Morgunblaðið - 07.03.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.03.1985, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 55. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 7. MARZ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afganistan: Mikið mannfall í liði Sovétmanna Nýju Delhí, S. mars. AP. SKÆRULIÐAR í Afganistan hafa gert margar árásir á sovéska her- menn í norður- og austurhluta landsins að undanfornu og er það haft eftir heimiidum, að 200 sovésk- Noregur: Tollurinn hefnir inn- rásarinnar Óaló, 6. mars. Frá Jan Erík Laure, fréttaritara Mbl. ÞEGAR Þjóðverjar lögðu undir sig Noreg árið 1940 notaði innrás- arherinn m.a. beltabfl af gerðinni Citroen. Norskur bfláhugamaður hefur nú keypt bflinn en fær hann hins vegar ekki skráðan vegna þess, að Þjóðverjum láðist að borga af honum toll á sínum tíma. „Þetta er nú það vitlausasta, sem ég hef heyrt," sagði bíl- áhugamaðurinn, Gudmund Andreassen, þegar lögfræðingar tollsins höfðu komist að þessari niðurstöðu. „Vissulega réðust Þjóðverjar inn í Noreg en ekki get ég að því gert þótt innrás- arherinn hafi gleymt að koma fyrst við á tollskrifstofunni." Lögfræðingar tollsins skrif- uðu Guðmundi bréf og hótuðu að gera bílinn upptækan til að öllu réttlæti væri fullnægt en eftir að málið vitnaðist hafa blöðin gert sér mikinn mat úr því og kerfisvitleysunni, sem þau kalla svo. Það er því ekki loku fyrir það skotið, að Guð- mundur fái bílinn eftir allt sam- an þótt gleymst hafi að tollaf- greiða hann í innrásinni fyrir 45 árum. ir og afganskir stjórnarhermenn a.m.k. hafi verið felldir. Hafa átök- in verið hörðust skammt frá landa- mærunum við Pakistan. Afganskir skæruliðar hafa set- ið um Barikot-varðstöðina skammt frá landamærum Pakist- ans í nærri tvo mánuði og hafa sovéskir hermenn fjórum sinnum orðið frá að hverfa þegar þeir hafa reynt að rjúfa umsátrið. Misstu þeir meira en 12 skrið- dreka og sjö herflutningabíla við þær tilraunir. í Samarkhel-héraði lögðu skæruliðar undir sig tvær her- stöðvar stjórnarhersins að sögn heimildamanna, sem einnig sögðu frá miklum átökum í Khandahar þar sem tvær sovésk- ar flugvélar voru skotnar niður. í Khandahar bjuggu áður 225.000 manns en nú er íbúafjöldinn þar aðeins 20.000. Skæruliðar í Panjsher-dal gera enn árásir að næturlagi á stöðvar Sovétmanna og stjórnarhersins. RÆTT UM HVAL OG SEL Morgunblaiid/Ól.K.Mag. Jonathan Motzfeld, formadur landstjórnar Grænlands, ræóir rið Kristján Loftsson, forstjóra Hvals hf., fyrir utan Þjóðleikhúsid, þar sem Norðurlandaráðsþing stendur nú yfir. Umræðuefnið hefur væntanlega rerið veiðar á hval og sel. Thailendingar í hörðum bardögum við V íetnama Aranyaprathet, 6. mars. AP. HARÐIR bardagar geisuóu í dag milli thailenskra og víetnamskra hermanna innan landamæra Thai- lands og beittu Thailendingar jafnt stórskotaliói sem flugvélum. Hófust átökin þegar víetnamskur her réóst inn í Thailand til aó geta ráóist aftan LIBANIR TAKA VIÐ AP. Líbanskir stjórnarhermenn komu í gær til bæjarins Sabra í Suóur Líbanon en skömmu áður höfðu ísraelar flutt lið sitt þaóan. Eru ísraelar nú byrjaðir á öórum áfanga brottflutningsins frá Suóur-Líban- on. Líbanirnir eru meó þjóðfánann meó sedrusviðnum en það var einmitt meó sedrusviói frá Líbanonsfjöllum, sem Salómon þiljaói innan musterió á sínum tíma. aó búóum skærulióa vió landamær- Víetnamar réðust inn í Thailand í gær en það vakti fyrir þeim að ná á sitt vald þremur hæðum í Thai- landi til að geta gert þaðan árásir á aðalstöðvar andspyrnuhreyf- ingar Sihanouks fursta. Thailend- ingar brugðust við með ákafri 3tórskotaliðsárás og sprengju- regni úr flugvélum og hröktu inn- rásarliðið á flótta. Segjast Thai- lendingar hafa fundið lík 60 víet- namskra hermanna að mestu átökunum loknum. Enn var þó skipst á skotum seint í dag. Thai- lenskir hermenn berjast einnig við Víetnama, sem fóru inn í Thailand annars staðar til að ráðast á skæruliðabúðir Rauðra khmera. Víetnamar hafa sótt að skæru- liðabúðum Sihanouks fursta eftir fjórum leiðum en talsmenn skæruliða og thailenska hersins segja, að þeim hafi orðið lítið ágengt. Þess vegna hafi þeir reynt að fara inn í Thailand til að geta gert árásir á þær ofan af hæðun- um. Talsmaður kínverska ntanrík- isráðuneytisins sagði í dag, að ekki kæmi til mála að ræða við Víetnama um eitt eða neitt fyrr en þeir væru farnir frá Kambódíu en Sihanouk fursti hefur stungið upp á slíkum viðræðum. Sagði tals- maðurinn, að síðustu atburðir í Kambódíu sýndu, að Víetnamar hefðu nú unnið til „ærlegrar ráðn- ingar". Noregur: Leystu úr dulmáli Treholts og KGB Óðló, 6. mtra. Frá Jan Erik Lauré, fréttaritara Mbl. RÉTTARHÖLDIN yfir Arne Treholt fara nú fram fyrir luktum dyrum og veróur svo að mestu næstu tvær vikurnar. Hafa verjendur Treholts og ákæruvaldið deilt hart um lokunina en dómararnir voru henni sammála og féllust á þá röksemd saksóknarans, að þau mál, sem nú yróu tekin fyrir, vörðuóu öryggi Noregs og því ógerlegt að ræða þau fyrir opnum tjöldum. Það er ekki síst með tilliti til starfsaðferða norsku leyniþjón- ustunnar, sem nauðsynlegt þykir að loka réttarsalnum, en hermt er, að hún hafi í eltingarleiknum við Treholt beitt mjög fullkomn- um aðferðum, sem jafnvel aðrar leyniþjónustur á Vesturlöndum hafi ekki á sinu valdi. Er þá m.a. átt við hvernig henni tókst að ráða dulmálið, sem Treholt og KGB notuðu sín í milli þegar ákveðið var hvar og hvenær skyldi hittast, en ljósmyndirnar, sem teknar voru af Treholt í Vín og Aþenu, sýna, að beðið var eft- ir honum. Vitnaleiðslurnar í gær leiddu fátt nýtt í ljós nema það, að það var aldrei venjan í norska utan- rikisráðuneytinu að menn tækju með sér heim leynileg skjöl, hvað þá að „skiptast á skjölum" við sendimenn frá Austur- Evrópu eins og Treholt hefur viðurkennt að hafa gert.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.