Morgunblaðið - 20.12.1984, Page 70
70
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
Sanitas
NÚ ER VERÐMUNURINN
JóladiYkkimír á ótrúlega lágu verði
Gleðíleg jól. Sanítas hf.
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
Hlutlaust
framúr-
stefnurokk
Ég man ekki eftir að hafa
heyrt hlutlausari plötu en
Phantoms með The Fixx. Platan
vakti hvorki upp neikvæðar né
jákvæðar tilfinningar þegar hún
var tekin upp til að vera sett á
plötuspilarann. Svo rann hún í
gegn án þess að nokkuð af henni
sæti eftir. Og þannig er þetta bú-
ið að vera allt frá því hún fyrst
var spiluð. Átakalaust eru báðar
hliðarnar spilaðar og ekkert sit-
ur eftir. Hvorki tilfinning um að
platan sé leiðinleg eða köllun
eftir að hún sé spiluð aftur.
Tónlistin gæti flokkast sem
framúrstefnurokk. Hún er vönd-
uð, vel spiluð og hljómgæði plöt-
unnar eru mikil. Sá sem „pro-
dúserar” plötuna heitir Rupert
Hine en hann er þekktur fyrir að
hafa sent frá sér mjög skrýtnar
en góðar plötur.
Þessi plata þarf greinilega
mikil og náin kynni. Sá sem
nennir og hefur þörf fyrir að
sökkva sér niður í eina ákveðna
plötu ætti að athuga þessa.
Hann verður örugglega ekki
fyrir vonbrigðum.
Innantómt
Eins og mig grunaði er tónlist
Juice Newton ekki af þeim toga
sprottin að um hana verði skrif-
aðar bækur eftir 10 ár og hún
lofuð fyrir að standast tímans
tönn. Stúlkan er Amerísk, hefur
ágæta rödd og plata hennar
„Can’t Wait All Night“ inniheld-
ur sýnishorn af nokkrum amer-
ískum tónlistarafbrigðum.
Á plötunni eru 10 lög sem flest
eru hin þokkalegustu. Lögin eru
vel flutt og sérlega vel unninn.
Heyrist það meðal annars mjög
vel þegar hlustað er eftir
hljómgæðum plötunnar sem eru
dágóð.
Fyrri hlið plötunnar er hin
rólegasta. Fyrsta lagið er sjálf-
sagt það besta. „A Little Love“
heitir söngurinn og er grípandi
ballaða. Næstu fjögur lög eru á
sinn hátt hvorki fugl né fiskur.
Þau skilja ekkert eftir, renna
áreynslulaust í gegn og gera
enga kröfu til þess að þau séu
spiluð aftur. Hafi einhver gaman
af þeim er það gott og gilt. Þau
eru auðmelt afþreying sem má
finna á mörgum stöðum. En ég
er ekki viss um að allir sem við
þessa tónlist fást gætu gert
þetta jafn vel tæknilega en um
innantómleikann efast ég ekki.
Þegar plötunni er snúið við
rennur fyrst í gegn „Let’s
Dance“. Rokkari á svipaðri línu
og Bruce Springsteen, en ekki í
sama gæðaflokki. Það sem fer
alveg með lagið eru einhver fá-
ránleg fagnaðarlæti sem bland-
að er inn í. Næsta lag er rólegt
og stingur dálítið í stúf við það
fyrra. Milt, fallegt og kryddað
með stengjum, sem verða sem
betur fer ekki of áberandi.
Þriðja lagið keyrir hinsvegar um
þverbak. Það er eins langt frá
fyrsta laginu eins og verið getur.
Rólegt, fullt af væmni og
strengjum og á frekar heima í
þýskum skemmtiþætti en á þess-
ari plötu. Síðan koma tvö lög
sem leggja ekkert til eins og lög-
in fjögur á fyrri hliðinni.
Þegar síðan leggja á dóm á
plötuna í heild veit ég ekki hvort
á að segja hana samhengislaust
safn laga og óheilsteypta eða
fjölbreytta afþreyingaplötu. En
eins langt og hún nær er hún
ágæt. En ef valið stæði um ein-
hverja aðra plötu myndi ég
hlusta vel áður en kaup væru
ákveðin.
Hvorki betra
né verra...
Eftir að vera búin að hlusta á
þessa plötu nokkrum sinnum var
ég ekkert yfir mig hrifinn. Rokk-
ið sem Kiss spilar nú er hvorki
betra né verra en það sem Kiss
hefur hingað til haft fram að
færa, en stenst því besta ekki
snúning. að minnsta kosti mundi
ég alltaf velja Dio ef um þessar
tvær plötur væri að ræða til að
setja á spilarann.
En svo var verið að ræða þetta
og þá kom fram athugasemd sem
ég hafði ekki leitt hugann að.
Einhver sagði að þessi plata
væri góð og það mætti hafa mik-
ið gaman af henni. Ekki var ég á
sama máli eða þar til rökin fyrir
þessu komu fram. Jú, sjáið til. í
samanburði við Dio er platan
ekkert sérstök en berðu hana
saman við Manowar, Venom eða
Metalica. í samanburði við þess-
ar þrjár hljómsveitir spilar Kiss
hið ágætasta rokk. Með þetta í
huga verður ekki kveðinn neinn
dómur yfir þessa plötu. Af þeim
níu lögum sem eru á plötunni sat
aðeins eitt eftir í minningunni
þegar búið var að hlusta nokkr-
um sinnum. Heaven’s On Fire
heitir söngurinn sá.
K.K
nzia
THORELLA
Laugavegs Apótekí
THORELLA
Miðbæ við Háafeitisbraut
w*
VERÐTRYGGÐUR
—
vaxtareikningur
VÖRNGEGN VERÐBÓLGU
Mánaðarlega eru borin saman kjör hávaxtareiknings og verðtryggðra
reikninga hjá bankanum, og vaxtabreytingar gerðar svo að
Hávaxtareikningur verði alltaf betri kostur. ^
Betrí kjor bjóðast varía. > Samvinnubankinn