Morgunblaðið - 20.12.1984, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
53
Fjárlagatillögun
Styrkir til flóabáta
og vöruflutninga
Fram er komið á þingi nefndarálit
samvinnunefndar samgöngumála
um framlög til flóabáta, fólks- og
vöruflutninga. Nefndinni bárust um-
sóknir frá 63 aðilum. Samkvæmt til-
lögum nefndarinnar verður varið
samtals 56.346.000,- til flóabáta og
vöruflutninga á fjárlögum 1985. Hér
er getið helstu styrkþega:
• Akraborg: Árið 1983 var halli á
rekstri annað árið í röð, 9 m.kr. t
árslok var eigið fé neikvætt um
rúmar 30 m.kr. og veltufjárstaða
versnaði um 11,7 m.kr. Skamm-
tímaskuldir námu 31,5 m.kr. og
höfðu aukizt um 10,7 m.kr. á ár-
inu. Samkvæmt rekstrar- og efna-
hagsreikningi janúar-júní 1984
var rekstrarhalli orðinn 38,6
m.kr., en veltufjármunir aðeins 5
m.kr. Á sama tíma námu tekjur
fyrirtækisins 21,5 m.kr. Áætluð
heildarskuld við ríkisábyrgðarsjóð
um næstu áramót er rúmar 100
m.kr. — Ríkisstyrkur 1984 nam 6
m.kr.
• Baldur: Annast áætlunarferðir
milli Stykkishólms og Brjánslækj-
ar með viðkomu í Flatey. Sam-
kvæmt áætlun um rekstur bátsins
1984 er gert fyrir 450 þúsund
króna halla. Hlutfall ríkisstyrks
af heildrútgjöldum verður þá 54%.
Niðurstaða nefndar, sem fjallað
hefur um þessar ferðir, er að
smíðaö verði 200 smálesta skip,
sem geti flutt 15—17 bifreiðir.
Áætlun bátsins fyrir næsta ár
gerir ráð fyrir 6,6 m.kr. ríkisstyrk.
• Fagranes: Framlag ríkissjóðs til
rekstrarins nemur 4,9 m.kr. á
þessu ári, eða sem svarar 62%
heildartekna. Gert er ráð fyrir 6,1
m.kr. ríkisstyrk 1985.
• Drangur: Gengur milli Akur-
eyrar, Hríseyjar, Ólafsfjarðar,
Siglufjarðar og Grímseyjar. í lok
október var hagnaður af eiginleg-
um rekstri, utan fjármagnsgjalda,
l, 9 m.kr., en halli, ef fjármagns-
gjöld eru reiknuð, tæpar 2 m.kr.
Samkvæmt áætlun Útvegsbanka
íslands, sem sér um greiðslur af
lánum vegna kaupa Drangs, þarf
9,3 m.kr. í stofnstyrk á næsta ári.
• Hríseyjarferja: Sækir um 1,5
m. kr. styrk.
• Mjóafjarðarbátur: Nýr bátur,
var keyptur 1978 á 40 m.kr. Sam-
kvæmt rekstraráætlun 1985 er
sótt um tæplega 1,2 m.kr. styrk.
• Herjólfur: Heildarútgjöld ársins
urðu 54,3 m.kr. en rekstrartekjur
35,4 m.kr. Halli 18,9 m.kr. Upp i
þennan halla fékkst 7,9 m.kr. rík-
isstyrkur, þannig að tap fyrir fjár-
magnsliði nam 10,9 m.kr. Að
teknu tiliiti til fjármagnshreyf-
inga skilaði reksturinn 375 þús. kr.
hagnaði. Hreint veltufé í árslok
var neikvætt um 1,2 m.kr.
Málefni aldraðra:
30 milljónir vantar
FRUMVARP til laga um málefni
aldraðra kom til þriðju umræðu á
fundi neðri deildar síðastliðinn mið-
vikudag. Við umræðurnar lýsti Ellert
B. Schram, að hann myndi, ef ekki
lægi fyrir yfirlýsing frá heilbrigðis-
ráðherra um að nauðsynlegt fjár-
magn verði tryggt, greiða atkvæði
breytingartillögu Guðrúnar Helga-
dóttur, Alþýðubandalagi, og fleiri
um að ekki verði varið lægri upphæð
til málefna aldraðra að raungildi en
á yfirstandandi ári.
Ekki var búist við að breyt-
ingartillagan næði fram að ganga,
en talið víst að frumvarpið yrði að
lögum, á kvöldfundi neðri deildar.
Samkvæmt upplýsingum er heil-
brigðis- og tryggingarráðherra
veitti við aðra umræðu vantar um
30 milljónir króna á fjárlög fyrir
1985 til að framlög á næsta ári
haldi raungildi sínu. í breyt-
ingartillögum fjárveitingarnefnd-
ar við fjárlagafrumvarpið er ekki
gert ráð fyrir að framlögin hækki.
Fötluðum kynnt réttarstaða þeirra
f félagsmálaráðuneytinu eru ekki
til neinar haldbærar tölur um hversu
margir fatlaðir menn hafa fengið
störf hjá ríkinu á grundvelli ákvæða
24. greinar laga nr. 31, 23. mars
1983, um málefni fatlaðra, varðandi
forgangsrétt þeirra til starfa hjá rik-
inu að öðru jöfnu. Þetta kom fram í
svari félagsmálaráðherra, Alexand-
ers Stefánssonar, við fyrirspurn
Geirs Gunnarssonar, Alþýðubanda-
lagi, um þessi mál.
Ráðherra sagðist mundu beita
sér fyrir því að fötluðum yrði
kynnt hver réttarstaða þeirra er. I
umræðum sem spunnust vegna
fyrirspurnarinnar, kom fram í
máli Guðrúnar Helgadóttur og
Helga Seljan að mun auðveldara
er fyrir fatlaða að fá vinnu hjá
einkaaðilum en hjá opinberum
fyrirtækjum og lögðu þau áherslu
á að bragarbót verði gerð hið
fyrsta.
Bændafundur um
riðuveikivarnir
í Barðastrandarsýslu:
Fordæmir
gerræðis-
lega aðför að
einstökum
fjárbændum
„VIÐ fordæmum gerræðislega
aðför að einstökum fjáreigend-
um á svæðinu, þar sem skorið
hefur verið niður gegn mótmæl-
um þeirra, án þess aö staðfest
væri riðuveiki í hjörðum, eða
nokkur önnur viðhlítandi rök
leidd að nauðsyn þessara að-
gerða. Með tilliti til ákvæða
reglugerðar nr. 556/1982 eru að-
gerðir sem þessar með öllu
óheimilar," segir í ályktun frá
almennum fundi bænda og ann-
arra fjáreigenda í Ketildala-,
Suðurfjarða- og Tálknafjarö-
arhreppum vegna niðurskurðar í
sýslunni vegna riðuveikivarna.
í ályktuninni er ítrekað fyrra
samþykki fjáreigenda um sam-
starf við þá aðila sem vinna að
útrýmingu á riðuveiki og lýst yfir
samþykkti við niðurskurð í hverri
þeirri hjörð sem staðfest riðuveiki
kemur upp í. Telja bændurnir að
með þeim niðurskurði sem fram
fór í haust hafi verið skorið niður
fé á öllu því svæði í Vestur-
Barðastrandarsýslu „sem fullvissa
er eða grunur getur leikið á um
riðuveiki og þó verið gengið lengra
en efni standa til“. Þá er vakin
athygli á að byggð standi mjög
höllum fæti í öllum framangreind-
um hreppum og geigvænleg hætta
á búseturöskun ef farið er að
skera niður heilbrigða fjárstofna,
og „biðjum alla aðila að ígrunda
málið vel, áður en ákvarðanir eru
teknar um frekari aðgerðir í þess-
um efnurn", segir ennfremur í
ályktun bændanna.
Husqvarna Optima
O Husqvarna Optima er full-
komin saumavél, létt og auö-
veld í notkun.
O Husqvarna Optima hefur
nytjasauma innbyggða.
O Husqvarna Optima saumar
allt frá þynnsta silki til gróf-
asta striga og skinns.
O Husqvarna Optima óska-
draumur húsmóðurinnar.
Verð frá kr. 12.000.- stg.
<A
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 Simi 9135200
© Husqvarna
HJÁLPARSJÓÐUR
GÍRÖNÚIHER 90000-1
5*
fl
iln-«
akkmn
spilid
Spennandi fjölskylduleikur
Eykur ordaforöann
Þjálfar lestrarkunnáttuna
Eflir ímyndunarafliö
Skerpir hugsunina
Siml 91-73411
r i
Demantshringar —
Draumashart
Gull og demantar
Kjartan Ásmundsson gullsmiöur
L Áðalstrœti 7 sími 11290. Á
auglysingastotan ht