Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 80

Morgunblaðið - 20.12.1984, Síða 80
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984 Selma Kaldalóns - Minningarorð Fædd 27. desember 1919 Dáin 12. desember 1984 Tengdamóðir mín, Selma Kaldalóns tónskáld — eða Cecelia Maria eins og skírnarnafn hennar var — verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag. Hún lést á Borgarspítalanum að kvöldi hins 12. desember eftir að hafa orðið fyrir sviplegu slysi réttri viku áð- ur. Selma fæddist í Ármúla við ísa- fjarðardjúp 27. desember 1919 og hefði því orðið 65 ára nú um jólin. Foreldrar hennar voru Sigvaldi S. Kaldalóns læknir og tónskáld og kona hans, Karen Margrethe Christine Mengel-Thomsen hjúkr- unarkona. Selma ólst upp í Ár- múla, Flatey og Grindavík en á öllum þessum stöðum var faðir hennar héraðslæknir. 7. maí 1944 giftist Selma eftir- lifandi eiginmanni sínum, Jóni Gunnlaugssyni iækni. Þau bjuggu fyrst í stað í Reykjavík meðan Jón var að ljúka Iæknisfræðinámi en fluttu til Reykhóla í Barðastrand- arsýslu 1947 þar sem Jón var ráð- inn héraðslæknir. Þar bjuggu þau í sex ár. Fluttust til Selfoss 1953 þar sem þau reistu sér mikið og glæsilegt hús. Er Jón og Selma fluttu frá Selfossi um áramótin 1964—65 keypti Selfossbær húsið af þeim og gerði að héraðslækn- isbústað. Atvikin höguðu því svo að faðir minn fluttist með fjöl-' skyldu sína til Selfoss í árslok 1968 þar sem hann var ráðinn hér- aðslæknir. Fluttumst við þá í hús það sem Jón og Selma höfðu reist og komst ég þannig í mjög óbeina snertingu við fjölskyldu Selmu löngu áður en leiðir okkar Gunn- laugs, sonar hennar, lágu saman. Ári eftir að Selma og Jón fiuttust til Reykjavíkur höfðu þau reist sér nýtt og skemmtilegt heimili á Skólabraut 61, Seltjarnarnesi, þar sem þau hafa búið síðan. Mín fyrstu kynni af Selmu voru um áramótin 1976—77 er ég hafði kynnst Gunnlaugi, elsta syni hennar, sem síðan varð eiginmað- ur minn. Ég man ég kveið því dá- lítið að hitta hana. En sá kvíði reyndist algjörlega ástæðulaus. Um það geta vitnað þeir sem kynnst hafa henni. Orðið tengda- móðir er í hugum furðu margra tengt afskiptasemi og óþarfa ráðs- vnennsku. Kynni mín af Selmu eiga ekkert skylt við þau hugtök. Hún reyndist mér fremur móðir en tengdamóðir. Skammt er um liðið siðan Selma og Jón heimsóttu okkur Gunnlaug og bðrn okkar hingað til Lundar í Svíþjóð. Þau dvöldu hjá okkur í hálfan mánuð i byrjun september síðastliðins. í þeirri heimsókn komu vel í ljós ýmsir af bestu eig- inleikum Selmu. Þannig hafði vilj- að til að á leið með ferju yfir Eyrarsund hafði Selma snúið sig svo illa á fæti að hún varð að halda kyrru fyrir á heimili okkar í nokkra daga meðan Jón sótti bæði Rotary- og læknaþing í Malmö. Selma lét það ekki á sig fá þó minna yrði úr ferðalögum um Skán en staðið hafði til og var hún þó mikið gefin fyrir ferðalög. Ekk- ert hljóðfæri höfðum við heldur upp á að bjóða. En liti var hægt að útvega. Selma settist þá út í garð í fallegu haustveðrinu og tók að mála blómamyndir. Og ekki leið á Iöngu þar til hún var komin í gott samband við hóp barna í hverfinu sem hópast höfðu til að fylgjast með henni teikna og mála. Blóma- myndirnar sem hún gaf okkur áð- ur en hún kvaddi okkur í síðasta sinn munu prýða heimili okkar í framtíðinni. f þessu litla atviki birtust tveir áberandi eiginleikar í fari Selmu. Annars vegar hinir listrænu eig- inleikar sem engan veginn voru bundnir við tónlistina eina og hins vegar lýsir þetta atvik því hversu félagslynd hún var og átti gott með að komast í samband við fólk og þá ekkert síður börn en full- orðna. Heimsókn Selmu og Jóns hingað til Lundar í september síð- astliðnum var mjög ánægjulegur tími og á þessari stundu er ég sér- staklega þakklát fyrir að eiga þessar minningar. Ég á líka margar góðar minn- ingar frá heimili Selmu og Jóns á Skólabraut 61. Ekki síst frá því að ég kom þangað síðast en það var í maímánuði síðastliðnum. Þá átti Jón sjötugsafmæli og þau hjónin fjörtíu ára hjúskaparafmæli. Er ekki ofmælt að segja að hjóna- band þeirra hafi verið mjög far- sælt og þó þau væru ólík í mörgu þá voru þau afskaplega samhent. Gestrisni hefur alltaf verið ein- kennandi fyrir þau bæði og á tímamótunum í lífi þeirra síðast- liðið vor hvarflaði aldrei að þeim að vera „að heiman". Haldið var upp á afmælið af mikilli reisn og að sjálfsögðu sat tónlistin í fyrir- rúmi þar. Jón studdi Selmu ætíð með ráðum og dáð í tónlistinni og eru mörg laga hennar samin við ljóð hans. Selma var einstaklega hlýleg kona og birtist hlýja hennar í mik- illi nærgætni gagnvart umhverfi hennar öllu. En fjölskyldan sat þó alltaf í fyrirrúmi hjá henni og hún fylgdist alltaf mjög náið með öll- um börnunum og barnabörnunum þrátt fyrir að stór hluti þeirra búi erlendis. Mér hefur alltaf fundist það vera afskaplega sterkt ein- kenni á heimili Jóns og Selmu hversu opið og líflegt það er. Vinir allra barnanna ganga þar út og inn og ekki bara sem gestir heldur sem vinir sem ekki þurfa að gera boð á undan sér. Þó mörg barn- anna búi erlendis hafa margir af gömlu vinum þeirra haldið áfram að koma á Skólabraut 61. Selma var alltaf afskaplega vel að sér í því sem var að gerast hjá yngri kynslóðinni og aldrei var hægt að merkja neitt kynslóðabil þar. Tæpast verður svo um Selmu Kaldalóns rætt að ekki sé minst á tónlist í sömu andrá. Tónlistin var Selmu í blóð borin enda Sigvaldi faðir hennar, eitthvert ástsælasta tónskáld íslensku þjóðarinnar. Sjálf hefur Selma í endurminn- ingarkafla um föður sinn í bók Gunnars M. Magnúss um Sigvalda S. Kaldalóns lýst því hversu mikil áhrif faðir hennar hafði á hana. „Ég vaknaði oftast við músík á morgnana og sofnaði við músík á kvöldin," skrifar hún meðal ann- are þar. Svipaða sögu hafa börn Selmu að segja um æskuheimili sitt. Þar heyrðist oft leikið á píanó snemma á morgnana og enn al- gengara var að Selma léki tónlist þá er komið var fram undir mið- nætti. Það var þó ekki fyrr en á síðustu árum sem Selma gat sinnt þessu áhugamáli sínu að einhverju marki. Árið 1980 kom út hljóm- plata með tólf lögum Selmu og tíu lögum eftir Sigvalda, föður henn- ar, og í fyrra kom út nótnahefti með 27 af lögum Selmu. Það liggur í augum uppi að ekki var mikill tími til að sinna áhuga- málum þegar barnahópurinn var jafn stór og raun ber vitni. Öll barnabörnin hafa um lengri eða skemmri tíma dvalið hjá ömmu sinni, og elsta barnabarnið, Jón Stephenson, hefur alveg alist þar upp. Ekki er óalgengt að allt að fimmtán manns hafi setið til borðs á Skólabraut 61. En þrátt fyrir hið stóra heimili tókst Selmu alltaf að finna tíma til að setjast við hljóðfærið, oft með eitthvert barnabarnanna í fanginu enda samdi hún lög fyrir mörg þeirra og tileinkaði þeim. Selma sagðist sækja styrk í hljóðfærið þegar eitthvað bjátaði á. Tónlistin var hennar líf og yndi og þó hún í lítillæti sínu liti aldrei á sig sem listamann þá veit ég að henni þótti afskaplega vænt um þá við- urkenningu sem hún hlaut er henni voru veitt listamannalaun á síðastliðnu ári. Mörg af lögum Selmu eru samin við trúarlega texta enda hefur hún sagt að hún hafi haft sérstakan áhuga á að semja tónlist við trú- arleg ljóð. Það þarf ekki að koma á óvart því að guðrækni var í háveg- um höfð á heimili Selmu og Jóns og sjálf var Selma um skeið kirkjuorganisti. Sérstakt dálæti hafði Selma á mörgum Ijóðum Stefáns frá Hvítadal og gerði hún lög við nokkur ljóða hans, meðal annars ljóðið „Skýldu mér“. Þar segir meðal annars: Klukkurnar kalla mig, kveðja á herrans fund. Hjarta mitt hikar við, heilög er þessi stund. Nú hefur Selma sjálf verið kvödd á „herrans fund“. Henni fylgja saknaðarkveðjur níu barna, tengdabarna og sextán barna- barna I fimm löndum, íslandi, Kanada, Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Öll eiga þau um sárt að binda en sárastur er missir Jóns, tengdaföður míns, sem nú sér á bak lífsförunaut sínum eftir fjörtíu ára farsæit hjónaband. Honum sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur og veit að hann mun sækja styrk I þá trú, sem hann og Selma ólu börn sín upp í: „Því að ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf ... né nokk- uð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum“. (Rómv. 8:38.) Þessum minningarorðum um Selmu, elskulega tengdamóður mína, fylgja að lokum einlægar samúðarkveðjur mínar til allra annarra aðstandenda hennar. Guðrún H. Brynleifsdóttir, Lundi, Svíþjóð. „En vinternatt daa vinden sang.“ Þessi Ijóðlína er titill að fallegu lagi eftir Selmu Kaldalóns, sem ég minnist sérstaklega í dag. Selma Kaldalóns er látin. Við sem fengum að njóta vináttu hennar, ómældrar gestrisni og hlýju eigum vart orð til þess að þakka né heldur hugga. Selma Kaldalóns var hrifnæm kona og mikill húmoristi, henni tókst alltaf, þrátt fyrir gífurlegar annir á stóru heimili, að finna sér tíma til þess að sinna sínum hugð- arefnum tónlistinni og myndlist- inni. Að vera vinur barnanna var líka að vera vinur hennar, hennar móðurfaðmur átti sér engin tak- mörk. Það verða aðrir til þess að rekja æviferil Selmu, ég vil aðeins með þessum fáu orðum lýsa þakklæti mínu fyrir að hafa eignast þann mikla fjársjóð að vera alltaf tekin sem fjölskyldumeðlimur á yndis- legu heimili Jóns og Selmu. Orð eru fátækleg á stundu sem þess- ari, en minningin um merka konu lifir. Guð blessi ykkur öll og gefi ykk- ur styrk í ykkar miklu sorg. Samúðarkveðjur. Elísabet Brekkan Frú Selma Kaldalóns, húsmóðir, tónskáld, píanóleikari, var ástsæl af kunningjum, félögum, vinum, ættingjum. Engan sem kynntist henni, furðar heldur á, þó að hún væri vinsæl og nyti virðingar fólks. Framkoma hennar var þannig, að hún laðaði alla að sér með móðurlegri ástúð. Frú Selma var ein af þeim fáu manneskjum, sem vekja það bezta hjá öðrum með návist sinni. Ekk- ert óhreint eða Ijótt gat þrifist nærri henni. Frú Selma var frið- arhöfðingi. Fróð var hún, minnug og skemmtin í tali. Gestrisin við hvern sem bar að garði. Það er því ekki að undra, þó að menn fýsti að heimsækja þau hjón og minnist viðkynningarinnar við þau sem einhvers þess bezta, sem þeir hafa reynt. Við munum sakna hennar, sæti hennar meir en vandfyllt. Foreldrar mínir og við Berit sendum Jóni lækni, börnum þeirra hjóna og öllum aðstandendum dýpstu samúðarkveðjur. Helgi Vigfússon, Ál, Noregi. Húsfreyjan settist við hljóðfær- ið, og innan skamms tíma hljóm- uðu um stofu undurfagrir tónar, tónlist sem við öll þekktum svo vel, lög sem sungin hafa verið á flestum heimilum þessa lands á liðnum áratugum, lög Sigvalda Kaldalóns, föður húsfreyjunnar. Síðan hóf hún einnig að leika af fingrum fram eigin stef, og stund- in varð heilög. Ut um stofuglugg- ann gaf að líta til Nesstofu, þar sem starfsbróðir húsbóndans hafði fyrir tveimur öldum fyrstur íslendinga hafið það verk að líkna og lækna. Faxaflóinn speglaðist í roða síðsumarsólar, Snæfellsjök- ull fullkomnaði þessa fögru mynd. Þessi lýsing úr dagstund kemur upp í huga okkar hjónanna er við minnumst listakonunnar Selmu Kaldalóns og hennar fagra menn- ingarheimilis, og sjálf teljum við okkur ríkari að hafa átt þess kost að kynnast henni í lífi og starfi meðal íbúa okkar unga bæjarfé- lags, Seltjarnarneskaupstaðar. Selma og eiginmaður hennar, Jón Gunnlaugsson læknir, festu sér búsetu um svipað leyti og við hjónin á Seltjarnarnesi. Síðan eru liðnir tveir tugir ára. Húsbóndinn gerðist heimilislæknir okkar, og bæði hófu þau hjónin þátttöku í ýmsum menningar- og framfara- málum vaxandi bæjarfélags. Kynnin efldust og úr varð einlæg vinátta, vinátta sem hér skal þökkuð á kveðjustund Selmu. Aðrir munu vafalítið rekja lífs- feril þessarar merku konu, æsku- heimili hennar og fyrstu mann- dómsár, þrautseigju og baráttu listakonunnar sem elskaði jafnt æðstu gyðju allra lista, tónlistina, sem eiginmann sinn og þeirra stóra glæsilega barnahóp. Soropt- imistasystur votta hinsvegar þakklæti fyrir hugheil störf Selmu að málefnum Soroptimistaklúbbs Seltjarnarness, en málefni soropt- imista áttu stórt rúm í hjarta Selmu allt frá stofnun klúbbsins. Bæjaryfirvöld Seltjarnarnes- kaupstaðar þakka af alhug öll þau störf að framfara- og menningar- málum sem Selma Kaldalóns lagði til síns unga bæjarfélags. Ávallt stóð hún sem klettur við hlið mannsins síns að eflingu fjöl- margra hagsmunamála bæjarfé- lagsins. Ungt bæjarfélag er fátækara eftir en áður við fráfall Selmu Kaldalóns. En minningin um ein- staka heiðurs- og listakonu mun lifa, svo lengi sem tónar hljóma. Verði vinkonu okkar Selmu Kaldalóns hvíldin vær. Ingibjörg og Magnús Erlendsson. „Það hefur orðið breyting í mínu húsi,“ sagði góðvinur minn og nágranni Jón Gunnlaugsson þegar hann tilkynnti mér lát eig- inkonu sinnar, Selmu Kaldalóns, þann 12. des. síðastliðinn. Það hef- ur líka orðið breyting í mínu húsi. Að missa góðan og virtan granna í gegnum 19 ár er áfall fyrir mig og allt mitt fólk. Fyrir réttri viku sat hún hjá mér í eldhúsinu, skrafaði um dag- inn og veginn, meðal annars hvað hún hefði á prjónunum viðvíkj- andi sín hugðarefni. Hún gekk héðan fáein skref, rann á hálku og hlaut slæman höfuðáverka. Eftir vikudvöl á Borgarspítalanum kom kallið skyndilega. Þegar Jón og Selma fluttust hingað i næsta hús árið 1965, birti heldur betur upp í þessu fámenna nágrenni. Fjölskyldan var stór, 9 börn, sem nú eru orðið allfátítt. Strax tókst góður vinskapur á milli heimilanna. í gegnum öll þessi blessuðu ár, sem við höfum átt því láni að fagna að eiga Jón og Selmu að vinum og nágrönnum, hefur aldrei borið skugga á. Jón sagði í tölu sem hann hélt i mínu húsi, fyrir um ári, „að aldrei hefði þurft grindverk á milli lóðanna". Þetta segir sína sögu. + Móöir min, tengdamóöir, amma og langamma. + Móðir min, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, INGIBJORG GUDRÚN MAGNÚSDÓTTIR, áöur Gullteig 4, Brekkuhvammi 6, lést á Elliheimilinu Grund 18. desember. Hafnarfiröi, Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 28. desember kl. lóst á Sólvangi miövikudaginn 19. desember. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Laugarneskirkju. Fyrir hönd vandamanna, Maddý Guömundsdóttir. Þórdís Guönadóttir. t + Faöir minn. Móðir okkar. JÓN STEFÁNSSON VOPNI, GUDBJÖRG KRISTINSDÓTTIR, Grónufólagsgötu 43, er látin. andaöist á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 18. desember. Krietin Jónsdóttir, Fyrir hönd fjölskyldunnar, Arndís Jónsdóttir. Unnur Jónsdóttir.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.