Morgunblaðið - 05.01.1985, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985
tPjfc
46
Fagan viðurkennir
að Liverpool-liðið
sakni Souness
Frá Bob Htwwny, Iréttamanni Morgunbittéaina á Englandi.
JOE FAGAN, framkvœmdastjóri
Liverpool, lét hafa eftir aér (
fyrata skipti, eftir leikinn viö
Watford é dögunum, að þad heföi
verið mikill missir fyrir lið sitt að
Graeme Souness var seldur til it-
alíu í sumar.
.Ég gerði mér ekki grein fyrir því
aö þaö heföi svo mikil áhrif á liö
mitt aö Souness færi,“ sagöi Fag-
an.
Eftir aö Fagan sagöi þetta var
haft eftir Souness sjálfum, frá
heimili hans á Ítalíu, aö hlekkurínn,
sem vantað heföi i keöju Liv-
erpool-liösins í vetur, væri ekki
hann sjálfur heldur lan Rush. „Viö
lékum hvaö eftir annaö illa í fyrra-
vetur, en unnum engu aö síöur viö-
komandi leiki vegna þess aö Rush
náöi aö skora. Hann hefur veriö
mikiö meiddur i vetur og ekki náö
sér jafnvel á strik — og þaö er
stærri ástæöa fyrir því aö liöinu
hefur ekki gengið betur en raun
ber vitni. Ég er hins vegar á þeirri
skoöun aö Liverpool muni vinna
bikarkeppnina í vor — og enginn
ætti aö afskrifa þaö í keppninni um
Englandsmeistaratitilinnr sagöi
Souness.
KA sigraði
Þór 30—16
EINN leikur fór fram í 2. deild ís-
landsmótsins ( handknattleik (
gærkvöldi. KA sigraöi Þór með
miklum yfirburöum, 30—16. í
hálfleik var staðan 18—8. Friðjón
var markahæstur í liði KA meö 10
mörk en Árni skoraði flest mörk
fyrir Þór, 7.
Víkingar leika báða
leikina hér á landi
Víkingar sömdu ( gær við
júgóslavneska félagiö Crevenka
um að béðir leikir liðanna (étta
liða úrslitum Evrópukeppni bik-
arhafa í handknattleik fari fram
hér é landi.
Viöræöur hafa veriö i gangi
milli félaganna í nokkurn tima en
samningar náöust ekki fyrr en í
gær.
Fyrri leikurinn fer fram í Laug-
ardalshöll föstudagskvöldiö 25.
þessa mánaöar og sá síöari á
sunnudeginum 27. janúar.
Crevenka kemur meö sextán
manna hóp hingað til lands — en
þaö sem stóö í vegi fyrir þvi um
tima aö báöir leikirnir yröu hér á
landi var aö Júgóslavarnir vildu
koma meö mun stærri hóp til
landsins.
Víkingar greiöa feröir hópsins
hingaö til lands svo og hótei-
kostnaö, auk nokkurs annars
kostnaöar. „Þetta veröur okkur
dýrt, en viö leggjum allt i sölurnar
til aö komast áfram og teljum
möguleika okkar mun meiri fari
báöir leikirnir fram hér á landi,"
sagöi Hallur Hallsson, stjórnar-
maöur í handknattleiksdeild Vík-
ings, í samtali viö Morgunblaöiö í
gærkvöldi.
Horgunblaðið/Júllus.
• „Af þeim titlum og viöurkenningum #em ég hef fengið é síöasta éri, þé þykir mér vænst um kjðr
íþróttamanns érsins hér é íslandi," sagöi Ásgeir Sigurvinsson knattspyrnumaöur í gær eftir að hann hlaut
titilinn íþróttamaöur érsins. Á érinu sem var að líöa hlaut Ásgeir hverja viðurkenninguna af annarri. Var
kjðrinn leikmaöur érsins í V-Þýskalandi af leikmönnum 1. deildar og var í 13. sæti sem einn af bestu
knattspyrnumönnum heims hjé hinu virta blaði „World Soccer“.
Ásgeir Sigurvinsson:
„Þykir vænst um
þessa viðurkenningu“
AF ÖLLUM þeim viðurkenníngum
og hóli sem ég fékk é sföasta éri
þykir mér vænst um þé útnefn-
ingu sem ég hlaut í dag. Síöast-
liðid ér var einstaklega gott
íþróttaér é islandi og hjé íslensk-
um íþróttamönnum é erlendri
grund og það er mér mikill heiður
að veröa fyrir valinu sem fþrótta-
maður érsins. Það eru í það
minnsta þrír til fjórir íþróttamenn
sem voru ( efstu sætunum sem
éttu allir skilið aö hljóta titilinn
Iþróttamaður érsins 1984, sagöi
Asgeir Sigurvinsson eftir að hann
hafði hlotiö útnefningu sem
íþróttamaður érsins 1984. Þetta
er (annað sinn sem Ásgeir Sigur-
vinsson hlýtur titilinn. Hann var
útnefndur fyrir tíu érum, érið
1974.
Ásgeir er mjög vel að útnefn-
ingunni kominn. Eftir mðrg ér (
eldlínunni varð hann Þýska-
landsmeistari í knattspyrnu með
liöi sínu, Stuttgart, og é síöasta
érí var hann jafnframt valinn (
hóp bestu knattspyrnumanna
heíms eins og skýrt hefur verið
fré. Við inntum Ásgeir eftir þvi
hvað væri honum efst í huga þeg-
ar hann hugsaöi til baka til
íþróttaviöburða érsins sem er
nýliðið.
— Þaö er enginn einn leikur
sem er mér minnisstæöastur og
ekkert eitt atvik á leikvelli sem
stendur verulega uppúr. Hinsvegar
eru mér minnisstæöar móttökur
þær sem viö leikmenn Stuttgart
fengum þegar meistaratitillinn var í
höfn hjá okkur eftir síöasta leikinn
í „Bundesligunni“ þegar keppnis-
tímabilinu lauk í fyrra. Stemmning-
in var hreint út sagt stórkostleg og
þaö veröur manni ógleymanlegt
þegar leikmönnum var ekiö í
opnum bifreiöum frá leikvanginum
aö ráöhúsi borgarinnar. Þetta var í
fyrsta sinn sem Stuttgart tryggöi
sér meistaratitilinn í 32 ár og þaö
kunnu stuðningsmenn Stuttgart
svo sannarlega aö meta. Sú stund
er því efst í huga mér.
Nú hefur Stuttgart ekki gengíö
vel þaö sem af er keppnistímabil-
inu. Hverju er um aö kenna?
— Fyrst og fremst því aö viö
höfum ekki leikiö meö sama liö og
vann meistaratitílinn í fyrra. Leik-
menn hafa átt viö þrálát meiösl aö
stríöa og leikmenn hafa veriö
færöir til i stööum og þaö gefur
ekki góöa raun. Liöiö hefur ekki
náö réttum takti í leik sinn en ég á
von á því aö þaö lagist i siöari
umferöinni því aö þá munum viö
aö öllu forfallalausu leika meö
sama mannskap og vann meist-
aratitilinn.
Nú er því oft haldiö fram aö ef
þú leikur vel þá leiki liö Stuttgart
vel en ef þú náir ekki toppleik þá
gangi illa. Hvaö vilt þú segja um
þetta?
— Ekkert liö leikur betur en
veikasti hlekkurinn. Ég er einn af
elfefu leikmönnum og reyni ávallt
aö gera mitt besta í leik. En aö
sjálfsögöu dugar þaö ekki ein-
göngu, liöiö veröur aö vínna sam-
an sem ein heild, annars gengur
dæmiö ekki upp. Ég er því ekki
sammála þvi aö leikur Stuttgart
standi og falli eíngöngu meö minni
frammistööu.
Hiö virta knattspyrnutímarit
„World Soccer“ valdi þig sem
þrettánda besta knattspyrnumann
heimsins, er þetta ekki mesta viö-
urkenning sem þú hefur fengiö á
ferli þínum?
— Þetta er mikil viöurkenning
og mér þykir mikiö til hennar
koma, en eins og ég sagöi áöan þá
þykir mér vænst um aö vera kjör-
inn fþróttamaöur ársins á íslandi.
Sér í lagi þegar frammistaöan
íþróttafólksins var jafngóö og raun
bar vitni. En aö vera settur á meöal
bestu knattspyrnumanna heims af
sérfræöingum sem um málefni
knattspyrnunnar fjaila yljar manni,
því veröur ekki neitaö. Mér þykir
vænt um þegar vel gengur því aö
ég hef svo sannariega fengiö aö
kynnast hvoru tveggja í hinum
haröa heimi atvinnumennskunnar
þegar vel og illa gengur og aö vera
atvinnumaöur ( knattspyrnu er
enginn dans á rósum.
En eins og ávallt áöur þegar ég
hef rætt viö Asgeir sátu hógværöin
og litillætiö í fyrirrúmi, þar er svo
sannarlega íþróttamaöur á feröinni
sem miklast ekki af afrekum sínum
og vill á stundum sem minnst um
þau tala.
Litla bikarkeppn-
in innanhúss
LITLA bikarkeppnin I innan-
hússknattspyrnu verður haldin í
annað skipti é morgun, aunnu-
dag, í íþróttahúsinu é Akranesi.
Þétttakendur eru Haukar, FH,
ÍBK, ÍA og Breiðablik og veröa
leiknar tvær umferðir (1X12 mín-
útur. Keppnin hefst kl. 11.30.