Morgunblaðið - 22.01.1985, Page 42

Morgunblaðið - 22.01.1985, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 1985 © 1984 Universal Press Syndicate hefenja. hesta. i>iL söLu íyrr en cu fimmtucl<a.gir^rv.•,' ást er... ?Z3 ___ad svífa sem í draumi... TM Rta U.S. Pal. 0*f -aH rlflhte resarved »1984 Los Angeles Times Syndicale Með morgunkaffinu Gæti hann ekki verið nokkurs konar sýnishorn fyrir ágæti vör- unnar? Bréfritari álítur að féstureyðingar séu óhæfuverk. Berjumst gegn fóstureyðingum nei, fyrir hann er til miklu þægi- legri aðferð þ.e. að láta sig hverfa. Er þá verið að hjálpa barninu? Um það ættum við ekki að tala í þessu sambandi. Er virkilega til það fólk (konur og karlar) sem gengur um í þoku og reyk blekkingarinnar og vill ekki skilja að við erum að drepa börnin okkar? Hvenær hlýtur barnið fullan rétt til lífs? Er það á 12. viku meðgöngunnar eða máski aldrei eins og í einbirnaveldinu Kína? Mörgum er vafalaust í fersku minni mynd um þetta efni. Þar veigruðu menn sér ekki við að eyða sjö mánaða gömlu fóstri. Hver er raunverulega munurinn? Þessu verður að linna. Hér á ekki að þurfa nein lög um fóstur- eyðingar. Hér á að ríkja samstaða um að útrýma þessum vágesti sem fóstureyðingar eru. Áður var það ungbarnadauði nú eru það fóstur- dráp. Eitt er víst að þetta breytist ekki nema við gerum eitthvað í málinu sjálfar. Samtaka getum við áorkað miklu. Allar þessar ólánsömu og ráðvilltu konur leita væntanlega til lækna og jafnvel félagsráðgjafa. Ég held að við gætum virkjað þá í baráttunni. Mig langar til að benda á aðferð sem ég hef trú á að gæti komið að gagni. Sjálf átti ég barn fyrir ári og átti þess kost að komast í hóp áhugafólks um brjóstagjöf. Þar sá ég ótrúlega hluti gerast. Konur komu inn í hópinn, kjarklausar, svefnvana og vonlitlar að sjá. I sameiningu leystum við þau vandamál sem upp komu. Sum voru erfiðari en önnur en oftast mátti þó finna einhver ráð. Mætti ekki skipuleggja svipaða hópa kvenna sem eiga von á barni og eru í félagslegri krísu? Hættum að fara í felur með vandann. Styðjum hver aðra og leitum til aðila sem geta veitt okkur jákvæða aðstoð. Ég tel að hér sé komið verkefni fyrir heil- brigðisstéttir, félagsfræðinga, þingmenn og síðast en ekki síst, okkur sjálfar. Látið í ykkur heyra konur! Ef þú ert að hugleiða fóstureyð- ingu eða ert jafnvel ákveðin í því þá þiggðu ráð. Það má alltaf finna betri leið. Látum ekki neyða okkur til að vera þátttakendur í óhæfu- verkum sem fósturdráp eru. Ragga skrifar: Mig langar að koma að nokkrum orðum um fóstureyðingar. Það sem ýtti við mér var bréf um þetta efni sem birtist í Velvakanda 3. janúar sl. Annað slagið virðist umræða um fóstureyðingar skjóta upp kollinum. Sumir eru eindregið á móti, aðrir afar hlynntir þessu fyrirkomulagi, leiðindagati í okkar velferðarþjóðfélagi. í téðu lesendabréfi, „Fóstureyð- ingar munu alltaf eiga sér stað“, er þetta sögð eina lausnin á vandamálinu. Vafalaust úir og grúir af karlrembum en fóstureyð- ing leysir engan vanda. Hér er vafalaust of lítið gert fyrir eip- stæðar mæður eða hjón með mörg börn. Meðlög eru lág og aðstoð frá hinu opinbera að öðru leyti bág- borin. En við skulum skoða þessa sáraeinföldu og fljótlegu aðgerð sem fóstureyðingin er, frá mann- legum sjónarhóli. Hverjum er verið að hjálpa? Móðurinni? Tæplega, þar sem hún bíður oftast nær tjón á sálu sinni um lengri eða skemmri tíma. Er þá verið að hjálpa föðurnum? ó Bjarni Friðriksson júdókappi. Bjarni átt tit- ilinn skilinn Margrét skrifar: Eins og allir þeir sem eitthvað fylgjast með íþróttum, beið ég f ofvæni eftir því hver yrði kjörinn íþróttamaður ársins 1984. Raunar þóttist ég viss um að ólympíuhetj- an okkar, Bjarni Friðriksson, yrði valinn en annað kom þó á daginn. Það er einkennileg ákvörðun hjá íþróttafréttamönnum að velja mann sem leikur með erlendu liði sem íþróttamann ársins á íslandi, þó svo að Ásgeir hafi vissulega staðið sig. En Islendingar verða að fara að beina athyglinni að ein- hverjum öðrum íþróttum en knattspyrnu sem svo mjög hefur heltekið huga þeirra. Við eigum marga afreksmenn í íþróttum og þeirra á meðal er Bjarni Friðriksson. Þykir mér hann standa hæst meðal íslenskra íþróttamanna og eru margir ofar- lega fast á eftir honum. þ.á m. Ás- geir Sigurvinsson. Bjarni hefði átt þennan titil margfalt skilinn. Þetta ár kemur ekki aftur og vil ég því biðja íþróttafréttamenn að hugsa vel og vandlega út í það hvern þeir út- nefna íþróttamann ársins sem fer í hönd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.