Morgunblaðið - 20.12.1984, Side 94
94
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1984
Nú vill Arsenal ná
í Sigurð Jónsson!
„Höfum mikinn áhuga á því,“ sagði K.J. Friar, framkvæmda-
stjóri félagsins, í samtali við Morgunblaðið í gærdag
„ÞAÐ ER ekkert launungarmál að
vM hjé Areenal höfum mikinn
áhuga á þvi að fá hinn unga og
efnilega leikmann Sigurð Jóna-
eón i okkar raóir. Við höfum
fylgat vel meö honum og er vel
kunnugt um getu hana. En eina
og ataóan er i dag er Iftió haagt aó
gera i málinu þar aem nteata
ómögulegt er að fá atvinnuleyfi
fyrir hann hár á Bretlandaeyjum,"
aagói KJ. Friar framkvæmda-
atjórí hina fræga og þekkta
knattapymulióe Araenal i aamtali
vió Morgunblaðió í gærdag.
• Don Howe þjálfari og umajón-
armaóur Araenal-lióaina vill aó
félagið fái Sigurð Jónaaon f afnar
raóir.
Samkvæmt mjög áreióanlegum
heimildum þá frétti Mbi. aö eitt
þekktasta og um leió ríkasta
knattspyrnufélag Englands heföi
mikinn áhuga á því aö gera samn-
ing viö Sigurö Jónsson iA. En eins
og skýrt hefur veriö frá þá hafa
nokkur félög sett sig í samband viö
Sigurð og hann mun hafa í hönd-
unum uppkast aö samningi hjá
Sheffield Wednesday. Sá samn-
ingur mun vera til þriggja ára ef
Siguröur skrifar undir.
„Viö höfum ekki sett okkur í
samband viö Sigurö ennþá vegna
þess aó okkur er vel kunnugt um
aö hann fær ekki atvinnuleyfi hér á
næstunni. En viö munum setja
okkur í samband viö piltinn og
skýra honum frá áhuga okkar og
jafnframt skýra frá því hvaö viö
bjóöum uppá.
Ef mögulegt heföi veriö aö fá
atvinnuleyfi fyrir hann hór þá vær-
um viö fyrir löngu búnir aö bjóöa
honum til Arsenal og senda fulltrúa
okkar til islands til viöræöna.
Okkur er líka vel kunnugt um þau
félög sem hafa rætt viö hann og
vitum mæta vel um viöræöur hans
við Sheffield Wednesday.
En eins og staöan er í dag er
lítiö hægt aö gera vegna reglu-
geröa um atvinnuleyfi. Þeim þarf
aö breyta. Ég get ekkert sagt um
hvenær eða hvort þeim veröur
breytt. Jafnvel er óvíst hvort reglu-
geröunum veröur breytt. Þá þurfa
margir aö samþykkja atvinnuleyfið
og þaö tekur nokkurn tima. En viö
fylgjumst vel meö öllu og ef þaö
opnast einhver leiö þá munum viö
strax fara af staö og gera þaö sem
í okkar valdi stendur til aö fá Sig-
urö til Arsenal," sagöi fram- • Ensku liðin som oru á sftir Sigurói Jónssyni ÍA eiga I erfióleikum
kvæmdastjórinn K.J. Friar. meó að útvega honum atvinnuleyfi á Bretlandseyjum.
Þess má geta aö þjálfari Arsenal
og umsjónarmaöur liösins, Don
Howe, hefur séö Sigurð leika og
hefur ýtt undir stjórn félagsins aö
gera samning viö Sigurö sé þaö
hægt. Þetta sýnir vel aö þaö er
glöggt fylgst meö ungum og efni-
legum knattspyrnumönnum þegar
þeir sýna hvaö í þeim býr.
Einn íslendingur, Albert Guö-
mundsson, hefur leikiö með Ars-
enal og Ríkharöur Jónsson ÍA æföi
hjá félaginu um tíma. Arsenal var
stofnaö 1886 og er eitt elsta, virt-
asta og ríkasta knattspyrnufélag
Englands. Liöiö hefur átta sinnum
oröiö enskur meistari, síöast
1970—71 og þaö ár vann liöiö líka
enska FA-bikarinn sem þaó hefur
unniö fimm sinnum, síöan 1979.
— ÞR
Þekktir
leikmenn
í LIDI Arsenal í dag eru margir
þekktir leikmenn. Má nefna nöfn
eins og Brian Talbot, Viv And-
ersson, Charlie Nicholas sem
reyndar kemst ekki ( liðið um
þessar mundir, Tommy Caton,
Paul Mariner og Tony Woodcock.
Arsenal er núna í fjóröa sæti í
ensku 1. deildinni tveimur stigum
á eftir Everton sem er meó for-
ystuna.
ÞR
Þeir bestu
á Selfoss
í kvöld!
STÓRMÓT íþróttafréttamanna í
innanhússknattspyrnu fer fram I
íþróttahúsinu é Selfossi og hefst kl.
19.30. Þar verða á ferðinni flestir
bestu knattspyrnumenn landsins —
meirihlutinn landsliösmenn, ungir
og gamlir, auk ýmissa leynivopna i
öllum líðum.
Fyrsti leikur mótsins hefst stund-
víslega kl. 19.30 og eru þaó liö KR og
Samtaka iþróttafréttamanna sem
leióa saman hesta sína.
Af þeim leikmönnum sem veröa i
eldlínunni á Selfossi í kvöld má nefna
Valsmennina Guómund Þorbjörns-
son og Val Valsson, Ársæl Krist-
jánsson og Kristján Jónsson úr
Þrótti, Ragnar Margeirsson, Einar
Ásbjörn Ólafsson og Valþór Si-
gþórsson úr Keflavík, Akurnesingana
Árna Sveinsson og Guöbjörn Tryggv-
ason, Guómund Magnússon, Sæ-
björn Guðmundsson og Aöalstein
Aöalsteinsson úr KR og Guömund
Steinsson og Pétur Ormslev úr Fram.
Þá veróa heimamenn aö sjálfsögöu i
fullu fjöri auk sprellfjörugra íþrótta-
fréttamanna.
Gömlu garparnir Halldór Einars-
son Val, Olafur Júlíusson og Einar
Gunnarsson ÍBK, Matthías Hall-
grímsson og Björn Lárusson iA og
Guögeir Leifsson leika svo gegn
„gömlum" hetjum Selfyssinga.
Ólympíumeistarinn
Harkönen notaði
„Bolann" árið 1979
NU ER ENN eitt lyfjamálió komiö upp í Finnalndi — sjálfur Ólymp-
íumeistarinn i spjótkasti í Los Angeles í sumar, Arto Hárkönen,
notaöi Anaboliska steríóða, eóa „Bolann" svokallaöa, áriö 1979.
Kom þaó fram í blóósýni sem tekið var eftir aó Hárkönen var tekinn
ölvaöur við akstur þaö ár.
Fyrir stuttu lýstu Hárkönen og
faöir hans, sem jafnframt er
þjálfari pilsins, því yfir aö þeir
væru alfariö á móti lyfjanotkun
íþróttmanna.
Arto varö tvítugur árið 1979 —
og þaö ár náöi hann sínum besta
árangri í spjótkastinu. Hann
kastaði þá 90,18 metra á mótl í
Búdapest og sigraöi — í keppn-
inni „Gullna spjótiö." Þaö ár varö
hann í ööru sæti á finnska meist-
aramótinu og tryggöi sér sæti á
Ólympíuleikunum í Moskvu.
„Finnska frjólsíþróttasam-
bandiö hefur krafist þess af Arto
aö hann leggi fram skriflega út-
skýringu um þetta mál," sagöi
Tapani llkka, talsmaöur sam-
bandsins, nýlega. „Okkur kemur
ekkert viö þó hann hafi veriö tek-
inn ölvaöur við akstur — en þaö
er öllu verra aö anabólískir ster-
íoöar skuli hafa fundistí blóði
hans.“
Vainio notaði lyf ffyrir
HM í fyrrasumar
Martti Vainio, langhlauparinn
sem fóll á lyfjaprófi á Ólympiu-
leikunum í sumar, hefur nú viöur-
kennt i viðtali að hafa einnfg not-
aö ólögleg lyf fyrir heimsmeist-
arakeppnina í fyrrasumar —
karlhormóninn testosteron.
Hann sagöi jafnframt aö þjálfari
langhlauparanna, Timo Vuor-
imaa, heföi ráölagt þeim aö nota
þetta lyf — þaö réöi bót á þeirri
miklu þreytu sem skapaðist við
langvarandi æfingar.
Varöandi lyfiö sem hann not-
aði fyrir ÓL í sumar, „Bolann",
var þaö ekki ætlunin. Vainio
keypti lyfiö á Ítalíu, er hann var
þar á keppnisferöalagi, og hugö-
ist kaupa testosteron. Hann fékk
hins vegar rangt lyf í apótekinu
— og þaö reyndist dýrkeypt.
Testosterónið fer tiltölulega fljótt
úr líkamanum en þaö gerir „Bol-
inn“ ekki. Því féli hann á prófinu í
LA...
• Daníel Hilmarsson
Gott hjá Dan-
íel í Noregi
NOKKRIR íslenskir skíóakappar
dveljast nú við æfingar og keppni
í Noregi. Þeir hafa keppt á nokkr-
um mótum undanfariö — nú síó-
ast um helgina í svigi í Geilo.
Daníel Hilmarsson náói bestum
árangri íslendinganna.
98 keppendur voru á mótinu í
Geilo um helgina og var Daníel 53.
í rásrööinni. Hann lenti svo í 19.
sæti í keppninni á tímanum
1:50,88. Guömundur Jóhannsson
varö 26. á 1:52,51 og Árni G. Árna-
son 33. á 1:53,88. Sigurvegari varö
Torjus Berge, Noregi, á 1:45,11 og
annar Magnus Bergs, Svíþjóö, á
1:45,91.
Daníel fókk 67,23 FlS-stig fyrir
þetta mót og er þaö veruleg bæt-
ing miöaö viö hans fyrrí árangur.