Morgunblaðið - 22.01.1985, Page 26

Morgunblaðið - 22.01.1985, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985 Nýútskrifaðir stúdentar Fjölbrautaskóla Suðurlands. Morgunblaðiö/Haukur Þorlákur Helgason skólameistari afhendir treimur nemendum viðurkenn- ingu: Bárði Árnasyni og Jóni Bjarnasyni. „Öllu er afmörkuð stund“ Frá brautskráningu á haustönn Fjölbrautaskóla Suðurlands Selfossi, 20. janúar. I GÆR, laugardaginn 19. janúar, lauk 7. starfsönn Fjölbrautaskóia Suðurlands á Selfossi. Brautskrán- ing nemenda fór fram í Selfoss- kirkju þar sem 24 nemendur voru brautskráðir, 13 stúdentar, 7 af iðnbrautum og 4 af skemmri bók- námsbrautum. Þorlákur Helgason gegnir starfi skólameistara en Þór Vigfússon skólameistari er í árs leyfi. Á liðinni önn stunduðu 422 nemendur nám í dagskóla og 100 í öldungadeild. Frá því skólinn hóf starfsemi sína hefur brautskráning nem- enda farið fram í Selfosskirkju við hátíðlega athöfn og svo var einnig nú. Við upphaf athafnarinnar gekk kór Fjölbrautaskólans syngj- andi inn kirkjugólfið. Kórinn söng síðan milli atriða athafnarinnar undir stjórn Jóns Inga Sigur- mundssonar. Þorlákur Helgason skólameist- ari fór i upphafi nokkrum orðum um starfsemi liöinnar annar sem hann sagði hafa verið með nokkuð sérstökum hætti og nefndi þar sérstaklega verkfall opinberra starfsmanna sem kom illa við Séra Eiríkur J. Eiríksson og frú Kristín, kona hans, voru meðal gesta við brautskráningu stúdenta. starfsemi skólans. Skólastjórn mat aöstæður þannig að bæta þyrfti nemendum upp hvern kennsludag sem féll niður í verk- falli. Þetta var gert með þeim hætti að kennt var á laugardögum og prófum í desember frestað fram í janúar. Stúdentsprófíð er góður áfangi HULDA Vilhjálmsdóttir er húsmóðir á Selfossi ásamt því að vinna á skrifstofu. Hún hóf nám í öldunga- deild fyrir 5 árum, þá í Hveragerði þar sem öldungadeildin fór fyrst af stað. „Þetta hefur auðvitað verið erf- itt,“ sagði Hulda aðspurð um hvernig það hefði verið að stunda námið samfara öðrum störfum. „Annars er kannski betra að spyrja bóndann. Ég fór rólega af stað í þessu en tvö síðustu árin hef ég verið alveg á fullu og þá er auð- vitað ekki hægt að sinna öllu. En þó þetta sé erfitt þá er það ákaf- lega gefandi og þar er ástæðan fyrir þvf að maður er að þessu. Það hefur verið ákaflega gaman að stunda námið og kynnast öðr- um nemendum og kennurunum." Hvað er framundan? „Ég ætla í þrjár greinar á næstu önn, síðan er ekkert ákveðið. Það kitlar auðvitað að halda áfram en þetta er góður áfangi að hafa stúdentsprófið." - Sj. Hulda Vilhjálmsdóttir Alls stunduðu 422 nemendur nám í dagskóla og 100 í öldunga- deild skólans. Þorlákur lýsti sér- stakri ánægju sinni með starfsemi öldungadeildarinnar og viðbrögð verkalýðsfélaga við þeim náms- tilboðum sem boðið var upp á. Fjölbrautaskóli Suðurlands er nokkuð sérstæður að því leyti að segja má að skólinn sé húsnæðis- laus. Kennt er á 8 stöðum á Sel- fossi og Þorlákur lagði áherslu á það að nú væri svo komið að ekki yrði við slíkt unað lengur. Nú er unnið við að steypa upp fyrri áfanga nýs skólahúss við Tryggva- götu og ráðgert að taka þá bygg- ingu í notkun 1987. Þorlákur gat sérstaklega hinnar myndarlegu bókagjafar sr. Eiríks J. Eiríkssonar og Kristínar Jóns- dóttur, konu hans, og kvaðst þess fullviss að hún yrði mikill stuðn- ingur við starf skólans. 24 nemendur brautskráðir Alls voru brautskráðir 24 nem- endur, 13 luku stúdentsprófi, 7 prófi af iðnbrautum og 4 nemend- ur af skemmri bóknámsbrautum. Einn nemandi lauk stúdentsprófi úr öldungadeild og er sá fyrsti sem það gerir. Það var Hulda Vil- hjálmsdóttir, húsmóðir og skrif- stofustúlka á Selfossi. Einn nem- andi, Þórir Hergeirsson frá Sel- fossi, lauk prófi af tveimur braut- um, stúdentsprófi af íþróttabraut og prófi af iðnbraut tréiðna. Hann er sá fyrsti sem lýkur prófi af tveimur brautum samtimis. Nokkrir nemendur fengu viður- kenningu frá skólanum fyrir frammistöðu sína. Bárður Árna- son og Jón Bjarnason hlutu viður- kenningu fyrir góðan námsárang- ur. Hulda Vilhjálmsdóttir viður- kenningu fyrir góðan námsárang- ur og afburða samviskusemi. öss- ur Friðgeirsson hlaut viðurkenn- ingu fyrir góðan námsárangur í faggreinum iðngreina. Þórir Hergeirsson viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, iðni og áhuga og Ingunn Gunnarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir ástundun og framfarir í námi. Eftir afhendingu prófskírteina ávarpaði skólameistari braut- skráða nemendur og gesti: „Gleymið ekki þeirri ábyrgð sem er að vera maður." „Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefir sinn tíma. Að fæðast hefir sinn tíma og að deyja hefir sinn tíma; að gróðursetja hefir sinn tma og að rifa það upp, sem gróð- ursett hefir verið, hefir sinn tíma; að deyða hefir sinn tíma og að lækna hefir sinn tíma; að gráta hefir sinn tíma og að hlæja hefir sinn tíma ... Þessi fleygu orð úr heilagri ritn- ingu kalla á okkur, minna okkur á að í dag er sannarlega uppskeru- hátíð. 24 nemendur hirða upp- skeru síns erfiðis, metna á mæli- stiku þess sannleika sem skólan- um sem mennta- og fræðslustofn- un er uppálagt að kveða. Vissulega ekki algildur sannleikur. Það mun tíminn leiða í ljós. Uppskeran er hins vegar ykkar. Það er mest um vert. Hún er það veganesti sem þið berið í farteskinu frá þessari stasjón mót framtíðinni. Verið þess minnug að það tekur tíma að gróðursetja og það má einnig rífa upp það sem hefur ver- ið gróðursett. Hlúið að gróðrinum. Leitið áfram sannleikans, hann mun gera ykkur frjáls. Við hljótum þó að efast um sannleikann. Er það t.d. sannleik- ur að „sérhver hlutur undir himn- inum hafi sinn tírna"? Er ekki ein- mitt í dag verið að storka því eðl- isfræðilega lögmáli að „öllu sé af- mörkuð stund"? Getum við ekki í dag gert það sem okkur langar til á engum tíma, tölvan flytur á augabragði heim í stofu sanninn um hið óræða, kallar fram í hugann spurningar um það sem ekki er til en verður sannleikur í ókominni framtíð, hún átelur okkur, tölvan krefst þess að við flökkum með inn Trésmíðin lá vel viö stúdentsprófinu ÞÖRIR Ilergeirsson lauk námi af tveimur brautum, stúdentsprófí af íþróttabraut og prófi í húsasmíði af iðnbraut tréiðna. „Þetta hefur tekið 8 annir, ég sleppti einni önn og vann við fagið,“ sagði Þórir þegar han var tekinn tali að lokinni afhendingu skírteina. „Ég fer í sveinsprófið í vor. Framundan er vinna við húsa- smíði fram á haustið 1986 en þá ætla ég mér í jþróttakennaraskól- ann á Laugarvatni þrátt fyrir lág- laun kennara." Hvers vegna próf af tveimur brautum? „Frá því í 8. bekk hef ég unnið á sumrin hjá byggingameistara og það lá alveg beint við að taka trésmíðina með íþróttabrautinni, þetta kom eiginlega af sjálfu sér.“ Hvernig er að vera í húsnæðis- lausum skóla? „Það hefur verið gott að því leyti að maður hreyfir sig milli tíma. Fólk er rjótt í kinnum þegar það kemur í tíma. Annars held ég að fólk hugsi ekki um það í þessum skóla þó leggja þurfi á sig hlaup milli tíma. Námið sjálft er meira virði en svo að slíkt sé látið vera hindrun, en auðvitað er nauðsyn- legt að fá nýja húsið sem fyrst.“ Þórir Hergeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.