Morgunblaðið - 20.12.1984, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DBSEMBER 1984
SINGER
SAUMAVÉL Á
KR. 10.944.-
Vegna hagstæðra samninga við SINGER verksmiðjurnar bjóðum við nú
SINGER SAUMAVÉLAR gerð 7146 á kr. 10.944-
• FRÍARMUR + SJÁLFVIRKUR HNAPPAGATASAUMUR
• STYRKTUR TEYGJUSAUMUR (OVERLOCK)
• EINFÖLD í NOTKUN + SPÓLA SETT í OFANFRÁ
• SKIPTING Á SAUMAFÓTUM AUÐVELD (SMELLTIR)
• ALLUR HELSTI NYTJASAUMUR
SINGER ER ALLTAF
SPORI FRAMAR.
SINGER 7146 ER MEST SELDA SAUMAVÉLIN í EVRÓPU í DAG.
SSfSSS
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SI'MI 687910
Elízabeth Taylor
Liz í gift-
ingarhug-
leiðingum
New York, 13. desember. AP.
SÚ SAGA gengur nú fjöll inum
hærra í New York og er höfð eftir
vinum leikkonunnar Elizabeth
Taylor, að leikkonan hyggi i gift-
ingu í sjöunda sinn alveg á næst-
unni. Si útvaldi er sagður vera
bandarískur kaupsýslumaður,
Dennis Stein.
Þau Elizabeth og Dennis
kynntust fyrir mánuði og hafa
verið óaðskiljanleg síðan. Vict-
or Luna, einn af mörgum fyrr-
verandi unnustum Elizabeth,
sagði að hún hefði hringt til sín
og sagzt vera trúlofuð. „Hún
hringdi til mín af því að við
erum enn svo miklir vinir,“
sagði unnustinn sem eitt sinn
var. John J. Miller vinur brúð-
gumans og væntanlegur svara-
maður staðfesti gleðifréttina í
samtali við blaðið New York
Post. Dennis Stein er jafngam-
all Elizabeth, 52ja ára. Hann
hefur ekki verið giftur nema
einu sinni áður.
Fyrsti maður Elizabeth var
Nicky Hilton, síðan leikarinn
Michael Wilding, sá þriðji
kvikmyndaleikstjórinn Michael
Todd, fjórði söngvarinn Eddie
Fisher, síðan Richard Burton,
sem hún giftist tvívegis og loks
John Warner, bandarískur
stjórnmálamaður frá Virginiu.
Elizabeth skildi við alla menn
sína, nema þann þriðja sem lézt
í flugslysi.
STÓRVIRKI UM SKALTÁRELDA
SKAFTARELDAR
1783-1784
RITGERÐIR OG HEIMILDIR
Tvær aldir eru liðnar frá lokum Skaftárelda, og er þess
minnst með útgáfu þessa stóra verks með ritgerðum og heim-
ildum um eldana og Móðuharðindin. Hér skrifa margir okkar
bestu fræöimanna á sviöi sagnfræði, jaröfræði, læknisfræöi
og landafræði um þetta mesta gos frá því land byggðist og
afleiðingar þess.
Sagt er frá nýjustu jarðfræöiniðurstööum um eðli gossins,
gerð grein fyrir áhrifum þess á byggð, bændur og búalið, og
rakin viðbrögð stjórnvalda i Kaupmannahöfn og ,,aðstoð“ ein-
okunarverslunarinnar. Þá er í bókinni itarlegur og áhrifamikill
heimildahluti með samtímalýsingum á gosinu og ástandi ís-
landsárin 1783 —1784.
Þessi sérlega eigulega bók er prýdd fjölda mynda, bæði
svarthvitra og i litum, og i henni eru mörg kort. Bókin er í senn.
handbók, vísindarit og fróðleiksnáma um einhverja mestu
hörmungartíma islandssögunnar. Ritnefnd hennar skipuðu
þeir Sveinbjörn Rafnsson, Þorleifur Einarsson, Gylfi Már Guð-
bergsson, Gisli Ágúst Gunnlaugsson og Sigurður heitinn Þór-
arinsson.
Verökr. 2500,-
NB Tilboðsverð f ram til 1. apríl 1985: kr. 1995. —
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Hitíð er framundan og verður in
efa mikill og góður matur i borðum
víða. Það getur því komið sér vel að
hafa handhæga uppskrift sem sýnir
hvernig nýta mi vel afgang af kjöti
— hamborgarhrygg eða öðru létt-
reyktu kjöti.
Hér er dýrindis
Hamborgar
osta bakstur
fyrir 6
'k bolli laukur fínsaxaður
2 matsk. smjör(vi)
2 bollar fínskorið hamborgarkjöt
3 stk. egg létt þeytt
1 bolli rifinn ostur (bragðmeiri
teg. Maribó)
% bolli tvíbökumylsna, fín
1 'h bolli mjólk
Örlítill pipar malaður
1. Saxaður laukurinn er látinn
krauma í feitinni eða þar til
hann er mjúkur orðinn en ekki
brúnn.
2. Síðan er öllu blandað saman
lauk, kjöti, niðurifnum osti,
eggjum, brauðmylsnu og mjólk
og hrært vel.
3. Smyrjið vel stórt eldfast mót
(ca. 25—15 sm, uppskriftin er
stór), setjið deigið í mótið og
bakið í ofni við 180° í 45—50
mín. Rétturinn er tilbúinn þeg-
ar hnífsoddi eða prjóni er
stungið í miðju og hann kemur
út hreinn.
Sem meðlæti með hamborgar-
bakstrinum er hvers konar grænt
grænmeti mjög gott, t.d. soðið
sprotakál (Broccoli) með örlitlu
bræddu smjöri hellt yfir.
Við undirbúning jólasteikurinn-
ar huga margir að víninu í sósuna.
Vegna misjafnrar reynslu margra
í þeim efnum skal bent á, að þegar
vín er sett í heita sósu þá þarf að
sjóða sósuna þar til alkóhólið er
horfið. Alkóhólið gefur sósunni
rammt bragð. Það eru bragðefni í
víninu sem eiga að bragðbæta sós-
una. Bragðið fer því eftir gæðum
vínsins. Léleg ódýr vín geta auð-
veldlega eyðilagt annars frábæra
sósu.
Margir bera fram ís á jólum og
er súkkulaðisósa á ís alltaf vinsæl.
Hér fylgir uppskrift af einni
tunguhálli.
100 gr. súkkulaði eða súkkulaðilíki
'/< bolli vatn
V* bolli sykur
2 matsk. smjör(vi)
1 tsk. vanilla eða
1 matsk. góður líkjör sem er enn
betra, nú eða gott kóníakstár
'k ltr. rjómi
1. Súkkulaði, vatn, sykur, smjör
(og vanilla) er hitað að suðu og
síðan látið sjóða við vægan hita
þar til það hefur náð að þykkna.
2. Þá er það tekið af hellunni og
líkjörnum bætt úr í og blandað
vel saman.
3 Sósuefnið er síðan kælt. Þegar
það kólnar verður það þykkt,
næstum seigt.
4. Þeytið rjómann og vinnið sósu-
þykknið upp í rjómann.
Þessa sósu má útbúa á aðfanga-
dag og setja í skál með loki eða
plasti yfir og geyma í kæli. Hún
geymist prýðilega í 3—4 daga eða
lengur án þess að breyta sér eða
tapa gæðum.
Ath. Brennd vín eins og Ifkjör
eða koníak sem notaðar eru í sæt-
ar sósur þarf ekki að sjóða.
Við förum létt með verðið í hrá-
efni að þessu sinni. Áhyggjur af
verði matvæla verða meiri eftir
jól.
Njótið því hátíðar.
Gleðileg jól.