Morgunblaðið - 20.12.1984, Page 51

Morgunblaðið - 20.12.1984, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 51 Yf‘irlvsingar vegna sölu á ullarvörum í Bandaríkjunum Saka Dorette Egilson um tvenns konar brot Athugasemd frá lögmönnum Pólarprjóns, Sambandsins og Hildu hf. LÖGMENN Pólarprjóns, Sam- bandsins og Hildu hf. í Bandaríkj- unum. þoir Paul Johnson og Leon- ard Nadeau, hafa óskað eftir að fá að koma á framfæri athugasemd- um um fréttir þær, sem hafðar eru eftir Dorette Egilson og birzt hafa í útvarpi og blöðum á íslandi. Lögmennirnir taka það fram, að þeir kysu heldur, að Dorette svaraði ásökunum þeim, sem á hana eru bornar, fyrir rétti í stað þess að reyna að flytja mál- ið í íslenzkum dagblöðum. í máli því, sem höfðað hefði verið á hendur Dorette, væri hún sökuð um tvenns konar brot fyrir óréttmæta verzlunarhætti. Væri þar í fyrsta lagi um að ræða auglýsingar hennar um af- sláttarverð, enda þótt það væri það verð, sem hún vanalega seldi vörurnar fyrir. í öðru lagi hefði verið höfðað mál á hendur henni fyrir vanskil við Pólarprjón, sem hún skuldaði 200.000 dollara fyrir vörur, er hún hefði pantað án þess að greiða fyrir þær. Þá staðhæfa lögmennirnir ennfremur, að sú fullyrðing hennar, að þeir hafi aðstoðað hana við að koma í framkvæmd söluáætlunum hennar í Chicago, sé hlægileg. Jafnframt héldu þeir því fram, að engin áform væru uppi um að eyðileggja verzlun hennar og að samkeppni væri í rauninni góð fyrir þessa iðngrein. Hið eina, sem þeir stefndu að fyrir rétti, væri að fá úrskurð fyrir því, að henni bæri að fara að lögum. Ekkert ólöglegt við söluaðferðir okkar - segir Dorette Egilson, sem mótmælir kærum um ólöglegar söluaðferðir og kærir á móti. MORGUNBLAÐINU hefur borist yHrlýsing frá Dorette Egilson, vegna fréttaflutnings í íslenskum fjöímiðlum um kæru þriggja ís- lenskra fyrirtækja á hendur fyrir- tækinu „The Icelander“, sem hún veitir forstöðu. Yfirlýsing Dorette Egilson er svohljóðandi: „Ég harðneita að nokkuð sé ólöglegt við söluaðferðir The Ice- lander á kynningarsölunni í Chicago. Lögsókn ullarútflytj- enda hefur það eitt fyrir stefnu, að koma í veg fyrir frjálsa og eðlilega samkeppni. Aðdragandi þessa máls er, að þegar ákveðið var að halda kynningarsöluna í Chicago, Illinois, hafði ég sam- band við konsúl tslands í Chi- cago, Paul Sveinbjörn Johnson, og aðstoðaði hann mig við að finna heppilegustu borgarhlut- ana og þá staði, sem að hans mati gætu verið arðvænlegastir fyrir kynningarsölur okkar. Hann benti mér líka á fólk, sem hjálplegt gæti verið við að finna rétt húsakynni fyrir sölurnar. Síðan fékk ég söluleyfi frá Illi- nois-ríkinu og allir söluskattar hafa verið borgaðir í Illinois- ríki. Vörurnar voru seldar á lægra verði en þær eru seldar á í níu verslunum okkar, sem eru víðs- vegar um Bandaríkin, allt frá Anchorage í Alaska að vestan til Boston í Massachusetts að aust- an, enda var tilgangur okkar að kynna vöruna og kanna grund- völl fyrir að opna verslanir í Chicago í framtíðinni. Væri það ekki svolítið háðslegt, ef þessi sami konsúll íslands, sem var okkur hjálplegur við að undirbúa þetta, væri sá sami Paul S. John- son, sem nú er lögfræðingur, sem gerir lögsókn fyrir hönd Hildu, Sambandsins og Pól- arprjóns. Það er enginn vafi á, að mála- ferli þessi eru einfaldlega gerð af þeirri ástæðu, að með fjölda verslana okkar og kynningarsöl- um telja Hilda, Sambandið og Álafoss okkur hættuleg sinni einokun á verðlagningu og sölu- aðferðuni á íslenskum ullarvör- um. Þeir virðast reiðubúnir að beita öllum aðferðum til þess að gera okkur ókleift að kaupa ís- lenskan varning á sama hátt og við höfum gert á undanförnum árum, þar með að gera okkur ómögulegt að reka verslanir okkar. Mér er það alveg ljóst, að fyrir þeim vakir að koma í veg fyrir eðlilega samkeppni hvað sem það kostar. Það segir sig sjálft, að ekki að- eins munu lögfræðingar mínir verja mig gegn fyrrnefndri lög- sókn heldur munu þeir lögsækja alla þá sem að henni standa og þeim ógeðfelldu persónulegu árásum, sem gerðar hafa verið á mig í fjölmiðlum að undanförnu. Lögsókn beinist því að eftirfar- andi: 1. Ærumeiðingu. 2. Óleyfi- legu samráði um verðlagssetn- ingu. 3. Atvinnurógi. 4. Broti á bandarískum lögum um hringamyndun. Hér í Bandaríkjunum er nú rnikill áhugi meðal almennings fyrir málum sem þessum. Ég get því fullvissað hlutaðeigendur um, að kærurnar um óleyfilegt samráð um verðlagssetningu og brot á bandarískum lögum um hringamyndun muni vekja mikla athygli í fjölmiðlum og ekki skulum við láta okkar eftir liggja að gefa fréttamönnum hér greiðan aðgang að öllum þeim upplýsingum sem við getum veitt. Þeim sem gripið hafa til mannorðsmorðs og óhróðurs vil ég segia að þeir geta aldrei kúg- að okkur til þess að gefast upp, þvert á móti. Við búumst við að opna fleiri verslanir í náinni framtíð. Ég er ekki svo einföld, að mér sé ekki ljóst að á Islandi, sem kannski annars staðar, eru grimmir og ábyrgðarlausir menn í embættum, sem væru betur setin hæfari mönnum. Það er heldur ekkert leyndarmál, að það hefur hver atvinnugrein sinn skammt af skussum og virð- ist íslenska blaða- og frétta- mannastéttin engin undantekn- ing. Hitt er svo annað mál, að við hjónin og börn okkar erum is- lensk og eigum íslenska fjöl- skyldu á Islandi. Meðal annarra á ég tengdamóður á níræðis- aldri, sem varð algjörlega miður sín út af þessum ósköpum. Það yrði kannski landi og þjóð fyrir bestu, að upprunamenn þessarar fréttar fengju sér aðra vinnu, en það minnsta sem ég get krafist er að fólk, sem bar þessar óþverrafréttir fyrir þjóðina, bæði að minnsta kosti ástvini okkar fyrirgefningar. Þegar ég tók mér íslenskan ríkisborgararétt gerði ég það vegna þess að mér hefur alltaf fundist íslendingar besta fólk, sem ég hef fyrirhitt, og ísland það yndislegasta land, sem ég hef búið á. Og þótt það hafi sýnt sig, að jafnvel á meðal besta fólks sé margur svartur sauður- inn, er ég ennþá þeirrar skoðun- ar. Við hjónin og börn okkar vilj- um því nota þetta tækifæri og óska öllum okkar vinum og kunningjum á íslandi gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.“ Dorctte Egilson Aths. ritstj. Vegna ummæla í yfirlýsingu Dorette Egilson vill Morgun- blaðið að það komi fram að hér í blaðinu birtist frétt um þetta mál 13. desember sl. á bls. 73, þar sem einungis er greint frá því að nokkur íslensk fyrirtæki hafi kært Dorette „fyrir ólög- mæta viðskiptahætti með ís- lenska ullarvöru“. Sú frétt verð- ur hvorki talin „mannorðsmorð“ né „óhróður". Ekki Álafoss MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Ála- fossi hf.: Vegna fréttar yðar um mála- ferli nokkurra útflytjenda ullar- vöru við fyrirtækið „The Ice- lander“ í Bandaríkjunum óskar Álafoss hf. að koma því á fram- færi, að ranghermt var í frétt yðar að fyrirtækið ætti aðild að þessum málaferlum. Við værum þakklátir ef þér vilduð leiðrétta frétt yðar í samræmi við þetta. Sjálfvirkur sími á Skógarströnd Stykkishólmi, 17. desember. í SIIMAR og haust hefir verið unnið að því að leggja sjálfvirkan síma á alla bæi á Skógarströnd á Snæfells- nesi og verður sá sími tengdur við Stykkishólm. Með þessum framkvæmdum eru allir símar tengdir við Stykkis- hólm þá orðnir sjálfvirkir. Verður þetta til stórra hagsbóta fyrir not- endur því handvirki síminn var að ganga sér til húðar og hefði þurft stórra lagfæringa með. Gert var ráð fyrir að verki þessu myndi ljúka í haust og í seinasta lagi fyrir jól. Því miður tekst það ekki vegna þess að sérstakt stykki vantar í fjölsímann og er það væntanlegt á hverri stundu og munu Skóg- strendingar fá símann í janúar. Árni Peningamarkaðurinn GENGIS- SKRANING NR. 244 19. desember 1984 Kr. Kr. TnlL 13n. KL 09.15 Kaup Sala «en«i IDollari 40,010 40,120 40,070 1 SLpund 47,462 47492 47,942 1 Kan. dollari 30,419 30403 30454 IDönskkr. 3,6200 3,6299 3,6166 1 Norsk kr. 4,4721 4,4844 4,4932 1 Sspnsk kr. 44299 4,5423 44663 1 R mark 64234 64405 64574 1 Fr. fraoki 4,2301 44417 44485 1 Belj>. franki 0,6464 0,6482 0,6463 1 Sv. franki 15,7210 15,7642 1541II 1 llolL gyllini 11,4856 114172 114336 1 V þ- mark 12,9671 13,0028 13,0008 lÍLlíra 0,02105 0,02110 0,02104 1 Austurr. sch. 18562 14613 14519 1 Port escudo 04425 04432 04425 1 Sp. peseti 04340 04346 04325 1 Jap. yen 0,16220 0,16264 0,16301 1 íiskt puud 40,490 40,601 40,470 SDR. (SérsL dráttarr.) 394352 39,6439 Belí.fr. 0,6432 0,6450 INNLÁNSVEXTIR: Spariijóðtbækur____________________17,00% Sparítjóðtreikningar með 3ja mánaöa uppsögn............ 20,00% meó 6 mánaða uppsögn Alþýðubankinn...... ......... 24,50% Búnaðarbankinn................ 24,50% Iðnaöarbankinn............;.... 23,00% Samvinnubankinn.............. 24,50% Sparisjóóir.................. 24,50% Sparisj. Hafnarfjaröar...... 25,50% Útvegsbankinn................ 23,00% Verzlunarbankinn............... 25,50% meö 6 mánaöa uppsögn + bónus 3% Iðnaöarbankinn'1......... 26,00% meö 12 mánaða uppsögn Alþýðubankinn................ 25,50% Landsbankinn................. 24,50% Útvegsbankinn................ 24,50% meö 18 mánaða uppsögn Búnaöarbankinn............... 27,50% Innlántskírteini_________________ 24,50% Verðtryggðir reikningar miðað við lántkjarsvititölu meö 3ja mánaöa uppsögn Alþýóubankinn....<............. 4,00% Búnaóarbankinn................. 3,00% lönaöarbankinn................. 2,00% Landsbankinn................... 4,00% Samvinnubankinn................ 2,00% Sparisjóöir...............— 4,00% Útvegsbankinn.................. 3,00% Verzlunarbankinn.............. 2,00% meö 6 mánaöa uppsögn Alþyöubankinn................. 5,50% Búnaöarbankinn................. 6,50% lónaöarbankinn................. 3,50% Landsbankinn.................... 640% Sparisjóðir.................... 6,50% Samvinnubankinn................ 7,00% Útvegsbankinn.................. 6,00% Verzlunarbankinn............... 5,00% meö 6 mánaöa uppsögn + 1,50% bónus Iðnaöarbankinn1'................ 640% Ávitana- og hlaupareikningar Alþyöubankinn — ávísanareikningar..........15,00% — hlaupareikningar........... 9,00% Búnaöarbankinn............... 12,00% lönaöarbankinn................12,00% Landsbankinn.................. 12,00% Sparisjóöir................... 1Z00% Samvinnubankinn — ávisanareikningar......... 12,00% — hlaupareikningar........... 9,00% Útvegsbankinr................. 12,00% Verzlunarbankinn...............12,00% Stjðmureikningar Alþyðubankmn2*................ 8,00% Alþýöubankinn tH 3ja ára...........9% Safnlán — heimilitlán — plútlánar.: 3—5 mánuöir Verzlunarbankinn....... ..... 20,00% Sparisjóöir................... 20,00% Útvegsbankinn................. 20,00% 6 mánuöir eöa lengur Verzlunarbankinn.............. 23,00% Sparisjóöir................... 23,00% Útvegsbankinn................. 23,0% Kjðrbók Landsbankant: Nafnvextir á Kjörbók eru 28% á ári. Innstæöur eru óbundnar en af útborgaöri fjárhæö er dregin vaxtaleiörétting 1,8%. Þó ekki af vöxt- um tióins árs. Vaxtafærsla er um áramót. Ef ávöxtun á 6 mánaöa visitölutryggðum reikn- ingi aö viðbættum 6,5% ársvöxtum er hærri gildir hún. Katkó-reikníngur Verzlunarbankinn tryggir að innstæöur á kaskó-reikning- um njóti beztu ávöxtunar sem bankinn býöur á hverjum tíma. Spariveltureikningar: Samvinnubankinn.............. 20,00% Trompreikningur Sparitjóður Rvík og nágr. Sparisjóður Kópavogt Sparitjóðurinn í Keflavík Sparitjóður vélttjóra Sparitjóður Mýrartýslu Sparitjóður Bolungavíkur Innlegg óhreyft i 6 mán. eða lengur, vaxtakjör borin taman við ávðxtun 6 mán. verðtryggðra reikninga, og hag- stæðari kjðrin valin. Innlendir g jakfeyritreikningar a. innstæöur i Bandaríkjadollurum.... 8,00% b. innstæöur í sterlingspundum.... 8,50% c. innstæöur í v-þýzkum mörkum.... 4,00% d. innstæóur i dönskum krónum..... 8,50% 1) Bónut greiðist tH viðbótar vöxtum á 6 mánaða reikninga tem ekki er tekið út af þegar innttæða er laut og reiknatt bónutinn tvitvar á ári, í júlí og janúar. 2) Stjömureikningar eru verðtryggðir og geta þeir tem annað hvort eru eldri en 64 ára eða yngri en 16 ára ttofnaö tlíka reikninga. ÚTLÁNS V EXTIR: Almennir vixlar, forvextir Alþýðubankinn................ 23,00% Búnaöarbankinn............... 24,00% lónaóarbankinn............... 24,00% Landsbankinn................. 23,00% Sparisjóóir.................. 24,00% Samvinnubankinn.............. 23,00% Útvegsbankinn................ 22,00% Verzlunarbankinn............. 24,00% Viðskiptavíxlar, lorvextir. Alþyðubankinn................ 24.00% Búnaðarbankinn............... 25,00% Landsbankinn................. 24,00% Útvegsbankinn................ 23,00% Yfirdráttartán af hlaupareikningum: Alþýöubankinn................ 25,00% Búnaöarbankinn............... 25,00% lönaöarbankinn............... 26,00% Landsbankinn................. 24,00% Samvinnubankinn.............. 25,00% Sparisjóöir ...„........... 25,00% Útvegsbankinn................ 26,00% Verzlunarbankinn... ......... 26,00% Endurteljanleg lán fyrir framleiöslu á innl. markað.. 18,00% lán í SDR vegna útflutningsframl. 9,75% Skuldabréf, almenn: Alþýöubankinn................ 26,00% Búnaöarbankinn.............. 27,00% lönaöarbankinn............... 26,00% Landsbankinn................. 25,00% Sparisjóöir.................. 26,00% Samvinnubankinn.............. 26,00% Útvegsbankinn................ 25,00% Verzlunarbankinn............. 26,00% Viðtkiptatkuldabréf: Búnaöarbankinn............. 28,00% Sparisjóöir.................. 28,00% Útvegsbankinn................ 28,00% Verzlunarbankinn............. 28,00% Verðtryggð lán í allt aö 2'k ár______________________ 7% lengur en 2'k ár...................... 8% Vanskitavextir____________________2,75% Ríkisvíxlar: Ríkisvixlar eru boönir út mánaöarlega. Meðalávöxtun októberútboös........ 27,88% Lífeyrissjóðslán: Lífeyrissjóöur ttarftmanna rfkiaint: Lánsupphæö er nú 300 þúsund krónur og er lánið vísitölubundið með láns- kjaravísitölu, en ársvextir eru 5%. Lánstími er allt að 25 ár, en getur verið skemmri, óski lántakandi þess, og eins ef eign sú, sem veö er í er litilfjörleg, þá getur sjóöurinn stytt lánstimann. Lífeyrissjóður verzlunarmanna: Lánsupphæð er nú eftlr 3ja ára aöild aö lifeyrissjóönum 144.000 krónur, en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár bætast viö lániö 12.000 krónur, unz sjóösfélagi hefur náö 5 ára aölld aö sjóönum. Á tímabilinu frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö höfuöstól leyfilegrar láns- upphæöar 6.000 krónur á hverjum árs- fjóröungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er lánsupphæöin oröin 360.000 krónur. Eftir 10 ára aöild bætast viö 3.000 krón- ur fyrir hvern ársfjóröung sem líöur. Þvi er i raun ekkert hámarkslán í sjóönum. Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö lánskjaravísitölu, en lánsupphæöin ber nú 7% ársvexti. Lánstiminn er 10 tll 32 ár aö vali iántakanda. Lánskjaravísitalan fyrir des. 1984 er 959 stig en var fyrir nóv. 938 stig. Hækkun milli mánaöanna er 2,24%. Miöaö er viö visitöluna 100 í Júní 1979. Byggingavfsitala fyrir okt. til des. 1984 er 168 stig og er þá miöað viö 100 i janúar 1983. Handhafaskuldabréf i fasteigna- viöskiptum. Algengustu ársvextir eru nú 18-20%.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.