Morgunblaðið - 22.01.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985
15
Sigurborg AK 375.
Scmundur Halldórsson skipstjóri ( brú Sigurborgar.
Skilyrðin í sjónum mun betri en áður
— Rætt við Sæmund Halldórsson skipstjóra á Sigurborgu AK 375
AknMsi, 17. janúr.
TVEIR stórir bátar eru gerðir út á
línuveiðar frá Akranesi og hefur afli
þeirra verrð sæmilegur. Bátarnir
Skírnir og Sigurborg róa með tvo
ganga af bjóðum (80 bjóð) enda er
oft löng sigling á miðin sem eru í
Jökuldýpinu eða Kolluálnum.
Við ræddum við Sæmund Hall-
dórsson skipstjóra á Sigurborgu
og spurðum hann um aflabrögð og
hvernig vertíðin legðist í hann.
— Aflinn hjá okkur hefur verið
misjafn en sumir bátar hafa verið
að fá ágætan afla að undanförnu
bæði í Jökuldýpinu og Kolluáln-
um. Skilyrðin í sjónum eru nú
mun betri en verið hafa á undan-
förnum árum. Nú er yfir 6° hiti
þar sem við höfum verið. Eins er
sá fiskur sem við höfum fengið
mjög vænn og því er ég frekar
bjartsýnn á þessa vertíð.
Aðspurður um reynslu hans af
kvótakerfinu sagði Sæmundur:
— Ég er alveg sammála því að
það þarf að hafa stjórn á fiskveið-
unum en það mátti deila um það í
upphafi hvernig afla var skipt.
Sérstaklega átti þetta við um það
þegar skipstjóraskipti urðu á bát-
um. Þá var reiknuð meðaltalsveiði
bátsins þrjú ár þar á undan. Mér
finnst ég hafa goldið fyrir það og
það á við um fléiri.
Nú vekur það athygli að aðeins
tveir stærri bátar frá Akranesi
stunda hinar hefðbundnu vertíð-
arveiðar. Hvar endar þetta?
— Þetta er ekki góð þróun.
Fjórir bátar hafa verið seldir eða
leigðir nú á rösku ári. Ég veit ekki
hvert stefnir í þessum málum, alla
vega hefur ekkert komið í stað
þessara skipa. Én þessi floti sem
eftir er eru mjög vel búin skip og
maður vonar að þessari þróun
verði snúið við sem fyrgt.
Nokkuð að lokum?
— Það sem er í dag okkar
mesta áhyggjuefni er að geta
mannað skipin að fullu með
mönnum með full réttindi. Launa-
kjör þessara manna á skipunum
eru það lág að mun betur launuð
störf finnast í landi. Við hðfum
verið blessunarlega lausir við
þennan vanda hingað til en nú
vantar okkur stýrimann, og ef það
er satt að binda eigi þau skip við
landfestar sem ekki hafa réttinda-
menn við stjórnvölinn líta þessi
mál illa út, sagði Sæmundur Hall-
dórsson skipstjóri.
JG.
Kjarvalsstaðir:
Breyting-
um á lofti
og lýsingu
frestað
NÚ hefur verió ákveðið að fresta
framkvæmdum við breytingar á lofti
og lýsingu í sýningarsöium Kjar-
valsstaða til áramóta 1985—1986.
Frá upphafi hafa sýnendur á Kjar-
valsstöðum verið óánægðir með
þcssi atriði. Ástæðan fyrir frestun-
inni er sú að vegna verkfallsins í
haust bárust útboðsgögn ekki í tíma.
Að sögn Stefáns Hermannsson-
ar hjá Borgarverkfræðingi er nú
verið að kanna tilboðin sem bár-
ust, en þau voru opnuð í desember
sl. Upphaflega var áætlað að
framkvæmdir yrðu í janúar og
febrúar 1985 og voru engar sýn-
ingar bókaðar í húsinu á þeim
tíma. En vegna fyrrgreindra tafa
var ákveðið að fresta framkvæmd-
unum.
Þóra Kristjánsdóttir listráðu-
nautur sagði að engar sýningar
væru í húsinu í janúar. Timinn
væri notaður til að skipta um rúð-
ur og gera við ýmislegt. í febrúar
verður Sveinn Björnsson listmál-
ari með sýningu. Hann hafði pant-
að þennan tíma fyrir löngu síðan
en fékk synjun, þar sem húsið átti
að vera lokað. Þegar ákveðið var
að fresta breytingunum var haft
samband við hann og hann ákvað
að nota þennan tima, þrátt fyrir
stuttan fyrirvara. Sýning hans
hefst 2. febrúar og stendur I þrjár
vikur. í lok febrúar verða þær
Kristjana Guðnadóttir leirlista-
maður og Rut Rebekka Sigur-
jónsdóttir listmálari með sýn-
ingar a Kjarvalsstöðum.
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
ISÖl -gröfur
\W v x
l V? / y ■ 2 l v 1 v jA
LANDSFRÆG
IHÖRKUTÓL
gröfurnar hafa fyrir löngu sannað tilverurétt sinn á
íslandi. Mikil útbreiðsla þeirra, styrkleiki og ending bera
því glöggt vitni.
En sérfræðingar JCB halda stöðugt áfram að þróa og
endurbæta vélarnar, eins og JCB Dx4 grafan sannar.
Hún er frábærlega vel hljóðeinangruð, með opnanlega
framskóflu, og hinni ómetanlegu skotbómu fylgja tvær
grafskóflur. Auk þess er hægt að fá við hana ótal
aukahluti, svo sem lyftaragaffla, kranakróka, götusópa,
snjóplóga o.fl. o.fl.
Og vegna hagstæðra samninga við JCB-verksmiðjurnar
getum við nú boðið JCB gröfurnar á ótrúlega láguverði.
Hringið í síma 81555 eða lítið
við og leitið nánari upplýsinga.