinnu.
Gjaldþrot Salen þykir sæta
miklum tíðindum í Svíþjóð og hef-
ur verið líkt við hrun fyrirtækja-
samsteypu Ivars Kreuger á fjórða
áratugnum. Er talið að gjaldþrot-
ið muni draga dilk á eftir sér í
fjármálalífi Svía.