Morgunblaðið - 28.12.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1984
37
Stykkishólmur:
Aukning á nýtingu
hótelsins á árinu
AÐALFUNDUR Mótelfélagsins l»órs
í Stykkishólmi var haldinn í Félags-
heimili Stykkishólms, laugardaginn
15. des. sl. Var vel mætt á fundinum.
Gissur Tryggvason formaóur félags-
ins setti fundinn og Finnur Jónsson
kosinn fundarstjóri en Arni Helga-
son fundarritari.
Formaður skýrði frá starfsemi fé-
lagsins sl. ár og kom í ljós að rekst-
ur hafði aukist um 95% milli ára.
Nýting hótelherbergja hafði aukist
að mun og öll þjónusta. Sú ný-
breytni var í rekstri að hraðbátur
hafði verið leigður til að annast
ferðir um eyjasund og út um eyjar.
Hafði Pétur Ágústsson umsjón með
þeim ferðum. Nýttu þessa þjónustu
um 800 manns á þessu sumri og með
tilliti til þessarar byrjunar er verið
að athuga um veglegri farkost og
hefir Pétur verið að athuga þessi
mál betur og m.a. fór hann til Nor-
egs til að líta á báta sem gætu verið
heppilegri. Er þetta nú allt nánar í
skoðun,
Eins og áður hefir verið skýrt frá
var sl. sumar eitt hið votviðrasam-
asta og umhleypingasamasta við
Breiðafjörð og hafði það auðvitað
sín áhrif á rekstur hótelsins, en
þeim mun eftirtektarverðari er
reksturinn, en þar kemur fram hve
vel hótelið er rekið og hefir upp á
margt að bjóða og þeir sem hafa gist
á hótelinu bera'því gott orð og koma
aftur og benda vinum sínum á.
Ráðstefnuhald í sambandi við hótel-
ið og félagsheimilið hefur aukist og
önnur þjónusta svo sem afmælis-
veislur og erfisdrykkur. Leysir hót-
elið þetta allt fyrir bæjarbúa. Gagn-
fræðaskólinn hefir verið til húsa í
hótelinu undanfarin ár, en nú líður
senn að því að hann flytji í nýju
skólabygginguna og þá losnar mikið
rými og er nú hugað að nýtingu þess
svo sem kostur er.
Landssamband
vörubifreiðastjóra:
Útboð tilræði
við búsetu og
afkomu fólks
úti á landi
Á NÝAF'ST()ÐNU þingi Landssam-
bands vörubifreiöastjóra, hinu 16. í
röAinni sem haldið var i Reykjavík 24.
og 25. nóv. sl., fóru fram ítarlegar
umra öur um þá þróun síAustu ára, aA
forgangsréttur vörubílstjóra í heima-
byggðum hefur veriA sniAgenginn,
ýmist af utanaðkomandi verktökum
eða verktökum í heimabyggð, og valdi
verulegri röskun á afkomuskilyrðum
vörubílstjóra, sem reka þjónustu-
stöAvar í flestum byggðarlögum.
Harmaði þingið þá þróun, sem
orðin er í útboðsmálum á vegum
þess opinbera í vega-, hafna- og
flugvallargerð á landsbyggðinni, og
telur að tryggja verði að heima-
menn njóti síns forgangsréttar til
að vinna við þessar framkvæmdir.
Þingið telur útboð framangreindra
verkefna vera tilræði við búsetu og
afkomuskilyrði fólksins á lands-
byggðinni, svo sem fjölmörg dæmi
sanni.
í stjórn til tveggja ára voru
kjörnir: Herluf Clausen, Reykjavík,
formaður, og meðstjórnendur Björn
Pálsson, Egilsstöðum, Guðlaugur
Tómasson, Keflavík, Sigurður Ingi-
marsson, Reykjavík, Sveinn Árna-
son, Skagafirði, Þorsteinn Jónsson,
Árnessýslu, og Ævar Þórðarson,
Akranesi.
(ílr rrétUlilkynninKu)
^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Starfslið hótelsins er um 20
manns. Hótelstjóri er Sigurður
Skúli Bárðarson og voru honum
þökkuð farsæl störf samt starfsliði.
Reikningar félagsins voru lagðir
fram með rekstrartekjum og hafa
skuldir hótelsins lækkað að mun og
skuldir mjög viðráðanlegar. Hlutafé
er nú rúmar 20 millj. en skuldir
samtals 5 millj. Hótelbyggingin er
metin í dag á 42 millj.
I stjórn voru kjörin Gissur
Tryggvason, Einar Sigfússon og
Ólafur Steinar Valdemarsson.
K/\nr\A nui 'ic* I