Morgunblaðið - 20.12.1984, Side 91
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
91
Æ SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
'TIL FÖSTUDAGS
Dagmæður leggja sitt af mörkum
Dagmóðir skrifar:
Ég sest niður með hálfum hug
og skrifa áfram um dagvistarmál
barna. Ég held þó að þessi skrif
mín skemmi ekki fyrir neinum,
það er þeim ekki ætlað að gera,
heldur að vekja umræður um önn-
ur sjónarmið, sjónarmið sem of
sjaldan heyrast og mega það ekki
að margra mati. Það er i lagi að
fram komi endrum og eins raddir
um að ekki séu allir að berjast
fyrir byggingu barnaheimila. Ekk-
ert hef ég út á þær stofnanir að
setja, nema síður sé og ég veit
ósköp vel að þær eru nauðsyn. En
er ekki alltaf verið að tala um
þenslu og aukna skuldasöfnun og
hvað börn okkar fá í arf af skuld-
um eftir okkar kynslóð? Ein leið
til að staldra við er að stöðva eða
draga úr dýrum byggingum
barnaheimila, sem ég tel ekki
nauðsyn á að almenningur borgi
og greiði með hverju barni um
5000 krónur á mánuði (fyrir utan
byggingarkostnað) þegar hægt er
að fara ódýrari leiðir.
Ég þakka þér, Sólrún Gísladótt-
ir, fyrir að svara bréfi mínu í
Velvakanda. Mér finnst þú samt
kasta smásteinum í dagmæður, þó
þú segist ekki vilja kasta rýrð á
störf þeirra. En það gerir kannski
ekki mikið til. Við erum vanar því
hvort sem við eigum það skilið eða
ekki. Dagmæður hafa þó margar
starfað árum saman og verða trú-
lega áfram nema við fáum engin
börn til að gæta, en mér virðist
sem þessi starfsemi sé mikill
þyrnir I augum sumra. Ekki taldi
ég dagmæður besta kost við
barnagæslu, en ekki endilega verri
kost en dagvistarstofnanir og alls
enga „neyðarlausn". Oft hefur ver-
ið deilt á okkur opinberlega og
gert lítið úr okkar starfi og ef ein-
Þessir hringdu . . .
Viljum njóta
sparnaðarins
Hólmfríóur Jónsdóttir hringdi:
Eftir að hafa hlustað á viðtal
við Pál Pétursson alþingismann
sem fram fór I sjónvarpi nýlega,
þar sem hann kvaðst vera mjög á
móti hækkun vaxta á sparifé,
langar mig til að spyrja hann
þessarar spurningar: Hvað eru að
dómi alþingismannsins sanngj-
arnir vextir á sparifé í 40—50%
verðbólgu, sem hann og aðrir
stjórnmálamenn hafa staðið að að
kynda á undanförnum árum. Við
sem komin erum um sextugt og
þar yfir og farin erum að huga að
elliárum og útförinni viljum
gjarnan eiga nokkrar krónur að
vinnudegi loknum. Það hefur sum-
um okkar tekist með sparnaði og
vinnusemi. Við höfum flest hlotið
litla skólagöngu og þekkjum lítið
til völundarhúss viðskipta og fjár-
mála. Sparifé okkar er því eina
trygging okkar í ellinni. Án inn-
lends sparnaðar munu lífskjör á
íslandi fara versnandi og það hef-
ur ekki reynst vel að taka erlend
lán með okurvöxtum. Varla er það
markmið þingmannsins. En telur
hann að hann og aðrir stjórnmál-
amenn hafi siðferðilegan rétt til
að svifta okkur árangri ráðdeildar
okkar og erfiðis. Það væri óskandi
að Alþingi hætti að samþykkja
lög, sem sífellt þrengja að og níð-
ast á þeim, sem með nægjusemi og
sparnaði hafa lagt grundvöll að
velmegun þessa lands.
Dagmóóir segir að flest börn i aldrinum 3ja minaða til 2ja ira, sem ekki eru
í umsji foreldra i daginn, séu hji dagmæðrum.
hver okkar mótmælir er það litið
hornauga.
Dagmæður hafa nær alfarið
með höndum gæslu barna á aldr-
inum 3ja mánaða til 2ja ára, ef
þau eru ekki í umsjá foreldra. Það
verður að notast við okkur þangað
til börnin komast að í leikskóla
eða á dagheimili. Þá eru þau að
verða nokkuð státin og þurfa ekki
eins mikla umönnun. Poreldrar
sækja oft á tíðum um vist fyrir
börn sin á dagvistarstofnunum
Iöngu áður en börnin hafa aldur
til að komast þar inn, til að vera
viss um að komast að. Biðlistar
eru því mjög villandi, að mínu
mati. Fái barnið svo pláss á
barnaheimili, þá er ekki alltaf ver-
ið að hugsa um hvað komi barninu
best heldur hvað sé ódýrast, enda
þarf fólk að hugsa um það. Éf for-
eldrar borguðu sama gjald til
dagmæðra og barnaheimila, þá
myndu færri börn fara frá dag-
mæðrum til barnaheimila og að-
sóknin að þeim minnka. Síðan
koma þessi börn aftur til okkar
þegar þau eru hætt á barnaheimil-
um og komin í skóla. Þá gætum
við þeirra með skólanum þar til
þau geta verið ein. Einnig má telja
upp öll börnin sem hætta hjá
dagmæðrum á vorin og byrja aft-
ur að hausti.
Að lokum dettur mér í hug,
hvort það eigi einhvern tímann
eftir að heyrast raddir, sem segja
eitthvað jákvætt um dagmæður,
en finna þeim ekki allt til foráttu,
eins og um hálfgerðar vandræða-
manneskjur sé að ræða. Slík er
umræðan oft opinberlega og er
það miður, því ég tel dagmæður
leggja sitt af mörkum til samfé-
lagsins ekki síður en aðrir.
Skrýtnir fuglar og læknamál
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Það eru skrýtnir fuglar sumir
af þessum ráðherrum okkar og
hefi ég þá í huga læknismálið á
Eskifirði og Reyðarfirði. Þar er
umdæmið svo stórt og fjölmennt
að algerlega er ofviða einum
lækni, enda hefur Helgi Seljan
fengið því framgengt með laga-
breytingu að þar skuli vera tveir
læknar.
Nú er hins vegar ekki reiknað
með þessu í fjárlögum. Rikis-
stjórnin hefur ekki efni á að
greiða tveimur læknum þarna
laun a.m.k. er ekkert sem bendir
til þess úr fjárlagaagreiðslunum.
Skrýtið er margt í kýrhausn-
um segi ég nú, því ef á að byggja
bankahöll þá eru nógir peningar
til.
Það má byggja hallir undir
ónýta seðla fyrir tugmilljónir en
ef á að veita sjúkum aðstoð og
öryggi þá eru engir peningar til.
Hvort finnst fólki nú nauðsyn-
legra? Svona menn eru ekki
þjóðhollir fulltrúar fólksins, sem
hugsa svo. Ég skora á þá að sjá
til þess að annar læknir komi á
heilsugæslustöðina á Eskifirði
næsta ár. Annars gæti orðið
þarna læknislaust áður en langt
um líður.
& SlGGA V/CJGA £ A/LV
RF HVERJU SKELF-
^URÐU SVONR EINS 06-
HRÍSLR.BLÍÐFT^
fc ER BÚINRPN
PRKKR INNJÓLR-
CrJÖFINNI SEM ÍG
ÆTLRR9GEFR SIGGU,
Litli liósálfurinn
hefur sannað ágæti sítt á Íslandí.
Litll Ijósálfurinn gefur þér góöa birtu við bóklestur án
bess að trufla aðra, frábær í öll ferðalög og sumarbústað-
inn. Kjörin gjöf. _
Litli Ijósálfurlnn er léttur og handhægur, getur jafnt
notað rafhlöður og 220 volta rafstraum. Honum fylgir
aukapera, hylki fyrir rafhlöður og straumbreytir. Einnig
fást geymslutöskur.
Litli ijósálfurinn fæst í næstu bóka- og gjafavöruverslun
og í Borgartúni 22.
HILDA
Borgartúni 22, Reykjavík
Dönsku barnaskórnir frá
Uumhjauiiil
eru í hæsta gæöaflokki.
Spyrjið um barnaskóna með kanínumerkinu.
SKOBÆR
Laugavegi 69
sími 17955.
&
HVR9 KEMUR
ÞRÐ ÞESSUM
SKJRLFTR W?J