Morgunblaðið - 28.12.1984, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984
Símamynd/AP.
Leifar farangursgeymslu ítölsku lestarinnar, sem sprengd var upp á leiðinni frá Bulogna til Flórens sl.
sunnudagskvöld.
Bologna:
Fimmtán fórust í
járnbrautarsprengingu
Hologna, Íulíu, 26. deæmber. AP.
LÖGREGLUYFIRVÖLD í Bologna á Ítalíu skýrðu frá
því í morgun að tekist hefði að bera kennsl á fjórtán
af þeim fimmtán sem létust á Þorláksmessu þegar
sprengja sprakk á járnbrautarstöðinni í borginni. Um
eitt hundrað og áttatíu manns slösuðust, þar af 41
alvarlega. Lögreglan telur að hér hafi hægri öfgamenn
verið að verki. Jóhannes Páll páfi II lýsti hryggð sinni
og andstyggð á þessu voðaverki og sagði að það hefði
skyggt á gleði jólanna og þann frið sem væri inntak
jólaboðskaparins.
Union Carbide neitar ásökunum:
Engar tilraunir með
efnavopn í Bhopal
Skaðabætur
vegna gas-
sprengingar
Mexíkóborg. 27. desember. AP.
HIÐ RÍKISREKNU olíuframleiðslusambönd, Pemex, hafa tilkynnt að hafist
verði handa þegar í byrjun hins nýja árs, að greiða þeim skaðabætur sem
eiga um sárt að binda og eiga sannanlega kröfu á slíku, vegna gasspreng-
ingarinnar í Mexíkóborg í síðasta mánuði. 490 manns létu þar lífið og mörg
hundruð særðust.
Talsmenn Pemex gátu þess í til-
kynningu sinni, að alis hefðu 421
manns gert skaðabótakröfur
vegna eignatjóns og næmu þær
kröfur 2,3 milljónum dollara.
Samtökin vildu ekki geta þess hve
margir hefðu krafist skaðabóta
vegna meiðsla eða látinna ætt-
ingja, né hve háar þær kröfur
væru, sögðu á hinn bóginn að eng-
inn yrði hlunnfarinn og ef vel tek-
ist til ætti skaðabótagreiðslum
öllum að vera lokið í lok janúar.
Athygli vakti, að talsmenn
Pemex sögðu að vanræksla ein
væri ekki næg skýring á því
hvernig fór. Þóttu þeir gefa í skyn
með þessum orðum, að þeir teldu
að skemmdarverk hefðu verið
unnin og þau hefðu leitt til hinnar
mannskæðu sprengingar.
Tugir létust
í bflslysum
Varsjá og Port Elizábeth, jólunum. AP.
VÍÐA VORU miklar slysfarir um jól-
in og fjöldi manna lét liTið af þeim
sökum. f Port Elizabeth í Suður-Afr-
íku fér rútubifreið út af fjallvegi
fyrir utan borgina og valt. Lagðist
yfirbyggingin saman og kramdi 88
blökkumenn undir henni. Helming-
ur þeirra lét lífið en hinir slösuðust
allir meira og minna, margir lífs-
hættulega. Skilyrði til björgunar-
starfs voru erfið og margir hinna
slösuðu máttu liggja klukkustundum
saman undir brakinu áður en þeim
varð bjargað. Síðan þurfti að aka 60
kílómetra leið til næsta sjúkrahúss.
Rútan var ofhlaðin farþegum og það
verulega.
Rútubifreið, í suðvesturhluta
Póllands, lenti einnig í óhappi.
Ökumaður hennar missti stjórn á
henni á hraðbraut og ók á krana-
bíl með þeim afleiðingum að 10
manns létu lífið og 25 slösuðust.
Þrir hinna slösuðu voru lífshættu-
lega meiddir. Ökumenn beggja
farartækja voru í hópi hinna
látnu. Rannsókn er í gangi vegna
beggja þeirra slysa sem hér um
ræðir, en í Suður-Afríku er öku-
maðurinn sagður grunaður um
ölvun við akstur.
100 manns biðu bana
í sprengingu í Tíflis
Moskvu, 27. desember. AP.
AÐ MINNSTA kosti eitthundrað manns biðu bana eða særðust lífshættulega
í gassprengingu í stórri níu hæða íbúðablokk i miðborg Tíflis, að því er
brezkur fréttamaður hefur eftir sjónarvottum.
Delhí, 27. nóvember. AP.
Talsmenn Union Carbide neituðu
því í dag að gerðar hefðu verið til-
raunir með ný efnavopn í rannsókn-
arstofu verksmiðju fyrirtækisins í
Bhopal á Indlandi.
Indversk fréttastofa sagði í gær
að í sex ár hefðu verið gerðar til-
raunir í leyfisleysi með ný efna-
vopn í rannsóknarmiðstöð fyrir-
Danusois. 27. des. AP.
AMIN GEMAYEL, forseti Líbanon
kom í óvænta opinbera heimsókn til
Sýrlands í dag. Haffez Assad forseti
Sýrlands tók á móti honum með
fríðu föruneyti og þustu þeir strax til
forsetahallarinnar til skrafs og ráða-
gerða. A morgun munu þeir ræðast
við á ný. Eigi var uppi látið hvað
fram fór á fundi þeirra í dag.
Þó ekkert hafi verið gert opin-
bert, er ljóst að meginumræðuefni
forsetanna eru öryggismál Liban-
on og viðræðurnar við ísrael um
tækisins, sem er í 10 km fjarlægð
frá efnaverksmiðjunni í Bhopal,
sem verið hefur í fréttum í kjölfar
gasleka í verksmiðjunni, sem
Jeiddi til dauða rúmlega 2.000
manna.
Union Carbide neitar þessum
ásökunum, sem fréttastofan bygg-
ir á framburði ónafngreinds ind-
brottflutning ísraelshers frá suð-
urhluta Líbanon, en þær viðræður
hafa siglt í strand. Varðandi ör-
yggismálin þá er það áhyggjuefni
beggja forseta, að illa gengur að
bera klæði á vopnin á milli drúsa
og falangista, en þeir hópar hafa
barist með oddi og egg í landinu
síðustu vikurnar og hafa bardag-
arnir svipt margan óbreyttan
borgarann lífi og limlest enn
fleiri. Helstu ráðgjafar og ráð-
herrar þeirra Assads og Gemayels
taka þátt í fundunum.
versks visindamanns, sem starfar
á sviði varnarmála. Segir Union
Carbide rannsóknarmiðstöðina
hafa hlotið viðurkenningu ind-
verskra stjórnvalda og hópi hátt-
settra indverskra vísindamanna á
sviði landbúnaðarvísinda væri
kunnugt um allt rannsóknarstarf
þar sem hann heimsækti miðstöð-
ina reglulega.
Aðalráðgjafi Kongress-flokks-
ins um lögfræðilec at.riði varaði
fólk er varð illa úti er eiturgas
slapp út frá verksmiðjunni í Bhop-
al við því að ráða sér bandaríska
lögfræðinga til að flytja mál sitt
gegn Union Carbide. Lögfræðing-
urinn kveðst óttast að bandarískir
lögfræðingar muni semja um bæt-
ur framhjá dómstólum og að slíkt
muni andstætt hagsmunum fórn-
arlamba eitrunarinnar.
Skýrt var frá því í Delhí í dag að
Union Carbide hefði sótt um leyfi
fyrir þvi að fá að hefja að nýju
framleiðslu í verksmiðjunni f
Bhopal.
Fréttamaðurinn hefur eftir
sjónarvottum að gífurleg spreng-
ing hafi orðið í fjölbýlishúsinu um
klukkan sjö að morgni 2. desem-
ber. Stór hluti hússins hvarf
hreinlega er sprengingin tætti
hluta þess í sundur.
Talið er að sprengingin hafi
orðið vegna gasleka í húsinu.
Sjónarvottar segjast hafa séð
björgunarmenn flytja a.m.k. 100
látna íbúa eða stórslasaða á brott
og að enn væru að finnast lík í
rústunum.
Byggingin er ein hin stærsta í
Tíflis, níu hæða og með sex inn-
göngum. Spurðist slysið ekki út
fyrr en þremur vikum seinna er
brezkir og franskir blaðamenn
voru á ferðalagi í Grúsíu f boði
sovézka utanríkisráðuneytisins.
Reyndu þeir að komast að bygg-
ingunni er þeir fréttu af spreng-
ingunni en var þá tjáð af leiðsögu-
mönnum sínum að ekki væri nóg-
ur tími til þess vegna brottferðar
flugvélar þeirra til Moskvu.
Starfsmaður ráðuneytisins
staðfesti að gassprenging hefði
orðið í húsinu vegna gasleka i
kjallara þess. Neitaði hann að
skýra frá manntjóni, en sagði að
sprengingin hefði átt sér stað er
viðgerðarmenn voru að athuga
lekann.
í þingi Grúsíuríkis var á dögun-
um lesin upp stutt yfirlýsing þar
sem sagði að sprengingin hefði
komið niður á 35 fjölskyldum, en
aðrar upplýsingar ekki gefnar.
Stjórnarblaðið Izvestia sagði 18.
desember í stuttri málsgrein frá
sprengingu í kjallara níu hæða
blokkarbyggingar í Tíflis 2. des-
ember, en skýrði ekki frá mann-
falli. Var sagt frá þessu í langri
frétt um gassprengingu í borginni
Ufa í ÚraÍfjöllum þar sem 3 hefðu
látið lífið.
Ekki var sprengingin í Ufa
tímasett en í fréttinni sagt frá
gassprengingu í 70 íbúða byggingu
í Zelinograd 22. nóvember og fimm
hæða blokk í Baku 5. desember.
Ekki var sagt hvort manntjón hafi
orðið.
Hungruðum boðnir golfskór,
ávaxtasulta og grænar baunir
Addis Ababa, 27. deseraber. AP.
ÓH/ETT er að segja að um heim
allan hafi verið brugðist vel við
söfnun ýmissa stofnana sem vinna
að hjálparstarfi á hungursvæðun-
um í Eþíópíu, en stofnanir þessar
kvarta þó stundum undan því að
gjafirnar koma ekki að tilætluðum
notum.
Þannig sendi Jórdanía reið-
innar ósköp af ávaxtasultu,
Austur-Þýzkaland sendi skips-
farma af niðursoðnum grænum
baunum, Oxfam-hjálparstofnun-
inni í Bretlandi voru boðnar 35
lestir af spagettí og nokkur
fyrirtæki í New York voru langt
komin með að reisa loftbrú til að
flytja 50 þúsund skópör, þ.á m.
háhælaskó og golfskó.
fbúar hásléttu Eþíópíu hafa
liðið uppskerubrest ár eftir ár
vegna þurrka. Aðalfæða þeirra
hefur jafnan verið geitakjöt og
gufubakað flatbrauð, sem þeir
kalla „injera". Neyðin hefur þó
rekið þá til að reyna ýmsar
fæðutegundir aðrar. Starfsmenn
við hjálparstarf í Eþíópíu segja
gefendur oft meira umhugað um
hvað þeir láta af hendi rakna
fremur en hvað helzt komi að
gagni.
Þá segja hjálparstofnanir að
sum fyrirtæki hafi litið á neyð-
ina í Eþíópíu sem gott tækifæri
til að losa sig við varning sem
þau annars losni ekki við og
krækja sér þannig í skattaaf-
slátt. Spurst hefur einnig að
fyrirtæki í Bandaríkjunum hafi
sent skipsfarm af niðursoðnum
túnfiski, sem talin var óhæfur til
neyzlu. Jafnframt að lyfjafram-
leiðendur hafi gefið útrunnin lyf.
Gemayel og Assad funda